Morgunblaðið - 30.07.2006, Page 17
koma inn á Netið á sérstakar síður klukku-
tíma eftir að þeir eru sýndir í sjónvarpi í
Bandaríkjunum og þá get ég horft á þá
strax og þarf ekki að bíða eftir að þeir verði
sýndir hér. Ég veit um fólk hérna á görð-
unum sem á ekki einu sinni sjónvarp heldur
halar öllu efni niður og horfir á í tölvunni,
meira að segja barnaefni.“ Að hennar sögn
er ekki bannað opinberlega að hala niður
efni af Netinu en þó sé fylgst með notkun.
„Skammturinn er held ég 1 GB á mán-
uði. Ef það fer yfir það er lokað á þig
tímabundið.“ Það er ekki nema von að
námsmenn nýti sér þennan mögu-
leika á ókeypis afþreyingu. „Þeir
þættir sem ég næ mér alltaf í í hverri
viku eru Desperate Housewives,
LOST og Grey’s Anatomy. Svo hef ég
líka núna verið að fylgjast með þætti
sem hefur ekki verið sýndur hér sem
heitir Conviction.“
Dreifing á sjónvarpsefni er sífellt að
aukast því nýir þættir eru um leið gefnir
út á mynddiskum og eldri þættir
endurútgefnir. Fyrir stuttu voru
sjónvarpsþættirnir Dallas gefn-
ir út aftur og í Bandaríkjunum
er stór markaður fyrir enn
eldra efni, eins og til dæmis
skemmtiþætti Lucille Ball frá
sjötta áratugnum, I Love
Lucy. DVD-væðingin er
draumur sjónvarpsframleið-
enda og neytendur virðast vera
ánægðir. Á bresku Amazon-
vefversluninni eru sjónvarps-
þættir í sex af tíu efstu sætunum á
lista yfir mest seldu mynddiskana.
Aðsókn í kvikmyndahús fer minnk-
andi vestanhafs og vilja margir um
kenna, auk Netsins, betri og stærri sjón-
vörpum og heimabíóum. Það kemur ekki á
óvart að flestir mest seldu mynddiskanna
hjá vefverslun Amazon eru bandarískir,
enda er sjónvarpsiðnaðurinn þar í landi
stóriðja. Að sama skapi er hefð fyrir vönd-
uðu bresku efni og hafa þættir á borð við
Little Britain, The Office og Doctor Who
notið mikilla vinsælda í sjónvarpi og í
DVD-útgáfum.
Vinsældir samfelldrar frásagnar
… Síðasti þáttur endaði alveg svakalega
spennandi. Maður bara verður að sjá hvað
gerist næst. Hverjir eru „the others“? …
Þeir sem skrifa fyrir sjónvarp vestan
hafs virðast vera búnir að fullkomna
listina sem felst í því að laða áhorfendur
að skjánum viku eftir viku. Ein ástæða
þess að myndaflokkar eru svona vinsælir
hér á landi og erlendis er sú að gert er ráð
fyrir í frásögn þeirra að fylgst sé með í
hverri viku. Bygging leikins sjónvarpsefnis
samkvæmt bandarískri hefð er yfirleitt
með tvennu sniði, eða það kallað sem er hér
þættir og flokkar. Þessar venjur eru nú líka
orðnar viðmiðið í alþjóðlegu samhengi.
Þættir eru sjálfstæðir og ekki háðir þeim
næsta á undan eða eftir. Það sem tengir þá
er aðalsögupersónan og ákveðnar aðstæður
sem alltaf eiga við. Í myndaflokki er hins
vegar samfelld frásögn sem nær yfir eina
þáttaröð eða jafnvel margar. Innan mynda-
flokka eru sjálfstæðar sögur í hverjum
þætti, en ekki er hægt að horfa á þættina í
myndaflokki í handahófskenndri röð því
uppbygging þeirra skiptir máli fyrir að-
alfrásögnina. Einnig er gripið til spennu-
endis til að halda áhorfendum spenntum og
tryggja áframhaldandi áhorf. Í hverjum
þætti myndaflokks eru afmarkaðar hlið-
arsögur sem ná yfir einn þátt, en það er eft-
ir sem áður aðalfrásögnin sem skiptir höf-
uðmáli, sú tilfinning að áhorfandinn „missi
úr“ ef einum þætti er sleppt úr.
Í bókinni The Contemporary Television
Series, sem gefin var út í Bretlandi á síð-
asta ári, er líkum leitt að því að nýtt form
sem nýtir sér þætti beggja sé stór hluti
þessara miklu vinsælda. Nokkuð sem skil-
greint er sem series/serial hybrid, eða sam-
runi þátta- og myndaflokksfrásagnar. Áð-
urnefndir gæðaflokkar eiga það
sameiginlegt að notast við báðar þessar frá-
sagnaraðferðir þátta og myndaflokka, það
er, langar samfelldar frásagnir og styttri
hliðarflækjur sem leystar eru með einum
þætti. Með þessari aðferð geta framleið-
endur notið kosta þess að þróa persónur
með lengri söguþræði á meðan hver og einn
þáttur hefur stutta sögu sem leyst er í lok-
in. Þetta er eftirsóknarvert fyrir áhorf-
endur sem og framleiðendur. Unglings-
stúlkan Veronica Mars leysir eitt mál í
hverjum þætti á meðan aðalleyndardóm-
urinn er upplýstur í lok þáttaraðar. Lög-
fræði- og læknaþættir eru líka góð dæmi.
Í styttri þáttum, eins og grínþáttum, er
líka í auknum mæli notuð sú frásagn-
araðferð myndaflokka sem felst í samfelldri
frásögn. Aðdáendur Friends fylgdust með
sambandi Ross og Rachel þróast og sama
má segja um persónur í Svona var það
(That 70’s Show) og Will og Grace. Þetta
form myndaflokka, löng og samfelld frá-
sögn, getur boðið upp á breidd og heild sem
erfiðara er að setja fram í kvikmynd. Sam-
keppnin um áhorfendurna verður æ harðari
því það er aldrei hörgull á framboði efnis.
Valkostirnir á stöðvunum eru svo margir að
mikilvægt er fyrir auglýsendur og framleið-
endur að reyna að staðsetja markhópa sína
með nákvæmni. Það er borðleggjandi að
blönduð frásagnaraðferð þátta og mynda-
flokka hefur í mörgum tilvikum verið svar-
ið. Hollywood hefur fundið hina fullkomnu
formúlu – að minnsta kosti út frá hagn-
aðarsjónarmiði.
Höfundur er með MA-próf í blaða- og
fréttamennsku frá HÍ. Greinin er hluti af
lokaverkefni hennar.
Allir elska
Raymond
(Every-
body loves
Raymond).
Lög og regla (Law & Order).
Soprano.
Undir
grænni torfu
(Six Feet
Under).
CSI
Draumaverksmiðjurnar í
Hollywood hafa lengi séð
heiminum fyrir óendanlegu
framboði á skemmtiefni og
hafa ráðið ferðinni í vest-
rænni poppmenn-
ingu á sviði
kvikmynda og
sjónvarps.
Klippt og
skorið
(Nip/
Tuck).
Lífsháski (Lost).
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. JÚLÍ 2006 17
Spaugstofan.
Spurningaþátturinn Gettu betur.
Aðþrengdar
eiginkonur
(Desperate
Housewives).
Idol-stjarnan
Snorri
Snorrason.
Silvía Nótt
í Evróvisjón -
söngva-
keppninni
Hluti af teyminu á bakvið Stelpurnar.