Morgunblaðið - 30.08.2006, Síða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Nú getur þú tryggt þér síðustu sætin í
sólina við Alicante á hreint ótrúlegum
kjörum. Allra síðustu sætin á frábæru
tilboði. Þú kaupir tvö flugsæti en
greiðir aðeins fyrir eitt. Gisting á
Benidorm í boði ef óskað er.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
2 fyrir 1 til
Alicante
14. september
frá kr. 19.990
Allra síðustu sætin
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr. 19.990
Flugsæti báðar leiðir með sköttum, m.v. 2
fyrir 1 tilboð 14. september í 2 vikur.
Netverð á mann.
GREINARGERÐ Gríms Björns-
sonar, jarðeðlisfræðings, um Kára-
hnjúkavirkjun hefur vakið töluverða
athygli að undanförnu, sérstaklega
þar sem komið hefur í ljós að hún
var merkt sem trúnaðarskjal þegar
fjallað var um virkjunina á Alþingi –
og var ekki tekin fyrir í umræðunni.
Grímur sendi orkumálastjóra
skýrslu sína í febrúar árið 2002 en
hún var ekki gerð opinber fyrr en í
janúar 2003 þegar Orkustofnun
sendi náttúruverndarsamtökum og
fjölmiðlum upplýsingarnar.
Eins og fram hefur komið hafði
stjórn Landsvirkjunar ekki upplýs-
ingar um greinargerðina þegar mál-
ið var til umfjöllunar á Alþingi og
segir Helgi Hjörvar, þingmaður
Samfylkingarinnar, sem sat í stjórn
Landsvirkjunar á þeim tíma, að
stjórnarmeðlimum hafi ekki verið
kunnugt um greinargerðina fyrr en
í nóvember árið 2002.
Þá hafði Helgi spurnir af því að
fundað hafði verið um greinargerð-
ina hjá Landsvirkjun með fulltrúum
Orkustofnunar. Í kjölfarið óskaði
hann eftir upplýsingum um fundinn
og þau gögn sem honum tengdust.
„Ég fékk þau gögn í lok nóvember
en engin fundargerð hafði verið
færð á fundinum. Ég gerði grein
fyrir því á næsta stjórnarfundi
Landsvirkjunar í desember að ég
hefði spurst fyrir um fundinn og
gerði athugasemdir við að ekki hefði
verið gerð fund-
argerð,“ segir
Helgi en nokkr-
um vikum síðar
var greinargerðin
send fjölmiðlum
og varð hún hluti
af opinberri um-
fjöllun.
Helgi sem sat í
stjórn Lands-
virkjunar sem
fulltrúi Reykjavíkurlistans, segir að
til hans kasta hafi komið að taka af-
stöðu til raforkusamningsins við Al-
coa en þar hafi hann greitt atkvæði
gegn samningnum, m.a. vegna þess
að um hafi verið að ræða of litla arð-
semi miðað við áhættuna sem í verk-
inu er fólgin.
Gerði forystumönnum R-lista
grein fyrir niðurstöðu sinni
Spurður um hvort hann hafi látið
forystumenn R-listans skýrsluna í
té segir Helgi svo ekki vera. „En ég
gerði auðvitað grein fyrir því að það
væri mín niðurstaða, eftir að hafa
kynnt mér öll gögn málsins, bæði
um arðsemi og um framkvæmdina
sjálfa, að ekki væri rétt að ráðast í
þessa framkvæmd. Sem fulltrúi
borgarinnar í stjórn Landsvirkjunar
greiddi ég því atkvæði gegn fram-
kvæmdinni og þegar þar var komið
voru upplýsingarnar þegar orðnar
opinberar,“ segir Helgi Hjörvar.
Vissu ekki um
greinargerðina
Helgi Hjörvar
ÞEIR Hallgrímur Magnússon og
Leifur Örn Svavarsson eru þessa
dagana á leið á Leníntind í Pamir
fjallgarðinum í Kyrgyzstan. Tind-
urinn er í 7.134 metra hæð og tekur
ferðin frá grunnbúðum um 22 daga.
Jón Gauti Jónsson, ritstjóri tíma-
ritsins Útiveru, hefur verið í dag-
legum samskiptum við þá Hallgrím
og Leif. Hann segir þá félaga vera að
aðlagast fjallaloftinu en það verður sí-
fellt þynnra eftir því sem ofar er farið
á fjallið.
