Morgunblaðið - 27.10.2006, Síða 18
18 FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Í HNOTSKURN
» Hlutfall rekstrarkostn-aðar af hreinum rekstr-
artekjum var 42,7% í lok sept-
ember samanborið við 34,4% í
lok árs 2005.
» Arðsemi eigin fjár nam32,6% í lok september en í
lok árs 2005 nam arðsemi eig-
in fjár 45,8%.
» Eiginfjárhlutfall A nam13% í lok september en var
11,9% í lok árs 2005. CAD-
hlutfall var 15% í lok sept-
ember en 13,1% í lok árs 2005.
HAGNAÐUR Landsbankans á
þriðja ársfjórðungi nam 5,7 milljörð-
um króna en þar af nam hagnaður
hluthafa 5,3 milljörðum króna. Þetta
er undir væntingum en Greining
Glitnis hafði spáð 6,2 milljarða hagn-
aði hluthafa og Kaupþing banki 7,8
milljarða hagnaði hluthafa. Hagnað-
ur hluthafa á þriðja ársfjórðungi í
fyrra nam tæpum fimm milljörðum
en á öðrum ársfjórðungi þess árs
nam hann tæpum sex milljörðum.
Í Morgunkorni Glitnis segir að
tekjuliðir hafi á heildina litið verið í
takt við spá Greiningar en kostnað-
arliðir hafi verið nokkru hærri og
skýri mestan hluta spáskekkju
hagnaðar.
Enn aukast rekstrartekjur
Hreinar vaxtatekjur námu 9,3
milljörðum króna samanborið við 6,3
milljarða á þriðja ársfjórðungi í
fyrra, hreinar þóknanatekjur námu
6,6 milljörðum samanborið við 4,4
milljarða á sama tímabili í fyrra og
aðrar rekstrartekjur voru 2,7 millj-
arðar samanborið við 6,2 milljarða á
sama tímabili í fyrra.
Rekstrargjöld námu 9,7 milljörð-
um miðað við tæpa fimm milljarða á
sama tímabili í fyrra og virðisrýrnun
útlána nam 1,6 milljörðum króna en
var 1,7 milljarðar á fjórða ársfjórð-
ungi í fyrra.
Á fyrstu níu mánuðum ársins nam
hagnaður Landsbankans 26,2 millj-
örðum króna samanborið við 16,2
milljarða á sama tímabili í fyrra.
Þetta er um 61% aukning hagnaðar.
Þar af nam hagnaður hluthafa 25,2
milljörðum.
Heildareignir bankans námu tæp-
um tveimur milljörðum króna í lok
september og jukust um 8,3% á
þriðja fjórðungi. Útlán bankans juk-
ust um 8% og innlán frá viðskiptavin-
um jukust um 8% en heildarinnlán
bankans stóðu í stað þar sem innlán
frá fjármálastofnunum drógust sam-
an. Eigið fé hluthafa nam 130 millj-
örðum í lok fjórðungsins samanborið
við 110 milljarða í byrjun árs.
Uppgjör Landsbankans
undir væntingum
Hagnaður bankans jókst um 61% á fyrstu níu mánuðum ársins
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Uppgjör Landsbankinn birti uppgjör fyrir þriðja ársfjórðung í gær og var
hagnaður bankans á fjórðungnum 5,7 milljarðar króna.
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● MIKIL viðskipti voru með hlutabréf
í Kauphöll Íslands í gær eða fyrir um
49 milljarða króna en þar af voru við-
skipti með bréf í Straumi-Burðarási
fyrir um 42,3 milljarða króna.
Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands
lækkaði um 0,41% í gær eða í
6.473,5 stig.
FL Group lækkaði um 2,5%, Össur
um 1,96% og Landsbankinn um
1,49%. Bakkavör hækkaði hins veg-
ar um 1%.
Mikil viðskipti í
Straumi-Burðarási
● VIÐSKIPTABANKARNIR þrír, Glitnir,
Kaupþing banki og Landsbankinn,
eru allir með óbreytt lánshæfismat
hjá alþjóðlega matsfyrirtækinu Moo-
dy’s. Þetta kemur fram í nýjum
skýrslum fyrirtækisins sem gefnar
voru út í vikunni.
