Morgunblaðið - 27.10.2006, Page 4

Morgunblaðið - 27.10.2006, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR www.jpv.is Vilborg Dagbjartsdóttir kann þá list að segja börnum góðar sögur sem halda huganum föngnum. Í bókinni birtast sögur og ljóð sem komu út á árunum 1959–2005. Barnaefni Vilborgar er þegar orðið sígilt. Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is GRUNDVALLARFORSENDA þess að Íslendingar geti nýtt sér þau tækifæri sem felast í hnattvæðingu er stöðugleiki í efnahagslífi, á vinnu- markaði og hvað varðar félagslegt réttlæti. Á það hefur skort og hafa stjórnvöld sýnt takmarkaða ábyrgð. Þetta var meðal þess sem kom fram í ræðu Grétars Þorsteinssonar, forseta Alþýðusambands Íslands (ASÍ), þegar hann setti ársfund sam- bandsins á Hótel Nordica í gær. Meginefni ársfundarins er hnattvæð- ingin og staða launafólks og sagði Grétar að félög, einstök ríki og al- þjóðasamfélagið í heild, ætti að skuldbinda sig til að vinna að því að hnattvæðingin leiddi til aukinnar vel- ferðar. „Stjórnvöld hafa ítrekað sýnt tak- markaða ábyrgð og skort á aðhaldi þegar kemur að réttindum erlends launafólks. Það vantar upp á fræðslu, íslenskukennslu og annað það sem tryggir nauðsynlega aðlögun að ís- lensku samfélagi. Þetta leiðir til fé- lagslegrar einangrunar,“ sagði Grét- ar. „Þetta viljum við uppræta. Við viljum öflugt velferðarkerfi sem tryggir öllum íbúum félagslegt rétt- læti og efnahagslegt öryggi. Með því drögum við úr ójöfnuði og tryggjum samstöðu meðal þjóðarinnar.“ Grétar benti á að ASÍ hefði oft tal- að fyrir mikilvægi þess að samþætta stefnuna í efnahags-, atvinnu- og fé- lagsmálum. Því miður hefði oft verið talað fyrir daufum eyrum og oft hefði verið horft upp á alvarlegar afleið- ingar þess. „Ólga í efnahagsmálum og á vinnu- markaði á undanförnum árum er ekki síst til komin vegna þess að stjórnvöld hafa litið hlutina öðrum augum. Stefna ríkisstjórnarinnar hefur þannig beinlínis ýtt undir nei- kvæðar afleiðingar hnattvæðing- arinnar,“ sagði Grétar. Reglur og refsiákvæði „Hnattvæðingin krefst […] meiri samábyrgðar vegna þess að við verð- um sífellt háðari því sem aðrir ákveða og gera. Hún krefst þess að settar verði skýrari reglur á alþjóð- legum vettvangi og jafnframt að skil- greind séu refsiákvæði gagnvart löndum og fyrirtækjum sem fylgja ekki þessum alþjóðlegu reglum,“ sagði Grétar. Eitt af meginverkefnum verka- lýðsfélaga er að tryggja að launafólk njóti jákvæðra áhrifa hnattvæðingar, sagði Grétar. „Þess vegna viljum við ábyrga og réttláta hnattvæðingu. Við krefjumst þess að tekið verði tillit til mannréttinda, vinnuumhverfis, nátt- úruverndar og félagslegra réttinda á forsendum öflugs velferðarkerfis. Við gerum þá kröfu að aukinn hag- vöxtur og frjálsari heimsviðskipti verði í ríkari mæli byggð á fé- lagslegum, siðferðilegum og um- hverfislegum gildum – en ekki ein- ungis því sem snýr að viðskiptum.