„Þeir eru búnir að fara upp í 5.300
metra, en fóru síðan niður aftur til að
jafna sig og voru nokkuð slappir eftir
það. Fengu niðurgang og ógleði eins
og klassískt er við svona aðlögun.“
Leníntindur var á tímabili talinn
hæsti tindur Sovétríkjanna en síðar
kom í ljós að svo var ekki. Jón Gauti
segir að fjallið sé töluvert vinsælt
meðal fjallgöngumanna enda til-
tölulega þægilegt til göngu miðað við
rúmlega 7.000 metra hátt fjall.
„Þeir eru samt fyrir utan þennan
hefðbundna ferðatíma og því er kald-
Klífa Leníntind í
Kyrgizstan
ÁFRÝJUNARNEFND samkeppn-
ismála hefur ómerkt í heild máls-
meðferð Samkeppniseftirlitsins á
samruna Dagbrúnar og Senu vegna
formgalla í málsmeðferðinni. Úr-
skurður áfrýjunarnefndarinnar þýð-
ir að samruni félaganna er nú heim-
ilaður, en Samkeppniseftirlitið ógilti
samrunann á þeirri forsendu að
hann myndi hindra virka sam-
keppni.
Í tilkynningu Dagsbrúnar til
Kauphallar Íslands frá því í gær
segir að nú taki við vinna við að
samþætta rekstur fyrirtækjanna.
Snemma á þessu ári keypti Dags-
brún útgáfu- og dreifingafyrirtækið
Senu af félaginu Diskurinn ehf..
Samkeppniseftirlitið ógilti samrun-
ann seint í júní sl. á þeirri forsendu
að sameinuð félög gætu takmarkað
samkeppni og hagað verðlagningu
sinni, viðskiptakjörum og þjónustu
án þess að taka tillit til keppinauta
sinna og neytenda.
Andmælaréttar ekki gætt
Diskurinn ehf., Dagsbrún/Sena og
Baugur Group kærðu öll ákvörðun
eftirlitsins til áfrýjunarnefndarinn-
ar. Úrskurður nefndarinnar byggist
þó alfarið á kæru Disksins, sem
kærði á grundvelli þess að and-
mælaréttur þess hefði verið brotinn.
Í úrskurðinum kemur fram að á
rannsóknartímanum hafi komið upp
„misskilningur“ um hver annaðist
hagsmuni Disksins ehf. í málinu.
„Afleiðingin af þessum misskiln-
ingi varð m.a. sú að áfrýjandi [Disk-
urinn] telur sig ekki hafa notið and-
mælaréttar varðandi aðgang að
gögnum og gagnvart andmælaskjali
Samkeppniseftirlitsins,“ segir í úr-
skurði áfrýjunarnefndarinnar.
Nefndin kemst svo að þeirri nið-
urstöðu að „…Samkeppniseftirlitið
beri ábyrgð á því ástandi sem þarna
skapaðist“ og ómerkir því málsmeð-
ferðina í heild sinni.
Úrskurðurinn verður skoðaður
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Samkeppniseftirlitsins, segir í sam-
tali við Morgunblaðið að eðli málsins
samkvæmt sé Samkeppniseftirlitið
ósammála niðurstöðu áfrýjunar-
nefndarinnar.
„Niðurstaðan er hins vegar end-
anleg og því mun samruni félaganna
að líkindum ganga eftir, þrátt fyrir
að Samkeppniseftirlitið telji að hann
muni hafa samkeppnishamlandi
áhrif. Þá liggur fyrir að Samkeppn-
iseftirlitið mun þurfa að meta þenn-
an úrskurð og áhrif hans til fram-
tíðar,“ segir Páll Gunnar.
Páll vildi ekki tjá sig efnislega um
úrskurðinn og vísaði til greinargerð-
ar sem Samkeppniseftirlitið sendi
áfrýjunarnefndinni við meðferð
málsins, en hana er að finna á vef
eftirlitsins, samkeppni.is.
Í greinargerðinni má m.a. lesa að
Samkeppniseftirlitið andmælir kær-
unni á tveimur forsendum. Annars
vegar telur eftirlitið að Diskurinn
hafi fengið andmælaskjalið í hendur
og hafi því getað tjáð sig um það.
Hins vegar telur eftirlitið að brot á
andmælarétti á fyrsta stjórnsýslu-
stigi varði ekki ógildingu í sam-
keppnismálum. Á þessum forsend-
um telur eftirlitið að málið hefði átt
að fá efnislega meðferð hjá æðra
dómstigi, þ.e. áfrýjunarnefndinni,
þrátt fyrir að annmarka hafi verið
að finna í málsmeðferð á lægra dóm-
stigs.
Samruni Dagsbrúnar
og Senu heimilaður
Forstjóri Samkeppniseftirlitsins ósammála niðurstöðunni
Morgunblaðið/Golli
Sena Markaðshlutdeild Senu í útgáfu á íslenskri tónlist er árlega um 70%.
