Morgunblaðið - 27.10.2006, Side 46
46 FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Dóra Hjálmarsdóttir: Áhættu-
mati fyrir Kárahnjúkavirkjun
er ekki ábótavant.
Oddur Benediktsson:
Áhættumati fyrir Kárahnjúka-
virkjun er ábótavant.
www.mbl.is/profkjor
Ragnheiður Davíðsdóttir
styður Sigurð Pétursson í próf-
kjöri Samfylkingarinnar í
Norðvesturkjördæmi.
Unnar Ágústsson styður Guð-
laug Þór Þórðarson í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Reykja-
vík.
Elín Jóhannesdóttir: Styðjum
konur innan Sjálfstæðisflokks-
ins. Björn Gíslason styður
Vernharð Guðnason í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Reykja-
vík.
Atli Rafn Björnsson styður
Guðfinnu S. Bjarnadóttur í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík.
Aðsendar greinar á mbl.is
www.mbl.is/greinar
Kæri kjósandi í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík!
Sjálfstæðisflokkurinn hefur alla tíð verið í fararbroddi
í baráttunni fyrir jafnrétti kynjanna. Það er brýnt að
hlutur kvenna verði góður í prófkjörinu í Reykjavík,
sem fram fer í dag og á morgun, til að sýna fram á
að Sjálfstæðisflokkurinn er enn sem fyrr trúverðugur
málsvari jafnréttis. Á kjósendum hvílir sú ábyrgð að
veita konum brautargengi til jafns við karla.
Sýnum í verki að Sjálfstæðisflokkurinn er flokkur
jafnréttis í reynd.Tryggjum konum góða kosningu!
Hvöt, félag sjálfstæðiskvenna í Reykjavík
Hvöt, félag
sjálfstæðiskvenna
í Reykjavík
KRÖFUR um greiðar og örugg-
ar samgöngur um landið árið um
kring fyrir flestar
gerðir ökutækja hafa
vaxið mjög síðustu
misseri. Til að svo
megi verða þarf sam-
félagið að leggja til
góða vegi, vegi sem
liggja ekki í meiri hæð
en nauðsyn ber til þar
sem því verður við
komið til að tryggja
sem öruggastar vetr-
arsamgöngur. Að-
alvegurinn milli Suð-
vestur- og
Norðurlands, Hring-
vegurinn, liggur á löngum kafla í
yfir 200 metra hæð um Holtavörðu-
heiði en fer hæst í yfir 400 metra
hæð. Sjaldgæft er í seinni tíð að
vegurinn um heiðina sé lokaður
allri umferð vegna snjóa enda hafa
undanfarnir vetur verið venju
fremur snjóléttir. Á hinn bóginn er
leiðin oft tafsöm og varasöm yf-
irferðar vegna þoku sem þar getur
lagst yfir árið um kring auk þess
sem fannfergi, hálka, skafrenn-
ingur og hvassviðri er þar mun tíð-
ara á vetrum en á láglendinu í
kring.
Lega láglendisvegar
Á næstunni er stefnt að lagfær-
ingu og að hluta gerð nýs vegar
fyrir botni Hrútafjarðar, sem liggja
mun lítið eitt norðar en núverandi
vegur. Við þetta styttist leiðin fyrir
fjörðinn um rúma 7 km þótt áhrif á
lengd Hringvegarins verði óveru-
leg. Þetta er vissulega hin þarfasta
framkvæmd sem lengi hefur verið
beðið. Úr því sem komið er er þó
margt sem bendir til að áður en
hafist verður handa væri vel þess
virði að kanna til hlít-
ar kosti þess að þvera
fjörðinn um 10 km
norðar en ráðgert er
eða á milli Reykja-
tanga við Reykjaskóla
í Húnaþingi vestra og
Kjörseyrar í Bæj-
arhreppi á Ströndum
eða þar skammt fyrir
norðan, en fjörðurinn
þar er um 1.400 metra
breiður. Frá Reykja-
tanga liggur rif lang-
leiðina út í miðjan
fjörðinn sem sýnist vel
brúklegt undir nýjan veg. Þarna er
fjörðurinn auk þess tiltölulega
grunnur að öðru leyti en mesta
dýpi er um 25 metrar og sjávarfalla
gætir þar ekki í miklum mæli. Með
þverun á þessum stað væri kominn
áfangi að vegi sem síðan mætti
byggja upp yfir Laxárdalsheiði,
sem hæst fer í slétta 200 metra og
hefur reynst mjög snjólétt og
áfram um Vestfjarðaveg suður
Bröttubrekku þar sem í framtíðinni
mætti gera göng. Slík göng yrðu að
vísu í allt að 280 metra hæð miðað
við fyrirliggjandi hugmyndir en að-
eins 1.800 metra löng og nýttust
jafnt umferð til og frá Vestfjörðum
og Norðurlandi.
