Morgunblaðið - 16.03.2007, Qupperneq 18
18 FÖSTUDAGUR 16. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
ÞJÓNN á bjórkránni Schweitzerhaus í skemmtigarð-
inum Wurtzl Prater í Vín með ágætlega hlaðinn bakka.
Garðurinn var opnaður í gær eins og venjan er á þess-
um tíma ársins og fögnuðu gestir á kránni ákaft. Aust-
urríkismenn eru miklir vinir drykkjarins sem stundum
er kallaður fljótandi brauð.
Reuters
Loksins hægt að svala þorstanum!
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
KHALID Sheikh
Mohammed, sem
áður var einn af
æðstu mönnum
al-Qaeda-hryðju-
verkasamtak-
anna, hefur játað
fyrir herrétti að
hafa skipulagt
hryðjuverkaárás-
irnar á Bandarík-
in 11. september
2001. Kemur það fram í yfirlýsingu
frá bandaríska varnarmálaráðuneyt-
inu en í henni segir, að Mohammed
hafi einnig viðurkennt aðild að 30
öðrum hryðjuverkum eða áætlunum
um þau.
„Ég bar ábyrgð á árásunum 11.
september frá upphafi til enda,“
sagði Mohammed við réttarhöldin,
sem fram fóru í Guantanamo á Kúbu.
Í þeim á að skera úr um það hvort
hann er svokallaður „óvinahermað-
ur“ en að því staðfestu verður hann
dreginn fyrir sérstakan herdómstól.
„Ég bar á því ábyrgð gagnvart
Osama bin Laden að skipuleggja og
hrinda í framkvæmd árásunum á
Bandaríkin,“ sagði Mohammed og
fram kemur, að hann hafi einnig ját-
að ábyrgð á sprengjutilræðinu í
World Trade Center 1993, árásunum
á næturklúbba á Bali 2002 og á hótel
í Kenýa það sama ár. Svo hafi einnig
verið með tilraun „Skósprengju-
mannsins“ svokallaða, Richards
Reid, til að sprengja upp bandaríska
farþegaþotu. Að auki nefndi hann
ýmsar áætlanir, sem ekkert varð af,
til dæmis um árás á Heathrow-flug-
völl, skrifstofuhverfið Canary Wharf
og Big Ben í London, á skotmörk í
Ísrael og áætlun um að sprengja upp
Panamaskurðinn.
Bandaríska varnarmálaráðuneyt-
ið hefur eftir Mohammed, að í kjölfar
árásanna 11. september 2001 hafi átt
að ráðast á háhýsi í Los Angeles,
Seattle og Chicago og á Empire
State-bygginguna í New York. Einn-
ig segir, að Mohammed hafi játað að-
ild að samsæri um að myrða Jóhann-
es heitinn Pál II páfa og Bill Clinton
og Jimmy Carter, fyrrverandi
Bandaríkjaforseta. Þá játaði hann að
hafa myrt bandaríska blaðamanninn
Daniel Pearl í Pakistan.
Líkti Bin Laden við
George Washington
Fram kemur í úrdrætti úr fram-
burði Mohammeds, að hann hafi
jafnvel harmað örlög þeirra 3.000
manna, sem létu lífið í árásunum á
Tvíburaturnana í New York.
„Ég hef ekki ánægju af því að
drepa börn, ég vil ekki drepa fólk,“
er haft eftir honum en hann reyndi
hins vegar að réttlæta hryðjuverkin
sem hluta af heilögu stríði. Sagði
hann t.d. að Bin Laden ætti í sams
konar sjálfstæðisstríði og George
Washington, fyrsti forseti Banda-
ríkjanna, sem unnið hefði sigur á ný-
lendustjórn Breta.
Mohammed var handtekinn í Pak-
istan 2003 og haldið í leynilegu fang-
elsi ásamt 13 öðrum mönnum, sem
Bandaríkjamenn telja mikilvægustu
al-Qaeda-liðana í sínum höndum. Til
Guantanamo komu þeirra í fyrra.
Játaði ábyrgð á árás-
unum á Bandaríkin
Khalid Sheikh
Mohammed
Í HNOTSKURN
» Í hryðjuverkaárásunum áBandaríkin 11.9. 2001 létu
2.973 menn lífið og 24 er sakn-
að.
» Vegna árásanna réðustBandaríkjamenn á Afgan-
istan í október 2001 og hröktu
frá talibanastjórnina, sem
skotið hafði skjólshúsi yfir al-
Qaeda-hryðjuverkasamtökin.
