Morgunblaðið - 30.07.2006, Síða 14
14 SUNNUDAGUR 30. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Fyrstu lýðræðislegu kosning-arnar í rúm 45 ár fara framí Lýðræðislega lýðveldinuKongó í dag. Kongó er ummargt merkilegt land. t.d.
rennur fimmta stærsta á veraldar þar
í gegn og þar er einn stærsti regn-
skógur heims. Landið sjálft er eitt
það gjöfulasta í heiminum, með dem-
anta, gull, kóbalt, úraníum, kaffi,
gúmmí, kopar og olíu innan landa-
mæra sinna. Þrátt fyrir þetta er það
nánast á sama stigi og það var fyrir
46 árum. Ráðamenn landsins hafa
iðulega farið með auðlindirnar sem
sínar eigin og þjóðin hefur lítið sem
ekkert notið góðs af.
Kongó hefur upplifað sinn skerf af
styrjöldum og milljónir hafa látið lífið
í þeim og vegna atburða þeim tengd-
um. Fjölmennasta friðargæslulið
heims er sem stendur að störfum í
Kongó og verður þar væntanlega
næstu árin á meðan nýkjörinn forseti
og þing stilla saman strengi sína,
koma á fót starfhæfum ríkisstofnun-
um og endurvekja traust almennings
á ríkinu.
Til merkis um hversu mikið starf
nýja stjórnin á fyrir höndum má
nefna að engir vegir eru á milli vest-
ur- og austurhluta landsins en flogið
er á þyrlum með kjörseðla á ákveðna
staði. Í raun veit enginn hversu
margir landsmenn eru – allt að sex
milljónum munar á talningum banda-
rísku leyniþjónustunnar, CIA, og
Sameinuðu þjóðanna.
Heimsstyrjöld Afríku
Upphaf þessa tímabils, sem hefur
einkennst af óeirðum, uppreisnum og
borgarastyrjöldum og lýkur vonandi
formlega með þessum kosningum,
má rekja aftur til ársins 1994 þegar
þjóðarmorð voru framin í Rúanda,
nágrannaríki Kongó. Það varð til
þess að þeir herskáu hópar Hutu-
manna, sem höfðu drepið nærri 800
þúsund Tútsa og hófsama Hutu-
menn, fóru yfir landamærin til
Kongó. Næstu árin stóðu svo herskáu
Kongó á krossgötum
hóparnir fyrir árásum á Tútsa og hóf-
sama Hutu-menn á landamærasvæð-
um Kongó og Rúanda.
Árið 1997 ákváðu stjórnvöld í Rú-
anda að ráða niðurlögum þeirra og
fór með her sinn yfir í Kongó. Úg-
anda tók þá við sér og bætti sínum
herjum inn í hópinn og Laurent Ka-
bila, lærlingur Che Guevara og at-
vinnuuppreisnarmaður, leiddi innrás-
arherinn frá austurhluta landsins.
Þessi her, sem naut alþjóðlegrar vel-
vildar, var samansettur úr tveimur
uppreisnarhreyfingum; Samtökum
um lýðræði í Kongó sem Rúanda
studdi og Frelsishreyfingu Kongó
sem Úganda studdi. Hann komst til
valda án þess að finna nokkurn tíma
fyrir verulegri mótspyrnu. Mobutu,
fullu nafni Mobutu Sese Seko Kuku
Ngbendu Wa Za Banga (áður Joseph
Desiré Mobutu), þáverandi einræðis-
herra Kongó, komst undan við illan
leik og fékk hæli í Marokkó en lést
þar fjórum mánuðum síðar vegna
krabbameins. Til merkis um álit Mo-
butu á sjálfum sér er gaman að segja
frá því að stundum hefur nafnið sem
hann tók upp ekki löngu eftir valda-
töku sína verið þýtt sem „haninn sem
lætur enga hænu ósnerta“.
Kabila tók strax við völdum og var
tekið sem frelsara fólksins. Brátt
kom þó í ljós að hann var engu betri
en Mobutu hafði verið. Margt var
sagt og ýmis loforð gefin en allt fór
það sömu leið og áður – peningarnir
og auðlindirnar rötuðu í vasa hinnar
ráðandi hástéttar. Kabila lét líka vera
að reka þá Hutu-hermenn, sem
stjórnvöld í Rúanda höfðu ætlað sér
að útrýma, úr landi og bauð þá vel-
komna í herinn.
