Morgunblaðið - 30.08.2006, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 2006 15
ERLENT
EHUD Olmert, forsætisráðherra
Ísraels, sætti harðri gagnrýni í gær
fyrir að fyrirskipa aðeins takmark-
aða rannsókn á framgöngu stjórnar-
innar í stríðinu í Líbanon.
Olmert tilkynnti í fyrradag að
stjórnskipuð nefnd ætti að rannsaka
málið en ekki óháð nefnd, undir for-
ystu dómara, sem hefði vald til að
víkja ráðherrum úr embætti. Slík
nefnd var til að mynda skipuð eftir
innrás Ísraela í Líbanon árið 1982 og
rannsókn hennar varð til þess að Ar-
iel Sharon var vikið úr embætti varn-
armálaráðherra.
„Pólitísk mistök“
Jafnt vinstrisinnaðir stjórnarþing-
menn sem hægrisinnaðir stjórnar-
andstæðingar gagnrýndu þessa
ákvörðun forsætisráðherrans.
Ami Ayalon, þingmaður Verka-
mannaflokksins, sem er í sam-
steypustjórn Olmerts, sagði að for-
sætisráðherranum hefðu orðið á
mistök. „Ég tel ekki að þetta sé það
sem við þurfum,“ sagði Ayalon.
„Stjórnskipaða nefndin hefur ekkert
vald til að rannsaka málið, ekkert
vald til að krefjast skjala. Þetta eru
pólitísk mistök.“
Danny Naveh, fyrrverandi ráð-
herra hægriflokksins Likud, tók í
sama streng. „Það er ekki nokkur
möguleiki á því að nefndin komist að
sannleikanum vegna þess að hana
skortir vald.“
Söluhæsta dagblað Ísraels, Yediot
Aharonot, gagnrýndi einnig ákvörð-
unina og lýsti líklegri niðurstöðu
rannsóknarnefndarinnar sem „móð-
ur allra hvíttþvotta“. Frjálslynda
dagblaðið Haaretz lýsti nefndinni
sem skrípaleik. Blaðið Maariv, sem
styður yfirleitt stjórnina, sagði á
hinn bóginn að forsætisráðherrann
hefði tekið rétta ákvörðun og tók
undir röksemdir hans.
Segir óháða rannsókn
geta lamað stjórnina
Olmert sagði að óháð rannsókn
dómara myndi taka nokkur ár og
„lama“ stjórnina og herinn nú þegar
Ísraelar þyrftu m.a. að takast á við
hættuna sem Ísraelum stafaði af
klerkastjórninni í Íran. „Það sem við
þurfum er árangursrík, fagleg rann-
sókn, til að skoða málið ofan í kjöl-
inn, draga ályktanir og lærdóma.“
Nahum Admoni, yfirmaður leyni-
þjónustunnar Mossad á níunda ára-
tugnum, á að fara fyrir stjórnskip-
uðu rannsóknarnefndinni. Í henni
verði einnig lögspekingar og fyrr-
verandi herforingjar. Olmert varði
framgöngu stjórnarinnar í stríðinu
og neitaði því að markmið hennar
hefði verið að uppræta Hizbollah.
Hann sagði að markmiðið hefði verið
að sjá til þess að stjórnvöld í Líbanon
sendu hersveitir til að stöðva árásir
Hizbollah á Ísrael í samræmi við
ályktanir öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna. Vopnahléið og sú ákvörð-
un öryggisráðsins að senda allt að
15.000 hermenn til Suður-Líbanons
væri því mikilvægur sigur fyrir Ísr-
aela.
Olmert viðurkenndi þó í fyrsta
skipti í fyrradag að mistök hefðu átt
sér stað og stjórnin hefði ekki náð
öllum markmiðum sínum í stríðinu.
Yfir 1.100 Líbanar og um 160 Ísr-
aelar liggja í valnum eftir 34 daga
sókn Ísraelshers gegn Hizbollah.
Ísraelum mistókst m.a. að koma í
veg fyrir að liðsmenn hreyfingarinn-
ar gætu skotið flugskeytum á Ísrael.
Nýleg skoðanakönnun bendir til
þess að 63% Ísraela vilji að Olmert
segi af sér vegna framgöngu stjórn-
arinnar í stríðinu. Þrír af hverjum
fjórum sögðust óánægðir með störf
forsætisráðherrans.
Gagnrýna Olmert fyrir
að hafna óháðri nefnd
Skipar rannsóknarnefnd sem hefur ekki vald til að reka ráðherra
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
Óvinsæll Þrír fjórðu Ísraela segjast
óánægðir með störf Ehud Olmert.
Quito. AP. | Elsta kona heims, Maria
Esther de Capovilla, lést á sjúkra-
húsi í Ekvador af völdum lungna-
bólgu, 116 ára að aldri, að sögn fjöl-
skyldu hennar í gær.
Capovilla lést á sunnudag, tveim-
ur dögum eftir að hún veiktist. Hún
fæddist 14. september 1889, sama
ár og Charlie Chaplin og Adolf Hit-
ler. Hún var 22 ára þegar Titanic
sökk og 79 ára þegar geimfarar
voru sendir til tungslins í fyrsta
skipti.
