Morgunblaðið - 27.10.2006, Síða 26

Morgunblaðið - 27.10.2006, Síða 26
26 FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Djúpivogur | Sl. sunnudag var á svonefndu Beitivallaklifi vígður minnisvarði um Hjálm- ar Guðmundsson frá Beru- firði, en hann var forvígis- maður um vegagerð yfir fjallveginn um Öxi, milli Beru- fjarðar og Skriðdals. Minnisvarðinn er unninn í Álfasteini og festur á stein sem fannst í árfarvegi við Axarveginn. Er honum hag- anlega fyrir komið skammt of- an við Folaldafoss, sem er ein af fjölmörgum náttúruperlum á þessari fjölförnu leið. Á minnisvarðanum er vísa eftir Hjálmar, sem var góður hagyrð- ingur: Hérna ruddu aldnir áar okkar fyrsta steini úr vegi. Leiðir virtust færar fáar fram þeir sóttu á nótt sem degi. Frumkvæði að minnisvarðanum átti Þorsteinn Sveinsson, fyrrum kaupfélagsstjóri á Djúpavogi og síð- ar á Egilsstöðum. Naut hann að- stoðar starfsmanna Vegagerðar- innar, einkum Reynis Gunnarssonar og Guðna Nikulássonar, en Vega- gerðin annaðist uppsetningu. Heið- urinn af framtakinu á þó Þorsteinn Sveinsson og færði sveitarstjóri Djúpavogshrepps honum þakkir frá sveitarstjórn og viðstöddum. Með skóflu og haka inn dalinn Þorsteinn flutti ávarp, áður en minnisvarðinn var afhjúpaður og rakti stuttlega æviágrip Hjálmars Guðmundssonar. Hann var fæddur 14. júní 1897. Kona hans var Jónína Þorbjörg Magnúsdóttir frá Fossár- dal. Þau eignuðust sjö börn; Borg- hildi, Snjófríði, Guðmund, Hrefnu, Magnús, Ásgeir og Rannveigu. Fjöl- margir afkomendur þeirra voru við- staddir þennan atburð og auk þess fólk úr Djúpavogshreppi og frá ná- grannabyggðum. M.a. voru þarna tveir synir Hjálmars, Ásgeir og Magnús. Það var dóttir Ásgeirs, Jónína, sem afhjúpaði minnisvarð- ann. Í ávarpi Þorsteins kom m.a. fram að Hjálmar var maður framsýnn og tók hann sveitasíma fyrstur manna. Hann sinnti mörgum trúnaðar- störfum og var oddviti í Berunes- hreppi í nær þrjá áratugi. Einnig hafði hann snemma brennandi áhuga á vegamálum og byrjaði því ungur að fást við vegagerð. Hann réðst í það verkefni árið 1952 að gera veg yfir Öxi, fyrst með skóflu og haka, en árið 1959 var komin til skjalanna lítil jarðýta TD-6, sem ekki myndi nú kallast stórt jarð- vinnslutæki í dag. Það er því aðdáunarvert fyrir okk- ur, sem förum þessa leið í dag, að hugsa til þess áræðis sem til þurfti að ráðast í svo viðamikið verkefni með tvær hendur tómar. Bjalla í happdrættisvinning Þar sem Hjálmar var ekki efnaður maður lagði hann í vegargerðina mikla vinnu sína og sona sinna. Auk þess fékk hann þá hugmynd að efna til happdrættis undir merkjum Ung- mennafélagsins Djörfungar í Beru- firði til að afla fjár til framkvæmda. Í því skyni keypti hann Volkswagen bjöllu sem vinning í happdrættinu. Töluvert seldist af miðum, en sem betur fór dróst vinningurinn ekki út, þannig að Hjálmar gat selt hann og nýtt bæði söluandvirði hans og það sem kom inn vegna sölu miðanna til að fjármagna framkvæmdina. Auk þess tókst honum að fá fjármagn úr Fjallvegasjóði og selja víxla, sem sveitarstjórnir Berunes-, Búlands- og Geithellnahreppa samþykktu. Einnig var lögð fram ómæld sjálf- boðavinna, en Hjálmar stýrði ætíð verkinu. Þegar fram liðu stundir batnaði tækjakostur og voru ýtu- stjórar Gunnar Árnason, Djúpavogi, og Einar Gunnlaugsson, Berufirði. Það mun svo hafa verið árið 1962, sem