Morgunblaðið - 27.10.2006, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2006 37
UM ÞESSAR mundirer áratugur liðinnsíðan Norðurskauts-ráðið var stofnað en
Bandaríkin, Danmörk, Finn-
land, Ísland, Kanada, Noregur,
Rússland og Svíþjóð eiga aðild
að því. Ráðið þróast stöðugt og
eflist til góðra verka. Norð-
urskautsráðið er
vettvangur um
samstarf á öllum
sviðum sjálf-
bærrar þróunar,
allt frá efnahags-
og umhverf-
ismálum til þess
hvernig best sé
að mæta fé-
lagslegum þörfum
íbúa á norð-
urskautssvæðum.
Nú er ár liðið síð-
an Íslendingar
fólu stjórn Norð-
urskautsráðsins í
hendur Rússum á
fundi þess í
Reykjavík eftir
vel heppnað for-
mennskutímabil
sem kom mörgum
mikilvægum mál-
um drjúgan spöl
áleiðis. Rússar
eftirláta svo
Norðmönnum for-
mennsku á ráð-
herrafundinum
sem haldinn er í
Salekhard dagana 25.–26. októ-
ber í ár.
Sú mikla breyting hefur orð-
ið á undanförnum áratugum að
norðurskautssvæðið er ekki
lengur í viðjum átaka kalda
stríðsins heldur á sér þar stað
fjölþjóðlegt samstarf á marg-
víslegum sviðum. Þegar unnið
er að því að efla alþjóðlegan
stöðugleika og öryggi gegnir
samstarf yfir landamærin afar
mikilvægu hlutverki en það er
grundvöllur þess að hægt sé að
finna lausnir á þeim vanda-
málum sem ógna norðurskauts-
svæðinu.
Rússar og Norðmenn líta
ekki aðeins á norðurskauts-
svæðin í heild sinni sem land-
fræðilegt hugtak. Á norð-
urslóðum eru einnig miklir
framtíðarmöguleikar. Á þessu
svæði eru gríðarlegar nátt-
úruauðlindir, þar með talin
bæði vetniskolefni og fiskur.
Umheimurinn hefur allur mikla
þörf fyrir þessar auðlindir en
það þarf að vinna þær og nýta
með mikilli aðgæslu. Hlífa
verður bæði dýra- og gróðurlífi
heimskautssvæðisins vegna
þess að verði þessi viðkvæmu
vistkerfi fyrir tjóni hefur það
áhrif um heim allan. Síðast en
ekki síst ber samfélag þjóð-
anna ábyrgð á því að rúmlega
40 þjóðir frumbyggja á norð-
urslóðum geti áfram búið við
sitt og haldið í
tungumál sín,
menningu og þær
einstöku hefðir
sem mótast þar
sem ytri aðstæður
eru jafn erfiðar og
raun ber vitni.
Helstu verkefnin
sem við okkur
blasa á norð-
urskautssvæðinu
eiga það sameig-
inlegt að ná yfir öll
landamæri. Þau
verða einungis
leyst með öflugu
alþjóðlegu sam-
starfi. Norð-
urskautsráðið og
starfsemi þess
gegnir mikilvæg-
ara hlutverki í því
starfi en nokkru
sinni fyrr.
Á þetta lögðu
Rússar áherslu
þegar for-
mennskan færðist
til Moskvu árið
2004. Rússar hafa
notað formennskutímabil sitt
til þess að koma í gang já-
kvæðri þróun og að hrinda í
framkvæmd mikilvægri starf-
semi sem kemur bæði norð-
urslóðum Rússlands og öllum
norðurskautslöndunum til
góða.
Sjálfbær þróun hefur verið
forgangsverkefni. Með því er
átt við það að finna rétt jafn-
vægi milli umhverfismála,
efnahagsmála og félagslegrar
þróunar. Íbúar á norðurslóðum
eiga rétt á viðhlítandi lífsskil-
yrðum og ómenguðu umhverfi
ásamt aðgengi að nútíma-
menntun, heilsugæslu og hefð-
bundinni félagslegri þjónustu.
