Morgunblaðið - 29.12.2006, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 29.12.2006, Blaðsíða 51
ÍSLENSKA spennumyndin Köld slóð verður frumsýnd í Smárabíói, Regnboganum, Háskólabíói, Borg- arbíói á Akureyri og Selfossbíói í kvöld. Myndin hefst á því að örygg- isvörður finnst látinn í einangraðri virkjun á hálendi Íslands. Fyrst virðist vera um slys að ræða og því hefur blaðamaðurinn Baldur lítinn áhuga á fréttinni. Það breytist þó snarlega þegar móðir hans segir honum að látni maðurinn sé pabb- inn, sem hann aldrei kynntist. Nú er forvitni Baldurs vakin fyrir alvöru og hann ákveður að komast á snoðir um hvað raunverulega leynist í klakaböndunum á þessum afvikna stað. Með aðalhlutverk í myndinni fara Þröstur Leó Gunnarsson, Elva Ósk Ólafsdóttir, Hjalti Rögnvaldsson, Helgi Björnsson, Anita Briem, Tóm- as Lemarquis, Lars Brygmann, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir og Stef- án Jónsson. Leikstjóri er Björn Br. Björnsson og handritið skrifaði Kristinn Þórðarson. Frumsýning | Köld slóð Rannsakar ráðgátu á hálendinu Ráðgáta Ýmislegt óvænt kemur í ljós þegar Baldur rannsakar lát föður síns. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 2006 51 menning LITLAR breytingar urðu á lista yfir vinsælustu kvikmyndirnar í íslenskum kvikmyndahúsum yfir jólin, enda voru engar nýjar myndir frumsýndar. Æv- intýramyndin Eragon er í efsta sætinu aðra vikuna í röð og höfðu rúmlega 12 þúsund manns séð myndina eftir jólin. Rómantíska gamanmyndin The Holiday er í öðru sætinu, en rúmlega tíu þús- und manns höfðu séð hana. Í þriðja sætinu er svo spennumynd- in Deja Vu sem um það bil fimm þúsund manns hafa séð. Þá vekur athygli að íslenska kvikmyndin Mýrin sem byggð er á sögu Arnaldar Indriðasonar er enn á meðal þeirra vinsælustu, en hún er í sjöunda sætinu eftir að hafa setið á listanum í tíu vikur. Alls hafa nú yfir 80 þúsund manns séð Mýrina. Kvikmyndir | Vinsælustu kvikmyndirnar á Íslandi Róleg- heit um jólin                    !   "#  $!   % & )* * %* +* ,* * -* .* /*           Vinsæl Yfir 80.000 manns hafa séð Mýrina. FJÓRAR nýjar kvikmyndir voru á meðal þeirra tíu mest sóttu í Banda- ríkjunum um jólin. Beint í efsta sæt- ið stökk ævintýramyndin Night at the Museum með Ben Stiller og Robin Williams í aðalhlutverkum. Myndin fjallar um ungan mann sem ræður sig í starf næturvarðar á þjóðminjasafni þar sem vægast sagt undarlegir atburðir eiga sér stað á hverri nóttu. Silvester Stallone náði þriðja sætinu með nýjustu mynd sinni um hnefaleikakappann Rocky, en myndin heitir einfaldlega Rocky Balboa og fjallar um endurkomu kappans í hringinn. Í fjórða sætinu er svo spennu- myndin The Good Shepard í leik- stjórn leikarans Roberts DeNiro, sem einnig fer með hlutverk í myndinni ásamt þeim Matt Damon og Angelinu Jolie. Loks stökk kvikmyndin We are Marshall beint í áttunda sætið en myndin segir sanna sögu af fót- boltaliði Marshalls háskólans í kjöl- far hræðilegs flugslyss. Það er Matthew McConaughey sem fer með aðalhlutverkið í myndinni. Ævintýri og hnefa- leikar á toppnum Mest sóttu myndirnar: 1. Night at the Museum 2. The Pursuit of Happiness 3. Rocky Balboa 4. The Good Shepherd 5. Charlotte’s Web 6. Eragon 7. Dreamgirls 8. We Are Marshall 9. The Holiday 10. Happy Feet Ævintýri Úr Night at the Museum. Kvikmyndir | Vinsælastar vestanhafs Fylgist með umfjöllun um þessa bók í helgarútgáfunni á Rás 2, nú á laugardaginn kl. 11.00 Lækjargata 2a sími 511-5001 opið alla daga frá 9.00 - 22.00 Helgar tilboð 2.093,- SPENNUMYNDIN Children of Men gerist í framtíðinni, nánar tiltekið árið 2027. Mannkynið er í útrým- ingarhættu og yngsti jarðarbúinn er nýlátinn, 18 ára að aldri. Sögu- hetjan, Theodore Faron, tekur því að sér að reyna að bjarga óléttri konu sem hugsanlega er síðasta von mannkyns. Með aðalhlutverk í myndinni fara Clive Owen, Juli- anne Moore og Michael Caine. Leik- stjóri er Alfonso Cuarón sem á að baki myndir á borð við Great Ex- pectations og Harry Potter og fanginn frá Azkaban. Þess má loks geta að Children of Men hefur hlot- ið einróma lof gagnrýnenda. Bjargvættur Theodore Faron er síðasta von mannkyns. Frumsýning | Children of Men Til bjargar mannkyni ERLENDIR DÓMAR: Metacritic.com 86/100 Variety 80/100 Hollywood Reporter 80/100 The New York Times 100/100 (allt skv. Metacritic)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.