Morgunblaðið - 30.08.2006, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 30.08.2006, Qupperneq 35
✝ Hallfríður Jóns-dóttir fæddist á Bæjum á Snæ- fjallaströnd 9. júlí 1916. Hún lést á Hrafnistu í Reykja- vík 23. ágúst síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Stein- dóra Rebekka Steindórsdóttir, f. 13. júlí 1888, d. 26. apríl 1982, og Jón Elías Ólafsson, f. 5. maí 1880, d. 29. nóv. 1934. Hall- fríður var sjötta í röð 11 systk- ina, en þau eru: Ólöf Jóna, Sig- ríður Margrét, Steindór Kristinn, Guðmundur, Kristín, Ólöf Bjarn- ey, Vilmundur Kristinn, Björg, Ingibjörg Sara og andvana fædd- ur drengur. Uppeldissystir henn- ar og dóttir Ólafar Jónu er Erla Guðmundsdóttir. Eftirlifandi af systkinunum eru Björg og Erla. Hinn 16. nóv. 1935 giftist Hall- fríður Elíasi Kristjánssyni húsa- smíðameistara frá Hnífsdal, f. 12. nóv. 1912, d. 16. sept. 1978. Börn þeirra eru: 1) Margrét Dóra, f. 1945, maki Sigurður Garðarsson, f. 1942, dætur þeirra eru: Ólafía, sonur hennar er Þórður Valtýr; Laufey, maki Ingi Rafn Bragason, börn þeirra Inga Þóra, Sigurður Rúnar og Steindór; Steinunn, íbúi í sambýlinu Berja- hlíð 2, Hf. 2) Elías Halldór, f. 1951, maki Elísa Hjördís Ásgeirsdóttir, f. 1952, börn þeirra eru Guðrún Hall- fríður, maki Davíð Óli Axelsson, börn þeirra eru Axel og Lísa Dögg; Ásgeir, maki Jóna Dís Þór- isdóttir, Elías Kristján, maki Áróra Kristín Guðmundsdóttir, sonur þeirra er Ríkharður Henry, sonur Áróru er Kristófer. Þau Elías hófu búskap í Hnífs- dal, en 1939 fluttu þau til Ak- ureyrar. Þau voru búsett þar í fimmtán ár, fluttust síðar að Bif- röst og loks til Reykjavíkur. Hallfríður starfaði lengst af við fatabreytingar bæði hjá Guðrún- arbúð og Verðlistanum í Reykja- vík. Útför Hallfríðar verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Elskuleg móðir mín, Hallfríður Jónsdóttir, eða Fríða eins og hún var oftast kölluð, lést sl. miðvikudag níræð að aldri. Hún fæddist á Bæj- um á Snæfjallaströnd hinn 9. júlí 1916. Þegar hún var barn að aldri missti hún föður sinn, en mömmu hennar tókst með dugnaði og elju að halda systkinahópnum saman, en systkinin urðu alls 11 og ein uppeld- issystir. Móðir mín kynntist því al- vöru lífsins ung að aldri, en auðn- aðist þó að fara í Húsmæðraskólann á Ísafirði. Hún var mikil húsmóðir og hannyrðakona og bar heimilið þess fagurt vitni og urðum við og barnabörn þess aðnjótandi líka, auk fjölskyldu og vina. Ung að aldri kynntist hún eiginmanni sínum, Elíasi Kristjánssyni, og þau hófu búskap í Hnífsdal. Þaðan fluttu þau til Akureyrar þar sem pabbi lauk trésmíðanáminu. Þaðan lá leiðin til Bifrastar og svo til Reykjavíkur. Þeim varð ekki barna auðið og því ættleiddu þau mig og Elías bróður. Áttum við góð æsku- og uppvaxt- arár hjá þeim. Þau bjuggu á Kjart- ansgötunni í nokkur ár, en lengst af á Kleppsveginum. Þau byggðu sér sumarbústað í Vatnsendalandi, þar sem þau undu sér vel í frístundum sínum. Mamma var viljasterk kona og svipfríð. Ákveðin, en ekki allra, en vinum sínum var hún trygg og góð. Það sópaði af henni, ekki síst þegar hún bjó sig upp og á góðra vina fundi lék hún á als oddi. Hún var mjög söngelsk og kunni