Rússar hafa í ljósi þessa ein-
beitt sér á formennskutímabili
sínu að því að koma í gang að-
gerðaáætlun um sjálfbæra þró-
un sem byggist á fjölda raun-
hæfra verkefna í tengslum við
efnahagsmál, félagsleg málefni
og umhverfismál. Rússar hafa
jafnframt gefið út aðgerðaáætl-
un á landsvísu til varnar meng-
un í hafi. Hafist hefur verið
handa um fjölda alþjóðlegra
verkefna í samstarfi við sam-
tök frumbyggja á svæðinu með
það fyrir augum að útrýma við-
varandi efnamengun. Heilsu-
gæsluverkefni á norðurslóðum
hafa fengið fjárhagslegan
stuðning, þar með taldar fjar-
skiptalækningar (telemedisin)
og stofnun læknamiðstöðvar
sérfræðinga. Samstarf hefur
verið aukið með það fyrir aug-
um að vinna að forvörnum
gegn áföllum af mannavöldum
og bregðast við þeim ásamt því
að hafa eftirlit með geislavirkri
mengun. Rússar hafa einnig
komið á laggirnar nýju sam-
starfssviði um menningar-
starfsemi sem ætlað er að
varðveita menningu frum-
byggja á norðurslóðum. Um
það ríkir einnig fullt sam-
komulag innan Norðurskauts-
ráðsins að fjalla um orkugeir-
ann með það að markmiði að
koma á samstarfi um sjálfbæra
nýtingu á olíu- og gasauðlind-
um.
Norðurskautsráðið hefur lýst
yfir auknum áhyggjum sínum
af þeim loftslagsbreytingum
sem óttast er að verði en líka
þeim breytingum sem þegar
hafa átt sér stað. Loftslags-
breytingar eru alvarleg ógnun
við allt líf á jörðinni en áhrif
þeirra koma fyrst fram á norð-
urskautssvæðum. Rússar hafa
á formennskutímabili sínu lagt
mikla áherslu á niðurstöður úr
umfangsmiklu mati á áhrifum
loftslagsbreytinga á norð-
urslóðum (The Arctic Climate
Impact Assessment), rannsókn
sem unnin var á vegum Norð-
urskautsráðsins. Niðurstöður
þessarar rannsóknar hafa
djúpstæð áhrif á alla starfsemi
vinnuhópanna sex sem ráðið
skipaði.
Að okkar mati hefur mikill
árangur náðst. Norðmenn
hafa fengið góðan grundvöll
til að byggja starfsemi sína á
þegar norsk yfirvöld taka við
formennsku. Áfram verður
lögð áhersla á sjálfbæra þróun
og loftslagsbreytingar. Norð-
menn munu leggja áherslu á
að lýsa því á raunsannan hátt
og á grundvelli nýjustu gagna
hverju sinni hvaða loftslags-
breytingar vofa yfir og hvaða
framtíðarverkefni bíða okkar
á norðurslóðum. Afla þarf
frekari upplýsinga til þess að
búa sig undir áhrif loftslags-
breytinga á norðurskauts-
svæðinu og afla skilnings á því
hvaða áhrif loftslagsbreyt-
ingar á norðurslóðum hafa á
önnur heimssvæði. Okkur ber
að þróa frekar samstarf um að
safna gögnum um loftslagsmál
á norðurslóðum og túlka þau.
Einnig verður lögð mikil
áhersla á sjálfbæra nýtingu
náttúruauðlinda á for-
mennskutímabili Norðmanna.
