Morgunblaðið - 27.10.2006, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 27.10.2006, Qupperneq 34
tíska 34 FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Flestar stjórmálakonur deymir sennilega um að komast á þingpalla - færri á tísku- sýningarpalla. Nokkrar gengust þó undir síðarnefndu prófraunina um liðna helgi - fyrir íslenskan iðnað - og glönsuðu í gegn- um hana! Tískuþrautir stjórn Eftir Unni H. Jóhannsdóttur uhj@mbl.is Síðustu helgi léðu nokkrar stjórnmálakonur tísku-teymum Samtaka iðnaðarins liðstyrk sinn á tísku-sýningu Konunnar í Laugardalshöllinni. Fékkhver og ein þeirra heildræna meðferð tískuteymis, frá toppi til táar. Tíminn er dýrmætur og hleypur hratt í dagsins önn frá konum í stjórnmálum en allar voru þær sammála um að honum væri vel varið til þess að vekja athygli á störfum í íslenskum iðnaði og þess vegna hefðu þær gefið sig að þessu verkefni. „Ég tók þátt í þessu vegna þess að íslenskt fagfólk er að kynna fagmennsku sína og ég vil styðja þær í því,“ og „mér finnst sjálfsagt að leggja íslenskum iðnaði og iðnstéttum lið,“ voru algeng svör. „Við eigum öflugt fag- fólk,“ og „þetta eru stórkostlegar konur,“ var viðkvæðið þegar spurt var út í fagmennskuna. Þegar stjórnmálakonurnar höfðu verið klæddar, þeim greitt og þær verið farðaðar var haldin skemmtilega heim- ilisleg tískusýning í Höllinni. Konurnar svifu í gegnum þá prófraun eins og þær hefðu ekki gert annað og slógu allar í gegn, hver með sinn stíl og sitt einstaka göngulag. Sann- kallaðar drottningar þessar stjórnmálakonur, sama á hvaða pöllum þær kjósa að standa …  Skartgripir eru frá Gullkúnst Helgu  Fylgihlutir eru frá Leðuriðjunni Atson  Barna- og fjölskylduljósmyndir tóku myndirnar Ásta Möller „Það var happafengur að komast í hendur tískuteymisins. Tvískipti silkikjóllinn var auðvit- að eins og sniðinn á mig og lit- urinn afskaplega fallegur,“ segir Ásta Möller. „Hálsmenið, sem var úr silfri með lapis lasuli- steini, smellpassaði við en í eyrnalokkunum var blár kórall.“  Klæðskeri: Klæðskerahöllin/Berglind Magnúsdóttir  Hársnyrting: Hár- og snyrtihúsið Ónix  Snyrting og förðun: Snyrtistofan Jóna Kristrún Heimisdóttir „Litasamsetningin á kjólnum var djörf og óvenjuleg og mér fannst mjög gaman að klæðast honum. Hann var eins og listaverk og myndi sóma sér vel í kóngaveislu,“ segir Kristrún Heimisdóttir sem heillaðist einnig af stórum silf- urskartgripunum. „Ég hef alltaf verið hrifin af stórum skartgripum og það er svo skemmtileg tilviljun að Helga í Gullkúnst Helgu, sem hannaði skartgripina, hannaði einn- ig giftingarhringinn minn.“  Klæðskeri: Klæðskerahöllin/Berglind Magnúsdóttir  Hársnyrting: Hársnyrtistofan Pílus  Snyrting og förðun: Snyrtistofan Jóna Margrét Sverrisdóttir „Mér líkaði mjög vel við klæðnaðinn og sköpunargáfa hönnuðarins, Selmu Ragnarsdóttur, fékk að njóta sín. Ég fékk reyndar að vera með í ráðum með buxurnar og litinn á vestinu,“ segir Margrét Sverr- isdóttir. „Þetta var skemmtileg reynsla og ég tók þátt í verkefninu af tveimur ástæðum, annars vegar til þess að sýna íslenskt handverk og hins vegar vegna þess að mér finnst almennt skorta á að fyrirsætur á sýningarpöllum séu bara venjulegar konur. Og það erum við konur í stjórnmálum. Það er mín reynsla að þetta sé tímafrekt starf og stundirnar til að sinna útlitinu meira en þörf krefur er ekki margar.“  Klæðskeri: Listauki/Selma Ragnarsdóttir.  Hársnyrting: Hársaga.  Snyrting og förðun: SPA fegurð. Sigríður Anna Þórðardóttir „Það er langt síðan ég veitti bæði Guðrúnu í GuSt og Helgu athygli og ég á bæði flíkur og skartgripi sem þær hafa hannað,“ segir Sigríður Anna Þórðardóttir sem var í fallegum tvískiptum silkikjól með léttu krínólínupilsi oghár- greiðslu undir áhrifum 19. aldar. „Það var því skemmtileg tilviljun að ég lenti í þeirra teymi. Fatnaðurinn er afar fal- legur og stórir skartgripirnir ekki ólíkir þeim sem ég er vön að bera. Mér þykja íslenskir gullsmiðir alveg stórkostlegir og er stolt af því að ganga með þeirra skartgripi.“  Klæðskeri: GuSt/Guðrún Kr. Sveinbjörnsdóttir.  Hársnyrting: Xit hárstofa.  Snyrting og förðun: SPA fegurð. Jónína Bjartmarz „Ég kunni vel við hönnunina sem var klassísk og mjög stílhrein en ljósgræni liturinn kom skemmtilega á óvart,“ segir Jónína Bjartmarz um dragtina sem hún klæddist. „Dragtir og annar tvískiptur klæðnaður er í uppáhaldi hjá mér. Kjólar verða af einhverjum ástæðum sjaldnar fyrir valinu,“ segir umhverfisráðherrann sem er jafnhrifin af silfri og gulli. „Ég hrífst af stórum skartgripum og silfurskart Helgu var óskaplega fal- legt en jafnframt sígilt.“  Klæðskeri: MG saumur – MG föt/María Gunnarsdóttir.  Hársnyrting: Hársnyrtistofan Ýr.  Snyrting og förðun: Snyrtistofan Jóna.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.