Morgunblaðið - 29.12.2006, Blaðsíða 46
46 FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ÚTSKRIFT nemenda frá Menntaskólanum í
Kópavogi fór fram 20. desember sl. við hátíð-
lega athöfn í Digraneskirkju. Alls útskrifuðust
47 stúdentar, 17 iðnnemar og 12 nemendur af
skrifstofubraut. Þá brautskráðust 3 nemar úr
meistaraskóla matvælagreina. Einnig útskrif-
uðust frá skólanum á þessu hausti 20 flugþjón-
ustunemar þannig að alls voru brautskráðir 99
nemar frá Menntaskólanum í Kópavogi á
þessu hausti.
Nýtt gæðastjórnunarkerfi í MK
Í máli Margrétar Friðriksdóttur skóla-
meistara kom m.a. fram að á haustönn hefur
verið í gangi umfangsmikil vinna að undirbún-
ingi og innleiðingu á gæðastjórnunarkerfi skv.
ISO 9001 sem er alþjóðlegur staðall um gæða-
stjórnunarkerfi og þær kröfur sem þarf að
uppfylla. Stefnt er að því að sækja um vottun á
keppni á þessu sviði. Dagana 7.–12. nóvember
sl. komu saman á Írlandi um 300 þátttakendur
frá 33 Evrópulöndum til að keppa sín á milli.
Fulltrúar MK og Íslands að þessu sinni voru
ferðamálaneminn Íris Jóhannesdóttir og bak-
araneminn Ragnar Th. Atlason. Þau sýndu
bæði frábæran árangur og komu heim með
tvenn gullverðlaun.
Góður námsárangur
Forseti bæjarstjórnar, Ármann Kr. Ólafs-
son, afhenti útskriftarnemum viðurkenningar
úr Viðurkenningarsjóði MK sem stofnaður var
af bæjarstjórn Kópavogs 1993. Tveir nemar
hlutu viðurkenningu að þessu sinni: Stúdent-
arnir Valgeir Tómasson og Rúnar Helgason
fyrir einstakan námsárangur en Rúnar var
jafnframt að ljúka iðnmeistaranámi í bakara-
iðn.
kerfinu fyrir lok þessa skólaárs. Skólinn hefur
ráðið gæðastjóra, Þór Steinarsson, sem hefur
störf við upphaf vorannar 2007.
Upplýsingatæknin verkfæri
í öllum námsgreinum
Fimm ára áætlun skólans um að gera upp-
lýsingatæknina að verkfæri í öllum náms-
greinum er nú að ljúka. Skólinn hefur sett sér
áframhaldandi stefnu til ársins 2010 um að
vinna áfram á þessari braut enda hafa flestir
nemar skólans nú yfir að ráða fartölvu og
kennarar hafa unnið mikið og óeigingjarnt
starf við að skipuleggja áfanga í samræmi við
upplýsingastefnu skólans.
Gullverðlaun í ferðamálakeppni
MK er aðili að Evrópusambandi hótel- og
ferðamálaskóla en árlega er haldin Evrópu-
Ljósmynd/Jón Svavarsson
99 nemar útskrifast frá Menntaskólanum í Kópavogi
Rangt föðurnafn
ÞAU leiðu mistök urðu í blaðinu í gær að Sess-
elja Ásgeirsdóttir fulltrúi í kvörtunarþjónustu
Neytendasamtakanna var sögð Árnadóttir.
Beðist er velvirðingar á þessum mistökum.
LEIÐRÉTT
MIÐVIKUDAGINN 27.12. 2006, um kl. 17.45,
varð gangandi vegfarandi fyrir bifreið við
gatnamót Listabrautar og Ofanleitis. Ökumað-
ur bifreiðarinnar, kvenmaður, ók vegfarand-
anum til síns heima eftir óhappið. Viðkomandi
ökumaður og vitni að atvikinu, ef einhver eru,
eru vinsamlega beðin að hafa samband við um-
ferðardeild lögreglunnar í Reykjavík, í síma
444 1130.
