Morgunblaðið - 30.07.2006, Page 1
STOFNAÐ 1913 205. TBL. 94. ÁRG. SUNNUDAGUR 30. JÚLÍ 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Þessi sjarm-
erandi maður
Vegferð söngvarans Morrissey sem
er væntanlegur til landsins | 22
Tímarit og Atvinna í dag
Tímarit | Dekur í dagsins önn Hversdagsleikinn gerður
skemmtilegur Gæsaveisla í Slóvakíu Atvinna | Fjölmörg
spennandi störf í boði fyrir áhugasama einstaklinga
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
SUNNUDAGUR VERÐ KR. 350
STJÓRNVÖLD í Ísrael synjuðu í
gær beiðni Sameinuðu þjóðanna um
þriggja daga vopnahlé til að hægt
yrði að koma hjálpargögnum til
nauðstaddra Líbana.
„Ísraelar geta ekki fallist á vopna-
hlé vegna þess að hryðjuverkasam-
tökin Hizbollah myndu notfæra sér
það til að safna saman almennum
borgurum og nota þá sem skildi á
átakasvæðunum,“ sagði Gideon
Meir, háttsettur embættismaður í
utanríkisráðuneyti Ísraels.
Philippe Douste-Blazy, utanríkis-
ráðherra Frakklands, gagnrýndi
ákvörðun Ísraela og sagði vopnahlé
nauðsynlegt til að koma nauðstödd-
um Líbönum til hjálpar.
Jan Egeland, sem samhæfir hjálp-
arstarf Sameinuðu þjóðanna, hafði
skorað á Ísraela og Hizbollah að
gera hlé á hernaðinum í þrjá daga til
að hægt yrði að koma hjálpargögn-
um á átakasvæðin, flytja þaðan sært
fólk, börn og aldraða.
Yfir 750.000 Líbanar á flótta
Meir sagði að Ehud Olmert, for-
sætisráðherra Ísraels, hefði þegar
samþykkt í viðræðum við Condo-
leezzu Rice, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, að sjá til þess að
flutningaleið yrði haldið opinni til að
hægt yrði að flytja matvæli, lyf og
önnur hjálpargögn til suðurhluta
Líbanons. Rice fór til Ísraels í gær til
að ræða við þarlenda ráðamenn um
hjálparstarfið og leiðir til að koma á
varanlegum friði milli Ísraela og
Hizbollah.
Yfir 750.000 Líbanar hafa neyðst
til að flýja heimili sín vegna árásanna
sem her Ísraels hóf fyrir tæpum
þremur vikum. Egeland segir að yfir
600 Líbanar hafi beðið bana í árásum
Ísraelshers, þar af þriðjungurinn
börn.
Ísraelar synja
beiðni SÞ um
vopnahlé
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
ÞESSIR golfarar voru meðal
þeirra fyrstu til að hefja hringinn í
gærmorgun. Nú stendur Íslands-
mótið í höggleik yfir, en það fer í
ár fram á Urriðavelli í Garðabæ.
Mótið hefur aldrei verið haldið á
þessum tiltölulega nýja velli sem
sumir segja að sé fallegasti golf-
völlur landsins. Í gær höfðu menn
séð þar mink, tófu og rjúpu, allt í
sama hringnum. Hafa mótshald-
arar bryddað upp á þeirri nýjung
að hafa sérstakt svæði fyrir áhorf-
endur með veitingatjöldum og
annarri aðstöðu.
Morgunblaðið/Eggert
Safna fuglum á Urriðavelli?
VIÐ fornleifauppgröft við Kolku-
ós nú í vikunni fundust annars
vegar kambur, sem talinn er vera
frá 13. öld, og hins vegar akkeri í
neðansjávarrannsóknum á svæð-
inu. Að sögn Ragnheiðar Trausta-
dóttur, fornleifafræðings sem
stýrir Hólarannsókninni og upp-
greftrinum við Kolkuós, er kamb-
urinn um 10 cm að lengd og 5–6
cm að breidd. „Þetta er bein-
kambur, sennilega úr horni, og er
hann festur saman með brons-
nöglum. Út frá bæði jarðlögum,
gerð kambsins og skreytingum tel
ég að hann sé frá Sturlungatím-
anum,“ segir Ragnheiður, en á
kambinum eru tveir skrauthringir
sem eru, að sögn Ragnheiðar,
dæmigerðir fyrir víkingaöld og
fram á miðaldir. Segir hún eftir
að aldursgreina kambinn nánar.
Aðspurð segir Ragnheiður
kambinn afar vel með farinn þótt
hann sé brotinn á öðrum end-
anum. Öðrum megin er kamb-
urinn með fína teina, en hinum
megin með grófa teina. Að sögn
Ragnheiðar er kamburinn að öll-
um líkindum innfluttur, því flestir
kambar sem fundist hafa hér-
lendis eru úr hjartarhorni og
koma frá Skandinavíu. Segir hún
kambinn geta hjálpað til við að
skýra tengslin við útlönd fyrr á
öldum.
