Morgunblaðið - 26.01.2007, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 26.01.2007, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2007 37 umst t.d. öll stórfjölskyldan, um 50 manns, í Nesi á öðrum degi jóla síðast liðinn. Fjölskyldan var Gunnari mik- ils virði, hann var einkar barngóður og þau hændust að honum en oft voru aðkomubörn í Nesi í styttri eða lengri tíma. Kona hans, Sigurlína, og börnin hafa staðið með honum í flestu sem þau hjón hafa tekið sér fyrir hendur. Börnin fjögur eru öll hin mannvæn- legustu og hann hafði sérstakt yndi af afabarninu, Bríeti Ýr. Gunnar hafði gaman af ferðalögum og fóru þau hjón nokkuð um landið en því miður var allt of lítið um frí og ferðalög þar sem hann var sívinnandi. Einnig hafði hann mikinn áhuga á íþróttum og æfði og keppti í knattspyrnu með Magna á Grenivík í nokkur ár og æfði einnig ofurlítið frjálsar íþróttir, skíða- göngu og blak. Hann var mjög upp- lagður til margra íþrótta, var talsvert yfir meðallagi á hæð, samsvaraði sér mjög vel og var líkamlega sterkur. Einnig hafði hann mjög gaman af því að fylgjast með öllum íþróttum hvort heldur var í fjölmiðlum eða á vellin- um. Gunnar gaf lítil færi á því að taka þátt í félagsmálastörfum svo neinu nam s.s. sveitarstjórn, hann vildi forð- ast deilur og leið best þar sem allir voru ánægðir. Aftur á móti var hann áhugamaður um ýmis framfaramál í sinni sveit eða á landsvísu s.s. sam- göngumál og byggðamál og ræddi þau við menn í sínum hópi. Það eru einungis þrjú ár á milli okkar Gunnars í aldri og brösuðum við því mikið saman, einkum á ung- lingsárunum og þegar ég kom hingað norður til að vinna sumarvinnu á námsárunum. Ég get því ekki neitað því að þessi tengsl frá unglingsárun- um rifjuðust upp eftir að ég flutti aft- ur hingað norður, fljótlega eftir nám í Reykjavík. Þessa tengingu stóð allaf til að efla meira en nú sést hvað lífið er óútreiknanlegt og maður stendur eftir með orðinn hlut. Missir okkar systkinanna og fjölskyldna er mikill en að sjálfsögðu er þetta ótímabæra fráfall hans reiðarslag fyrir konu hans og börn en allir þurfa styrk og hlýju á tímum sem þessum. Gunnar vildi alltaf standa að baki þeim ef ein- hver vandræði voru og þau fundu allt- af traust hjá honum. Ég og fjölskylda mín viljum votta konu hans Sigurlínu, börnunum Kristni Elvari, Gunnari Helga, Valtý Smára og Berglindi Ýr ásamt tengdadætrum og síðast en ekki síst barnabarninu Bríeti Ýr okk- ar innilegustu samúð. Kæri bróðir, þú varst ekki mikið fyrir væmni en þú verður að hafa það að við söknum þín öll og vildum hafa þig á meðal okkar miklu lengur. En við vitum að það var fremur létt í kringum þig og þú hafðir gaman af öllu spaugi og léttleika. Þannig viljum við muna þig ásamt því að þú varst traustur vinur í raun. Haukur F. Valtýsson. Ef síminn hringir þegar svefnró er komin á, bregður manni alltaf við. Fyrsta sem í hugann kemur er að eitthvað óvænt hafi gerst. Hingað til hafa slíkar hringingar sem betur fer ekki boðað slæm tíðindi. Því var öðru- vísi farið við síðustu hringingu þegar okkur var sagt var frá andláti Gunn- ars mágs míns í Nesi. Hann hafði fyrr um kvöldið skoppið inn á Akureyri og átti þaðan ekki afturkvæmt. Þetta var eitthvað sem enginn átti von á. Gunn- ar, fullfrískur maðurinn og vel á sig kominn á allan hátt, fer í líkamsrækt en verður bráðkvaddur að lokinni æf- ingu. Slíkt áfall er erfitt að skilja og mun erfiðara að sætta sig við. Þetta er ekki fyrsta áfallið sem Nessystkinin hafa þurft að takast á við. Móðir þeirra deyr aðeins 42 árs frá þeim 8 systkinum og yngstir voru þríburarnir 8 ára. Nokkrum árum