Vitni vantar
FERÐAFÉLAG Íslands og Útivist standa
fyrir blysgöngu í dag, föstudaginn 29. des-
ember. Gangan hefst við Nauthól kl. 18.30
og verður gengið í gegnum skóginn í Öskju-
hlíð að Perlunni þar sem Landsbjörg stend-
ur fyrir flugeldasýningu.
Í upphafi göngu verða göngumönnum
gefin blys. Útikertaljós munu lýsa upp
göngustíginn í skóginum. Von er á góðum
gestum í gönguna, jólasveinum og hugsan-
lega Grýlu eða Leppalúða sem munu bregða
á leik fyrir unga fólkið. Söngelskir göngu-
menn verða með í för og verða sungin ís-
lensk jólalög.
Fararstjórar verða bæði frá FÍ og Útivist.
Fararstjóri frá FÍ er Leifur Þorsteinsson og
Gunnar Hólm frá Útivist.
Sameiginleg blysför
FÍ og Útivistar
SVÆÐISFÉLAG Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs á Akureyri mótmælir
harðlega áformum ríkisstjórnarinnar um
hlutafélagavæðingu flugumferðarstjórnar-
innar og skorar á stjórnvöld að falla frá
gildistöku laga þar að lútandi nú um ára-
mótin. Vandkvæði við ráðningu flug-
umferðarstjóra máttu vera fyrirsjáanleg
þegar ákvörðun var tekin um að hluta-
félagavæða flugumferðarstjórnina, segir í
ályktun frá VG á Akureyri.
„Þessi vandkvæði munu hafa bein áhrif
á flug til og frá Akureyrarflugvelli. Verði
þar ekki starfandi flugumferðarstjórar
með fyllstu réttindi eftir áramótin, mun
þjónustustig flugvallarins lækka með
margvíslegu óhagræði og truflun á
flugsamgöngum. Mikilvægi Akureyrar-
flugvallar og nauðsyn á stækkun hans og
eflingu, hefur mjög verið í umræðunni að
undanförnu. Vandræðum sem stafa af
þessari stjórnkerfisbreytingu er ekki á
bætandi, og gífurlegir hagsmunir í húfi.
Svæðisfélag VG á Akureyri skorar á
stjórnvöld að falla frá gildistöku laga um
hlutafélagavæðingu flugumferðarstjórn-
arinnar nú um áramótin, og leggja þannig
meira upp úr hagsmunum ferðaþjónustu
og annarra atvinnuvega á landsbyggðinni
og almennum þjóðarhag en einstrengings-
legri einkavæðingarstefnu sinni,“ segir í
ályktuninni.
Hefur áhrif á
Akureyrarflug
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN býður upp á
veglega lokadagskrá á TM-svellinu á
Ingólfstorgi á milli 17 og 20 í dag. Að dag-
skrá lokinni verður svellinu lokað en það
var sett upp í tilefni af 50 ára afmæli TM
hinn 7. desember síðastliðinn.
Dagskráin hefst með því að djasshljóm-
sveitin „Johnny and the rest“, sem skipuð
er ungum djassleikurum, leikur nokkur
lög. Að því loknu eða klukkan 17:20 til
17:40 verða atriði úr leikritinu Skoppu og
Skrítlu, sem sýnt er í Þjóðleikhúsinu, á
dagskrá. Þá tekur við söngatriði og eru
það tenórarnir Davíð Ólafsson og Stefán
Stefánsson sem koma fram undir nafninu
Ídýfurnar. Þeir munu syngja fyrir skauta-
fólk jafnt sem aðra gesti til klukkan sex en
þá tekur við hópur blásturshljóðfæraleik-
ara sem skemmtir allt fram til kortér fyrir
sjö. Dagskránni lýkur svo með því að
hljómsveitin Baggalútur kemur fram.
Tryggingamiðstöðin býður upp á kókó og
piparkökur á torginu á milli 17 og 20.
Í fréttatilkynningu þakkar Trygginga-
miðstöðin þeim fjölmörgu sem heimsóttu
svellið í desember og fengu sér snúning
þar.