Í meginreglunni um nýtingu á
forsendum vistkerfisins felst
að engin starfsemi manna, til
dæmis fiskveiðar, flutningar
og olíu- og gasvinnsla, megi
skaða vistkerfið. Þannig nýt-
ing tryggir langvarandi og
sjálfbæra efnahagslega þróun
og jafnvægi á milli hinna
ýmsu atvinnuvega. Noregur
miðar starf sitt við Nýting-
aráætlun Barentshafs og
reynslu annarra landa á norð-
urslóðum. Danir og Svíar
fylgja svo í fótspor Norð-
manna með formennsku í
Norðurskautsráðinu næstu
tvö tímabil þar á eftir. Ríkin
þrjú eru sammála um að sam-
ræma áætlanir sínar á tíma-
bilinu 2006–2012.
Norðurskautsráðið getur nú
litið um öxl á starfsemi sína í
heilan áratug. Fjölmörgum
verkefnum hefur verið komið
á laggirnar og verið er að
vinna að nýjum verkefnum
sem vekja bjartsýni. Rússar
og Norðmenn sjá nú þegar
fram á mörg samstarfssvið
sem lofa góðu og geta komið
til framkvæmda síðar meir.
Starfsemi Norðurskautsráðs-
ins byggist engu að síður
áfram á hagnýtum verkefnum
sem gagnast eiga íbúum á
norðurslóðum sem best.
Norðurskautsráðið – samstarf í áratug
um hagsmuni norðurskautssvæða
Eftir Sergei V. Lavrov og
Jonas Gahr Støre »Helstu verkefninsem við okkur
blasa á norðurskauts-
svæðinu eiga það
sameiginlegt að ná
yfir öll landamæri.
Þau verða einungis
leyst með öflugu al-
þjóðlegu samstarfi.
Sergei V. Lavrov
Sergei V. Lavrov er utanrík-
isráðherra Rússlands. Jonas
Gahr Støre er utanríkisráðherra
Noregs.
Jonas Gahr Støre
PRÓFKJÖR minna áóvissuferð. Óvíst erhverjir taka þátt íþeim. And-
stæðingar flokka
leitast við að nýta
prófkjörstímann til
að koma illu af stað
milli samherja sem
þurfa eðli málsins
samkvæmt að halda
fram sínum hlut,
stundum á kostnað
annarra. Þá getur
kosningahitinn orðið
svo mikill í próf-
kjörsbaráttunni, að
upp úr sjóði og til
verulegra vandræði
komi innan flokka.
Nú dregur að lyktum próf-
skjörsbaráttu okkar sjálfstæð-
ismanna í Reykjavík. Hún tók
óvænta stefnu í síðustu viku,
þegar svo virtist sem andstæð-
ingar Sjálfstæðisflokksins væru
teknir til við að hlutast þannig
til um innri málefni flokksins, að
þeir teldu sig geta valdið þar
klofningi. Leikurinn snerist um
að sá óvild milli fylgismanna
okkar Geirs H. Haarde, for-
manns flokksins
og forsætisráð-
herra, og til þess
átti að nota ör-
yggi Íslands,
fjöregg þjóð-
arinnar.
Við svo búið
var boðað til al-
menns fundar í
Valhöll, þar sem
við Geir H.
Haarde ræddum
öryggismálin,
ytra og innra ör-
yggi. Við gerð-
um grein fyrir farsælli nið-
urstöðu í viðræðunum við
Bandaríkjamenn um varn-
armálin og þeim ráðstöfunum,
sem hafa verið gerðar til að efla
lögreglu og landhelgisgæslu.
Jafnframt sá Geir ástæðu til að
lýsa sérstöku trausti í minn
garð og ég fagnaði hinu góða
samstarfi okkar, frá því að hann
varð flokksformaður og for-
sætisráðherra.
Með þessum fundi var hrund-
ið aðför að Sjálfstæðisflokknum.
Andstæðingar hans, einkum í
Samfylkingunni, standa orðið
svo illa málefnalega, að þeir
hafa gefist upp við að lýsa nokk-
urri stefnu eða eigin mark-
miðum – von þeirra um árangur
byggist á því einu að geta komið
lúalegu höggi á sjálfstæð-
ismenn, formann þeirra og
flokk. Þeim verður ekki kápan
úr því klæðinu, ef við sjálfstæð-
ismenn stöndum þannig að
ákvörðunum í prófkjörinu, að
samstaða okkar sé sterk og öll-
um ljós.
