Morgunblaðið - 16.03.2007, Page 28
meistaramatur
28 FÖSTUDAGUR 16. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Fylltar tortillakökur
með skinku og osti
1 tortillakaka (vefja)
1 sneið Gotta-ostur
1 sneið SS-brauðskinka
10 g fitulítill Delfí-rjómaostur
2 blöð iceberg-salat
Smyrjið tortillakökuna með rjómaostinum,
setjið á ost, skinku og salat. Vefjið upp og setj-
ið í plastfilmu.
Skemmtilegar samlokur
með kæfu og banana
1 sneið rúgbrauð
1 sneið fjölkornabrauð
10 g kæfa
1⁄4 banani
Smyrjið báðar brauðsneiðarnar með kæfu,
skerið þunnar sneiðar af banana og setjið ofan
á fjölkornabrauðið og lokið síðan með rúg-
brauðssneiðinni og stingið út ef vill. Gott að
setja í plastfilmu.
Ostarúllur með gúrku
2 sneiðar Gotta-ostur
2 blöð iceberg-salat
1⁄4 skólagúrka
Rúllið upp iceberg-blaði, ostsneið og gúrku.
Það má einnig nota papriku í stað gúrkunnar
ef maður vill.
Tortillakaka Góð tilbreyting frá samlokunni. Ostarúlla Af hverju ekki að rúlla ostinum upp með grænmeti?
Hollt og gott í nestisboxið
Landsliðskokkarnir Bjarni
Gunnar Kristinsson og Ragnar
Ómarsson kynna hollan íslensk-
an nútímamat sem er tilvalið að
útbúa í nestisbox barnanna.
heilsa
HREYFING eykur blóðstreymi í
heilanum og hjálpar til við mynd-
un nýrra heilafrumna á því svæði
heilans sem stjórnar minninu, að
því er ný rannsókn sýnir. Frá
þessu er sagt í vefútgáfu Jyllands-
posten.
Hópur bandarískra vísinda-
manna hefur varpað nýju ljósi á
jákvæð áhrif hreyfingar á heilann.
Á undanförnum árum hafa augu
vísindamanna opnast æ betur fyrir
því að regluleg hreyfing getur
fyrirbyggt heilasjúkdóma tengda
ellinni eins og Parkinsons og Alz-
heimers. Enginn hefur þó fram að
þessu rannsakað nákvæmlega
hvernig áhrif hreyfing hefur á
heilann.
Vísindamennirnir frá læknamið-
stöð Columbia-háskólans í New
York hafa m.a. skráð það að
hreyfing eykur fjölföldun heila-
frumna í þeim hluta heilans sem
leikur stórt hlutverk þegar kemur
að hæfileikum manna til að muna
hluti.
Að sögn dr. Scott Small sem
stýrði rannsókninni er næsta skref
að finna út nákvæmlega hvaða
hreyfing hefur best áhrif á minnið.
Hreyfing
styrkir minnið
Reuters
Oh, hverju gleymdi ég? Robin
Williams ætti þó engu að gleyma, því
maðurinn getur aldrei verið kyrr.
hægt að endurskapa allt
herbergið, sem sófinn á
að vera í, raða inn öðr-
um húsgögnum og sjá
þannig alveg nákvæm-
lega hvernig nýja mubl-
an kemur út. Ekki nóg
með það; með því að ýta
á hnapp var hægt að
láta forritið reikna út
hvað nýi sófinn myndi
kosta, upp á punkt og
prik.
x x x
Víkverji prentaði útmyndina af sóf-
anum sínum, fór svo í
búðina og þurfti ekki að gera annað
en að velja áklæðið, sem var reyndar
dálítill hausverkur af því að úrvalið
var svo mikið. Nú bíður hann spennt-
ur eftir sófanum, sem hann á að fá af-
hentan eftir nokkrar vikur. Eining-
arnar verða framleiddar einhvers
staðar í útlöndum eftir pöntun Vík-
verja. Sjálfsagt sparar búðin á því að
liggja ekki með lager, en kannski
nenna Íslendingar heldur ekki að
bíða eftir nýjum sófa heldur vilja fá
hann strax.
x x x
Víkverji er alltént ánægður meðþjónustuna og reyndar verðið
líka. Nú bíður hann bara og vonar að
allt skili sér eins og það á að gera, svo
hann verði ekki fyrir vonbrigðum.
