Morgunblaðið - 26.01.2007, Side 27
Fyrst er nautagúllasið steikt í
heitri olíu. Á meðan það er að
brúnast er laukur, sellerístangir,
hvítlaukur og 2 gulrætur hökkuð í
matvinnsluvél – fremur smátt.
Kjötið er sett til hliðar í skál og
smáolíu bætt í pottinn og grænmet-
ið sett út í og steikt þar til glært.
Þá er kjötinu bætt saman við með
öllum vökva sem fylgir. Saltað og
piprað. Steikt í smástund og hrært
vel saman. Því næst er 1,5 l af
vatni bætt út í og einnig hálfri
flösku af rauðvíni. Nautakjötkrafti
bætt við – skv. leiðbeiningum mið-
að við vatnsmagnið. Tómatpuré því
næst bætt saman við ásamt kartöfl-
unum, flysjuðum og skornum í
fernt, sveppum sem skornir eru til
helminga, og tveimur nið-
urskornum gulrótum. Lárviðarlaufi
og söxuðu, fersku rósmaríni bætt í.
Saltað og piprað aftur. Soðið í 30
mínútur með lokið á og svo 1
klukkustund við lágan hita – þar til
það er soðið niður um nær helming.
Súpan verður orðin þykk og kraft-
mikil þegar hún er tilbúin. Borið
fram í súpuskálum – skreytt með
niðurskorinni steinselju og heil-
hveitikex haft með.
Heilhveitikex
2 bollar hveiti
2 bollar heilhveiti
30 g haframjöl
1½ bolli mjólk
100 g smjör – fryst um stund
1½ msk. lyftiduft.
Hveiti, heilhveiti lyftidufti, hafra-
mjöli, léttmjólk, smjöri (sem er
brytjað niður með grófu rifjárni) er
blandað saman og hrært. Litlir bit-
ar eru teknir af deiginu og flattir
vel út og svo er stungið á þá með
gaffli. Raðað á ofnplötu og bakað í
heitum ofni í um 8 mínútur við 190
gráðu hita.
Salat
Klettasalat
½ kastalaostur
1 pera
5 lauf ferskt basil
¼ búnt kóríander
1 plómutómatur
Klettasalat lagt á flatan disk.
Pera flysjuð og sneidd í langar
grannar sneiðar sem eru lagðar of-
an á salatið. Blár kastali sneiddur
niður og lagður þar ofan á. Plómu-
tómatur skorinn niður og lagður
með. Fersku basil og kóríander
dreift yfir. Smá extra virgin-
ólífuolíu skvett yfir. Saltað og pipr-
að.
Jarðarberja og bláberja-
krumbl með vanilluís
250 g hveiti
150 g sykur (100 g dökkur
Muscovado-sykur og 50 g hvítur
sykur)
100 g smjör
1 tsk. vanilludropar
50 ml mjólk
350 g jarðarber
150 g bláber
30 g hvítur sykur
Hveiti, sykri, smjöri, van-
illudropum og mjólk blandað saman
í hrærivél. Jarðarberjum, skornum
í tvennt og bláberjum blandað sam-
an. Berin þvegin og lögð blaut í
eldfast mót og sykruð með hvítum
sykri. Bakað í 190 gráðu heitum
ofni í 10 mínútur. Þá eru þau tekin
út og flutt yfir í minni eldföst mót
(1 á mann) og deiginu sáldrað yfir.
Bakað aftur í um 10 mínútur eða
þar deigið er orðið fallega gullið.
Borið fram með vanilluís.
Morgunblaðið/Sverrir
Jarðarberja- og bláberjakrumbl Gott með vanilluís.
sia@mbl.is
ragnarfreyr.blog.is
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2007 27
Gylfi Þorkelsson gaf útljóðabókina Guðað á gluggann
fyrir jólin og ritaði í eintak til
móður sinnar:
Tókst í hönd þér huga minn,
hjartað, ljósið, skuggann.
Guða svo í andakt inn
um opinn sálargluggann.
Og til Bjarna bróður síns skrifaði
hann í eintak af bókinni:
Orð er ljúft að eiga við
ekkert kann ég betra
til að öðlast innri frið
en með bleki letra.
Allt virðist hafa verið í bundnu
máli hjá Gylfa yfir hátíðirnar. Í
jólakort til konu sinnar færði hann
til bókar:
Þegar ógnar orrahríð,
yfir níðið dynur,
veit ég að þú alla tíð
ert minn besti vinur.
Loks varð Margrét Hafliðadóttir,
mágkona hans, sextug á jóladag.
Gylfi orti:
Hvað er dagur, hvað er stund?
Hvað er áratugur?
Gullið hjarta, glaðvær lund,
góður vinarhugur.
VÍSNAHORNIÐ
Ritað í
bækur
pebl@mbl.is