Morgunblaðið - 29.12.2006, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
„KASTLJÓSINU var fyrst varpað
á Svölu á Listahátíð kvenna sem
haldin var 1985, en í tengslum við
hana var haldin kvikmyndahátíð. Þá
gátu konur úr kvikmyndageiranum
þess að hún hefði verið fyrsta ís-
lenska konan til að leikstýra kvik-
mynd. Þetta vakti enga athygli þá.“
Viðar Eggertsson, útvarpsmaður
og leikstjóri, er að tala um Svölu
Hannesdóttur, en nú er talið víst að
Svala hafi leikstýrt myndinni
Ágirnd, sem gerð var árið 1952.
Í haust kom Kristín Jóhann-
esdóttir kvikmyndaleikstjóri í út-
varpsþátt til Viðars, og sagði honum
frá Svölu, en tilefnið var það að á
Kvikmyndahátíð í Reykjavík sem
þá stóð yfir var stofnuð Íslandsdeild
alþjóðasamtaka kvikmyndagerð-
arkvenna. Þar hafði verks Svölu
verið minnst. „Kristín kveikti í mér,
með sögu þessarar konu,“ segir Við-
ar, sem fór að grafast nánar fyrir
um hana.
Röddin og lesturinn heilluðu
Svala var meðal þeirra sem
stunduðu nám í Leikskóla Ævars
Kvaran áður en Þjóðleikhúsið var
stofnað, og Viðari datt í hug að leita
í safni Útvarpsins hvort eitthvað
leyndist þar með leik eða lestri
þessarar lítt þekktu listakonu. „Það
hefur lítið varðveist frá þessum
tíma. Það sem ég fann voru ein-
hverjir leikþættir, ásamt ljóðalestri.
Hún las stutt ljóð eftir Vilborgu
Dagbjartsdóttur. Mér fannst röddin
og lesturinn heillandi, þannig að ég
hafði samband við Vilborgu. Þá kom
á daginn að þær höfðu verið sam-
tíða og þekkst á árunum kringum
1950.“ Viðar hélt grúskinu áfram.
Hann kveðst hafa fengið viðbrögð
frá ættingjum Óskars Gíslasonar
kvikmyndagerðarmanns við orðum
Kristínar um að Svala hafi verið
höfundur Ágirndar, en til þessa hef-
ur myndin að öllu leyti verið talin
höfundarverk hans. „Það vöknuðu
spurningar um það hver sé höf-
undur myndar, hvort það sé leik-
stjóri, höfundur handrits eða fram-
leiðandi, og mig langaði að leita
svara við því hver höfundur Ágirnd-
ar væri.“ Viðar segir Ágirnd sér-
staka mynd; hún sé í mjög express-
jónískum stíl, og ólík myndum
Óskars og öðrum íslenskum mynd-
um þess tíma. „Þetta er mynd án
orða, þar sem ljós og skuggar leika
stórt hlutverk, tónlist er leikin und-
ir, en myndin er 35 mínútna löng.“
Viðar hafði samband við Kvik-
myndasafn Íslands og fékk að sjá
myndina. Í kjölfarið hafði hann uppi
á þeim sem höfðu leikið í myndinni,
en talaði einnig við ættingja og vini
Óskars Gíslasonar. Hann tók viðtöl
við þetta fólk um gerð myndarinnar
og samstarf Svölu og Óskars. „Með
því að taka viðtöl við allt þetta fólk
raðaðist smám saman upp mjög
Svala Hannesdóttir og dramatísk saga kvikmyndarinnar Ágirndar í útvarpsþætti
Hún leikstýrði myndinni
Leikstjórinn Viðar Eggertsson greinir frá atburðunum og lífi Svölu Hann-
esdóttur og Óskars Gíslasonar kvikmyndagerðarmanna kringum gerð
kvikmyndarinnar Ágirndar, á rás eitt kl. 14.40 á morgun.
Dreymdi um að verða leikkona
HINN ófyr-
irsjáanlegi
dansk-chileski
listamaður
Marco Evaristti
hyggst lita snæ-
þekju hæsta
fjallstinds Vest-
ur-Evrópu, Mo-
unt Blanc, rauða.