» Talið er, að Osama binLaden sé í NV-Pakistan ef
hann er þá enn lífs.
Harmaði dauða
fólksins en sagði
hann hluta af
heilögu stríði
Harare. AFP. | Robert Mugabe, for-
seti Zimbabwe, sagði í gær and-
stæðingum sínum að þeir gætu sín
vegna „hengt sig“ og skellti skolla-
eyrum við gagnrýni leiðtoga ann-
arra ríkja á handtöku og barsmíðar
á stjórnarandstöðuleiðtoganum
Morgan Tsvangirai.
Jakaya Kikwete, forseti Tansan-
íu, fór til Harare til að reyna að
miðla málum milli Mugabe og
stjórnarandstöðunnar. Mugabe
sagði eftir fund með Kikwete að
hreyfing Tsvangirais hefði komið
af stað átökum í landinu.
„Þegar þeir gagnrýna stjórnina
þegar hún reynir að hindra ofbeldi
og refsa ofbeldisseggjunum er af-
staða okkar sú að þeir geti hengt
sig,“ sagði Mug-
abe á blaða-
mannafundi með
Kikwete.
Búist er við að
Tsvangirai út-
skrifist af sjúkra-
húsi í dag eftir að
hafa sætt bar-
smíðum í fang-
elsi.
Læknar komust að þeirri nið-
urstöðu að Morgan Tsvangirai væri
úr hættu og hefði ekki orðið fyrir
heilaskaða vegna barsmíðanna sem
hann sætti eftir að hann var hand-
tekinn í höfuðborginni á sunnudag
á mótmælafundi sem yfirvöld höfðu
bannað.
Segir stjórnarandstæðingun-
um að þeir geti „hengt sig“
Robert Mugabe
GESTIR höggmyndagarðs norska
listamannsins Gustafs Vigelands í
Ósló ráku upp stór augu í gærmorg-
un þegar þeir sáu að pappírsmiðar
höfðu verið límdir á kynfæri, brjóst
og rass nokkurra höggmynda.
„Það er nóg af nekt í blöðunum.
Losum okkur við hana í garðinum!“
sagði á miða sem var hengdur á súlu
með undirskriftinni F.M.N.H. Ekki
var vitað hvað skammstöfunin merk-
ir.
Í garðinum standa 212 högg-
myndir eftir Vigeland sem fékk
svæðið að gjöf árið 1924 undir högg-
myndir sínar en auk þeirra hannaði hann allan garðinn. Hann lést 1943.
Klám? Pappírsmiðar fjarlægðir af
styttum í Vigeland-garðinum í Ósló.
Reuters
Nekt höggmynda hulin í
Vigeland-garðinum í Ósló
JAPANSKIR veðurfræðingar hafa
beðið þjóðina afsökunar á því að
vegna tölvuvillu sögðu þeir rangt
fyrir um það hvenær kirsuberja-
blómin myndu springa út, að sögn
BBC. Er nú sagt að blómgunin
verði á miðvikudag, þremur dögum
síðar en áður hafði verið spáð.
Blómin springa út á afar stuttu
tímabili og er atburðurinn hafður í
hávegum í landinu. Margar borgir
og fyrirtæki voru búin að undirbúa
hátíðarhöld og teiti. „Við höfum
valdið truflunum hjá þeim sem
treystu á upplýsingar okkar og við
biðjumst innilega afsökunar,“
sögðu veðurfræðingarnir.
Röng
blómaspá
Reuters
Blómgun Gestir í skemmtigarði
mynda útsprungin kirsuberjablóm.
FRANSKUR læknir fékk í gær eins
árs skilorðsbundinn fangelsisdóm
fyrir að skipa hjúkrunarfræðingi
að gefa sjúklingi með ólæknandi
sjúkdóm lyf sem varð honum að
bana. Hjúkrunarkonan var sýknuð.
Læknir dæmdur
FJÁRVEITINGANEFND full-
trúadeildar Bandaríkjaþings sam-
þykkti í gær að setja það skilyrði
fyrir fjárveitingu vegna hernaðar-
ins í Írak að bandaríska herliðið
þar yrði kallað heim fyrir 1. októ-
ber á næsta ári. Öldungadeildin
hafnaði tillögu um að herinn yrði
kallaður heim innan árs.
Herliðið heim?