Ári seinna var stjórnvöldum í Rú-
anda og Úganda nóg boðið og réðust
þau því aftur inn í landið en nú í þeim
tilgangi að knésetja leiðtogann sem
þau höfðu komið til valda. Kabila lét
sér ekki segjast og fékk Angóla, Sim-
babve og Namibíu með sér í lið og
næstu fimm árin ríkti stríðsástand í
Kongó – ástand sem stundum hefur
verið kallað „heimsstyrjöld Afríku“
og varð til þess að milljónir létu lífið.
Árið 1999 var friðarsamkomulag
undirritað en bardagar héldu áfram,
með hléum, til 2003. Laurent Kabila
var síðan myrtur árið 2001 og sonur
hans, Joseph Kabila, tók við völdum.
Hann náði að semja við stjórnvöld í
Rúanda um brottför setuliðs þeirra
frá austurhluta Kongó árið 2002 og í
lok ársins var friðarsáttmáli undirrit-
aður af öllum fylkingum.
Samkvæmt sáttmálanum átti að
koma á fót millibilsstjórn sem stefndi
að því að koma á fót fjölflokka lýð-
ræðiskerfi í landinu undir leiðsögn
Sameinuðu þjóðanna. Joseph Kabila
var þá settur forseti og tilnefndir
voru fjórir varaforsetar, úr röðum
uppreisnarmanna, stjórnarliða og
stjórnarandstæðinga.
Í lok síðasta árs, 2005, voru haldn-
ar kosningar um nýja stjórnarskrá
sem var samþykkt með yfirgnæfandi
meirihluta. Nýja stjórnarskráin kvað
á um að koma ætti á fót fjölflokka-
lýðræði og kjósa forseta og þing
næsta ár á eftir. Þær kosningar
standa yfir í dag.
Frjálsar og sanngjarnar kosningar?
Frá því að ákveðið var að efna til
kosninga hafa sumir flokkar og upp-
reisnarhreyfingar ákveðið að snið-
ganga þær. Helsti stjórnarandstöðu-
leiðtogi í Kongó, Etienne Tshisekedi,
hefur skorað á flokksmenn sína og
beðið þá að virða kosningarnar að
vettugi. Tshisekedi og stuðnings-
menn hans hafa sakað núverandi
stjórn um að ætla sér að svíkja kjós-
endur og tryggja sér sigur með rúm-
lega fimm milljón aukakjörseðlum
sem voru prentaðir og eru í vörslu
stjórnvalda. Kabila hefur aftur á móti
komið fram og sagt að þessir auka-
kjörseðlar hafi verið prentaðir til að
hægt væri að hafa þá til taks ef ein-
hverjir kjörseðlar týndust fyrir kosn-
ingar.
Annað sem kemur sér illa fyrir
kosningarnar er að sumir hlutar
AP
Stuðningsmenn Tshisekedis brenna kosningaáróðursspjald Kabilas á fjöldafundi í höfuðborginni Kinshasa í vikunni.
landsins geta vart talist öruggir. Í
hinu uppreisnargjarna og auðlinda-
ríka austri landsins ganga uppreisn-
arhópar enn lausir þrátt fyrir að
áætlanir séu í gangi um að afvopna
þá. Sumir vilja einnig meina að her-
menn í her Kongó séu valdir að ýms-
um ofbeldisverkum á svæðinu og
Sameinuðu þjóðirnar hafa farið fram
á að kongóski herinn verði skikkaður
til þess að dvelja í herstöðvum sínum
á meðan kosningarnar standa yfir.
Í austrinu þarf fólk enn að flýja
heimili sín og þurfa væntanlega
margir að kjósa undir verndarvæng
friðargæsluliðs Sameinuðu þjóðanna.
Einnig hefur verið bent á að kosning-
arnar geti hrint af stað öldu ofbeldis
þar sem sumum ættbálkum finnist
þeir vera að fá minna en þeir eiga rétt
á. Menntamenn hafa einnig bent á að
erfitt sé að koma á lýðræði vegna
spillingararfleifðar fyrrum ráða-
manna í Kongó og þeirrar venju
þeirra að veita eigin ættbálkum
stærri hlutverk í stjórnmálum og nær
útiloka aðra ættbálka frá hvers kyns
starfi fyrir stjórnvöld. Sem stendur
hafa frambjóðendur ekki beðið sér-
staklega um stuðning ættbálka sinna
umfram stuðning annarra en sú
hætta er ávallt fyrir hendi þar sem
það var iðulega gert fyrr á tímum.