Þetta kemur
fram í franska dagblaðinu Agence
Fance-Press. Hugmynd Evaristti er
að setja lífrænt uppleysanlega
málningu á Mount Blanc til að
„auka meðvitund um þá mengun
sem ferðamenn valda í Ölpunum“,
að eigin sögn. Hann hefur þó ekki
gefið upp tímasetningu umrædds
gjörnings í þeirri vissu að frönsk
stjórnvöld muni freista þess að
stöðva hann.
Evaristti áætlar að kostnaður við
gjörninginn verði um 3,5 milljónir
íslenskra króna. Fimmtán manns
munu aðstoða hann við að koma um
1.200 lítrum af vatnsblandaðri
málningu á tindinn og búa þannig
til 2.500 fermetra rauðan flöt.
Evaristti er fæddur í Chile en
hefur búið í Danmörku frá því hann
giftist Dana árið 1985. Árið 2000
olli verk eftir hann uppnámi, en þar
gat að líta gullfisk í blandara sem
gestum gafst kostur á að kveikja á.
Hyggst lita
tind Mount
Blanc rauðan
Marco Evaristti enn
einu sinni á ferðinni
Marco Evaristti
ÁÐUR óþekkt píanóverk, sem talið
er vera eitt af æskuverkum tón-
skáldsins Wolfgangs Amadeus Moz-
arts, er komið í leitirnar. Verkið
fannst í Salzburg í Austurríki þar
sem Mozart fæddist fyrir 250 árum
og verður leikið opinberlega í borg-
inni í dag á sérstökum Mozarttón-
leikum.
Fundurinn kom þannig til að
safni biskupsstofunnar í Austurríki
voru fyrir nokkru boðin nokkur
óundirrituð nótnahandrit. Meðal
handritanna var eitt sem nefndist
Allegro di Wolfgango Mozart og
hafa sérfræðingar nú komist að
þeirri niðurstöðu að Mozart hafi í
raun samið verkið þegar hann var á
aldrinum 6–10 ára.
Annað verk í safninu kann einnig
að vera eftir Mozart.
Mozartverk
í leitirnar
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
NÝTT íslenskt verk, Svona eru
menn eftir þá Einar Kárason og
Kristján Kristjánsson, verður
frumsýnt í Landnámssetrinu í
Borgarnesi í kvöld. Ekki er um eig-
inlegt leikverk að ræða heldur frá-
sögn Einars af uppvaxtarárum
Kristjáns, sem Einar segir að hafi
verið skrautleg í meira lagi. „Ég
hef lengi haft af því veður að KK
ætti sér mjög sérkennilegan bak-
grunn og uppvaxtarsögu. Hann
fæddist sem amerískur ríkisborgari
og ólst upp sem kani. Pabbi hans
var ákaflega litríkur maður og lenti
í hinum furðulegustu mannraunum
og ævintýrum. Hann endaði til
dæmis á því að týnast í Víetnam, en
kom reyndar í leitirnar aftur,“ segir
Einar. „Þetta varð til þess að ég
skrifaði bók um KK fyrir fjórum ár-
um síðan sem hét Þangað sem vind-
urinn blæs. Það var ævisaga en
þetta er svona uppvaxtarsaga sem
við erum með núna, þetta er sagan
um bakgrunn hans og þeir nafnarn-
ir, hann og pabbi hans, eru aðal-
persónurnar í þessu.“
Tónlist og tímaflakk
Í verkinu er saga KK rakin til 21
árs aldurs, en að sögn Einars er
miðað við þann aldur í ljósi þess að
samkvæmt amerískri siðvenju eru
menn þá taldir fullorðnir. Þá segir
Einar að hann muni ekki fylgja
beinni tímalínu í einu og öllu heldur
muni hann fara fram og til baka í
tíma. „Svo er náttúrlega í þessu það
sem ekki var í bókinni og það er
tónlistin. Ég segi söguna, stend á
gólfinu og segi hana, en KK spilar
tónlist á milli,“ segir Einar og bætir
því við að bæði sé um ný og gömul
lög úr smiðju KK að ræða, þar á
meðal nýtt titillag, Svona eru menn.
Aðspurður segir Einar verkið að
miklu leyti byggt á bókinni sem
kom út fyrir fjórum árum. „Þar
lærði ég þessa sögu, fékk hana upp
úr KK, bróður hans og fleira fólki
og fyrir vikið kann ég hana ágæt-
lega og þess vegna hentar mér
ágætlega að segja hana,“ segir
hann.