Hvað akkerið varðar segir
Ragnheiður ljóst að fundurinn nú
staðfesti að bátar hafi legið sunn-
an við Elínarhólma, en talið er að
hólminn hafi jafnvel verið land-
fastur á öldum áður og þá mynd-
að gott skjól fyrir helstu vind-
áttum og Kolkuós því verið kjörið
skipalægi. Segir hún akkerið illa
farið og járnið tært, sem þýði ým-
ist að akkerið sé gamalt eða að
járnið í því hafi verið lélegt. Akk-
erinu verður lyft af sjávarbotni
nk. mánudag og í framhaldinu
rannsakað nánar.
Margt býr í moldinni
Að sögn Ragnheiðar hófst upp-
gröfturinn við Kolkuós þetta sum-
arið í vikubyrjun, en grafið hefur
verið við Kolkuós síðan sumarið
2003. Aðspurð segir Ragnheiður
talsvert af gripum hafa fundist
við Kolkuós. „Þetta eru minjar
allt frá landnámi fram á 14. öld,
en á þeim tíma var Kolkuós aðal-
höfnin í Skagafirðinum enda höfn
biskupsstólsins,“ segir Ragnheið-
ur og bendir á að Kolkuós sé ein
af fáum höfnum sem komi fyrir í
Landnámu, en Kolkuós er í um 16
km fjarlægð frá Hólum. Meðal
þeirra gripa sem fundist hafa við
Kolkuós má nefna keramik, járn-
potta, járnhníf, silfurpening frá
12. öld, bein smáhunda og bein
bæði sjófugla og hvala, sem og
kjarna úr plómu. Allt er þetta, að
sögn Ragnheiðar, til sýnis í
Minjahúsinu á Sauðárkróki á sýn-
ingu sem nefnist „Margt býr í
moldinni“.
Unnið í kapp við sjóinn
Aðspurð segir Ragnheiður alls
sextán manns koma að rannsókn-
inni við Kolkuós núna, tólf manns
grafi á landi, auk þess sem dansk-
ir sérfræðingar og íslenskir kaf-
arar leiti minja á sjávarbotni.
Segir hún skilyrðin fyrir neð-
ansjávarrannsókn ekki vera góð
þar sem tvær jökulár renni þarna
til sjávar og að þeim fylgi mikill
framburður. Segir Ragnheiður að
verið sé að grafa í a.m.k. fjórum
húsum við ósinn, sem eru ein-
hvers konar búðir sem notaðar
voru yfir sumartímann. „Það má
segja að við séum að vinna björg-
unarrannsóknir áður en sjórinn
tekur þetta,“ segir Ragnheiður og
bendir á að nú þegar sé margt
farið út í sjó og því fyrst og
fremst minjar eftir frá 12. og 13.
öld. „Það er mjög mikið glatað og
við erum í raun á síðustu metr-
unum áður en sjóinn étur sig að
þeim minjum sem við erum nú að
rannsaka,“ segir Ragnheiður.
Kambur frá tímum Sturlunga
Kamburinn sem fannst við Kolkuós er talinn vera
frá 13. öld. Hann er með grófa teina öðrum megin og
fína teina hinum megin og er sennilega úr horni.
Ljósmynd/Erlendur Bogason
Akkerinu verður lyft af sjávarbotni á morgun og í
framhaldinu verður það rannsakað nánar. Fundurinn
staðfestir að bátar hafi legið við Elínarhólma.
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
Kuala Lumpur. AFP. | Laganemum við há-
skóla í Malasíu verður stungið í fangelsi til
að þeir geti kynnst því af eigin raun
hvernig það er að vera hegningarfangi.
Lagadeild Íslamska heimsháskólans
skipulagði námskeiðið. „Auk þess sem
námskeiðið hjálpar nemendunum að setja
sig í spor fanga veitir það þeim innsýn í
eina af greinum dómskerfisins og sú þekk-
ing er einkum nauðsynleg fyrir verðandi
verjendur sakamanna,“ hafði dagblaðið
The Star eftir námskeiðsstjóranum.
Laganemarnir fá sömu meðferð í fang-
elsinu og fangar sem bíða eftir hengingu
eða húðstrýkingu, að sögn blaðsins.
Laganemar læra
á bak við lás og slá
London. AP, AFP. | Kassagítar, sem Paul
McCartney notaði þegar hann lærði fyrstu
gripin, var seldur á uppboði í London í
fyrrakvöld fyrir
330.000 pund, sem
samsvarar tæpum 44
milljónum króna.
Gítarinn var í eigu
æskuvinar McCart-
neys, Ians James, sem
hyggst nota féð sér til
lífsviðurværis í ellinni.
McCartney lék á gít-
arinn þegar hann fékk
John Lennon til að
leyfa sér að ganga í
hljómsveitina The
Quarrymen árið 1957.
Craig Jackson, frá Palm Beach á Flór-
ída, hreppti gítarinn. „Þetta er mjög mik-
ilvægur þáttur í rokksögunni og ég er
óumræðilega hamingjusamur maður í
kvöld,“ sagði hann. „Án þessa gítars hefðu
Bítlarnir ef til vill ekki orðið til.“
Fyrsti gítar Pauls
McCartneys seldur
Fyrsti gítarinn sem
McCartney snerti.
AP