Morgunblaðið - 29.12.2006, Blaðsíða 44
✝ GuðmundurEiður Guð-
mundsson fæddist í
Stykkishólmi 20.
ágúst 1982. Hann
lést af slysförum
laugardaginn 16.
desember síðastlið-
inn. Hann var
yngstur fjögurra
barna hjónanna
Ástu Angelu Gríms-
dóttur og Guð-
mundar V. Sverr-
issonar
leigubílstjóra frá
Straumi á Skógarströnd. Þau búa
á Álftanesi. Systkini Guðmundar
Eiðs eru: 1) Matthildur Ólöf, maki
Andrés Skúli Pétursson, börn
þeirra eru Árni Steinar, Ásta Val-
dís og Hafþór Heiðar, þau búa í
Sandgerði. 2) Fanney Elínrós,
maki Gunnar Ellertsson, börn
þeirra eru Þórdís
Helga, Heiðrún
Ásta, Eiður Smári
látinn, Eiður Örn og
Gunnar Smári. Þau
búa í Garði. 3)
Pálmi Grímur, maki
Bjarney Katrín
Gunnarsdóttir.
Börn Pálma og fyrir
konu eru Guð-
mundur Leifur og
Kolbrún Ásta. Dótt-
ir Pálma og Bjarn-
eyjar er Birgitta
Líf. Þau búa í Kópa-
vogi. Hálfbróðir þeirra er 4) Ró-
bert Guðmundsson.
Guðmundur Eiður starfaði hjá
Fiskverkun Tor ehf. frá því á
fimmtánda ári.
Guðmundur Eiður verður jarð-
sunginn frá Víðistaðakirkju í dag
og hefst athöfnin klukkan 13.
Við mamma þín og pabbi höfum
setið og hugsað hvað þessi ferð hefur
orðið löng, það hafa fallið mörg tár.
Þú ert farinn frá okkur, yndislegi
fallegi drengurinn okkar, þú sem við
gátum treyst svo mikið á og varst
boðinn og búinn hvenær sem var til
að hjálpa okkur.
Við vissum ekki betur en þú hefðir
skroppið rétt sem snöggvast út og
mundir koma strax aftur en biðin
varð lengri en við héldum.
Það var ekki gott að vakna upp við
þær fréttir sem okkur voru færðar,
elsku besti drengurinn okkar.
Guðmundur Eiður var búinn að
vinna lengi á sama stað, hann var
eftirsóttur til allra starfa, hvar sem
var. Hann var harðduglegur og það
þurfti ekki að segja honum hvernig
hann átti að gera verkin, hann sá það
sjálfur.
Það sést best á því hvað hann vann
lengi hjá Tor fiskvinnslu, þar byrjaði
hann á fimmtánda ári og með tveim-
ur smáhléum vann hann þar til síð-
asta dags.
Alli, ég veit að þú hefur misst góð-
an starfskraft. Gummi, þú hefur
skipt um hlutverk og munt taka þér
annað fyrir sem hentar betur.
Við sem eftir sitjum syrgjum hann
sárt og munum alltaf sakna þín,
elsku drengurinn okkar, þú sem
hafðir svo margt gott til að bera og
margt gott að gefa að það er næstum
óbærilegt að hugsa til þess að við
fáum aldrei að sjá þig, elsku besti
engillinn okkar.
Nú finn ég angan löngu bleikra blóma,
borgina hrundu sé við himin ljóma,
og heyri aftur fagra, forna hljóma,
finn um mig yl úr brjósti þínu streyma.
Ég man þig enn og mun þér aldrei gleyma.
Minning þín opnar gamla töfraheima.
Blessað sé nafn þitt bæði á himni og jörðu.
Brosin þín mig að betri manni gjörðu.
Brjóst þitt mér ennþá hvíld og gleði veld-
ur.
Þú varst mitt blóm, mín borg, mín harpa
og eldur.
(Davíð Stefánsson.)
Með hinstu kveðju.