„Ég get alveg lofað því að sagan
er mjög spennandi en svo verða
aðrir að dæma um hvernig ég kem
henni frá mér, hvort ég hef réttu
tæknina til að segja hana. En ég
geri mitt besta.“
Enginn leikari
Aðspurður um ástæðu þess að
verkið er sett upp í Landnámssetr-
inu í Borgarnesi segir Einar það
hafa legið beinast við. „Þetta er
feikilega góður staður fyrir svona,
Söguloftið svokallaða. Svo stofnaði
Kjartan Ragnarsson Landnáms-
setrið og rekur það, og hann er nú
gamall samstarfsmaður okkar
beggja. Hann gerði leikrit upp úr
Leikhús | Nýtt íslenskt verk byggt á uppvexti KK sett upp í Landnámssetrinu í Borgarnesi
Sérkennileg ör-
lagasaga blúsara
Sögumenn „Ég hef lengi haft af því veður að KK ætti sér mjög sérkenni-
legan bakgrunn og uppvaxtarsögu,“ segir Einar.
Í HNOTSKURN
» Svala Hannesdóttir fæddistárið 1928. Hana dreymdi um
að verða leikkona.
» Svala stundaði leiklistarnámí skóla Ævars Kvaran á ár-
unum kringum 1950.
» Árið 1952 fór hún með leik-þátt sem hún hafði gert fyrir
skólann til Óskars Gíslasonar
kvikmyndagerðarmanns og
langaði til að gerð yrði úr honum
kvikmynd.
» Svala leikstýrði kvikmynd-inni Ágirnd, árið 1952, en
Óskar Gíslason, sem var þekktur
kvikmyndagerðarmaður fram-
leiddi myndina og kvikmyndaði.
» Ágirnd olli mikilli hneykslanvið frumsýningu og voru sýn-
ingar bannaðar um tíma.
ÁRAMÓTAUPPGJÖR menn-
ingarsmiðjunnar Populus tre-
mula, sem staðsett er í kjallara
Listagilsins á Akureyri, fer
fram í kvöld. Hljómsveit húss-
ins flytur valin lög eftir ástr-
alska tónlistarmanninn Nick
Cave en hljómsveitin er svo
skipuð: Arnar Tryggvason, pí-
anó og orgel, Atli Hafþórsson,
bassi og trommur, Bárður
Heiðar Sigurðsson, gítar, Guðmundur Egill Er-
lendsson, gítar, Hjálmar Stefán Brynjólfsson,
bassi, og Kristján Pétur Sigurðsson, söngur. Upp-
gjörið hefst klukkan 22 en húsið verður opnað
hálftíma fyrr. Aðgangur ókeypis.
Tónlist
Áramótauppgjör
Populus tremula
Nick Cave
JÓLATÓNLEIKAR Lúðra-
sveitar Hafnarfjarðar verða
haldnir í Hafnarfjarðarkirkju í
kvöld 20. Á tónleikunum flytja
málmblásarakór og -kvintett
úr lúðrasveitinni m.a. verk eftir
Bruckner, Gabrieli og Händel í
bland við jólasálma.
Lúðrasveit Hafnarfjarðar
hefur verið starfandi í yfir
hálfa öld. Í dag eru u.þ.b. 30
hljóðfæraleikarar starfandi
með lúðrasveitinni. Meirihlutinn er ungt fólk, á
aldrinum 15–25 ára.
Stjórnandi sveitarinnar er Þorleikur Jóhann-
esson.
Jólatónleikar
Lúðrablástur í
Hafnarfirði
Hafnarfjarð-
arkirkja
HLJÓMSVEITIN Á móti
sól leikur á stórdansleik á
Broadway annað kvöld, laug-
ardaginn 30. desember. Með
hljómsveitinni kemur fram
sérstakur Rockstar-gestur
„sem ekki vill láta nafns síns
getið en er frekar lágvaxin
dama með ótrúlega söng-
hæfileika,“ að því er fram
kemur í fréttatilkynningu.
Ballið verður síðasta ball hljómsveitarinnar
um óákveðinn tíma þar sem söngvarinn, Magni
Ásgeirsson, er á leiðinni til Bandaríkjanna til
að hita upp fyrir Rockstar Supernova hljóm-
sveitina.
Popptónleikar
Á móti sól ásamt
gesti á Broadway
Magni Ásgeirsson
♦♦♦