Víkverji rak horninaðeins í hús-
gagnaverzlanir á dög-
unum; fannst þær iðu-
lega flytja heim til hans
eitthvað annað en hann
keypti og almennt ekki
veita neitt óskaplega
góða þjónustu. Auðvit-
að eru undantekningar
frá þessu. Víkverji
hrósaði til dæmis Exó í
Fákafeni. Nú getur
hann líka hrósað ann-
arri húsgagnabúð, ná-
granna Exó, BoCon-
cept í Faxafeni. Þrátt
fyrir asnalega stafsett
nafn veitir þessi búð alveg hreint frá-
bæra þjónustu.
x x x
Víkverja vantaði nefnilega sófa oghann var búinn að líta í ýmsar
sófabúðir án þess að finna það sem
hann vantaði. Á heimasíðunni hjá Bo-
Concept fann hann sófa, sem honum
leizt vel á. Hann var hins vegar ekki
nógu langur. Víkverji ætlaði að fara
að leita annars staðar, þegar hann
rak augun í að á heimasíðunni er
hægt að hlaða niður forriti, þar sem
maður getur sett saman sinn eigin
sófa úr BoConcept-einingum. Þetta
reyndist auðvelt og skemmtilegt og
brátt var Víkverji búinn að hanna
sinn eigin sófa, nákvæmlega í plássið.
Fljótlega kom í ljós að í forritinu var
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Greiðsluáskorun
Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur
eftirtalinna gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi
innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar:
Gjöldin eru: Staðgreiðsla tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds sem fallið hefur í eindaga til og með
15. mars 2007, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 5. mars 2007 og önnur gjald-
fallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið hafa í eindaga til og með 15. mars 2007, á stað-
greiðslu tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds, virðisaukaskatti, virðisaukaskatti í tolli, vanskilum
launagreiðenda á gjöldum í og utan staðgreiðslu, fjármagnstekjuskatti á skilaskylda aðila, áfengis-
gjaldi, launaskatti, bifreiðagjaldi, úrvinnslugjaldi, olíugjaldi, kílómetragjaldi, viðbótar- og auka-
álagningu söluskatts vegna fyrri tímabila, skráningargjaldi vegna lögskráningar sjómanna, vinnueft-
irlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri framleiðslu, vörugjaldi af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, aðflutn-
ingsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir, fasteignagjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjöldum, fisksjúk-
dómagjaldi, jarðarafgjaldi, sektum skattrannsóknarstjóra og álögðum þing- og sveitarsjóðsgjöldum,
sem eru:
Tekjuskattur og útsvar ásamt verðbótum á ógreiddan tekjuskatt og útsvar, sérstakur tekju-
skattur manna, eignarskattur, sérstakur eignarskattur, fjármagnstekjuskattur, slysatrygginga-
gjald vegna heimilisstarfa, tryggingagjald, búnaðargjald, iðnlánasjóðs- og iðnaðarmálagjald,
markaðsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra og skattur af verslunar- og skrifstofuhús-
næði, ofgreiddar barnabætur og ofgreiddar vaxtabætur.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðvum
gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að leiða, á
kostnað gjaldenda.
Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir gjald-
anda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 12.700 kr. fyrir hvert fjárnám. Þinglýsingargjald er 1.350
kr. og stimpilgjald 1,5% af heildarskuldinni, auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur
hvattir til að gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað.
Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald, afdreg-
inn fjármagnstekjuskatt, áfengisgjald og virðisaukaskatt, búast við því að starfsemi þeirra verði
stöðvuð án frekari fyrirvara, þeir gjaldendur er skulda bifreiðagjöld og þungaskatt mega eiga von á
að skráningarnúmer verði tekin af ökutækjum þeirra án frekari fyrirvara og þeir gjaldendur sem
skulda gjöld þar sem lögveð fylgir mega búast við að send verði út sérstök greiðsluáskorun fyrir
gjaldföllnum kröfum. Greiðsluáskorunin hefur ekki áhrif á þessi innheimtuúrræði þannig að fyrr-
greindur 15 daga frestur frá dagsetningu áskorunar þessarar gildir ekki í þessum tilvikum.
Reykjavík, 16. mars 2007.
Tollstjórinn í Reykjavík
Sýslumaðurinn í Kópavogi
Sýslumaðurinn í Hafnarfirði
Sýslumaðurinn í Keflavík
Sýslumaðurinn á
Keflavíkurflugvelli
Sýslumaðurinn á Akranesi
Sýslumaðurinn í Borgarnesi
Sýslumaðurinn í Stykkishólmi
Sýslumaðurinn í Búðardal
Sýslumaðurinn á Ísafirði
Sýslumaðurinn í Bolungarvík
Sýslumaðurinn á Patreksfirði
Sýslumaðurinn á Hólmavík
Sýslumaðurinn á Siglufirði
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki
Sýslumaðurinn á Blönduósi
Sýslumaðurinn á Akureyri
Sýslumaðurinn á Húsavík
Sýslumaðurinn á Ólafsfirði
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði
Sýslumaðurinn á Eskifirði
Sýslumaðurinn á Höfn
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum
Sýslumaðurinn á Selfossi
Sýslumaðurinn í Vík
Sýslumaðurinn á Hvolsvelli