Vegalengdir
Í dag er leiðin að norðan frá
Reykjaskóla í Hrútafirði um Lax-
árdalsheiði og Vestfjarðaveg að
vegamótum Hringvegar við Dals-
mynni í Borgarfirði um 106 km en
milli sömu staða um Holtavörðu-
heiði um 65 km (mismunur 41 km).
Með um 3 km vegi frá Hringveg-
inum yfir Hrútafjörð og áfram um
2 km suður Djúpveg að núverandi
vegenda við Laxárdalsheiði yrði
hugsanleg láglendisleið um 81 km
en sýnist gæti farið niður í um 75
til 78 km eftir því hvernig vegurinn
um Laxárdalsheiði yrði byggður
upp og þar með orðið einungis 10
til 13 km lengri en leiðin um Holta-
vörðuheiði. Miðað við óbreytt áform
yrði hugsanleg láglendisleið hins
vegar um 34 km lengri. Ekki yrði
hjá því komist að sinna veginum
um Holtavörðuheiði áfram en með-
aldagsumferð þar á liðnu ári var
1.275 ökutæki og hafði aukist um
45% frá árinu 2000 en vetr-
arumferð var 833 ökutæki og hafði
aukist um 80% frá sama tíma.
Margt bendir hins vegar til að
heppilegt gæti verið að miða við að
vegur yfir Hrútafjörð, um Lax-
árdalsheiði og undir Bröttubrekku
yrði skilgreindur sem aðalvegur
milli Suðvestur- og Norðurlands og
í framtíðinni byggður upp sem slík-
ur. Ef til kæmi mætti hugsanlega
beina þungaflutningum milli lands-
hlutanna á þann veg meðan umferð
minni ökutækja yrði fremur beint
um Hrútafjörð Strandamegin og á
Holtavörðuheiði þegar hún væri
fær. Væri þá aðskilnaður milli
stórra bíla og meiri hluta fólksbí-
laumferðar á rúmlega 60 km kafla,
kafla sem telja verður einn þann
varasamasta á leiðinni milli Suð-
vestur- og og Norðurlands.
Annar ávinningur
Annar ávinningur af þessari
þverun felur í sér að með henni
yrðu sveitarfélögin Bæjarhreppur
og Húnaþing vestra eitt atvinnu-
og þjónustusvæði og leiðin milli
Vestfjarða og Norðurlands styttist
um allt að 30 km í stað 7 km, sem
hefði mikla þýðingu fyrir byggð við
Húnaflóa og raunar alla Vestfirði
og vestanvert Norðurland, þar sem
íbúum fækkar jafnt og þétt. Ekki
er kunnugt um að miklar rann-
sóknir hafi farið fram á aðstæðum
til þverunar þarna en kostnaður
hefur verið áætlaður um 1.300 m.
kr., sem vissulega er talsverð fjár-
hæð en þó vart meira en kostnaður
við t.d. byggingu íbúðablokkar með
40 íbúðum. Vera má að ýmsum
þyki í mikið ráðist með framkvæmd
sem þessari en miðað við kröfur
nútímans um tryggar samgöngur
allt árið milli helstu staða má segja
að þetta blasi við og margar flugur
séu slegnar í einu högg til lengri
tíma litið. Eru sveitarstjórnarmenn
og aðrir sem málum ráða á Vest-
fjörðum og Norðurlandi hvattir til
að leiða hugann að þeim mögu-
leikum sem í þessu felast. Það væri
síðan verkefni framtíðarinnar að
byggja upp góðan veg um Lax-
árdalsheiði, breikka Vestfjarðaveg
og gera göng undir Bröttubrekku
sem án efa færðust framar í for-
gangsröð ef af þverun fjarðarins
yrði eins og hér er lagt til.
Láglendisveg framhjá Holtavörðuheiði
Jónas Guðmundsson fjallar um
samgöngumál »Með þverun Hrúta-fjarðar gæti hugs-
anleg láglendisleið
orðið einungis 10 til
13 km lengri en leiðin
um Holtavörðuheiði.
Jónas Guðmundsson
Höfundur er sýslumaður í
Bolungarvík og stjórnarformaður
í Leið ehf., félagi um framþróun
í samgöngum á landi.