Morgunblaðið - 27.10.2006, Síða 16

Morgunblaðið - 27.10.2006, Síða 16
16 FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ ÚR VERINU „SÍÐASTLIÐIÐ fiskveiðiár var að mörgu leyti einstakt í sögu smá- bátaútgerðarinnar. Þar var bæði toppi og botni náð. Jákvæðu frétt- irnar eru þær að aflinn hefur aldr- ei orðið meiri hjá smábátum, end- aði í 80.666 tonn tonnum. Krókaaflamarksbátar voru með 75.481 tonn og aflamarksbátar 5.185 tonn. Alls voru það 802 smá- bátar sem lönduðu afla, 684 í krókaaflamarki og 118 í aflamarki. Í krókaaflamarkinu var meðaltal- safli á bát 110 tonn. Með hliðsjón af þessum afla má ætla að heildar- útflutningsverðmæti hans losi 22 milljarða.“ Þetta kom fram í skýrslu Arnar Pálssonar, framkvæmdastjóra LS, á aðalfundi samtakanna í gær. „En það eru ekki allar línur í gröfunum á leið upp,“ sagði Örn og hélt áfram: „Frá stofnun Landssambands smábátaeigenda er fjöldi báta með afla sá minnsti á ársgrundvelli. Bátunum hefur fækkað um 237 á 2 árum eða um tæp 23%. Miklar sveiflur Ekkert lát er á gríðarlegum sveiflum og það sem ræðumaður telur vera sérstaklega neikvæðar fréttir þegar rýnt er í þróun sl. ára er hversu handfæraveiðar hafa gefið eftir. Þorskaflinn á færin er nú aðeins þriðjungur miðað við það sem hann var fyrir 3 árum. Það ár, fiskveiðiárið 2002/2003, voru veidd 16.505 tonn af þorski á handfæri, en aðeins 5.703 tonn á síðasta fisk- veiðiári. Á tímabilinu hefur hlutur handfæranna lækkað úr 8% af heildarþorskaflanum í 3%. Helstu orsakir fyrir þeim tveim- ur niðursveiflum sem hér hafa ver- ið nefndar, fækkun báta og minni handfæraafla, er ákvörðun stjórn- valda að afnema sóknardagakerfi smábáta 2004. Heimsmetið bætt Góðir fundarmenn – miklum afla fylgja fréttir af aflakóngum. Þrír bátar sköruðu fram úr á árinu, Guð- mundur Einarsson, Hrólfur Einars- son og Sirrý, allir úr Bolungarvík. Þrír aðrir voru ekki langt á eftir, Narfi SU, Kristinn SH og Gísli Súrs- son GK, en þessir sex bátar rufu allir 1.000 tonna múrinn og nam saman- lagður afli þeirra 10,3% af heildar- afla krókaaflamarksbáta. Guðmundur Einarsson bætti um betur frá fyrri heimsmetum og er nú kominn nær 2.000 tonnunum en 1.000 endaði í 1.507 tonnum. Skip- stjóri á Guðmundi er Egill Jónsson. Í aflamarkinu var Már frá Grinda- vík með mestan afla, 287 tonn. 16% með tvo þriðju hluta aflans Tveir þriðju hlutar afla krókabáta skiptast þannig eftir fjölda báta og tegundum. 109 bátar eða 16% með heildarafla krókaaflamarksbáta. 111 bátar eða 17% með þorskinn. 74 bátar 14% veiddu tvo þriðju hluta ýsunnar og 28 eða úr 7% bátanna með steinbítinn. Á yfirstandandi fiskveiðiári hefur alls 42.642 þorskígildum verið út- hlutað til krókaaflamarksbáta sem nálgast að vera 12% af heildarverð- mæti úthlutaðra aflaheimilda. Alls voru það 516 bátar sem fengu út- hlutað varanlegum veiðiheimildum, þar af 475 sem skipta með sér 27 þúsund tonnum af þorski, 391 skiptir með sér 12.400 tonnum af ýsu og 374 rúmum 4.000 tonnum af steinbít. Hæstu hlutföllin í Grindavík 72% heildarverðmæta krókaafla- marksbáta komu í hlut þeirra sem fengu meira en 100 tonn í þorskígild- um talið, alls voru það 99 bátar. Í þorski eru það 65 bátar sem fengu úthlutað meira en 100 tonnum, sem jafngildir 57% af veiðiheimild- unum, í ýsu 35 bátar með 60% veiði- heimildanna og í steinbít koma 61% hlutdeildarinnar í hlut 26 báta sem fengu meira en 50 tonnum úthlutað. Hæstu hlutföll eins báts eru 2,9% í þorski, 5,6% í ýsu, 5,9% í steinbít og 3,3% í þorskígildum. Þeir þrír bátar sem hér eiga hluta að máli eiga allir heimahöfn í Grindavík, Þórkatla, Óli á Stað og Gísli Súrsson.