Morgunblaðið - 29.12.2006, Síða 28
vín
28 FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Þ
að er hins vegar óneitan-
lega eitthvað sérstakt við
freyðandi vín og áramót.
Hvellurinn þegar tapp-
inn flýgur úr flöskunni
sem keppir við flugeldasýninguna
fyrir utan, bólurnar sem synda upp
há glösin og hljómurinn er glösin
mætast þegar skálað er mynda hátíð-
lega stemningu og marka í huga
margra komu nýs árs. Enda er fátt
sem á betur við á slíkri stundu en
glas af ísköldu kampavíni.
Margir nota orðið kampavín sem
samheiti yfir freyðandi vín. Það eru
hins vegar alls ekki öll freyðivín
kampavín þótt öll kampavín séu
freyðivín.
Freyðivín eru framleidd í öllum
víngerðarlöndum. Á Ítalíu drekka
menn Spumanti, Asti eða freyðandi
Lambrusco. Spánverjar eru með
réttu stoltir af hinum ágætu Cava-
vínum sínum sem framleidd eru í
Katalóníu. Cava-vínin hafa löngum
verið vinsæl hér á landi og sést það
meðal annars á því að á vefsíðu vín-
búðanna er að finna 21 mismunandi
tegund en í flokknum „önnur freyði-
vín“ einungis fimmtán. Þau koma
héðan og þaðan enda freyðivín yfir-
leitt framleidd í einhverju magni í öll-
um víngerðarlöndum heims.
Galdurinn að baki kampavíninu
Í flestum víngerðarhéruðum
Þýskalands eru framleidd og drukkin
Sekt-vín, þau bestu úr Riesling-
þrúgunni, og í Ástralíu drekka menn
gjarnan freyðandi rautt Shiraz-vín
um jólin þótt Ástralar séu jafnframt
lunknir við að framleiða góð freyðivín
í sígildum stíl. Um allt Frakkland má
finna freyðivín og má þar nefna
Crémant-vínin sem framleidd eru í
Alsace og Bourgogne. Svona mætti
lengi áfram telja. En þegar upp er
staðið jafnast ekkert freyðandi vín á
við hin freyðandi vín héraðsins
Champagne austur af París.
Víngerðarsvæðin er að finna í
kringum hina sögufrægu borg
Reims, sem einnig er þekkt fyrir hina
glæsilegu dómkirkju þar sem margir
af konungum Frakklands voru
krýndir. Í Reims og í nágranna-
bæjunum Epernay og Ay eru höf-
uðstöðvar flestra kampavínsfyr-
irtækja og teygja kjallarar þeirra sig
undir borgina á stóru svæði.
Margir hafa velt því fyrir sér hver
sé galdurinn á bak við kampavínið.
Hvers vegna eru kampavín svona
miklu, miklu betri en önnur freyð-
andi vín? Þrátt fyrir að framleið-
endur víðs vegar um heim hafi reynt
að nota sömu vínþrúgur (Char-
donnay, Pinot Noir og Pinot Meu-
nier) og notaðar eru í Champagne og
framleiða freyðivín sín með sömu að-
ferðum og notaðar eru við kampa-
vínsframleiðsluna hafa kampavín
ennþá vinninginn. Vissulega eru ekki
öll kampavín betri en öll freyðivín.
Það eru til frábær freyðivín og léleg
kampavín. Frábæru freyðivínin
kosta hins vegar svipað og kampavín
og ef valið er kampavín frá einhverju
af stóru kampavínshúsunum geta
menn gengið að gæðunum vísum.
Þær aðferðir sem notaðar eru við
framleiðsluna tryggja nefnilega að
vínin breytast ekki milli ára.
Kampavín eru ekki nema í undan-
tekningartilvikum árgangsvín. Það
er einungis þegar aðstæður eru ein-
staklega góðar að framleiðendur
framleiða vín sem merkt eru sér-
stökum árgangi og eru þetta alla-
jafna kampavín sem eru dýrari en
hin hefðbundnu kampavín frá sama
framleiðanda. Þannig kostar hefð-
bundið kampavín yfirleitt í kringum
þrjú þúsund krónur en árgangs-
kampavín að minnsta kosti fjögur til
fimm þúsund krónur.
Framleiðsla kampavína byggist á
kampavínsaðferðinni, „Méthode
Champenoise“, sem nú er gjarnan
kölluð „Méthode Traditionelle“ þar
sem kampavínsframleiðendur hafa
fengið því framgengt að óheimilt sé
að nota heiti héraðs þeirra yfir önnur
vín. Öll betri freyðivín, hvort sem þau
koma frá Champagne eða ekki, eru
hins vegar framleidd samkvæmt
þessari aðferð.
