Morgunblaðið - 16.03.2007, Síða 1
STOFNAÐ 1913 74. TBL. 95. ÁRG. FÖSTUDAGUR 16. MARS 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
20-50%
Opið til 19 í kvöld
AFSLÁTTUR AF
NÝJUMVÖRUM
LEIKSTJÓRI
BALTASAR KORMÁKUR ER
EFTIRSÓTTUR ERLENDIS >> 20
ERU SAMT ALVEG
HÆTTIR AÐ SPILA
HJÁLMAR
EINU SINNI ENN >> 24
FRÉTTASKÝRING
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
ÓLÍKLEGT er að eldri borgarar ryðji er-
lendu fólki út af vinnumarkaði þó að at-
vinnuþátttaka þeirra aukist. Það gæti þó
gerst að útlendingum fækkaði í vissum at-
vinnugreinum eins og t.d. í verslun, en þar
hefur útlendingum fjölgað verulega síðasta
árið. Þetta er mat viðmælenda blaðsins.
Mikil þensla er á vinnumarkaði og at-
vinnulífið kallar eftir fólki til starfa. At-
vinnuþátttaka aldraðra hefur þó ekki aukist
síðustu ár, en hún er samt sú mesta á Ís-
landi af öllum löndum OECD.
Í nýrri könnun Rannsóknaseturs versl-
unarinnar lýsti rúmlega helmingur fólks á
aldrinum 65–71 árs áhuga á að vinna.
Sambærileg umræða hefur átt sér stað í
Noregi og hér á landi um að gera eldri borg-
urum kleift að vinna án þess að tekjurnar
leiði til skerðingar á bótum. Í Noregi hefur
líkt og hér verið mikill skortur á vinnuafli og
mikill innflutningur á erlendu vinnuafli. Til
dæmis hefur reynst mjög erfitt að manna
leikskóla í Noregi og hefur ríkisstjórnin
sérstaklega horft þar til aukinnar atvinnu-
þátttöku aldraðra sem lausnar.
Rannsókn í gangi
Rannsóknasetur verslunarinnar og Hag-
fræðistofnun Háskólans eru að reikna út
hver yrði samfélagslegur kostnaður af því
ef eldri borgarar héldu bótum sínum
óskertum þótt þeir færu út á vinnumark-
aðinn. Í þessum útreikningi á að meta
kostnað ríkisins af því að greiða áfram bæt-
ur og eins tekjur sem ríkið fengi af skatti
sem eldriborgarar greiddu af launum.
Alþingi samþykkti í vetur að breyta lög-
um þannig að nú getur fólk unnið sér inn
300 þúsund í árstekjur eða 25 þúsund króna
mánaðarlaun án þess að bætur skerðist.
Viðmælendur blaðsins telja þetta skref í
rétta átt en ganga hefði þurft lengra.
Mikil starfsmannavelta er í mörgum
verslunum, t.d. er hún um 100% í lágvöru-
verðsverslunum. Bónus reyndi fyrir rúmu
ári að auglýsa eftir eldri borgurum í vinnu.
Svanur Valgeirsson, starfsmannastjóri
Bónuss, sagði að lítill árangur hefði orðið af
þessu. Þeir sem hefðu haft samband hefðu
sumir spurt hvort hægt væri að koma því
þannig fyrir að þeir gætu fengið að vinna
svart. Hann sagði það reynslu Bónuss að í
búðum þar sem fullorðið fólk ynni með ungu
fólki væri meira jafnvægi og stöðugleiki.
Morgunblaðið/Golli
Koma vart
í stað út-
lendinga
Atvinnuþátttaka aldr-
aðra hér er mjög mikil
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
AUÐLINDAFRUMVARPIÐ
verður ekki afgreitt á þessu þingi
en sérnefnd um stjórnarskrármál
hefur haft það til umfjöllunar und-
anfarna daga. Í frumvarpinu er lagt
til að náttúruauðlindir Íslands verði
skilgreindar sem þjóðareign en
skoðanir hafa verið mjög skiptar
um málið, bæði meðal þingmanna,
lögfræðinga og hagsmunaaðila.
Sérnefndin ákvað því í gær að vísa
málinu til stjórnarskrárnefndar
forsætisráðherra sem hefur fjallað
um endurskoðun stjórnarskrárinn-
ar frá árinu 2005.