Mamma og pabbi.
Elsku hjartans ástin mín, mikið
sakna ég þín, ég bara trúi því ekki að
þú sért farinn frá okkur. Þegar
pabbi hringdi í mig hinn 16. des. og
sagði mér að þú hefðir dáið í bílslysi
um nóttina lamaðist ég, gat ekki
klárað að tala við pabba og ég er
ennþá að bíða eftir að vakna upp úr
þessari martröð. Það er okkur óskilj-
anlegt af hverju þú varst tekinn frá
okkur svona fljótt og snöggt. Þetta
er í annað skiptið sem brot úr hjarta
okkar er brotið, fyrst elskulegi sonur
okkar og nafni þinn, hann Eiður
Smári og svo þú núna, og núna spyr
ég af hverju þú. Það er svo mikið
sem við áttum eftir að segja við þig
og við fáum ekki tækifæri til þess
lengur. Þú varst svo yndislegur
bróðir og mágur og frændi, alveg
gull af manni, vildir allt fyrir alla
gera, það var aldrei neitt vandamál,
en þér fannst gaman að stríða
frændsystkinum þínum. Þér fannst
líka gaman að reyna að snúa hinum
nafna þínum úr Liverpool yfir í Man.
Utd, annars fengi hann ekki jólagjöf
eða afmælisgjöf og hann þorði ekki
annað en halda með Man. Utd þegar
hann var nálægt þér en heima fyrir
hélt hann með Liverpool. Nú er svo
tómlegt að koma heim til mömmu og
pabba því það er enginn til að bögga
krakkana og það heyrast ekki lengur
þín „venjulegu“ læti þegar þú varst
að reka á eftir mömmu með kaffið
eða spyrja af hverju ekki væri búið
að ganga frá úr innkaupapokunum.
Það er svo margt sem ég get talið
upp um litla ljóshærða strákinn með
blágráu augun og fallega brosið. Það
eru svo margar æðislegar minningar
af þér sem ég get sagt en ég er líka
full af reiði við guð, af hverju var
hann að taka tvo sæta stráka frá
okkur, við því fæ ég aldrei svör, ég
verð að sætta mig við ósættina. Það
er svo erfitt að geta ekki séð þig
meira eða heyrt í þér röddina en jú,
ég get heyrt hana, því ég á mynd-
band af þér sem ég get horft á, en
það er ekki það sama, en þetta
myndbrot er mér kært og verður
geymt mjög vel. Þetta voru erfiðustu
jól sem við höfum haldið en á móti
fengum við dýrmætustu jólagjafirn-
ar, þær voru frá þér og þvílíkt erfitt
að opna þær, það komu mörg tár.
Það er svo erfitt að byrja að skrifa
grein en ennþá erfiðara að hætta að
skrifa greinina, það er svo sárt að
sakna. Við söknum þín alveg svaka-
lega, elsku Gummi.
Á kveðjustund er þungt um tungutak
og tilfinning vill ráða hugans ferðum.
Því kærum vini er sárt að sjá bak
og sættir bjóða Drottins vilja og gjörðum.
En Guðs er líka gleði og ævintýr
og góð hver stund er minningarnar geyma.
Farðu vel, þér fylgir hugur hlýr
á ferð um ljóssins stig, og þagnarheima.
(Sigurður Hansen.)
Ástar- og saknaðarkveðjur til þín
frá okkur. Guð geymi þig, hjartað
okkar.
Fanney og Gunnar.
Ég vaknaði upp við símhringingu
kl. 3.24 aðfaranótt 16. des. sl., þegar
faðir okkar tilkynnti mér að þú hefð-
ir látist í bílslysi, hann sagði bara
orðrétt, hann Gummi bróðir þinn er
dáinn. Ég margendurtók það eftir
honum. Þvílíkt óréttlæti er þetta, þú
áttir allt lífið þitt framundan. Ég er
ennþá að bíða eftir því að verða vak-
in upp af þessu hræðilega draumi, en
því miður er það víst ekki draumur.