Fréttavefur breska ríkisútvarps-
ins, BBC, hafði eftir fjölskyldu
hennar að asnamjólk kynni að vera
skýringin á langlífi hennar.
Talið er að kona í Memphis í
Tennessee, Elizabeth Bolden, sé nú
elsta kona heims. Hún er 116 ára,
en fæddist ellefu mánuðum á eftir
Capovilla. Elsti karl heims, Emil-
iano Mercado Del Toro, er 115 ára
og býr í Puerto Rico.
Elsta kona
heims látin
AP
Gamlar minningar Maria Esther de
Capovilla heldur á mynd af eig-
inmanni sínum sem dó 1947.
Kandahar. AFP. | Yfir 20 manns liggja
í valnum eftir sprengjuárásir talib-
ana í Afganistan síðustu tvo daga og
þar af biðu sautján manns bana þeg-
ar sprengja sprakk á fjölförnu versl-
unartorgi í fyrradag.
Tveir almennir borgarar létu lífið í
borginni Kandahar í gær þegar
sprengja sprakk nærri bílum kanad-
ískra hermanna í borginni Kandah-
ar. Enginn hermannanna særðist.
Tveir lögreglumenn lágu í valnum
eftir sprengjuárás í Helmand-héraði
í gær. Daginn áður létu 17 manns líf-
ið og 47 særðust í sprengjuárás á
verslunartorg í bænum Lashkar Gah
í sunnanverðu landinu. Á meðal
þeirra sem biðu bana voru tvö börn.
58
39
43:;<"< 439
3 / % 3 9 < 4 3 9
!"#$%&'()*+#,-*. &.%*!).%
= 6
7 > 3
> :
7 6
7
> ) %) > 3
*--
?
*--
.
@8@ <8
A3994;B9
!
!
@8@ <8/8@;39*--?
/.%%!,-(!)()*+#,-*%
"!#$% !! &.C
'
"(
&DEF
) *+
+ *+ &*EG
-! !
"(
&GD#.C
*+
#./ 0
"1
/0/
/#
&.#.C
-! 2
+ &*
6$")
DE7,
#./%$ /
"!#$% !!/
") G
,
/ .%# +3 *+ +/( %4
2+
/0
#
! % 56 ) %)
#./ "!#+!! $ /
") D7,*--?
*+ +/4/ 8
2 /+/4$
+
",
9 : 0
;
H $="< 439
@
D
: +% @
*
: + 0 @
G
<
( > ' 934I
)
6
")
'
$
#./%!!
+
%/
2
/% *
-
Yfir 20 Afganar féllu
HAFNARSTARFSMENN í Shanghai virða fyrir sér
sænska seglskipið Gautaborg, eftirlíkingu skips frá
miðri átjándu öld. Gautaborg, eitt af stærstu segl-
skipum heims, sigldi til Shanghai sem tákn viðskipta,
menningarsamskipta og vináttu milli Svíþjóðar og
Kína.
AP
Gautaborg sigldi til Kína
Antalya. AP, AFP. | Kúrdísk skæru-
liðasamtök sögðust í gær bera
ábyrgð á hryðjuverki í ferðamanna-
bænum Antalya en þar týndu þrír
menn lífi í öflugri sprengingu í fyrra-
dag. Leitar lögreglan tveggja
manna, sem grunaðir eru um að hafa
komið sprengjunni fyrir.
Lítið um afbókanir enn
Kúrdísku frelsisfálkarnir, TAK,
sögðu á vefsíðu sinni, að liðsmenn
samtakanna hefðu komið sprengj-
unni fyrir og tilgangurinn væri sá, að
„skelfing og ótti ríktu hvarvetna í
Tyrklandi“. Hafa samtökin einnig
lýst á hendur sér þremur sprenging-
um í ferðamannabænum Marmaris á
sunnudag.
Árásir á ferðamannastaði eru við-
kvæmt mál í Tyrklandi enda iðnað-
urinn mjög mikilvægur efnahagslíf-
inu. Hafa stjórnvöld ekki enn lýst
yfir, að um hryðjuverk hafi verið að
ræða en tyrkneskir fjölmiðlar segja,
að lögreglan leiti tveggja manna,
sem sáust flýja burt eftir spreng-
inguna í Antalya.
Kúrdar í Tyrklandi hafa barist
fyrir sjálfstjórn í suðausturhluta
landsins frá 1984 og hingað til hafa
sprengjutilræði og önnur átök að
mestu verið takmörkuð við þann
landshluta. Kúrdísku frelsisfálkarnir
beina hins vegar spjótum sínum að
borgum í vesturhlutanum og að
ferðamannastöðum.
Talsmenn ferðaskrifstofa í Evr-
ópu segja, að fólk þar virðist taka tíð-
indunum með ró og lítið sé um afbók-
anir. Það geti þó breyst verði
framhald á hryðjuverkaárásum.
Kúrdísk samtök segjast
bera ábyrgð á sprengingum