Í fyrstu er framleitt hefðbundið
hvítvín – jafnt úr hvítum sem rauðum
þrúgum. Þegar víngerjuninni er lokið
tekur síðari gerjunin eða kolsýru-
gerjunin við. Sykri er bætt út í flösk-
urnar og þeim lokað. Þegar sykurinn
gerjast breytist hann ekki í áfengi
heldur í kolsýru.
Minna úrval en áður
Leit á vefsíðu vínbúðanna skilaði
alls 23 tegundum af kampavíni sem
hér eru í boði og virðist sem úrvalið
hafi skroppið verulega saman á milli
ára. Í fyrra skilaði sambærileg leit á
sama tíma 38 tegundum! Þá ber að
hafa hugfast að einungis er hægt að
ganga að öllum þessum tegundum
vísum í búðunum í Kringlunni og á
Stuðlahálsi.
Þarna ætti þó að vera eitthvað fyr-
ir alla, konur og karla. Hægt er að fá
kampavín frá litlum og stórkostlega
góðum kampavínshúsum á borð við
Krug, en þá kostar flaskan líka litlar
9.440 krónur. Krug er Rolls Royce
kampavínanna og er stundum sagt
vera frægasta kampavín heims en
jafnframt það sem fæstir leggja sér
til munns. Það er þó alls ekki dýrasta
kampavínið á íslenska markaðnum
því lúxusvínið fræga Dom Pérignon,
sem kemur frá kampavínshúsinu
Moët et Chandon, er líka fáanlegt.
Til að halda uppi heiðri Krug verður
þó að benda á að vínið sem hér er
selt, Grande Cuvée, er „ódýrasta“ vín
þessa kampavínshúss.
Flestir láta sér líklega nægja ögn
ódýrari vín á gamlárskvöld og þar er
margt í boði. Til dæmis hin sígilda
„gula ekkja“ frá Veuve-Clicquot
Ponsardin (sem er nú eiginlega app-
elsínugul) eða þá Bollinger fyrir þá
sem vilja þyngri og þroskaðri stíl.
Duval-Leroy er líka athyglisvert
kampavínshús og þess má geta til
gamans að það var annað af tveimur
húsum sem náði kampavíni inn á lista
bandaríska víntímaritsins Wine
Spectator yfir 100 bestu vín ársins.
Hitt vínið var Krug.
Duval-Leroy er ekki eitt af stóru,
þekktu húsunum en þetta kampa-
vínshús, sem hefur verið rekið sem
fjölskyldufyrirtæki frá árinu 1859,
hefur verið að sækja mjög í sig veðrið
á síðastliðnum rúmum áratug.
Ég er sjálfur mjög hrifin af Duval-
Leroy Cuvée Paris sem kostar 3.090
krónur. Flaskan er glæsileg, skreytt
af bandaríska listamanninum LeRoy
Nieman, og kampavínið sjálft er ein-
staklega milt með hvítum ávexti og
blómum í nefi, með vott af ávaxta-
sætu (ef hægt er að nota orðið sætt
yfir Brut-vín).
Í höfuðið á þjóðhetju
Enn eitt kampavínshúsið sem
klikkar aldrei er svo Pol Roger en
standard-vínið þeirra á 2.890 krónur
er með betri kaupunum í kampavíni.
Ferskt og fágað með góðri þyngd. Og
líkt og svo oft þegar kampavín er
annars vegar fylgir góð saga húsinu.
Þegar Þjóðverjar hernámu bæinn
Epernay árið 1914 flúðu allir íbúanna
nema einn, bæjarstjórinn Maurice
Pol Roger. Það var sama þótt Þjóð-
verjar hótuðu honum lífláti og að
bærinn yrði brenndur til grunna.
Ekkert haggaði bæjarstjóranum.
Hann varð að þjóðhetju og þegar því
var fagnað í næstu heimsstyrjöld að
Þjóðverjar höfðu verið hraktir frá
París árið 1944 kom auðvitað enginn
annar drykkur til greina í sigurveisl-
unni í breska sendiráðinu í París en
Pol Roger. Winston Churchill var
þar meðal gesta en hann hafði ávallt
haft mikið dálæti á kampavíni. Enn
meira dálæti fékk hann á Odette,
tengdadóttur Jacques Pol Roger,
sem hann hitti í veislunni. Daðrið í
veislunni varð að ævilangri vináttu. Í
hvert skipti sem Churchill var í París
var Odette boðið í mat. Á hverju ári
sendi hún honum kassa af kampavíni
á afmælisdegi hans, árgangsvíninu
1928 sem hafði verið borið fram í
veislunni á meðan birgðir af því ent-
ust.