Í Morgunkorni Greiningar Glitnis
segir að í skýrslunum komi fram að
horfur séu stöðugar hvað varðar
lánshæfiseinkunnir bankanna á
skuldbindingum til lengri og til
skemmri tíma. Fyrr á árinu sagði
Moody’s hins vegar að horfur væru
neikvæðar varðandi einkunnir bank-
anna fyrir fjárhagslegan styrkleika.
Fyrirtækið setti Kaupþing banka þá á
athugunarlista og var einkunn bank-
ans fyrir fjárhagslegan styrkleika
lækkuð úr C+ í C í septembermán-
uði.
Fram kemur í Morgunkorninu að
enn séu sagðar neikvæðar horfur fyr-
ir C einkunn Landsbankans og C+
einkunn Glitnis fyrir fjárhagslegan
styrkleika en Moody’s hefur þó séð
ástæðu til að breyta einkunnagjöf-
inni.
„Áfram ríkir því óvissa um hvort
einkunnir bankanna verði lækkaðar
með tilliti til fjárhagslegs styrkleika,
en sú hætta virðist minnkandi,“ seg-
ir í Morgunkorni Glitnis.
Óbreytt mat Moody’s
á bönkunum
● BJARNI Birg-
isson hefur verið
ráðinn nýr for-
stjóri Kögunar,
dótturfyrirtækis
Dagsbrúnar í stað
Gunnlaugs M.
Sigmundssonar
sem hefur látið af
störfum sem for-
stjóri fyrirtæk-
isins.
Þá hefur Jóhann Þór Jónsson verið
ráðinn fjármálastjóri Kögunar.
Bjarni er með M.Sc. gráðu í tölv-
unarfræði og hefur starfað hjá Kögun
frá árinu 199. Hann gegndi stöðu
tæknistjóra og yfirmanns hugbún-
aðardeildar íslenska loftvarnakerf-
isins til 1998 en hefur síðan byggt
upp starfsemi Kögunar á sviði upp-
lýsingatækni á innlendum og erlend-
um mörkuðum sem framkvæmda-
stjóri þróunardeildar.
Jóhann er viðskiptafræðingur frá
Háskóla Íslands og hefur starfað hjá
Kögun frá nóvember 2004.
Gunnlaugur hefur gegnt starfi for-
stjóra frá því félagið hóf starfsemi ár-
ið 1989, auk þess að vera einn
helsti hvatamaður að stofnun þess.
Gunnlaugur mun áfram gegna
stjórnarformennsku í mörgum af
dótturfélögum Kögunar.
Gunnlaugur hættir
hjá Kögun
Gunnlaugur
Sigmundsson
SAMSON Global Holdings hefur
keypt 16,74% hlut í Straumi-
Burðarási af Fjárfestingafélaginu
Gretti og var gengi bréfanna í við-
skiptunum 17,3. Eftir kaupin á
Samson Global Holdings 30,2%
hlut í Straumi-Burðarási. Samson
Global Holding er í eigu Björgólfs
Guðmundssonar og Björgólfs
Thors Björgólfssonar, sem er
stjórnarformaður Straums-
Burðaráss.
Grettir og Blátjörn sameinuð
Í gær voru svo Grettir og Blátjörn
ehf. sameinuð undir nafni Grettis
eftir að eignarhaldsfélagið Hansa
ehf., sem er í eigu Björgólfs Guð-
mundssonar, keypti 33,6% hlut í
fyrrnefnda félaginu. Sund átti um
49% hlut í Blátjörn og Hansa og
Novator einnig um 49%.
Eftir sameiningu Blátjarnar og
Grettis undir nafni Grettis eru
helstu eigendur félagsins Sund
ehf. með 49,05%, Hansa ehf. með
28,51% og Opera fjárfestingar ehf.
með 20,6% en það er félag í eigu
Björgólfsfeðga.
Heildareignir Grettis eru um 40
milljarðar króna og er eigið fé um
60%.
