Morgunblaðið - 27.10.2006, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2006 13
Höfum opnað netverslunina
www.bestseller.is
Ótrúleg opnunartilboð!
að upp í gult. „Þá var hreint og
beint sett í gang áætlun, þ.e.a.s.
byrjað að kalla inn fólk, byrjað að
gera menn, deildir og útbúnað klár-
an, auk þess greiningarsveitir voru
sendar á vettvang til að vinna með
heilbrigðisstarfsmönnum á svæðinu.
Allur spítalinn var gangsettur til að
taka á móti þeirri hættu sem blasti
við.“
Ófeigur tekur sem dæmi um það
hversu víðtækar aðgerðirnar eru að
t.a.m. er haft samband við eldhúsið
sem gera þarf klárt til að afgreiða
aukaskammta af mat.
Ekki gerðist þörf fyrir að kalla
starfsfólk til vinnu en þegar við-
bragðsáætlunin fór í gang var að
koma að vaktaskiptum þannig að
starfsmenn fóru ekki af vöktum fyrr
en hættunni hafði verið aflýst, eftir
að vélin lenti.
Morgunblaðið/RAX
Í HNOTSKURN
»Um kl. 14:45 í gærdag til-kynnti flugstjóri vél-
arinnar truflun í hreyfli og
óskaði eftir öryggislendingu.
»Rétt eftir klukkan þrjúlýsti hann yfir neyðar-
ástandi og fór þá í gang mikil
viðbragðsáætlun.
»Um fjögurleytið var ljóstað fullt afl var komið á
hreyfla vélarinnar og vörpuðu
viðbragðsaðilar þá öndinni
léttar.
»Flugvélin lenti heilu oghöldnu og hélt ferð sinni
áfram eftir stutt stopp.
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
GESTUR Jónsson, verjandi Jóns
Ásgeirs Jóhannessonar, eins sak-
borninga í Baugsmálinu, segir engan
vafa leika á því í sínum huga að þau
gögn, sem aflað var frá Lúxemborg
við rannsókn málsins árið 2004, séu
notuð ranglega, eða með öðrum
hætti en gert hafi verið ráð fyrir þeg-
ar þeirra var aflað.
Jón H. Snorrason, yfirmaður efna-
hagsbrotadeildar ríkislögreglu-
stjóra, svaraði í Morgunblaðinu í
gær ásökunum sem komu fram í
bréfi Jóns Ásgeirs, sem birt var í
Morgunblaðinu á miðvikudag.
Í bréfi Jóns Ásgeirs kom fram að
þegar heimild fékkst til húsleitar hjá
Kaupþingi í Lúxemborg hafi verið
vísað í grun um fjárdrátt, fjársvik,
innherjasvik og peningaþvætti. Jón
H. Snorrason segir að í beiðni til yf-
irvalda í Lúxemborg hafi komið fram
ítarleg lýsing á sakarefnum, og
vegna sumra atvika hafi verið reist
sakamál sem nú sé fyrir dómi.
Gestur vísar í orð Jóns H. Snorra-
sonar, sem sagði skýrt að óheimilt
væri að nota þau gögn sem aflað var
með þeim hætti sem gert var í Lúx-
emborg vegna annarra sakarefna en
þeirra sem nefnd voru í réttarbeiðn-
inni sem lögð var fram hjá yfirvöld-
um í Lúxemborg.
„Mér finnst blasa við að þeir hafi
ekki farið eftir því,“ segir Gestur og
bendir á að í þremur ákæruliðum í
endurákæru
setts ríkissak-
sóknara í hluta
Baugsmálsins
séu gögn frá Lúx-
emborg notuð. Í
réttarbeiðninni
hafi verið farið
fram á heimild á
grundvelli þess
að verið væri að
rannsaka innher-
jasvik, peningaþvætti, fjárdrátt og
fjársvik, en ákæran hljóði upp á bók-
haldsbrot.
„Ég skil þetta þannig að það sé
enginn vafi á því að þarna sé verið að
fara öðruvísi með heldur en átti að
gera samkvæmt réttarbeiðninni,“
segir Gestur. Hann bendir á að mik-
ill munur sé á alvarleika þeirra brota
sem nefnd voru í upphafi og bók-
haldsbrota. „Þetta er eins og að bera
saman ofsaakstur og stöðumæla-
sekt.“
Notkun gagna skilyrt
„Grundvöllurinn fyrir þessu í Lúx-
emborg er að því réttarkerfi sem er
þar verði ekki spillt með því að menn
komi inn hjá þeim og leiti eftir af-
brotum sem eru eftir atvikum ekki
brot samkvæmt þeirra réttar-
reglum. En á sama hátt vilja þeir líka
tryggja að ef alvarlegir glæpir þríf-
ast í þeirra samfélagi, eins og pen-
ingaþvætti, eiturlyfjasala, mansal
eða fjársvik, standi þeirra reglur
ekki í vegi fyrir því að rannsaka slík
mál með árangri. Þess vegna skiptir
öllu máli að notkun gagna sem aflað
er sé ekki önnur en sú sem tilgreind
var þegar heimildar var aflað,“ segir
Gestur.
„Það er alvarlegt mál ef það er
þannig að lögregluyfirvöld, í sam-
skiptum við réttarvörsluna í Lúxem-
borg, fara inn á öðrum forsendum
heldur en rétt er. Ég er þeirrar skoð-
unar að svo sé, með þeim forsendum
sem ég hef lýst, og auðvitað getur
komið til þess að á þetta reyni.“
Bréfi saksóknara ekki svarað
Gestur bendir á að í bréfi saksókn-
ara í Lúxemborg til ríkislögreglu-
stjóra, sem sent var árið 2004, sé
ítrekað að einungis megi nota gögnin
sem aflað var við rannsókn á ákæru-
efnum sem nefnd séu í réttarbeiðni.
„Mér skilst að þessu bréfi hafi
ekki einu sinni verið svarað af ís-
lenskum yfirvöldum. Það er út af
fyrir sig alvarlegt að menn skuli ekki
svara erindum sem beint er til ís-
lenskra yfirvalda þegar þau varða
tvíhliða samskipti eins og í þessu til-
viki. Það er afar mikilvægt að réttum
leikreglum sé fylgt í samskiptum Ís-
lands og annarra ríkja sem varða
réttarvörslu í alvarlegum brotum.
Það hlýtur að hafa alvarleg áhrif ef
við svörum ekki erindum sem þetta
varða frá öðrum aðila, svo það bætist
ekki við að verið sé að brjóta gegn
reglunum sem settar eru um hvernig
eigi að nota þessi gögn,“ segir Gest-
ur.
Enginn vafi á að gögn
séu notuð ranglega
Gestur Jónsson