“ Afli smábátanna aldrei orðið meiri Áætla má að heildarútflutnings- verðmæti afla smá- bátanna nemi 22 milljörðum króna                        !"#$ %$    &  '( )  &  ( ) # *   &                           +           !  " # $ %   Í HNOTSKURN » Á tímabilinu hefur hluturhandfæranna minnkað úr 8% af heildarþorskaflanum í 3%. » Þrír bátar sköruðu framúr á árinu, Guðmundur Einarsson, Hrólfur Einarsson og Sirrý, allir úr Bolungarvík. » Hæstu hlutföll eins bátseru 2,9% í þorski, 5,6% í ýsu, 5,9% í steinbít og 3,3% í þorskígildum. Eftir Hjört Gíslason hjgi@mbl.is „GOTT fiskveiðikerfi á að hafa innbyggða hvata fyrir fiskimenn að færa veiðarnar sem mest yfir á kyrrstæð veiðarfæri. Línuívilnun er vissulega skref í rétta átt og ég hef heyrt marga erlenda kaupendur fisks ljúka lofsorði á þessa að- ferðafræði. Það segir mér aðeins eitt: Markaður- inn mun í sívaxandi mæli gera kröfu þar um, hvort sem einhverjum stórútgerðarmönnum líkar betur eða verr,“ sagði Arthur Bogason, formaður Landssambands smábátaeigenda, á aðalfundi þess í gær. „Það er á þessu sviði, sem mörgum öðrum sem sóknarfæri smábátaútgerðarinnar liggja og það er sannfæring mín að LS eigi að beina kröftum sínum af alefli til að sem flestir félagsmanna fái notið. Sífellt fleiri aðilar sýna smábátaútgerðinni áhuga og það er trú mín að enn sjáum við bara toppinn á ísjakanum í því sambandi. Á aðalfundum svæðisfélaganna komu víða fram áhyggjur félagsmanna yfir þeirri þróun að smá- bátum fækki og að örfáir bátar sem rétt rúmast innan reglna um stærð smábáta muni innan skamms veiða þær aflaheimildir sem smábátaflot- inn ræður yfir. Þverstæðan sem við stöndum hins vegar frammi fyrir er sú staðreynd að smábáta- flotinn fiskar sem aldrei fyrr. Samfara því að lýsa yfir áhyggjum sínum af þessari þróun kom víða fram sú skoðun að nauð- synlegt væri að til væri handfærakerfi, með til- tölulega þröngan stakk hvað varðar stærð báta og tækjabúnað til veiða. Eitt af því sem stærri smá- bátar og samþjöppun aflaheimilda þeirra á meðal mun framkalla er sífellt sterkari krafa um slíkt kerfi. Og í ljósi nýjustu tíðinda, þar sem hægt var að gefa út leyfi til hvalveiða í atvinnuskyni, eitt- hvað sem langflestir töldu að aldrei yrði, get ég ekki ímyndað mér að það sé óyfirstíganlegt fyrir stjórnvöld að opna slíkt handfæraleyfi,“ sagði Arthur. Sífellt fleiri sýna útgerð smábáta áhuga Morgunblaðið/Eyþór Fiskveiðar Arthur Bogason, formaður LS, er fylgjandi hvalveiðum. EINAR K. Guðfinnsson sjávarút- vegsráðherra segir miklar rang- færslur vaða uppi um hvalveiðar okk- ar í erlendum fjölmiðlum, sem haldið sé á lofti af ýmsum ráðamönnum, t.d. í Bretlandi, Svíþjóð og Ástralíu. „Það