Lokadagskrá á
TM svellinu
Smáauglýsingar 569 1100
Barnagæsla
,,Au pair’’ London janúar ‘07. Hæ,
okkur vantar ,,au pair’’ í janúar til að
passa kátan 1 árs strák. Búum ná-
lægt Tower Bridge. Gleðileg jól.
steinarasia@yahoo.com. Símar 820
6850 og 44 7823 531 442.
Bækur
Góðir landsmenn Munið eftir
Bókunum að vestan þegar þið farið
að skipta. Athugið: Bækurnar að ves-
tan eru allar prentaðar á Íslandi!
Vestfirska forlagið, jons@snerpa.is
sími 456-8181.
Spádómar
Dýrahald
English Springer Spaniel hvolpar
til sölu
Upplýsingar í síma 661 6892.
Heilsa
REYKSTOPP MEÐ ÁRANGRI
Notuð er m.a. dáleiðsla og
EFT (Emotional Freedom
Techniques).
Viðar Aðalsteinsson,
dáleiðslufræðingur,
sími 694 5494,
www.EFTiceland.com .
Húsnæði í boði
Hafnarstræti, Akureyri. 118 m²
íbúð við Hafnarstræti, Akureyri, til
sölu/leigu. Suðursvalir. Ásett verð
15, 3 m. Upplýsingar 896 1263 eða
eygloa@hotmail.com.
Húsnæði óskast
Húsnæði óskast Stúlku utan af
landi sem er í vinnu og námi á
höfuðborgarsvæðinu vantar íbúð til
leigu sem fyrst, allt kemur til greina.
Er ábyrg og reglusöm, upplýsingar í
síma 868 7397.
Sumarhús
Sumarhús — orlofshús
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratuga reynsla.
Höfum til sýnis á staðnum fullbúin
hús og einnig á hinum ýmsu bygging-
arstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Bókhald
Bókhald * Reikningar * Laun *
Vsk * Skattframtal. Þú kemur bara
með möppuna þína. Við sjáum um
allt ferlið fyrir þig. Veitum einnig
ráðgjöf og aðstoð til einstaklinga í
greiðsluerfiðleikum. Katrín Magnús-
dóttir, bókhald - ráðgjöf og aðstoð.
Helena Bjarnadóttir viðskiptafræð-
ingur. Ársuppgjör - skattframtal.
Maka ehf., gsm 820 7335.
Þjónusta
Raflagnir og
dyrasímaþjónusta
Setjum upp dyrasímakerfi
og gerum við eldri kerfi
Nýlagnir og
endurnýjun raflagna.
Gerum verðtilboð
Rafneisti
sími 896 6025
lögg. rafverktaki • www.rafneisti.is
Ýmislegt
Áramótadressið í ár
Sléttur push-up, mjög nettur og
flottur í A,B,C,D skálum á kr. 3.990,-
Push up fyrir þær brjóstgóðu í
C,D,E,F skálum á kr. 3.990,-
Glæsilegur push up í B,C,D skálum
á kr. 3.990,-
Kjóll í stíl í S,M,L á kr. 3.990,-
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 3366.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf
www.misty.is
Bílar
Landcruiser árg. '03
Frábær bíll...möguleg skipti.
Uppl. í s. 840 5833.
Nissan Terrano
Nissan Terrano II árg'00, ekinn 95 þ.
km. Beinskiptur, bensín, krókur,
topplúga, stigbretti o.fl. Tilboð 1050
þ. kr. staðgreitt. S. 864 7880.
Til sölu Land Cruiser VX
Dísel. árg.10/04. Ekinn 58 þús.
Litur grænn. Verð 5,1 millj. Engin
skipti. Uppl. í síma 892 1474.
Jeppar
Isuzu Trooper '99
35'' rauður, br. 35'', læstur fr. og aft.
skoðun 2007, ek 201 þ., verð 1.350 þ?
S. 660 1567.
AUGLÝSINGASÍMI 569 1100