En elsku hjartans Gummi minn, þú
varst mér allt og sem mitt fjórða
barn, búinn að vera hangandi í
buxnafaldinum mínum síðan að ég
var 8 ára gömul. Og ást mín á þér er
endalaus, við vorum mjög samrýnd
systkini og við hjálpuðum hvort öðru
eftir bestu getu. Ég gæti skrifað
heila bók um þig og þinn skemmti-
lega persónuleika, þú hefur tekið svo
mikinn þátt í mínu lífi, enda búið hjá
mér á vissum tímabilum, hjálpað til
við flutninga, að byggja nýja húsið
mitt, og ég gæti endalaust talið upp.
Þú varst gull af dreng að vera, vildir
öllum vel og sagðir aldrei nei þótt
þig langaði til, en svona er þér best
lýst, passaðir upp á hárið á þér, alltaf
nýklipptur, hörkunagli til vinnu og
frábær við frændsystkini þín. Elsku
ástarengillinn minn, ég kveð þig
núna með tár í augum mínum og
hjartað mitt er kramið af söknuði.
Ég þakka þér fyrir þessi yndislegu
og frábæru 24 ár sem ég hafði með
þér. Við hittumst seinna á betri stað,
þá tekur þú vel á móti bestu systur.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson.)
Hvíl í ró og friði, Gummi minn.
Ástar- og saknaðarkveðja, þín
elskandi systir að eilífu.
Mattildur Ólöf.
Minningarnar streyma fram í
hugann um lítinn ljóshærðan dreng
sem flutti í Vogana fimm ára. Við
urðum strax góðir vinir, hann kom
alltaf í heimsókn og oft beið hann
eftir mér þegar ég var að koma heim
úr vinnu og sagði: Hvað ertu að
slóra, ég er búinn að bíða lengi. Það
var margt sem við gerðum saman og
fórum. Þegar þú Gummi komst og
það var rautt í hárinu á þér og ég
spurði: Hvað kom fyrir þig? var
svarið: Ég var að lita á mér hárið
með tómatsósu. Það fannst þér flott.
Eða þegar Gummi sagði við mig:
Hey Vallý, þú reykir eins pakka og
Skúli, þá vissi ég hver var byrjaður
að reykja. Við Gummi erum búin að
hlæja mikið að því að þessi fimm ára
pjakkur skyldi segja mér þetta. Eða
þegar þú fórst með okkur Pétri upp í
hjólhýsi og við sýndum þér Villinga-
holt, það var mikið pælt hvernig
þessi kall væri. Æ, elsku Gummi
minn, við eigum svo margar góðar
fallegar minningar um þig og hug-
urinn er á milljón. Við fórum saman
á Bubbatónleika í Glaðheimum og þú
fékkst eiginhandaráritun hjá Bubba
og þvoðir þér ekki um hendurnar.
Svo liðu árin og systkinabörnin þín
fæddust og þér þótti svo vænt um
þau öll, ef þú mættir ekki í afmæli
hjá þeim var spurt: Hvar er Gummi
frændi? Þegar þú mættir hópuðust
þau um þig og svo þegar Ella systir
þín eignaðist drengina sína þá
fékkstu nafna. Þú áttir tvo nafna,
hann Eið Smára sem lést og hann
Eið Örn. Það sýnir hvað öllum þótti
vænt um þig.
Þú vildir hjálpa öllum, varst nýbú-
inn að mála stofuna fyrir mömmu og
pabba þinn.
Þér fannst gaman að skemmta þér
og oft sagði ég við þig: Varstu að
djamma? Svarið var: Já, hún amma
er alltaf að draga mig á ball um helg-
ar, – ég hef ekki heilsu í það en
amma er svo mikill djammari.