Í þriðja lagi gæti það leitt til erf-
iðleika eftir kosningarnar að Joseph
Kabila, núverandi forseti landsins og
líklegasti sigurvegari kosninganna í
dag, er af mörgum landsmönnum
ekki talinn vera frá Kongó. Móðir
hans er frá Rúanda, hann ólst upp í
útlegð í Tansaníu ásamt fjölskyldu
sinni og kom ekki til landsins fyrr en
hann gerðist herforingi í uppreisnar-
her föður síns, Laurents Kabila.
Þessi atriði, auk þeirrar staðreyndar
að hann talar ekki lingala, hið óop-
inbera tungumál Kongó, gætu orðið
til þess að handstæðingar hans flétti
þóðernisstefnu og útlendingahatur
inn í kosningaáróður sinn.
Að lokum er rétt að nefna að ýmsir
andstæðingar Kabila hafa bent á að
tíminn til kosningabaráttu sé frekar
knappur og þar sem hann stjórni rík-
isfjölmiðlum hafi hann ósanngjarnan
forgang að sjónvarpi og dagblöðum.
Loksins land fólksins?
Ef kosningarnar og stjórnarskipt-
in ganga betur fyrir sig en þau hafa
gert undanfarna áratugi er augljóst
að þetta verður mikill sigur fyrir fólk-
ið í landinu og lýðræðisfrömuði hvar-
vetna í heiminum. Þjóð sem hefur
undantekningarlaust sætt hverskyns
ofbeldi og kúgunum ráðamanna allt
frá stofnun landsins árið 1885 til árs-
ins 2003 – með hléum þó – ætti sam-
kvæmt öllu ekki að vera mjög líkleg
til þess að bera þá kosti sem þykja
nauðsynlegir nútíma fjölflokka lýð-
ræðisríkjum. Stjórnarhættirnir sem
tíðkuðust í Kongó eiga það nefnilega
sameiginlegt að þeir draga úr þeim
þáttum sem þykja nauðsynlegir fyrir
lýðræði, til dæmis trausti og virðingu
fyrir lögunum. Ráðamenn landsins
hafa aldrei borið virðingu fyrir lög-
unum og hafa Mobutu og Kabila not-
að spillingu til að stjórna landinu.
Persónustjórnmál réðu ríkjum og
þeir höfðu hendur í öllu sem gerðist –
almenningur réði engu. Og til að
draga enn frekar úr vilja og þreki al-
mennings til að blanda sér í stjórnmál
þá höfðu erlend öfl gríðarleg áhrif á
þróun mála í landinu. Belgía fyrst, þá
Frakkland, Bandaríkin og ekki má
gleyma Rúanda og Úganda. Jafnvel
Che Guevara kom við sögu í Kongó.
Samkvæmt öllu ætti Kongó að sitja
sem fastast í spillingunni og eiga sér
enga framtíðarvon en mannsandinn
er ótrúlegt fyrirbæri. Kongóska þjóð-
in hefur einsett sér að koma á fót ríki
sem byggist á lögum og reglum sem
ganga yfir alla sem einn. Það er eitt-
hvað sem kongóska þjóðin hefur aldr-
ei upplifað áður. Vonum bara að þeim
takist ætlunarverk sitt.
Þrátt fyrir að landið sé eitt
það gjöfulasta í heiminum
hafa íbúar Kongó búið við
fátækt, stríðsáþján og spill-
ingu stjórnvalda. Lítið hefur
þokast í átt til framfara frá
því að síðast var efnt til lýð-
ræðislegra kosninga fyrir 45
árum. Jónas Haraldsson
segir að kongóska þjóðin
voni að eftir kosningarnar
í dag verði komið á
fót ríki sem byggist á
lögum og reglu.