Geir H. Haarde forsætisráðherra
segir að formenn stjórnarflokkanna
hafi gert heiðarlega tilraun til að
koma málinu í höfn með þessu
frumvarpi og hafi átt von á að
stjórnarnandstaðan yrði fús til
samstarfs eins og hún hafi gefið til
kynna. „Það reyndist ekki vera og
við höfðum ekki áhuga á að knýja
mál sem þetta í gegn í krafti okkar
þingmeirihluta í andstöðu við hugs-
anlega stóran hluta þingsins,“ segir
Geir. „Það eru margvísleg sjónar-
mið í þessu máli en við höfum auð-
vitað ekki sagt skilið við það því það
er ásetningur stjórnarflokkanna að
ákvæði sem þetta komi í stjórnar-
skrá, eins og við sömdum um fyrir
fjórum árum,“ segir Geir en bætir
við að finna þurfi rétt orðalag svo
um það geti náðst sátt.
Stjórnarandstöðuþingmenn saka
hins vegar formenn stjórnarflokk-
anna um sjónarspil og segja að þing
og þjóð hafi verið höfð að fífli. „Það
var aldrei meining hjá þessum
flokkum að gera neitt með þetta,“
sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
formaður Samfylkingarinnar, í um-
ræðum um störf þingsins á Alþingi í
gærkvöld. Formenn stjórnarflokk-
anna hefðu komið með stjórnar-
skrártillögu sem hefði gert það eitt
að skapa réttaróvissu í landinu fjór-
um dögum fyrir áætluð þinglok.
„Svona haga menn sér ekki. Svona
umgangast menn ekki lýðræðið.“
Þingstörf voru mjög lituð af bið
eftir niðurstöðu sérnefndarinnar í
gær enda var dagurinn áætlaður
síðasti starfsdagur þingsins. Þing-
fundur stóð fram á nótt. Var óljóst í
gærkvöld hvaða þingmál verður
lögð áhersla á að klára. Ljóst er að
ekki næst að afgreiða öll mál sem
liggja fyrir. Forseti Alþingis stefnir
að því að klára þing fyrir helgi.
Ásakanir á báða bóga eftir
frestun auðlindaákvæðis
Formenn ríkisstjórnarflokkanna vísa ábyrgðinni á þingmenn stjórnar-
andstöðunnar sem aftur saka þá um sjónarspil og að hafa þjóðina að fífli
Í HNOTSKURN
» Auðlindamálin komust ádagskrá þegar Fram-
sóknarráðherrar lýstu yfir
eindregnum vilja til að koma
málinu í gegn á þessu þingi.
» Stjórnarandstaðan boð-aði blaðamannafund og
„bauð Framsókn upp í
dans“.
» Formenn stjórnarflokk-anna lögðu í sameiningu
fram frumvarp um auðlinda-
ákvæði í stjórnarskrá.
Auðlindir | 2
RÚM 28% svarenda í könnun Capa-
cent Gallup sem gerð var fyrir
Morgunblaðið og RÚV, segjast
helst vilja að mynduð verði rík-
isstjórn Samfylkingar og Vinstri
grænna að loknum alþingiskosn-
ingum í vor. Samstjórn þessara
tveggja flokka var oftast nefnd
þegar spurt var hvaða flokkar ættu
helst að mynda ríkisstjórn. 24,2%
nefndu áframhaldandi samstjórn
núverandi stjórnarflokka en 22,4%
sögðust helst vilja samsteypustjórn Sjálfstæðisflokks og Vinstri
grænna. Fram kemur að afstaða stuðningsmanna Sjálfstæðisflokks-
ins til samstarfsmöguleika er nokkuð mismunandi. 42,6% sögðust
vilja samstarf við Framsóknarflokkinn en rúm 35% við VG. | 4
Flestir kjósa samstarf
Samfylkingar og VG
VARÐSKIPIÐ Týr kom inn til
hafnar í Reykjavík í gærkvöldi
með tvo gáma af þeim fimm sem
féllu af flutningaskipinu Kársnesi
úti fyrir Garðskaga í fyrrakvöld.
Þar fékk það á sig mikinn brotsjó
á bakborða með þeim afleiðingum
að skipið hallaðist 45 gráður á
stjórnborða. Þyrla Landhelg-
isgæslunnar, TF-LIF, fann gám-
ana tvo um kl. 14.30 í gærdag þar
sem þeir möruðu í hálfu kafi úti á
miðjum Faxaflóa enda báðir mjög
laskaðir. Áhöfn Týs tók gámana
tvo í tog enda var haugasjór og
þótti ekki vogandi að reyna að
taka þá um borð. Týr sigldi síðan
á hægri ferð, eða 4–5 mílna
hraða, með gámana í eftirdragi
inn til Reykjavíkur.Ljósmynd/Jón Kr. Friðgeirsson
Gámar til
hafnar