Morgunblaðið - 30.07.2006, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. JÚLÍ 2006 23
The Smiths í þeim tilgangi að spila
Cillu Black lög.
Vopnabúrið
Morrissey hélt nú ótrauður áfram
á eigin vegum og fyrsta sólóplatan,
Viva Hate, kom út rétt um hálfu ári
eftir Strangeways …, í mars 1988.
Plötuna vann hann með Stephen
Street, samstarfsmanni Smiths und-
ir það síðasta, og var hann í hlut-
verki upptökustjórnanda, lagahöf-
undar og hljóðfæraleikara. Einnig
kom Vini Reilly við sögu, sem rekur
eins manns sveitina Durutti Column
og er ein helsta ósungna hetja Man-
chesterborgar. Reilly var líkt og
Morrissey eitt sinn meðlimur í
Nosebleeds, en var í henni áður en
Morrrisey kom við sögu. Fyrsta
smáskífa Viva Hate var „Suede-
head“ og farnaðist laginu vel, sem
og síðari smáskífan, „Everyday is
like Sunday“. Ekki var um mikið
frávik frá Smiths-hljómnum að
ræða, og var það allt í lagi, og hefur
það efalaust byggt undir gott gengi
bæði laga og plötu.
Morrissey hélt svo sína fyrstu
sólótónleika 22. desember það ár í
Wolverhampton, og voru allir með-
limir Smiths utan Marr á sviðinu
(Craig Cannon, fimmti Smiths-með-
limurinn, lék á gítar). Tónleikarnir
voru einnig titlaðir sem kveðjutón-
leikar Smiths, sem er nokkuð
skringilegt. Morrissey sté síðan ekki
á svið aftur fyrr en þremur árum
síðar, til að kynna næstu breiðskífu
sína, Kill Uncle (1991).
Morrissey sat þó ekki auðum
höndum þau árin heldur gaf út smá-
skífur með reglulegu millibili sem
svo var safnað saman á plötuna
Bona Drag (1990). Hana prýða m.a.
skífurnar „The Last of the Famous
International Playboys“, „Interest-
ing Drug“, „Ouija Board, Ouija Bo-
ard“, „November Spawned A Mons-
ter“ og „Piccadilly Palare“, sem út
komu árin 1989 og 1990. Allt skot-
held lög og platan hin eigulegasta,
eitt það besta sem frá Mozzer hefur
komið þó í safnskífulíki sé (Mozzer
er gælunafn sem NME gaf honum
er hann var í Smiths).
Tónlistarlegt bakslag, hið fyrsta
sem Morrissey hafði upplifað til
þessa, kom þó með áðurnefndri Kill
Uncle plötu. Breska tónlistarpress-
an, rætin eins og hún á eðli til, sætti
lagi og hamaðist á Morrissey vegna
plötunnar sem þótti hvorki fugl né
fiskur. Mark Nevin (Fairground
Attraction) var hægri hönd Morr-
issey á plötunni og var Morrissey
fljótur að láta hönd sína í kjölfarið.
Hann sneri aftur ári síðar af bylm-
ingskrafti með plötuna Your Arsen-
al í farteskinu, og vilja margir meina
að hún sé besta hljóðversplata
Morrissey fyrr og síðar. Á henni var
leitað fanga í gömlu rokkabillíi sem
hafði verið ýjað að í Smiths lögum
eins og „Rusholme Ruffians“ og
„Nowhere Fast“. Gítarleikararnir
Boz Boorer og Alain Whyte sáu nú
um að semja lög og hafa verið með
Mozzer síðan en upptökustjórn var í
höndum Mick Ronson, fyrrum gít-
arleikara David Bowie eða kannski
öllu heldur Ziggy Stardust. Platan
sló í gegn, „fimmta Smithsplatan“
sögðu sumir gagnrýnendur og
Morrissey var kominn á fljúgandi
fart á nýjan leik.
Kjafturinn
En ferill Morrissey hefur reynst
æði skrykkjóttur og ef tónlistin
bregst ekki bregst einfaldlega eitt-
hvað annað. Eitt frægasta hneykl-
ismálið, ef svo má segja varð þegar
Morrissey kom fram á tónleikum 8.
ágúst 1992, á Madstock-tónlistarhá-
tíðinni svokölluðu sem haldin var
vegna endurkomu hinnar uppruna-
legu Madness. Þar vafði hann sig í
breska fánann á meðan hann söng
lagið „National Front Disco“ og var
umsvifalaust stimplaður rasisti.
NME fór mikinn og setti Morrissey
í óopinbert bann sem entist í tólf ár.
Morrissey hefur lítið gefið út á þetta
og velur ýmist að vera þögull sem
gröfin (vangaveltur um kynhneigð
hans hafa grasserað lengi og er ekk-
ert fast í hendi um það) eða hann
leikur hlutverk Stórakjafts, og á það
einkanlega við um pólitík. Haustið
2004 hvatti hann Bandaríkjamenn
til að kjósa John Kerry fremur en
George Bush, og líkti ástandinu í
Bandaríkjunum við Þýskaland Hit-
lers. Nokkrum mánuðum áður hafði
hann óskað Bush dauða á tónleikum.
