Morgunblaðið - 27.10.2006, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2006 63
menning
Til sölu lausamunir
úr veitingahúsinu Naustinu
Nýleg tæki úr eldhúsi.
Úr borðsal - borð, stólar og sófar.
Barborð - heilt til flutnings.
Ýmislegt fleira.
Tilboð óskast í ofangreinda hluti.
Til sýnis og sölu.
Upplýsingar veitir Aron í síma 861 3889.
Fasteignafélagið Kirkjuhvoll.
Hef hafið störf á Hárgreiðslu- og
rakarastofunni Klapparstíg
Viðskiptavinir, bæði gamlir
og nýir, velkomnir
Lilja Björg Eiríksdóttir
hársnyrtir
MYNDIN Fearless í leikstjórn
Ronny Yu er frumsýnd í Smárabíói
og Regnboganum í dag. Hér er á
ferðinni mynd um ævi eins frægasta
bardagamanns Kína, Huo Yuanjia,
sem var uppi á 19. öld. Eftir hörmu-
legt slys í kjölfar slagsmála ákvað
Huo að yfirgefa heimahagana í leit
að hinum sanna anda bardagaíþrótt-
anna.
Það er bardagalistamaðurinn og
stórstjarnan Jet Li sem fer með
hlutverk Huo en hann hefur lýst því
yfir að Fearless sé síðasta hefð-
bundna bardagamyndin sem hann
ljái krafta sína.
Frumsýning | Fearless
Bardagagoðsögn
ERLENDIR DÓMAR: Hollywood
Rep. 70/100, Variety 70/100, NYT
70/100. (Allt skv. Metacritic.com)
Kanntu þjóðsönginn?
Já, en ég er hlynntari einfaldari
ættjarðarlögum, „Ísland ögrum
skorið“ og „Hver á sér fegra föð-
urland“.
Hefur þú fengið Viagra-tölvupóst?
(Spurt af síðasta aðalsmanni, Birni
Hlyni Haraldssyni.)
Já, ég get glatt Björn Hlyn með
því. Hann var ekki sá eini, við erum
greinilega tvö.
Áttu þér gælunafn?
Já, af ættingjum og vinum er ég
kölluð Rúna. Ég man eftir því, sem
lítil stúlka, að hafa orðið rosalega
fúl þegar ég frétti af öðrum með
sama nafn. Mér fannst Guðrún ekk-
ert sérstakt nafn þá, t.d. öfundaði
ég af öllu hjarta stelpur sem hétu
Ýr, Sylvía og svona óvenjulegum
nöfnum. En í seinni tíð þykir mér
virkilega vænt um nafnið mitt.
Hvað talarðu mörg tungumál?
Ég tala óhikað við Norðmenn, Svía
og Dani, enda bjó ég í Noregi um
tíma. Hef núorðið komið mér upp
svona skandinavísku sem gengur
upp í þessum löndum, enda sæki ég
stundum norræn mót í tónlist þar
sem maður verður að geta spjallað
við alla. Svo kann ég eitt orð í
finnsku … kuka, þýðir hver. Svo
auðvitað talar maður ensku, – er
það ekki að verða hliðarmóðurmál?
Þá get ég bjargað mér á þýsku, ef
ég þarf nauðsynlega. Mjög nauð-
synlega.
Hvenær fórstu síðast til útlanda og
hvert?
Ég fór til Finnlands, til að syngja
fyrir Norðurlandabúana marg-
umtöluðu og til að hitta vin minn.
Felix eða Friðrik Ómar?
Þótt þú héldir skammbyssu að
gagnauganu gæti ég ekki gert upp
á milli þeirra. Ég vel Valgeir.
Uppáhaldsmaturinn?
Villibráð og kalkúnn.
Bragðbesti skyndibitinn?
Austurlandahraðlestin er í uppá-
haldi og Síam í Hafnarfirði.
Hvaða bók lastu síðast?
Síðustu bókina í leshring 6 til sjö,
góð leið til að VERÐA að lesa nýja
bók á tveggja vikna fresti.
Hvaða leikrit sástu síðast?
Ég sá Sitji guðs englar í Þjóðleik-
húsinu og grét svo hátt að dætur
mínar þurftu að sussa á mig, þessi
sýning er svo íslensk og falleg að
hún snart mig djúpt.
Hvaða plötu ertu að hlusta á?
Vá, hvað á ég að velja? Plöturnar
þeirra Heru, Regínu og Friðriks
Ómars eru á borðinu hjá mér, Lay
Low er góð og svo er ég ánægð
með Helga Rafn og hlakka til að
heyra í Guðrúnu Árnýju ofl. ofl. …
ég er örugglega að gleyma ein-
hverju. Já auðvitað held ég mest
upp á Góða skemmtun, tvöfalt al-
búm okkar Friðriks. Ég skemmti
mér-diskarnir, tveir á verði eins!
Uppáhaldsútvarpsstöðin?
Morgunþáttur Gests og Hrafnhild-
ar og síðdegisþátturinn á Bylgj-
unni. Þetta er það sem maður
hlustar eitthvað á og svo fréttirnar,
oftast af netinu, enda alltaf á þön-
um.