Ömmu þinni fannst svo gaman þegar
þú varst að grínast í henni með þetta
og sagði: Ég get ekki verið að
skrölta þetta ein, þú verður að koma
með mér Gummi minn. Þið amma
voruð miklir vinir og sátuð oft og töl-
uðuð saman eða þú sagðir: Við erum
að hlusta á kór, enda veit ég að hún
hefur tekið á móti þér.
Guð geymi þig, elsku vinur.
Valdís Skúladóttir.
Kveðja frá Fiskverkun
TOR ehf.
Það var fyrir um tíu árum að
Gummi kom til starfa hjá okkur í
fiskverkuninni, þá undir verndar-
væng eldri bróður síns Pálma. Hann
var ungur að árum, ljós og fagur og
einkar brosmildur piltur. Gummi
gekk í hin ýmsu störf og innti þau vel
af hendi og ávallt með bros á vör.
Þess vegna var hann afar vinsæll og
þægilegur starfsfélagi og vinur. Við
erum öll harmi slegin. Hugur okkar
er hjá Pálma bróður hans og fjöl-
skyldu svo og ástkærum foreldrum
og systrum. Megi minningin um ljúf-
an dreng vera ljós í myrkrinu. Við
kveðjum þig, elsku Gummi, með
kveðjunni hans Bubba
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum í trú
á að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni
veki þig með sól að morgni.
Drottinn minn faðir lífsins ljós
lát náð þína skína svo blíða.
Minn styrkur þú ert mín lífsins rós
tak burt minn myrka kvíða.
Þú vekur hann með sól að morgni.
Þú vekur hann með sól að morgni.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni
svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens.)
Hvíl í friði, kæri vinur, og hafðu
þökk fyrir allt og allt.
Aðalsteinn, Hulda, starfs-
félagar og vinir Tor ehf.
Elsku frændi, við elskum þig mik-
ið og söknum þín mikið, þú ert besti
frændi í heimi, bless frændi.
Gang þú til fjalla ef leið er þín lund
og löngun og þrá eru í dvala
það vermir þitt hjarta á viðkvæmri stund
ef vitjar þú öræfadala
og háttaðu einn undir himinsins sæng
og hlustaðu á þögnina tala
þar mófuglamóðirin vermir með væng
vorgróður öræfadala
Gefðu þér tíma og fangaðu frið
sem fýkur með morgunsins svala
er heyrir þú svanina hefja sinn klið
af heiðarbrún öræfadala
(Höf. ók.)
Saknaðarkveðjur frændi.
Þórdís Helga, Heiðrún Ásta,
Eiður Örn og Gunnar Smári.
Elsku Gummi minn, það er svo
skrítið og ósanngjarnt hvernig allt
getur breyst á einu augnabliki. Á
einu augnabliki var lífið tekið af þér.
Ég er mikið búin að gráta og mikið
búin að hugsa en því miður get ég
ekkert gert til að fá þig aftur, heyrt
röddina þína eða horft í fallegu aug-
un þín. Það er ömurleg staðreynd
sem erfitt er að sætta sig við. Ég
man þegar við vorum að kynnast,
fyrst hélt ég að þú værir lokaður og
feiminn því við hittumst oft án þess
að tala mikið saman. En svo þegar
ég kynntist þér þá heillaðirðu mig
strax. Þú varst svo hress, alltaf í
góðu skapi, forðaðist öll leiðindi og
áttir enga óvini. Þú mismunaðir eng-
um! Þú varst góður við alla og þá
sérstaklega börn. Ég man hvað
Thelma hélt upp á þig og þú ekki síð-
ur upp á hana, þú kenndir henni að
frussa þegar hún var fjögurra mán-
aða og þið hlóguð svo mikið fruss-
andi á hvort annað. Ég hugsa alltaf
til þín með bros á vör þegar hún
frussar. Ég þakka fyrir hverja mín-
útu sem ég átti með þér, ég þakka
fyrir að hafa kynnst þér og er stolt af
því að hafa þekkt jafn yndislega
manneskju og þú ert.