fyrst var ekið yfir heiðina og upp í Skriðdal. Ruddi veginn yfir Öxi Hjálmar Guðmundsson frá Berufirði tók til óspilltra málanna við Axarveg árið 1952 einungis vopnaður haka og skóflu. Nýverið var vígður minnisvarði um Hjálmar og rekur Björn Hafþór Guðmundsson, sveitarstjóri á Djúpavogi, sögu þessarar vegagerðar. Ljósmynd/Björn Hafþór Guðmundsson Brautryðjandi Á svonefndu Beitivallaklifi hefur verið reistur minnisvarði um Hjálmar Guðmundsson frá Berufirði sem hóf vegagerð yfir Öxi. Úrræðagóður Hjálmar stóð fyrir happdrætti til að fjármagna vegagerðina yfir Öxi. Ljósmynd/Páll Baldursson AUSTURLAND FORRÁÐAMENN í íþróttahreyf- ingunni á Akureyri eru á einu máli um mikilvægi þess að komið verði á fót jöfnunarsjóði vegna ferðakostn- aðar íþróttaliða af landsbyggðinni. Ekki er vitað hver heildarkostnaður keppnisliða í bænum er á ári vegna ferðalaga, en talið er að hann gæti numið allt að 50 milljónum króna. Á fjölmennum fundi um málið, sem íþróttafélagið Þór stóð fyrir í hádeginu í gær í félagsheimilinu Hamri, hafði framsögu Helga Stein- unn Guðmundsdóttir, fyrrverandi formaður KA. Á fundinum voru bæði forsvarsmenn félaga og deilda í bænum og aðrir íþróttaáhugamenn. Helga Steinunn á sæti í fram- kvæmdastjórn ÍSÍ og er fulltrúi Norðurlands í nefnd á vegum menntamálaráðherra sem á að gera úttekt á kostnaði við ferðalög íþróttafélaga á viðurkennd mót og leggja fram tillögur um hvort, og þá hvernig, skuli koma á sérstökum sjóði til að taka þátt í þeim kostnaði. Einnig hvernig fjármögnun hans skuli háttað og eftir hvaða reglum skuli úthlutað úr honum. Enn frem- ur á nefndin að gera tillögur um hvaða íþróttagreinar gætu fengið framlög úr sjóðnum, m.a. með tilliti til einstakra landsvæða, aldurshópa og kynja. Nefnd þessi á að skila af sér til- lögum 1. febrúar á næsta ári, en hef- ur reyndar ekki enn verið kölluð saman til fundar. „Við sem höfum staðið í því að reka íþróttafélög úti á landi þekkj- um mætavel að það er dýrt að halda úti liðum í Íslandsmóti, bæði meist- araflokkum og yngri flokkum,“ sagði Helga Steinunn í gær. Hún sagði ná- kvæmar tölur reyndar ekki liggja fyrir varðandi öll félög á Akureyri en skv. upplýsingum frá KA og Þór virðist ferðakostnaður hvors félags vegna meistaraflokka um 15 millj- ónir króna á ári og vegna yngri flokka um 10 milljónir. Reiknaði hún því með að heildarferðakostnaður félaga innan Íþróttabandalags Akureyrar væri allt að 50 milljónum króna árlega. „Það er dágóður pen- ingur,“ eins og hún sagði. Helgi Steinunn benti á þá stað- reynd að lengi hefði verið rætt um slíkan sjóð en ekkert orðið úr fram- kvæmdum, m.a. vegna þess að menn hafi hreinlega ekki séð hvernig framkvæmdin ætti að vera. Hún sagði að líklega myndi það brenna mest á nefndarmönnum hvaða reglur ætti að setja varðandi úthlutun fjárins. „Og eflaust verða menn á öndverðum meiði hvernig eigi að skipta á milli liða- og ein- staklingsíþrótta.“ Nefndin yrði hins vegar að komast að niðurstöðu. Flestir fundarmenn í gær voru á þeirri skoðun að skynsamlegast yrði að einskorða greiðslur úr ferðajöfn- unarsjóði vegna þátttöku á Íslands- móti, að minnsta kosti fyrst í stað. Mikilvægast væri að koma slíkum sjóði á fót sem allra fyrst og síðan gæti hann þróast. Menn veltu því líka fyrir sér hvað væri ferðakostnaður. Helga Stein- unn spurði: „Er það upphæðin sem greidd er fyrir flugmiða? Á kannski að telja líka með gistingu og mat?