Besti sjónvarpsþátturinn?
Auðvitað 6 til sjö og við fáum alveg
frábærar viðtökur, maður er stopp-
aður í kjörbúðinni af fólki sem vill
þakka fyrir. Maður er farinn að
hljóma eins og ónefndur stórleik-
ari … „fagnaðarlátunum ætlaði
aldrei að linna“.
Þú ferð á grímuball sem …?
Þoli ekki grímuböll og svona þema-
tengd eitthvað boð. Eitur í mínum
beinum.
Helstu kostir þínir?
Ó boy, þar fórstu með það. Ætli
hlátur og fíflagangur flokkist undir
kosti? Æ ég veit það ekki, ég held
ég sé að minnsta kosti seinþreytt til
vandræða.
En gallar?
Tala of mikið, gríp fram í fyrir fólki
og tek of mörg verkefni að mér.
Svo vil ég ekki nefna fleiri ókosti, ef
maður færi nú í prófkjör …
Fyrsta ástin?
Fyrsta stóra alvöruástin í mínu lífi
er eiginmaðurinn, Valgeir Skag-
fjörð. Ég er alltaf jafnástfangin af
honum.
Besta líkamsræktin?
JSB, bara konur af öllum stærðum
og gerðum og yndisleg stemmning.
Toppurinn.
Algengasti ruslpósturinn?
Eitthvert bissnesstilboð bla bla og
svo eitthvert fólk í útlöndum sem
segist vera prinsessur og greifar í
álögum og biður um hjálp. Ég ýti
beint á delete. Grimmhildur.
Hvaða ilmvatn notarðu?
Þoli ekki ilmvötn. Ég get sagt þér
að það hafa konur og menn eyðilagt
fyrir mér leikhúsferðir og bíó með
of miklum ilmi. Takk fyrir tækifær-
ið til að fá að segja þetta: „Getið þið
ekki notað minna af þessu?!“
Hvar myndirðu vilja búa annars
staðar en á Íslandi?
Á Norðurlöndunum, ég elska
frændur vora.
Ertu með bloggsíðu?
Nei. Mér finnst þetta ekki
skemmtileg iðja, vil miklu heldur
tala við fólk í eigin persónu.
Hvers viltu spyrja næsta viðmæl-
anda?
Ef þú ættir eina ósk, veistu hvers
þú myndir óska þér?
Reynd’ að giska á, hvers eðlis þessi
ósk þín er …
Íslenskur aðall | Guðrún Gunnarsdóttir
Grimmhildur Rúna
seinþreytt til vandræða
Guðrún Gunnarsdóttir
stjórnar sjónvarps-
þættinum 6 til sjö á
Skjá einum hvern virk-
an dag ásamt Felixi
Bergssyni. Í kvöld er
svo frumsýnd söng-
skemmtunin Góða
skemmtun þar sem
Guðrún stígur á svið
með Friðriki Ómari og
stórsveit Ólafs Gauks.
Guðrún, eða Rúna eins
og hún er stundum
kölluð, er aðalskona
vikunnar.
Morgunblaðið/Sverrir
Aðalskonan Guðrún Gunnarsdóttir grét svo hátt á leikritinu Sitji guðs
englar að dætur hennar urðu að sussa á hana.
Danska hirðinstaðfesti í gær
að Mary, krón-
prinsessa Dana,
gengi nú með ann-
að barn sitt og
Friðriks krónprins.
Fyrir eiga þau son-
inn Kristján, sem
varð ársgamall þann 15. október.
Þetta kemur fram á fréttavef Jyl-
lands-Posten.
Mary, sem er 34 ára, varð krón-
prinsessa Dana er hún giftist
Friðriki, krónprinsi Dana, sem er
38 ára, þann 14. maí árið 2004.
Hún mun eiga von á barninu í maí
en sögusagnir hafa verið á kreiki
um að hún ætti von á barni frá því
hún þurfti að yfirgefa hátíð-
arathöfn í tilefni þess að Dagmar
keisaraynja var jarðsett í Rúss-
landi í september.
Faðir malavísks barns semsöngkonan Madonna hefur
ættleitt hefur hvatt mannréttinda-
samtök, sem hafa gagnrýnt ætt-
leiðinguna, til að láta barnið í
friði. Yohane Banda sagði í sam-
tali við breska ríkisútvarpið BBC
að hann óttaðist að deilumálið sem
samtökin hafa vakið athygli á
myndi leiða til þess að Madonna
skilaði barninu.
Mannréttindasamtök í Malaví
hafa sótt lagalega að Madonnu og
gagnrýnt ættleiðinguna, en þau
saka söngkonuna um að hafa farið
í kringum lögin svo hún gæti ætt-
leitt barnið.
David Banda er nú á heimili
Madonnu í London eftir að dómari
í Malaví veitti henni tímabundna
umsjá.
Samtökin í Malaví segja að Ma-
donna hafi notað auðæfi sín og
stöðu til þess að fara framhjá lög-
unum, sem kveða á um að útlendir
fósturforeldrar verði að búa í
landinu í eitt og hálft ár ætli þeir
að ættleiða börn.
Fólk folk@mbl.is
Reuters