NORSKA tölvu-
nefndin mun á
ný taka til athug-
unar hvort leyfa
beri flugfélaginu
SAS Braathens
að nota fingra-
farasamanburð
við eftirlit þegar
farþegar rita sig
inn, að sögn Aftenposten.
Ætlun félagsins er að nota
fingraförin til að tryggja að þeir
sem innrita farangur séu sama
fólkið og ritar sig inn sem farþeg-
ar. SAS notar aðferðina þegar í
Svíþjóð og hún verður tekin upp í
Danmörku í sumar. Norska nefnd-
in hafnaði í fyrstu beiðninni og vís-
aði þá til laga um persónuvernd.
Taldi hún að þau bönnuðu notkun
fingrafara. En nefnd um persónu-
vernd hefur úrskurðað að svo sé
ekki.
Fingraför
við innritun
FRANSKUR dómari ætlar að yf-
irheyra Jacques Chirac eftir að
hann lætur af embætti forseta í maí
vegna ásakana um að hann hafi
gerst sekur um spillingu þegar
hann var borgarstjóri Parísar.
Chirac yfirheyrður
RÍKIN fimm, sem eru með neitunarvald í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna,
hafa náð samkomulagi um drög að ályktun um hertar refsiaðgerðir gegn
Íran. Talið er nánast öruggt að aðgerðirnar verði samþykktar á fundi ör-
yggisráðsins í næstu viku til að refsa Íran fyrir að verða ekki við kröfu
ráðsins um að hætta auðgun úrans sem hægt er að nota í kjarnavopn. Sam-
kvæmt ályktunardrögunum verður Írönum bannað að flytja út „hvers kon-
ar vopn og tengd efni“ og aðildarlöndum Sameinuðu þjóðanna er sagt að
takmarka sölu á skriðdrekum, brynvögnum, stórskotatækjum, herflug-
vélum, herskipum, eldflaugum og fleiri hergögnum til Írans.
Samið um vopnasölubann
Gaza-borg. AP, AFP. | Samsteypustjórn
helstu fylkinga meðal Palestínu-
manna, Hamas og Fatah, og óháðra
þingmanna var kynnt í gær. Vonast
er til, að henni takist að binda enda á
bræðravígin í landinu og rjúfa þá al-
þjóðlegu einangrun, sem Palestínu-
menn hafa verið í síðan Hamas komst
til valda.
Ráðherrar í nýju stjórninni verða
25 og fær Hamas 12 en Fatah sex.
Hinir ráðherrarnir sjö eru ýmist
óháðir þingmenn eða fulltrúar lítilla
flokka. Athygli vekur, að nokkur mik-
ilvægustu embættin falla óháðum í
skaut, utanríkismál, fjármál og innan-
ríkismál. Ziad Abu Amr, væntanlegur
utanríkisráðherra, og Salam Fayyad,
væntanlegur fjármálaráðherra, eru
báðir menntaðir í
Bandaríkjunum
og njóta virðingar
á alþjóðavett-
vangi. Hefur sá
fyrrnefndi barist
hart fyrir lýðræð-
islegum umbótum
og sá síðarnefndi
var um sinn
starfsmaður Al-
þjóðagjaldeyris-
sjóðsins. Hefur hann beitt sér mjög
gegn spillingu og lagt áherslu á að
bæta meðferð opinberra fjármuna.
Hafna samskiptum
Viðbrögð Ísraelsstjórnar við sam-
steypustjórninni voru þau, að hún
ætlaði engin samskipti við hana að
eiga og hún skoraði jafnframt á al-
þjóðasamfélagið að gera slíkt hið
sama. Áður hafði háttsettur, ísr-
aelskur embættismaður sagt, að yrði
ísraelskum hermanni, sem er í haldi á
Gaza, sleppt og eldflaugaárásum á
Ísrael hætt, kæmi samstarf til greina.
Þessu er nú vísað á bug.
Talsmaður Bandaríkjastjórnar
sagði í gær, að hún myndi bíða með
allar yfirlýsingar þar til nýja stjórnin
væri tekin til starfa en hvatti um leið
Mahmoud Abbas, forseta Palestínu,
til að fá samsteypustjórnina til að
uppfylla þau skilyrði, sem tiltekin
væru í Vegvísi Kvartettsins svokall-
aða. Voru viðbrögð Evrópusam-
bandsins mjög í sama dúr.
Samsteypustjórnin kynnt
Haniya
forsætisráðherra.