Ég geng til þessa prófkjörs
undir kjörorðinu: Samstaða til
sigurs!
Ég vel mér þetta kjörorð, af
því að ég veit, að andstæðingar
sjálfstæðismanna á hinum póli-
tíska orrustuvelli óttast ekkert
meira en öflugan, sameinaðan
Sjálfstæðisflokk. Sagan geymir
mörg dæmi um ill örlög flokka,
ef þeir verða sundurlyndi að
bráð. Að láta eins og ekki sé
ástæða til að taka mark á þeirri
reynslu, er í besta falli barna-
skapur.
Ég skora á sjálfstæðismenn í
Reykjavík að fjölmenna á kjör-
stað og staðfesta samhug og
samstöðu innan Sjálfstæð-
isflokksins með atkvæði sínu.
Samstaða til sigurs!
Eftir Björn Bjarnason »… andstæðingarsjálfstæðismanna
á hinum pólitíska
orrustuvelli óttast
ekkert meira en öfl-
ugan, sameinaðan
Sjálfstæðisflokk.
Björn Bjarnason
Höfundur er dóms- og kirkju-
málaráðherra og sækist eftir 2.
sæti á lista sjáfstæðismanna í
Reykjavík.
ggð áfram.
g fæ best séð þá
rfélög hins vegar
man um hver eigi
n af þjónustunni,“
ndir á að verði
næsta haust þurfi
ða kona hans að
nu til að geta
Að mati Ólafs er
uð börn fái ekki
au þurfa á að
eta sótt sinn
mikilvægt að
u hverfi og eigi
fnöldrum sínum í
„Í staðinn er
lt yfir á foreldr-
foreldrar fatlaðra
rið fullir þátttak-
arkaði,“ segir
Ólafur og leggur jafnframt áherslu
á mikilvægi lengdrar viðveru sem
félagslegt úrræði til þess að sporna
við félagslegri einangrun fatlaðra
barna. Að sögn Ólafs er ljóst að
sonur hans unir hag sínum af-
skaplega vel bæði í Foldaskóla og
Regnbogalandi og því fyndist þeim
hjónum algjörlega óviðunandi ef
sonur þeirra neyddist til að skipta
um skóla og væri með því rifinn úr
félagahóp sínum og umhverfi sem
hann þekkir.
Aðspurður segir Ólafur að engin
önnur gæsluúrræði standi Kjartani
til boða, því þó Öskjuhlíðarskóli
bjóði upp á lengda viðveru til loka
10. bekkjar sé sú þjónusta aðeins
ætluð börnum viðkomandi skóla.
Segir hann þá þjónustu greidda til
helminga af ríki og borg.
m eftir 4. bekk grunnskólans
að fötluð
erfisskóla
Morgunblaðið/Eyþór
firvöldum í von um úrbætur fyrir Kjartan, son sinn.
Í HNOTSKURN
»Grunnskólabörnum Reykja-víkur stendur aðeins til boða
lengd viðvera meðan þau eru í
1.–4. bekk.
» Í áfangaskýrslu starfshóps,sem fjallaði um möguleika á
lengri viðveru fyrir fatlaða nem-
endur í 5.–10. bekk, er lagt til að
gert verði bráðabirgðasam-
komulag milli ríkis og sveitarfé-
laga um að lengd viðvera fatlaðra
grunnskólabarna verði tryggð
áfram meðan á endurskoðun laga
um málefni fatlaðra stendur yfir.
eru fatlaðra
5.–10. bekk í allt
ndurskoðun laga
nr. 59/1992
ur fram að að
tluð börn í ár-
því 620 börn á
10 árgöngum.
ður vegna lengri
barna í 5.–10.
gnu framlagi for-
m 109 milljónum