Samson með rúm 30%
í Straumi-Burðarási
BAKKAVÖR Group var rekið með
4,6 milljarða króna hagnaði eftir
skatta á fyrstu níu mánuðum ársins
sem er 68% aukning frá sama tíma-
bili í fyrra. Hagnaðurinn á þriðja
fjórðungi ársins nam tveimur millj-
örðum króna eftir skatta sem 70%
aukning frá sama tímabili í fyrra og
methagnaður á einum fjórðungi.
Arðsemi eigin fjár fyrstu níu mán-
uði ársins var 28,2% sem er mjög
svipað og í fyrra. Eigið fé nam 27,2
milljörðum í lok tímabilsins og eig-
infjárhlutfall var 16,5% á móti 12,4%
um síðustu áramót.
Nær 10% vöxtur
Hagnaður fyrir skatta og fjár-
magnsliði (EBIDTA) nam 14,2 millj-
örðum fyrstu níu mánuði ársins, þar
af voru 5,3 milljarðar vegna þriðja
fjórðungs. EBIDTA jókst um 82%
fyrstu níu mánuði og um 53% á
þriðja fjórðungi ársins miðað við
sömu tímabil í fyrra. Vöxtur í und-
irliggjandi rekstri Bakkavarar Gro-
up var rétt tæp 10% fyrstu níu mán-
uði ársins. Sala Bakkavarar fyrstu
níu mánuðina nam 116,7 milljörðum
króna og 43,6 milljörðum (+36%) á
þriðja fjórðungi.
Uppgjör Bakkavarar fyrir þriðja
ársfjórðung var yfir væntingum
greinenda og á heildina litið mjög
gott að mati greiningardeilda bank-
anna. Þannig er bent á í Vegvísi
Landsbankans að fyrirtækið hafi
slegið met í hagnaði á fjórðungi,
sjóðstreymi þess sé sterkt og að það
hafi greitt niður langtímaskuldir um-
fram það sem samningar kveði á um.
Í tilkynningu Bakkavarar Group
til Kauphallarinnar kemur fram að
tímabilið hafi einkennst af stöðugum
vexti og auknum hagnaði. Vöxtur fé-
lagsins á Bretlandi hafi áfram verið
umfram vöxt markaðarins, rekstur á
meginlandi Evrópu hafi batnað til
muna og afkoma félagsins í Kína sé í
takt við væntingar stjórnenda.
Bakkavör Group hafi því aldrei verið
betur í stakk búið til áframhaldandi
vaxtar en nú.
Metafkoma hjá Bakkavör Group
Aldrei betri Stofnendur Bakkavarar, þeir Lýður og Ágúst Guðmundssynir,
geta vel við unað. Ágúst segir félagið aldrei hafa verið betur statt en nú.
Í HNOTSKURN
» Bakkavör selur mestanhluta framleiðslu sinnar á
Bretlandi eða um 92% og af-
koman ræðst því að mestu
leyti af aðstæðum þar.
» Bakkavör yfirtók reksturNew Primebake á þriðja
fjórðungi ársins.
» Handbært fé BakkavararGroup frá rekstri fyrir
skatta og vexti nam 16,2 millj-
örðum króna fyrstu níu mán-
uði ársins. Sjóðstreymi á
þriðja fjórðungi nær tvöfald-
aðist frá sama tímabili í fyrra.
, # -
./
+
+
01
23
+
+
44
563 78
+
+
563'7"
,
+
+
9413 2 :;
+
+
&!
&
'()*+
) < = > ?7
8
< 7
8
> ?7
8
= > ?7
8
@ ="> ?7
8
2 * A7
8
B> ?7
8
> 7
8
' ?C* 7
8
B # D # 7
8
6 7
8
6 < 7 7
8
/% </ &
&)@E $ !$
887
8
F 7
8
,%% (
1G 7
8
* > ?7
8
9< #<> ?7
8
,H7!7
8
0I*** &E "E7
8
J "E7
8
- !.&/&
$
K *E # =
8
.012 941L
3&
*%
M# )
=E ?
# *
0 E # * N
' ?
8
8 8 8 8
8 88 88
88 8
8
88
8 8
88 88
8 8 8
8
88
88 88 8 8 )
8
88 )
8 )
)
)
JE ? (&
0M8O 7* !"#
=E ?
)
)
)
E
=E 8=E