FBI og breska leyniþjónustan sáu
ástæðu til að yfirheyra Morrissey í
febrúar síðastliðnum vegna síendur-
tekinna niðrandi ummæla um rík-
isstjórnir beggja landa. Margir
poppkollegar hans, eins og Robert
Smith úr Cure, David Bowie og
George Michael, hafa þá orðið fyrir
barðinu á Mozzer og nú hefur hann
ákveðið að sniðganga Kanada í yf-
irstandandi tónleikaferðalagi vegna
selaveiða þess, og segir hann Kan-
ada vera mesta harðræðisríki heims,
með Kína. Morrissey er eitilhörð
grænmetisæta eins og fólk fékk
rækilega að kynnast á annarri
breiðskífu Smiths, Meat is Murder,
og hefur beitt sér af alefli gegn kjö-
tætunum í gegnum tíðina.
Það kemur auðvitað ekki á óvart
að Morrissey er þunglyndissjúkling-
ur, „fyrir lífstíð“, að eigin sögn. Erf-
iður maður með marga óvini, ein-
arður og ósveigjanlegur – en
snillingur af Guðs náð að mati þús-
unda.
Tveimur árum eftir Your Arsenal,
eða 1994, kom svo platan Vauxhall
and I. Tónninn rólegri en á forver-
anum en engu síðri gæðagripur þar
á ferð (platan tafðist reyndar í út-
gáfu, kom út ári eftir að hún var
kláruð. Ekki í fyrsta skipti og ekki
það síðasta sem Morrissey lenti í
vandræðum með að koma list sinni á
framfæri).
Morrissey sagði nú upp samning-
um við EMI og gaf út plötu á RCA,
Southpaw Grammar, árið 1995.
Mörgum þótti platan furðuleg og
enn í dag er deilt um hvort hér sé á
ferð snilld eða rusl. Einkum þótti
annkannalegt að platan byrjaði á ell-
efu mínútna lagi, „The Teachers Are
Afraid Of The Pupils“, en titill þess
kallaði óneitanlega gamla Smit-
hslagið „The Headmasters Ritual“
fram í hugann. Var Morrissey nú
kominn í proggið? Síðasta plata fyr-
ir þögnina miklu var svo Maladjus-
ted, sem út kom 1997. Enn var
Morrissey að leika sér með stílbrögð
proggsins og platan ekki mikið,
hvorki fyrir Morrissey sjálfan né
aðdáendur. Hann flutti til Los Ang-
eles eftir þetta og hafði hægt um
sig, og var auk þess án samnings.
Það var svo á miðju ári 2003 að
Sanctuary Records sömdu við Morr-
issey, sem hafði einhverju sinni lýst
því yfir að hann væri til í að gefa út
plötu, ef einhver vildi nú gera við
hann samning. Sanctuary endur-
vöktu nú reggíútgáfuna Attack í
þeim eina tilgangi að gefa út nýja
plötu með Morrissey. You Are The
Quarry kom svo út vorið 2004 og
þótti vel heppnuð og blés hún nýju
lífi í Mozzer. Hann klikkaði að sjálf-
sögðu ekki á smáatriðunum og
mundar vélbyssu á umslaginu, sem
er vísun í merki Attack en hlýtur að
vera dýpri táknmynd um leið. Morr-
issey er mættur aftur, og hlífir eng-
um.
Ljúft
Umslagið á Ringleader Of The
Tormentors er ekki síðra, dregur
skemmtilega dár að hönnuninni sem
jafnan fylgir útgáfum Deutsche
Grammophone. Upptökustjóri plöt-
unnar var Tony Visconti, sem þekkt-
ur er fyrir vinnu sína með David Bo-
wie og T. Rex, og var platan tekin
upp í nýjum heimabæ Morrissey,
Róm. Platan fór beint í fyrsta sæti
breska vinsældalistans. Morrissey
er samur við sig í textum og svart-
sýnin hefur blessunarlega ekki yf-
irgefið hann; þ.e. er að minnsta kosti
okkar gróði. Fyrsta smáskífan var
þannig lagið „You Have Killed Me“
og eitt lagið ber hið þekkilega nafn
„Life is a Pigsty“. Morrissey lagði
upp í heljarreisu til að fylgja Ring-
leader of the Tormentors eftir og
líkt og er með voldugan plötutitill-
inn, og voldugt umslagið, ber túrinn
yfirskriftina Tour Of The Tormen-
tors MMVI. Ferðalagið hófst með
upphitun í Bandaríkjunum í mars en
Morrissey bjó lengi vel í Los Angel-
es eins og áður hefur komið fram en
er nú nýfluttur til Rómar. Hann seg-
ir að ástæðan sé meðal annars
hversu grunnhyggin þjóð Banda-
ríkjamenn séu. Evrópa var svo tekin
í apríl, og umfangsmikið ferðalag
um Bretland fylgdi. Morrissey er nú
að taka tónlistarhátíðarrúntinn og
er Reykjavík skotið þar inn í. Morr-
issey mun taka sér stutt orlof hér-
lendis eftir tónleika, eins og gjarnt
er um erlenda hljómlistarmenn sem
heimsækja landið í fyrsta sinn.