“ Þarf samstöðu á alþjóðavísu Grétar sagði að stórauka yrði upp- lýsingagjöf og umræðu um þau vandamál sem alþjóðleg verkalýðs- hreyfing stæði frammi fyrir. „Við verðum þannig að vera reiðubúin til að bregðast við af hörku til að geta brotið á bak aftur neikvæðar afleið- ingar hnattvæðingarinnar. Það ger- ist ekki án samstöðu – samstöðu heima fyrir og á alþjóðavísu,“ sagði Grétar, áður en hann setti ársfund ASÍ. Stöðugleika þarf til að nýta tækifærin, segir forseti ASÍ Morgunblaðið/Árni Sæberg Trommur og rímur Mikill fjöldi var samankominn á ársfundi ASÍ í gær og hlýddu gestir m.a. á tónlist frá Gíneu og Ástralíu sem og íslenskar rímur við upphaf fundar og gaf það tóninn fyrir umræður um hnattvæðingu. Segir stjórnvöld hafa ýtt undir neikvæðar afleiðingar hnattvæðingarinnar MIKILVÆGT er að fjölgun erlendra fyrirtækja og út- lendinga á innlendum vinnumarkaði raski ekki reglum og samskiptahefðum sem mótast hafa hér á landi fyrir tilstuðlan aðila vinnumarkaðarins, sagði Magnús Stef- ánsson félagsmálaráðherra á ársfundi ASÍ í gær. „Tryggja þarf að erlent starfsfólk njóti þeirra rétt- inda og kjara sem gilda hér á landi sem og að stuðla að því að milliliðalaust ráðningarsamband milli vinnuveit- anda og starfsmanna verði áfram meginreglan,“ sagði Magnús. Í því sambandi sagði ráðherra mikilvægt að atvinnu- lífið, ekki síður en stjórnvöld, sé vakandi og finni til ábyrgðar. „Af heimild til að ráða erlendan starfsmann leiðir ábyrgð um að uppfræða hann um réttindi og skyldur. Það er flókið og erfitt að átta sig á aðstæðum í nýju landi þar sem aðrar reglur gilda en fólk hefur vanist í sínu heimalandi,“ sagði Magnús. „Það er því mikilvægt að útlendingar sem koma hingað til starfa hafi kynnt sér íslenskar reglur, meðal annars hvar þeir eigi að skrá sig og sækja um tilskilin leyfi til að dvelja hér á landi. Hér gegna aðilar vinnu- markaðarins lykilhlutverki, ásamt stjórnvöldum.“ Ráðherra sagði sveigjanleikann höfuðeinkenni íslensks vinnumarkaðar, en bera þurfi virðingu fyrir þeim kostum sem sveigjanleikinn hafi í för með sér til að koma í veg fyrir misnotkun á honum. Hætti menn að virða leikreglur, sem lengi hafi viðgengist í samskiptum atvinnurekenda og launafólks, þurfi að taka það mál upp og ræða á opinskáan hátt. Milliliðalaust ráðningarsam- band verði áfram meginreglan Magnús Stefánsson ALÞÝÐUSAMBAND Íslands ætlar að óska formlega eftir viðræðum við BSRB um mögulegt samstarf í fræðslumálum og kjaramálum. Þetta tilkynnti Grétar Þorsteinsson, for- seti ASÍ, á þingi BSRB á miðviku- dag, og ítrekaði á ársfundi ASÍ í gær. Grétar sagði hugmyndirnar hafa verið ræddar nýlega í miðstjórn ASÍ, og tekin ákvörðun um að senda BSRB bréf þar sem óskað var eftir viðræðum. Sagði hann ýmis skilyrði gera það að verkum að auðveldara væri að ræða slíkt samstarf nú en áð- ur. Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, fagnar frumkvæðinu. „Ég hef lengi talað fyrir auknu samstarfi innan verkalýðshreyfingarinnar al- mennt, bæði við Alþýðusamband Ís- lands og önnur samtök á vinnumark- aði; Kennarasambandið, BHM og Samband íslenskra bankamanna.