Höfundur er nemi í afrískum fræðum
við háskólann í Birmingham á Englandi.
jonas@hotmail.is
Fólksfjöldi: 56 milljónir (Sam-
einuðu þjóðirnar, 2005)
Höfuðborg: Kinshasa
Stærð: 2,34 milljónir ferkíló-
metra (til samanburðar er Ísland
um 103 þúsund ferkílómetrar)
Helstu tungumál: Franska,
lingala, kiswahili, kikongo, tshi-
luba
Helstu trúarbrögð: Kristni og
íslam auk ýmissa afrískra trúar-
bragða
Meðalárstekjur: Um 9000 ís-
lenskar krónur (Alþjóðabankinn,
2006)
Meðallífslíkur: Karlar 50 ár,
konur 53 ár (CIA Factbook, 20.
júlí 2006)
Læsi 15 ára og eldri: 65% en
er þó mismunandi eftir svæðum
(CIA Factbook, 20. júlí 2006)
stjórninni. Hann er
fyrrum leiðtogi upp-
reisnarmanna og er í
forsvari fyrir samtök
sín sem nefnast
„Frelsishreyfing
Kongó“. Stuðnings-
menn hans koma úr
norðvesturhluta
Kongó en í borgara-
styrjöldinni frá 1997
til 2002 studdi Úganda
þessa hreyfingu. Bemba vill umbreyta
ríkisstofnunum og bæta stjórnun þeirra.
Azarias Manywa Ruberwa, 42 ára. Ru-
berwa er annar varaforseti úr millibils-
stjórninni en hann er leiðtogi uppreisn-
arhópsins „Samtök um lýðræði í Kongó“
sem var studdur af Rúanda í borgara-
styrjöldinni frá 1997 til 2002. Ruberwa
er lögfræðingur og er frá Suður-Kivu
sem er í suðausturhluta Kongó. Hann er
Frambjóðendur í for-
setakosningunum eru 33
talsins. Þrír helstu
frambjóðendur eru eft-
irfarandi:
Joseph Kabila, 35
ára. Kabila er álitinn
sigurstranglegasti
frambjóðandinn.
Þrátt fyrir að vera
ekki uppalinn í Kongó
er hann vel liðinn
meðal almennings
fyrir að hafa komið langþráðu friðarferli
af stað. Helstu baráttumál hans verða að
sameina landið eftir langa borgarastyrj-
öld, endurbyggja innviði stjórnkerfisins
og festa lýðræði í sessi. Hann leiðir sam-
tök sem kallast „Samtök fyrir meirihluta
forsetans“.
Jean-Pierre Bemba, 44 ára.Bemba er
einn af fjórum varaforsetum í millibils-
sagður bera sterkar
taugar til Rúanda.
Baráttumál hans
eru þau sömu og
Bembes, að betr-
umbæta ríkisstofn-
anir og taka upp
betri stjórnarhætti.
Fleiri frambjóð-
endur má nefna til
sögunnar, eins og
Nzanga Mobutu,
son fyrrverandi einræðisherrans, Just-
ine Kasavubu, dóttur fyrsta forseta
sjálfstæðs Kongós, og Guy-Patrice Lum-
umba, son fyrsta forsætisráðherra sjálf-
stæðs Kongós. Frambjóðendur í þing-
kosningunum sem fara fram samhliða
forsetakosningunum eru alls 9.707 og bí-
tast þeir um 500 sæti.
Sumir hafa hins vegar ákveðið að taka
ekki þátt í kosningunum. Etienne
Tshisekedi, 74 ára,
er formaður flokks-
ins „Bandalag um
lýðræði og félagslega
framför“. Hann var
kjörinn forseti lands-
ins á svokallaðri full-
veldisráðstefnu sem
haldin var í Zaire ár-
ið 1992 (þar sem
nafni landsins var
breytt í Lýðræðis-
lega lýðveldið
Kongó) en Mobutu tók völdin aftur
nokkrum mánuðum síðar. Hann hefur
verið í forystu stjórnarandstöðunnar í
landinu allt frá upphafi níunda áratug-
arins. Hann hefur sett sér og sínum
flokksmönnum að sniðganga kosningarn-
ar og er almennt talið að hann hefði orð-
ið öflugasti keppinautur Josephs Kabila
um forsetaembættið.
Etienne
Tshisekedi
Azarias Manywa
RuberwaJoseph Kabila
Jean-Pierre
Bemba
Helstu forsetaframbjóðendur