“ Á því var einnig vakin athygli að ekki væri sanngjarnt að bera ein- ungis saman krónutölur; algengt væri að lið af höfuðborgarsvæðinu þyrftu einu sinni á ári til Akureyrar og kæmu þá fljúgandi – en norðan- menn færu margar ferðir og keyrðu gjarnan til þess að halda kostnaði í lágmarki. Einn fundarmanna nefndi að jafnvel mætti álíta vinnutap ferðakostnað. Bent var á að það kæmi oft fyrir að ekið væri með yngri flokka í einkabílum landshorna á milli, til þess að halda niðri kostnaði, en það væri ekki öruggasti ferðamátinn og því ekki ákjósanlegt. Alltaf yrði að setja öryggið á oddinn. Það ræðst á Alþingi hvort ferða- jöfnunarsjóður verður að veruleika. Þó var nefnt að mikilvægt væri að málið yrði rætt í íþróttahreyfingunni en lítill áhugi er sagður á því hjá for- ráðamönnum félaga syðra. Það væri e.t.v. eðlilegt vegna ótta þeirra við að fjármunir í sjóðinn yrðu skornir af öðrum framlögum til íþróttamála, en slíkt mætti ekki gerast. Fé í sjóð- inn yrði að vera hrein viðbót. Allt að 50 milljónir í ferðalög Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Mikill kostnaður Helga Steinunn Guðmundsdóttir ræðir um hugsanlegan ferðajöfnunarsjóð við fundarmenn. Í HNOTSKURN »Talið er skynsamlegastað einskorða greiðslur úr jöfnunarsjóði við ferðir vegna Íslandsmóta, að minnsta kosti fyrst í stað. »Lykilatriði að um við-bótarfé verði að ræða til íþróttahreyfingarinnar; ekki megi taka fé í sjóðinn af öðrum framlögum. Samstaða um nauðsyn ferða- jöfnunarsjóðs Karl Guðmundsson verður ráðinn bæjarritari á Akureyri. Meirihluti bæjarráðs samþykkti í gær að leggja þetta til við bæjarstjórn. Karl er fæddur 1953, er stúdent frá MA og viðskipta- fræðingur frá Háskóla Íslands 1980. Hann hefur áður gegnt starfi bæjarritara hjá Dalvíkurbæ, ver- ið sveitarstjóri í Hveragerði, framkvæmda- stjóri Sjúkrahúss og heilsugæslu- stöðvar Suðurnesja, framkvæmda- stjóri Hraðfrystihúss Ólafsfjarðar og fjármálastjóri FMN og Samskip Norge. Hann hefur verið sviðsstjóri félagssviðs Akureyrarbæjar síðan í ágúst 1999. Karl er giftur Svein- björgu Hallgrímsdóttur, myndlist- arkennara, og eiga þau tvö börn.    Gerður Jónsdóttir, Framsóknar- flokki, lét bóka á fundi bæjarráðs að hún lýsti furðu á því að nýtt starf hjá Akureyrarbæ, bæjarritara- starfið, skyldi ekki auglýst. Kristín Sigfúsdóttir, fulltrúi VG, lét bóka að hún tæki undir bókun Gerðar.    Skíðagöngubrautin í Hlíðarfjalli hefur verið opnuð. „Þó nokkur snjór er kominn í göngubrautina og nú sést vel hve lagfæringarnar sem gerðar voru á göngubrautinni í sumar skila sér vel,“ sagði á heima- síðu Skíðafélags Akureyrar í byrjun vikunnar. „Bæði þarf nú minni snjó til að hægt sé að ganga þar og einn- ig safnast meiri snjór í hana en áð- ur.“ Síðan hefur kyngt niður snjó og færið örugglega orðið gott.    Hópur fólks sem mótmæla vill fyrir- hugaðri breytingu á deiliskipulagi við Sundlaug Akureyrar, þar sem áformað er að byggja 2.000 fer- metra líkamsræktarstöð á sund- laugarsvæðinu, hefur opnað vefsíðu. Slóðin er www.odinn.is/deiliskipulag og „þar er hægt að kynna sér feril málsins og skrifa undir mótmæla- skjal, ef fólk er ósátt við fyrirhug- aða breytingu,“ segir í fréttatil- kynningu. Karl Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.