“ Hann bendir á að BSRB hafi fund- ið að því við gerð síðustu kjarasamn- inga, og ekki síður við endurskoðun kjarasamninga, að þar hefði BSRB verið haldið frá borði. „Það er mjög jákvætt að fá þennan stuðning frá forseta Alþýðusambands Íslands um hans áherslur varðandi sameiginleg- ar aðkomu að kjarasamningum, og ég fagna þessu frumkvæði hans,“ segir Ögmundur. Hann segir engan vafa í sínum huga að markmið ASÍ og BSRB séu samrýmanleg. „Þegar um er að tefla grundvallarréttindi launafólks, og grunninn í kjörunum, þá fara hags- munir okkar saman.“ Sameiginlegur grundvöllur en margvíslegar útfærslur Hvað varðar sértækari hagsmuni, eins og nákvæmar útfærslur á launa- töxtum, segir Ögmundur: „Þarna er spurning um blöndu sem menn þurfa að ná samstöðu um. Í kjarasamning- um á Norðurlöndum er iðulega sam- ið á sameiginlegum grunni um sjálf- an grundvöllinn, en svo eru til margvíslegar útfærslur innan ein- stakra greina, stofnana og fyrir- tækja. Þetta eru hlutir sem þarf að leggjast yfir.“ Ögmundur segist sem minnst vilja segja um mögulega útfærslu sam- starfsins á þessari stundu, heldur eigi að ganga til viðræðna með opn- um huga. BSRB tekur ósk ASÍ um aukið samstarf fagnandi Grétar Þorsteinsson Ögmundur Jónasson NIÐURSTÖÐUR könnunar Per- sónuverndar á rafrænni vöktun hér á landi benda til þess að íslensk fyr- irtæki geti bætt sig hvað varðar notkun myndavéla, hvernig haga skuli eftirliti og því að gögnum sé eytt. Þetta kom fram í erindi Sigrúnar Jó- hannesdóttur, for- stjóra Persónuvernd- ar, á þingi BSRB í gær. Könnunin var unn- in með spurningalistum sem sendir voru til 150 íslenskra fyrirtækja, sagði Sigrún í samtali við Morgun- blaðið í gær. Hún segir miður að þátttakan í könnuninni hafi verið lít- il, innan við 30% fyrirtækja sem fengu spurningalistann hafi séð sér fært að svara. Því sé ekki unnt að fullyrða neitt út frá niðurstöðunum og þær verði ekki birtar. Hins vegar felist ákveðnar vísbendingar í þeim svörum sem bárust. Í könnuninni var spurt um eftirlit með net- og tölvupóstnotkun, notkun eftirlitsmyndavéla og notkun ökusí- rita til að fylgjast með akstri starfs- fólks á ökutækjum í eigu fyrirtæk- isins. Einnig var spurt hvort reglur væru til um vöktun og framkvæmd eftirlitsins, hvort starfsfólk hefði fengið fræðslu um eftirlitið og þá hvort tilgangur eftirlitsins hefði ver- ið nefndur, hvort starfsfólk hefði með einhverjum hætti samþykkt eft- irlitið og hversu lengi gögn sem söfn- uðust við eftirlitið væru geymd. Um 75% geta bætt sig Sigrún segir meginniðurstöðuna vera þá að um 3⁄4 hlutar þeirra fyr- irtækja sem svöruðu gætu bætt sig, þá helst þegar kemur að fræðslu um notkun myndavéla, og í því að setja reglur um hvernig haga skuli eftir- liti, einkum með akstri starfsfólks. Einnig hafi verið misbrestur á því að starfsfólk sé látið vita um eftirlit með net- og tölvupóstnotkun, og að gögn- um sem fást úr slíku eftirliti sé eytt. Í erindi sínu benti Sigrún á að í hliðstæðri rannsókn sem unnin var í Svíþjóð árið 2005 reyndist rafræn vöktun viðhöfð í um helmingi fyrir- tækja og stofnana, en aðeins í helm- ingi þeirra tilvika þar sem vöktun fór fram hefði starfsfólk verið látið vita. Rafræn vöktun könnuð Sigrún Jóhannesdóttir Misbrestur á því að starfsfólk sé látið vita

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.