mikið af fallegum söngtextum og ljóðum. Einnig lék hún listavel á munn- hörpu. Síðast en ekki síst var hún frábær kokkur og kleinurnar og franskbrauðið góða eru okkur minnisstæð. Mér er ofarlega í huga þakklæti til mömmu fyrir allt og allt. Ekki síst umhyggjuna sem hún bar ætíð fyrir mér og dætrum mínum og fjöl- skyldum okkar. Barnabörnin og langömmubörnin voru henni alltaf hugleikin og sýndi hún það oft í verki, bæði með handavinnu og þó sérstaklega prjónlesi. Mamma starfaði lengst af við fatabreytingar hjá Guðrúnu í Guðrúnarbúð og síð- ar í Verðlistanum og þar nutu hæfi- leikar hennar sín vel. Við Sigurður sendum henni okkar hjartans þakkir. Hvíl í friði. Þín Margrét Dóra. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. (V. Briem.) Elsku amma Fríða, til himnaríkis ertu komin. Ég veit að þú ert mjög sátt að vera komin í fangið til afa og allra sem þú saknaðir sárt úr fjöl- skyldu þinni. Minningarnar um þig eru mér dýrmætar. Sem lítil stelpa gáfu amma og afi okkur jólaföt í jólagjöf. Amma valdi alltaf svo fal- lega jólakjóla á mig en alltaf fylgdi líka smá pakki frá þeim líka. Fram að unglingsárum heimsótti ég þig oft á sumrin og var hjá þér í nokkra daga og voru það dásamlegar stundir sem við áttum saman. Þú hugsaðir svo vel um mig, ég man að þú passaðir svo upp á að ég væri aldrei svöng það var alltaf eitthvað tilbúið handa mér, krakkar voru yf- irleitt ekki hrifnir af undanrennu í þá daga en ég smakkaði hana hjá þér og í dag get ég ekki án und- anrennu verið. Þegar ég var að fara heim þá sá ég ömmu fara í kápu- vasa sinn til að ná í smá aur handa mér. Þú kallaðir peninga alltaf aura og þú laumaðir aurnum í lófann á mér. Þú varst svo frábær í höndunum og var alltaf gaman að fá frá þér sokka, vettlinga og bara allt sem þú gerðir. Elsku amma mín, þín er sárt saknað en þú ert alltaf hjá mér í hjarta mínu og ég veit að þú fylgist með okkur. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Elsku amma Fríða, guð geymi þig. Hvíl þú í friði Þín Guðrún Hallfríður. Hallfríður Jónsdóttir MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 2006 35 Elsku besta móðir mín, að mér þú vildir hlúa. Himnum á mun höndin þín hlýja sæng mér búa. Þegar helgum himni frá, hljómarnir þig kalla, dvel þá góðum Guði hjá glöð um eilífð alla. Sonarkveðja, Þinn Elías Halldór. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð, hjartans þakkir fyrir liðna tíð. Lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir.) Elsku amma. Hafðu þökk fyrir allt og allt og sérstaklega góðu stundirnar á sunnudögum. Lóa, Laufey og Steinunn. HINSTA KVEÐJA Hjartans þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vinarþel við andlát og útför okkar elskulegu ÞORBJARGAR GUÐLAUGSDÓTTUR, Blesugróf 29, Reykjavík. Sigurður Guðlaugsson, Magna M. Baldursdóttir, Ingólfur Guðlaugsson, Rannveig L. Pétursdóttir, Jón Gunnar Guðlaugsson, Lára Jónsdóttir, Bárður Guðlaugsson, Guðný P. Einarsdóttir og heimilisfólkið í Blesugróf 29. Hjartans þakkir fyrir samúð og vináttu við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, SIGRÚNAR HANNESDÓTTUR, Kópavogsbraut 1A, Kópavogi. Ásgeir Pétursson, Guðrún