Þá rekur félagið m.a. kvikmyndahúsin Smárabíó og Regnbogann.
» Janúar 2006 kaupir Dagsbrúnfyrirtækið Senu (áður Skífan) af
félaginu Diskurinn ehf.
» Júní sl. ógildir Samkeppniseft-irlitið samrunann vegna sam-
keppnishamlandi áhrifa hans.
» Júlí sl. kæra Diskurinn, Sena ogDagsbrún niðurstöðu Sam-
keppniseftirlitsins til áfrýj-
unarnefndar samkeppnismála
Í HNOTSKURN
»Leníntindur er 7.134 metra hárog tekur ganga upp á hann um
22 daga.
»Tveir íslenskir fjallgöngumenn,þeir Hallgrímur Magnússon og
Leifur Örn Svavarsson, hófu á
fimmtudaginn göngu á hnjúkinn.
Í HNOTSKURN
17 ára tekinn með
kókaín innvortis
TOLLGÆSLAN á Keflavík-
urflugvelli handtók á sunnudag 17
ára pilt sem reyndist vera með um
hundrað grömm af hvítu dufti, að
líkindum kókaín eða amfetamín, fal-
ið í endaþarmi. Lögreglan í Reykja-
vík fer með rannsókn málsins en vill
ekki tjá sig um gang hennar.
Pilturinn var að koma heim frá
Amsterdam og var stöðvaður í
reglubundnu eftirliti, skv. upplýs-
ingum frá sýslumanninum á Kefla-
víkurflugvelli. Ferðafélagi piltsins
var einnig handtekinn en hann
reyndist ekki vera með fíkniefni á
sér.
Þar sem pilturinn er yngri en 18
ára þurfti að hafa samband við for-
eldra eða barnaverndaryfirvöld
þegar hann var handtekinn. Menn
verða sakhæfir við 15 ára aldur.
DANSKUR maður sem grunaður er
um að hafa hrint 26 ára gömlum
heimilislausum Íslendingi fyrir
járnbrautarlest á Nørreport á laug-
ardag, gaf sig fram við lögreglu í
gær. Hefur maðurinn, sem er 25
ára, verið ákærður fyrir mann-
drápstilraun og mun lögreglan
krefjast gæsluvarðhalds yfir hon-
um í dag.
Að sögn Ritzau-fréttastofunnar
gaf maðurinn sig fram við lögregl-
una í miðborgarlögreglustöðinni en
hann hafði verið eftirlýstur frá því
á laugardag og birtust m.a. af hon-
um myndir úr eftirlitsmyndavél í
dönskum fjölmiðlum.
Gaf sig fram
við lögregluna
Eftir Kristján Torfa Einarsson
kte@mbl.is
FULLTRÚAR Samfylkingarinnar í
allsherjarnefnd hafa farið fram á
fund í nefndinni vegna þess sem þeir
kalla ófremdarástand í fangelsismál-
um landsins. Kemur þetta fram í
pistli á heimasíðu Björgvins G. Sig-
urðssonar. Þar segir að Samfylking-
in vilji fara yfir það hvernig meiri-
hluti Alþingis ætli að bregðast við
ástandinu sem m.a. komi fram í áður
óþekktri fíkniefnaneyslu innan
veggja fangelsanna og yfirfullum
fangelsum þar sem yfir 150 manns
bíði afplánunar. Í pistlinum segir að
margir fangar þurfi fyrst og fremst á
endurhæfingu og
meðferð að halda
en ekki refsingu í
yfirfullu fangelsi.
Hafa full-
trúarnir óskað
þess að fundurinn
verði 5. septem-
ber og munu þeir
fara fram á að
dómsmálaráð-
herra verði kall-
aður á fundinn. Bjarni Benediktsson,
formaður allsherjarnefndar, segir að
fundurinn verði haldinn í næstu viku.
Fara fram á fund vegna
ástands í fangelsum
Björgvin G.
Sigurðsson
ara en venjulega og veðráttan gæti
sett strik í reikninginn.“ Á heimasíðu
Útiveru, www.utivera.is, hefur Jón
Gauti skrifað dagbók um ferð þeirra
Hallgríms og Leifs og kemur þar
fram að þeim þyki gönguhópurinn
sem þeir lögðu upp í ferðina með fara
nokkuð hægt upp. Hafa þeir því slitið
sig nokkuð frá hópnum en nýta sér þó
þjónustu hans, t.a.m. varðandi mat.
Þeir Hallgrímur og Leifur eru
meðal eigenda fyrirtækisins Íslenskir
fjallaleiðsögumenn og segir Jón Gauti
að þeir séu meðal reyndustu fjall-
göngumanna á Íslandi.