Segja má að efnisskrá væntanlegs
kvölds komi úr þremur hagstæðum
áttum; efni frá hinum goðumlíku
Smiths, eldri gullmolar og svo lög af
þessum tveimur plötum sem borið
hafa með sér endurreisn lista-
mannsins. Víst er að ljúft verður á
að hlýða …
Miðasala á tónleika Morrissey fer
fram á midi.is, í verslunum Skíf-
unnar og völdum BT-verslunum.
Miðaverð í stæði er 4.500 krónur
og 5.500 í stúku auk miðagjalds.
arnart@mbl.is
’Ferill Morrisseyhefur reynst æði
skrykkjóttur og ef
tónlistin bregst ekki
bregst einfaldlega
eitthvað annað.‘
Síðasti vagninn í Sogamýri“ varsungið angurværri röddu á ár-
um áður. Þetta varð að dægurlaga-
texta þótt strætis-
vagninn í Soga-
mýri æki sam-
viskusamlega
a.m.k. eina ferð á
klukkustund neð-
an úr bæ. Hvað
myndu dægur-
lagahöfundar þess
tíma hafa sagt
hefðu þeir getað
séð þróunina – að strætisvagnar
yrðu nánast sjaldgæf sjón á götum
höfuðborgarsvæðisins og sumir íbú-
ar þess eða starfsmenn fengju enga
þjónustu, eins og t.d. þeir 400
starfsmenn sem vinna hjá Morg-
unblaðinu í hinu nýja húsi við Há-
degismóa. Fjögur hundruð manns
er eins og lítið þorp á landsbyggð-
inni. Slík þorp fá rútur heim á hlað,
sum nokkrum sinnum á dag, t.d.
þéttbýlissvæðin fyrir austan fjall.
Að vísu eru ekki alltaf mjög
margir í þeim bílum en mér datt
svona í hug að á því mætti ráða bót.
Kannski mætti slá tvær flugur í
einu höggi og láta rúturnar sem
fara á misjöfnum tíma austur fyrir
fjall leggja svolitla lykkju á leið sína
og stoppa fyrir framan Morgun-
blaðshúsið á leið sinni austur. Þá
fengju rúturnar fleiri farþega og
þeir sem þurfa gætu komist klakk-
laust og á fremur einfaldan hátt
upp í Hádegismóa til að vinna eða
reka erindi þar. En auðvitað væri
best að strætisvagnakerfið væri
endurskoðað ennþá einu sinni með
tilliti til breyttra aðstæðna og það
færi að ganga vagn upp í Hádeg-
ismóa á ákveðnum tímum. Það er
raunar tímaspursmál hvenær það
gerist, því það mikil byggð er orðin
á svæðinu í nágrenni við Rauðavatn.
Ég varpa þessu svona fram ef það
mætti verða til að leysa úr málum í
bili, meðan menn eru að skoða hvað
gerast á í samgöngumálum höfuð-
borgarsvæðisins er lengra líður.
Mér finnst raunar með sam-
göngumál eins og heilbrigðis- og
menntamál, – að þjónustufyrirtæki
af þessu tagi eigi ekki að skila arði í
beinum peningum heldur óbeinum.
Við borgum skatta og þeir sem fara
með stjórn þeirra fjármuna í það og
það skiptið eiga að sjá til þess að
þessir grunnþættir séu í lagi og
skili því sem þeim er ætlað. Auðvit-
að lifum við á hverfanda hveli, rétt
eins og vant er, en þá er að bregð-
ast við því og láta sér á hverjum
tíma skiljast hvað nauðsynlegt er að
gera til þess að íbúar þessa lands
haldi lífi, læri eitthvað og geti kom-
ist á einfaldan hátt til náms og
starfa. Það er miklu víðar pottur
brotinn í samgöngumálum höfuð-
borgarsvæðisins en á leiðinni upp í
Hádegismóa.
ÞJÓÐLÍFSÞANKAR/Væri ekki hægt að
„redda“ þessu?
Strætó í
Hádegismóa!
eftir Guðrúnu
Guðlaugsdóttur
gudrung@mbl.is
Útsala — Útsala
40% + 20% aukaafsláttur
af öllum vörum
Opið virka daga 10-18 • laugardaga 10-16Nýbýlavegi 12, Kóp. • sími 554 4433