Ásgeirsdóttir, Ingibjörg Ásgeirsdóttir, Sigríður Ásgeirsdóttir, Þórður Kristinsson, Pétur Ásgeirsson, Jóhanna Gunnarsdóttir, Andrés Pétur Rúnarsson, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, BRAGA SALÓMONSSONAR verkstjóra, Reynihvammi 35, Kópavogi. Sérstakar þakkir fær starfsfólk heimahlynningar LSH og líknardeildar LSH í Kópavogi. Guð blessi ykkur öll. Pálína Pálsdóttir, Sólrún Bragadóttir, Sigurður Friðriksson, Árni Bragason, Anna V. Einarsdóttir, Guðbjörg Bragadóttir, Kristján Guðmundsson, Þorvaldur Bragason, Narelle J. Bragason og afabörn. Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra er auð- sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar dóttur okkar, systur og barnabarns, RÓSU BJARGAR GUÐMUNDSDÓTTUR, Vallarási 1, Reykjavík. Guð blessi ykkur öll. Ína Dóra Jónsdóttir, Guðmundur Jónasson, Margrét D. Guðmundsdóttir, Rósa Jónsdóttir og Björg Árnadóttir. Ástkær dóttir okkar, unnusta og systir, HULDA BJÖRK HAUKSDÓTTIR, lést af slysförum mánudaginn 28. ágúst. Haukur Jónsson, Guðlaug Árnadóttir, Ivan Poulsen, Birkir Björn Hauksson, Sóley Guðjónsdóttir, Finnur Dagsson, Halldór Guðjónsson. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, ANNA GUÐMUNDSDÓTTIR, Sóleyjarima 3, Reykjavík, sem lést á Landspítalanum að morgni föstudags- ins 25. ágúst, verður jarðsungin frá Grafarvogs- kirkju föstudaginn 1. september kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag Íslands og Slysavarnafélagið Landsbjörg. Björn Björnsson, Hrönn Björnsdóttir, Jón Pálsson, Katrín Björnsdóttir, Gunnlaugur Friðrik Kristjánsson, Björn Steinar Jónsson, Ásbjörg Jónsdóttir, Bjarki Snær Jónsson, Anna Bryndís Gunnlaugsdóttir, Kristján Friðrik Gunnlaugsson, Birna Hrönn Gunnlaugsdóttir. Elsku amma mín, núna ertu farin frá okkur og þín verður sárt saknað. Ég á óteljandi minningar um þig og afa frá því ég var yngri. Ég man þegar ég skrapp yfir til ykkar á sumrin og þú varst í garðinum að laga blómin og ég fékk blóm í vönd til að fara með heim, ég var alltaf jafn ánægð með blómin þín. Svo man ég Helga Egilsdóttir ✝ Helga Egils-dóttir fæddist í Haukshúsum á Álftanesi 25. októ- ber 1916. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 19. sept- ember síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Keflavík- urkirkju 25. ágúst. að uppáhaldsmaturinn sem ég fékk hjá þér var fiskur með smjöri og kartöflum, að ógleymdum pönnu- kökunum, bestu í heimi. Mörg kvöldin sátum við og spiluðum olsen og þú kenndir mér að prjóna og sauma, þessu gleymi ég aldrei. Það var allt- af gott að koma heim til ykkar á Vestur- brautina, alltaf tekið á móti manni með hlýju og ást. Það eru ótal atriði sem ég rifja upp núna, elsku amma, sem ég geymi um ókomna tíð og eru ómet- anleg. Elsku amma, hvíl í friði og ég veit að við munum hittast aftur á betri stað. Þín nafna, Helga. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar alla útgáfudag- ana. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðs- ins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist valkosturinn Minn- ingargreinar ásamt frekari upplýsingum. Minningar- greinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.