Elsku Gummi, Ásta, Matta, Ella
og Pálmi og fjölskyldur, megi guð
styrkja ykkur á þessum erfiðu tím-
um.
Þeir segja þig látna, þú lifir samt
og í ljósinu færð þú að dafna.
Því ljósi var úthlutað öllum jafnt
og engum bar þar að hafna.
Frá litlu hjarta berst lítil rós,
því lífið þú þurftir að kveðja.
Í sorg og í gleði þú senda munt ljós,
sem að mun okkur gleðja.
(Guðmundur Ingi Guðmundsson.)
Ég kveð þig með miklum söknuði.
Ég elska þig!
Þín,
Hafdís Hödd.
Mig langar til að minnast í fáein-
um orðum vinar míns Guðmundar
Eiðs Guðmundssonar.
Gummi minn, eins og ég kallaði
hann alltaf, var sérstakur í mínum
huga, rétt eins og eitt af mínum
börnum enda reyndist hann mér og
börnunum sérstaklega vel, dvaldi oft
á tíðum heima hjá okkur og var
börnunum sem stóri bróðir sem þau
litu mjög svo upp til.
Gummi var ávallt boðinn og búinn
til að hjálpa mér, oftast þó óumbeð-
inn að bjóða fram aðstoð sína. Í
mörg ár var það Gummi sem hjálp-
aði okkur með flest sem þurfti að
gera s.s. flytja, setja saman húsgögn,
laga hluti og þess háttar.
Við börnin og þá sérstaklega ég á
eftir að sakna hans innilega. Erfitt
verður að hugsa til þess að ekki verði
hringt og sagt: „Hæ elskan, hvað
segirðu í dag?“ enda vön að fá þann-
ig símtöl frá Gumma mínum.
Elsku Gummi minn, ég sakna þín
mjög mikið og þú munt alltaf eiga
stórt pláss í hjarta mínu. Með þökk
fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig og
mína kveð ég þig með söknuði en
fullt af fallegum og yndislegum
minningum um hjálpsaman,
skemmtilegan og góðhjartaðan
mann.
Ekki get ég ímyndað mér hvað
foreldrar og fjölskylda Gumma er að
ganga í gegnum á þessum tíma og
sendi ég þeim öllum mínar dýpstu
samúð.
Sigurbjörg Anna Ársælsdóttir.
„Þeir deyja ungir sem guðirnir
elska.“ Þetta á sérstaklega við í
þessu tilfelli því hann Guðmundur
Eiður var besti maður sem ég hef
kynnst.
Hann var ávallt til staðar fyrir vini
sína og alltaf fyrstur til að bjóða
fram aðstoð sína til þeirra sem
þurftu á henni að halda. Gummi varð
strax minn besti vinur og ég mun
sakna hans sárt. En það sem heldur
mér gangandi er að hans er þörf
annars staðar. Því svona yndislega
manneskju finnur maður ekki þótt
víða væri leitað.
Elsku Gummi minn, þakka þér
fyrir allan þann tíma sem við áttum
saman. Ég á bara góðar minningar
um þig og munu þær ylja mér um
ókomna tíð. Ég elska þig endalaust
mikið og lofa að ég held áfram að æfa
mig í að segja bæ, bæið okkar.
Foreldrum og fjölskyldu Gumma
votta ég mína dýpstu samúð á þess-
um erfiða tíma.
Þín vinkona
Díana.
Guðmundur Eiður
Guðmundsson
44 FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Elsku Gummi, við eigum
eftir að sakna þín mjög mikið
því þú varst alltaf svo góður
við okkur.
Við munum alltaf muna
eftir þér og þú átt sérstakan
stað í hjörtum okkar.
Þínir vinir,
Matthías Kristófer
og Alexandra Eva.
HINSTA KVEÐJA
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför foreldra minna, systur og mágs,
ELNU OG PALLE HAUNDRUP,
Morelgangen 7,
Birkerød,
Danmörku.
Kær kveðja til ykkar allra,
Britt Haundrup,
Hanne Hintze.