er mjög bágt að hugsa til þess að fulltrúar virðulegra ríkja sem vilja láta taka sig alvarlega á alþjóðlegum vettvangi, vinaþjóðir okkar á borð við Breta og Svía svo dæmi séu tekin, skuli fara með fleipur. Bera upp á okkur Íslendinga það sem fær ekki staðist og öllum á að vera ljóst að eru staðlausir stafir. Það er óhrekjanleg staðreynd að hvorug þeirra hvalateg- unda sem veiðar hafa verið leyfðar á, hrefna eða langreyður, er í útrýming- arhættu hér við land, langt því frá,“ sagði Einar á aðalfundi Landssam- bands smábátaeigenda í gær. Hann gerði hvalveiðar, krókaafla- markskerfi við fiskveiðistjórnun, línu- ívilnun og byggðakvóta að umtalsefni í ræðu sinni á aðalfundi Landssam- bands smábátaeigenda sem haldinn var á Grand Hóteli í dag. Möguleikar á markvissari úthlutun byggðakvóta Ráðherra fjallaði um möguleika á að úthluta byggðakvóta með mark- vissari hætti en hingað til svo afla- heimildirnar skiluðu því hlutverki sem til væri ætlast. Til dæmis mætti gera ríkari kröfur um að afla væri landað til vinnslu í heimabyggð. „Ég tel ennfremur koma til álita að skoða hvort úthluta eigi þessum byggðakvótum til lengri tíma í senn, að minnsta kosti að hluta til, í því skyni til að draga úr óvissu. Við vitum að óvissa er óvinur sjávarútvegsins og eftir því sem óvissa eykst um starfs- aðstæður greinarinnar þeim mun minni áhugi verður á því að fjárfesta til frambúðar.“ Grundvelli línuívilnunar ekki breytt Grundvelli línuívilnunar sagði Ein- ar Kristinn ekki standa til að breyta. Línuívilnun styrki byggðirnar og grundvöll smábátakerfisins. Við setn- ingu kvótaþaks í krókaaflamarkskerf- inu sagði sjávarútvegsráðherra heild- arhagsmuni hafa verið hafða að leiðarljósi. „Fullt tilefni var til þess- arar lagasetningar. Samþjöppunin var heilmikil, við sáum að hún jókst hratt og stefndi í að verða óhæfilega mikil. Ég nefni það svo vegna þess að óheft áframhaldandi þróun hefði smám saman dregið máttinn úr ýms- um byggðarlögum og sú landfræði- lega dreifing sem var meginforsenda krókaaflamarksins í upphafi hefði brátt orðið úr sögunni. Hætt er við að ný átök hefðu hafist í kringum þetta fyrirkomulag – öllum til ills. Útgerð- um, smáum sem stórum, og byggð- unum ekki síst. Þess vegna var nauð- synlegt að grípa til aðgerða.“ Með þessu hafi menn viljað við- halda sérstöðu þessa kerfis og þeim forsendum sem til grundvallar voru lagðar í upphafi. „Þess vegna var þetta algerlega óhjákvæmilegt að mínu mati og ég er ekki í nokkrum vafa um að hefur jákvæð áhrif þegar á heildina er litið,“ sagði Einar Kristinn Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra á aðalfundi Landssambands smábáta- eigenda í gær. Morgunblaðið/Eyþór Fundir Frá setningu aðalfundar LS. Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir fund- arritari, Örn Pálsson, framkvæmdastjóri LS, og Einar K. Guðfinnsson sjáv- arútvegsráðherra. Rangfærslur um hvalveiðar H ö n n u n / S m í ð i / V i ð g e r ð i r / Þ j ó n u s t a Omega 3-6-9 FRÁ H á g æ ð a fra m le ið sla A ll ta f ó d ýr ir GÓÐ HEILSA GULLI BETRI Fjölómettaðar fitusýrur NNFA QUALITY APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.