Svona hélt þetta áfram fram að
andláti Churchills árið 1965 en frá
þeim tíma hafa flöskur Pol Roger
verið með svörtum sorgarborða og
besta árgangsvín hússins borið nafn-
ið Cuvée Winston Churchill.
sts@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Skjótum tappa á loft
Kampavín er allt of gott til að einskorða það við áramót. Þessi drottning vínanna á eiginlega alltaf við. Á góðum stundum, með góðum vin-
um eða bara vegna þess að mann langar í eitthvað afskaplega gott. Fáir, segir Steingrímur Sigurgeirsson, hafa líklega orðað þetta betur
en Napóleon sem sagðist ekki geta lifað án kampavíns. Að loknum sigri ætti hann það skilið, í kjölfar ósigurs þyrfti hann á því að halda.
Margir nota orðið kampa-
vín sem samheiti yfir
freyðandi vín. Það eru hins
vegar alls ekki öll freyði-
vín kampavín þótt öll
kampavín séu freyðivín.
AÐ eignast mjög mörg börn er slæmt fyrir
heilsuna – sérstaklega heilsu mæðranna, að því
er sýnt er í nýrri rannsókn sem greint var frá á
vef BBC.
Bandarískir vísindamenn skoðuðu 21.000 pör
sem bjuggu í Utah á tímabilinu 1860–1985 og
áttu samtals 174.000 börn.
Í ljós kom að því fleiri börn sem pörin áttu því
verri voru þau til heilsunnar og líklegri til að
deyja snemma. Framkvæmd rannsóknarinnar,
sem gerð var á vegum Vísindaakademíunnar, er
söguleg en sérfræðingar segja hana geta varp-
að ljósi á breytingaskeið kvenna og nútímafjöl-
skylduna. Hjá öðrum tegundum hefur fórn-
arkostnaður þess að eignast og ala upp mörg
afkvæmi sýnt fram á að það að eignast eins
mörg afkvæmi og mögulegt er sé ekki besti
kosturinn, þó að það geti talist árangursríkast
til að viðhalda tegundinni. Rannsóknir höfðu
ekki sýnt fram á að hið sama gilti um manninn.
Vísindamennirnir, sem voru frá háskólanum í
Utah, greindu gögn frá 20. öldinni um fólks-
fjölda í Utah. Þeir komust að því að pör höfðu
eignast að meðaltali átta börn, en fjölskyldu-
stærðir gátu verið frá einu barni upp í fjórtán.
Gögnin sýndu að eftir því sem börnin voru fleiri
jókst hættan á að fólk dæi snemma. Verst kom
þetta út fyrir konurnar vegna líkamlegs erfiðis-
ins sem fylgdi því að að ala börnin. Áhætta feðra
jókst einnig eftir því sem börnin voru fleiri en
fór aldrei fram úr áhættu mæðranna. Sýndu
rannsóknirnar enn fremur að 1.414 konur létust
á fyrsta árinu eftir fæðingu yngsta barnsins og
þegar barnið hafði náð fimm ára aldri höfðu 998
mæður í viðbót látist. Til samanburðar létust
613 feður á fyrsta árinu eftir fæðingu yngsta
barnsins og 1.083 í viðbót þegar barnið var orðið
fimm ára. Eftir því sem fjölskyldur voru stærri
voru börnin líklegri til að deyja fyrir 18 ára ald-
ur, sérstaklega átti þetta við um yngri börnin.
Dr. Dustin Penn og dr. Ken Smith fóru fyrir
rannsókninni og þau segja að niðurstöðurnar
varpa ljósi á fjölgun manna og skipti máli enn í
dag. Manneskjan er ein af fáum tegundum þar
sem kvenkynið gengur í gegnum tíðahvörf sem
verður til þess að hún hættir að geta fjölgað sér.
„Tíðahvörf virðast hafa þau áhrif að mæður
lifi lengur og geti þannig komið fleiri af-
kvæmum til manns og þessi óvenjulega lífssaga
hefur trúlega þróast í okkar tegund vegna þess
hversu háð afkvæmin eru því að móðirin lifi af,“
segja vísindamennirnir. Við þetta var bætt að
niðurstöðurnar gæfu til kynna hvers vegna
mæður sýndu tilhneigingu til að eignast færri
börn. „Ef það hefur almennt komið niður á
heilsu kvenna að eignast mörg börn gæti það
útskýrt hvers vegna þær velja að eignast færri
afkvæmi en eiginmenn þeirra og minnka frjó-
semina þegar þær öðlast meiri stjórn yfir eigin
lífi.“
Tíðahvörf til að bjarga lífi mæðranna
Reuters
Barnalán Barnsfæðingum og barnauppeldi fylgir óneitanlega álag fyrir foreldrana.
heilsa