síðar sjá þau á eftir föður sínum sem skyndilega var kallaður í burtu. Það eru að verða 30 ár síðan ég bankaði upp á hjá Nesfjölskyldunni þegar við Sigrún hófum sambúð. Þá var hurðin opnuð og fékk ég strax á tilfinninguna að ég var velkominn í hópinn. Um líkt leyti voru þau Silla og Gunnar að hefja búskap. Hún kom ung að árum í Nes og fljótt tók hún þar við heimilisstörfum sem hún hef- ur sinnt af samviskusemi og dugnaði alla tíð síðan. Valtýr í Nesi stundaði búskap og seinni árin sá hann um rekstur á jarðýtum. Við skyndilegt fráfall hans stofnuðu systkinin fyrir- tækið Jarðverk sf. og bræðurnir tóku við rekstrinum. Gunnar keypti sér snemma vörubíl og hóf að gera hann út. Það var síðan hans aðalatvinna. Hann hafði næg verkefni í sveitinni fyrir bílinn. Það var mikið leitað til hans vegna þess hversu þægilegur hann var og bón- góður. Með árunum fjölgaði tækjunum í hans eigu og reksturinn varð um- fangsmeiri. Hann vann mikið fyrir Vegagerðin, bæði að laga vegi og leggja nýja. Í mörg annaðist hann snjómokstur á vegum í Þingeyjar- sýslu. Síðasta dagsverkið hans Gunn- ars var að hreinsa snjó af vegum í Fnjóskadal áður en fór í þessa örlaga- ríku ferð til Akureyrar. Það var eins og hann vildi hafa Dalinn sinn hrein- an áður en hann kvaddi. Gunnar var hæglátur og traustur maður sem gott var að umgangast. Hann var dulur um eigin hag, en ræð- inn um önnur málefni. Oft var setið við eldhúsborðið í Nesi og spjallað um líðandi stund. Það var gaman að ræða við Gunnar, hann sagði skemmtilega frá, því gamansemin var til staðar. Eitt af einkennum hans var vinnu- semi. Hann kunni vel við að hafa nóg fyrir stafni. Hann var laghentur og gætti þess að tækin hans væru í góðu lagi til að koma í veg fyrir bilanir. Að taka sér frí var ekki ofarlega í huga hans. En það kom þó að sjálfsögðu fyrir að skroppið var af bæ í nokkra daga og var það oftast að frumkvæði Sillu. Gunnar hafði gaman af að ferðast þegar af stað var komið. Hjálpsemi Gunnars fékk ég oft að njóta. Er við bjuggum í Aðaldal vann ég eitt sumar út á Húsavík. Þá kom Gunnar til og bauð mér bláa Land Rover-jeppann sinn því honum fannst ómögulegt að Sigrún systir hans væri bíllaus heima allt sumarið á meðan ég væri í vinnu. Það boð var þegið með þökkum. Eins var að þegar á jeppa þurfti að halda vissi maður að hægt var að leita til Gunnars. Einnig átti ég góðan að þegar þurfti að lagfæra bíl- inn því sú hlið hefur aldrei verið sterk hjá mér, en var létt verk hjá honum. Málin þróuðust þannig að Silla og Gunnar keyptu Nesjörðina og hafa búið þar. Fjölskyldan frá Nesi hefur leitað mikið þangað í heimahagana. Heimili þeirra hefur verið okkur öll- um opið og viðmótið verið þannig að það hefur verið litið á okkur meira sem heimafólk en gesti. Á árum okkar í Aðaldal var oft skroppið í Nes. Valli, sonur okkar, sótti mjög að vera í Nesi hjá Sillu og Gunnari. Strax þegar skóla lauk á vorin vildi hann komast í Nes og vera þar yfir sumartímann. Þar fékk hann nóg að gera og verkefni sem hann hafði gaman að fást við. Þar leið hon- um vel og fyrir það viljum við þakka. Ég vona að Nes verði okkur áfram griðastaður sem við getum leitað til og átt saman góðar stundir. Við nut- um þess í sumar að gista upp í Ko- famó. Þar var gott að vera enda er þar veðursæld og útsýnið fagurt yfir Fnjóskadalinn. Silla og fjölskylda. Ég hélt að þið væruð búin að fá nógu mörg högg að undanförnu til að glíma við svo að þetta þurfti ekki að bætast við. Högg sem valda mikilli sorg og sársauka. Í þessum efnum virðist ekki vera spurt um sanngirni, en við ráðum ekki för. Megi góður Guð hjálpa ykkur að takast á við nýjar og óvæntar aðstæð- ur. Þið vitið að systkinahópurinn er stór og samhentur og er tilbúinn að veita ykkur skjól og hjálp þegar þið þurfið á að halda. Nú er komið að kveðjustund. Ég kveð þig, Gunnar, með tár í augum og um leið þakka ég fyrir að hafa fengið tækifæri til að eiga samleið með þér þessi 30 ár. Gunnlaugur Auðunn Árnason.  Fleiri minningargreinar um Gunnar Sigurð Valtýsson bíða birt- ingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höfundar eru: Valtýr, Ástvaldur, Laufey, Aðalgeir og Arney; Hermann R. Herbertsson; Sindri; Birna og Rósanna; Valdimar og Ragnhildur; Ólafur Arn- grímsson. REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, SIGRÍÐUR SIGURGEIRSDÓTTIR frá Súðavík, síðast til heimilis í Tjarnarlundi 17b, Akureyri, verður jarðsungin frá Súðavíkurkirkju laugardaginn 27. janúar kl. 14.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minningarsjóð Súðavíkurkirkju. Upplýsingar í símum 450 4621, 456 4912 og 456 4959. Daníela Guðmundsdóttir, Sigurjón Þorvaldsson, Grétar Geir Guðmundsson, Agnes Eymundsdóttir, Sævar M. Birgisson, Svanhvít Leifsdóttir, Ólafur Guðmundsson, ömmu- og langömmubörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, HALLA BJARNADÓTTIR fyrrum húsfreyja á Hæli í Hreppum, andaðist á hjúkrunarheimilinu Skjóli laugardaginn 20. janúar. Útförin fer fram frá Stóra-Núpskirkju laugardaginn 27. janúar kl. 14.00. Gestur Einarsson, Valgerður Hjaltested, Bjarni Einarsson, Borghildur Jóhannsdóttir, Eiríkur Einarsson, Ari Einarsson, Þórdís Bjarnadóttir, Þórdís Einarsdóttir, Bjarki Harðarson, ömmubörn og langömmubörn. ✝ Elsku eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir, KÁRI VIÐAR ÁRNASON, Hallbjarnarstöðum, Tjörnesi, varð bráðkvaddur mánudaginn 22. janúar. Útför hans fer fram frá Húsavíkurkirkju þriðjudag- inn 30. janúar kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Fanney Sigtryggsdóttir, Árni Viðar Kárason, Sigrún Hulda Káradóttir, David Cook. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ARNÞRÚÐUR BJÖRNSDÓTTIR frá Grjótnesi, Safamýri 38, Reykjavík, sem lést á Landspítalanum miðvikudaginn 17. janúar síðastliðinn, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 30. janúar kl. 13:00. Sunna Karlsdóttir, Andri Valur Hrólfsson, Harpa Karlsdóttir, Vésteinn Rúni Eiríksson, Lilja Karlsdóttir, Snorri Páll Snorrason, Breki Karlsson, Fanný Kristín Heimisdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför séra MAGNÚSAR GUÐMUNDSSONAR fyrrverandi sóknarprests. Sérstakar þakkir til starfsfólksins á hjúkrunar- heimilinu Skógarbæ. Sigurbjörn Magnússon, Kristín Steinarsdóttir, Magnús Sigurbjörnsson, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Nína Kristín Sigurbjörnsdóttir. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir og tengdamóðir, HELGA JÓHANNESDÓTTIR, Bakkastöðum 29, Reykjavík, lést á Landspítalanum þriðjudaginn 23. janúar. Jarðarförin auglýst síðar. Arnór G. Jósefsson, Guðrún Ósk Arnórsdóttir, Þorsteinn Arnórsson, Guðbjörg S. Petersen. ✝ Útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, sonar, bróður og tengdasonar, JÓHANNS PÁLMASONAR, fer fram frá Dómkirkjunni í dag, föstudaginn 26. janúar kl. 13.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast Jóhanns er bent á minningarsjóð nr. 0513-14-607272, kt. 251167-3549, hjá Glitni. Ragnheiður Gísladóttir, Hlynur Jóhannsson, Egill Þór Jóhannsson, Askur Jóhannsson, Alfa Jóhannsdóttir, Pálmi Sveinsson, Alfa Malmquist, Kristrún Pálmadóttir, Sveinbjörg Pálmadóttir, Gísli Jónsson, Jóna Birta Óskarsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.