Morgunblaðið - 16.03.2007, Side 30

Morgunblaðið - 16.03.2007, Side 30
Hawaií terta Tilvalin til að bera fram í saumaklúbbnum. Stundum er það einfaldastaallra best og það á við umþetta pæ. Frábært að reiðafram á góðu kvöldi eða til dæmis sem eftirrétt eftir létta máltíð. Einfalt ávaxta- og berjapæ fyrir 5 6 dl frosin ber, eða ávextir 2½ dl gott ristað múslí með hnetum 80 g marsipan, skorið í litla bita 5 sneiðar af frosnu smjöri (skorið með ostaskera) ¼ l rjómi 1 dós hrein jógúrt 1 msk. vanillusykur Hellið berjunum eða ávöxtum að eigin vali í eldfast form. Bláber, hindber og jarðarber eru mjög góð og epli og mangó ekki síður. Dreifið múslíblöndunni yfir og marsípaninu. Sneiðið smjör með ostaskera og setj- ið yfir. Bakið við 180°C í 30 mínútur eða þar til pæið er bakað í gegn og skorpa hefur myndast að ofan. Þeyt- ið rjóma og vanillusykur og hrærið hreint jógúrt saman við. Hawaii-terta fyrir 8–10 Botn 4 eggjahvítur 140 g flórsykur 140 g kókosmjöl Krem 60 g flórsykur 100 g mascarponeostur 4 eggjarauður 100 g suðusúkkulaði Þeytið eggjahvítur alveg stífar og hrærið flórsykri og kókosmjöli saman við. Bakið í stóru tertuformi við 180°C í 20 mínútur. Látið kólna alveg áður en kremið er sett á. Þeytið saman mascarponeost og flórsykur og setjið eggjarauður saman við. Bræðið súkkulaðið og hellið varlega saman við kremið og hrærið í því á meðan. Berið kremið yfir kökuna og stráið kókosmjöli yfir. Þessa köku má skreyta með litlum pappasólhlífum eða sólum til að fá réttu stemninguna. Túnfisksnúningur með ólífutvisti fyrir 8–10 1 heilhveitirúllutertubrauð 2 dósir túnfiskur í olíu 2 harðsoðin egg ¾ dl vorlaukur, smátt sneiddur 2 msk. dijon-sinnep 2 tsk. karrí ¼ tsk. salt 2 dl ólífur, niðurskornar 4 msk. kapers ½ dl ólífuolía 1 tsk. sítrónusafi ferskt dill svartur nýmalaður pipar Túnfiskur með ólífutvist Nútímaleg nálgun við gömlu góðu brauðtertuna. Góðgæti fyrir gestina Það þarf ekki endilega að vera tímafrekt að bjóða gestum heim því girni- lega veislu má útbúa með litlum fyrirvara. Heiða Björg Hilmisdóttir galdraði fram góða rétti. Einfalt ávaxta- og berjapæ Bráðnar hreinlega í munni. matur 30 FÖSTUDAGUR 16. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ Fagráðstefna skógræktar 2007 haldin dagana 22. og 23. mars á Eiðum Dagskrá fimmtudagsins 22. mars Skógur er meira en tré. Efnahagslegur og samfélagslegur ávinningur skógræktar. 10:00 – 13:00 Móttaka og skráning Rútur frá Egilsstaðaflugvelli 12:00 – 13:00 Léttur hádegisverður og móttaka á Eiðum 13:00 – 13:15 Setning – Skógrækt er byggðarmál Guðmundur Ólafsson, Héraðsskógum 13:15 – 13:40 Félagslegur og efnahagslegur ávinningur Héraðsskógaverkefnisins Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri 13:40 – 14:00 Skógar Íslands og nýting þeirra frá landnámi til lýðveldis Þröstur Eysteinsson, Skógrækt ríkisins 14:00 – 14:20 Úr vörn í sókn - félagslegar og hagrænar orsakir umskipta frá skógeyðingu til skógræktar. Jón Geir Pétursson, Skógræktarfélagi Íslands og Rannsóknastöð Skógræktar ríkisins, Mógilsá 14:20 – 15:10 Forestry and rural development in countries with low forest cover (Erindi flutt á ensku) Bill Slee, Professor of Rural Economy, Macauley Land Use Research Institute, Skotlandi 15:10 – 15:30 Fyrirspurnir og umræða 15:30 – 16:00 Kaffihlé 16:00 – 16:40 Kolefnisbúskapur skógræktar á Írlandi (Erindi flutt á ensku) Eugene Hendrick, COFORD (eða annar írskur fyrirlesari) 16:40 – 17:00 Loftslagsstefna íslenskra stjórnvalda og skógrækt Hugi Ólafsson, Umhverfisráðuneytinu 17:00 – 17:20 Beinar mælingar á árlegri kolefnisbindingu Kyotoskóga Brynhildur Bjarnadóttir, Rannsóknastöð Skógræktar ríkisins á Mógilsá 17:20 – 17:40 Umfang og hagfræðilegur ávinningur bindingar með skógrækt Arnór Snorrason, Rannsóknastöð Skógræktar ríkisins á Mógilsá 17:40 – 18:00 Fyrirspurnir og umræða 18:30 – 19:30 Skoðunarferð í Eiðaskóg 20:00 – > Kvöldverður og skemmtidagskrá Dagskrá föstudagsins 23. mars 07:30 – 08:45 Morgunverður 08:45 – 09:00 Inngangur - Ný stefnumið í skógræktarmálum Íslands Aðalsteinn Sigurgeirsson, Rannsóknastöð Skógræktar ríkisins á Mógilsá 09:00 – 09:20 Orkuskógur - Kyndistöð á Hallormsstað Loftur Jónsson, Skógráði ehf. 09:20 – 09:40 Kolefnisbinding mismunandi trjátegunda Bjarni D. Sigurðsson, LBHÍ 09:40 – 10:00 Afríkusögur - skógur og fólk í Austur-Afríku Jón Geir Pétursson, Skógræktarfélagi Íslands og Rannsóknastöð Skógræktar ríkisins, Mógilsá 10:00 – 10:20 Afföll í nýgróðursetningum á Íslandi – mat byggt á gögnum Íslenskrar skógarúttektar Arnór Snorrason, Rannsóknastöð Skógræktar ríkisins á Mógilsá 10:20 – 10:50 Kaffihlé 10:50 – 11:10 Nestun og blöndun í bakka Þorbergur Hjalti Jónsson, Rannsóknastöð Skógræktar ríkisins á Mógilsá 11:10 – 11:30 Geymsla og frysting skógarplantna Rakel Jakobína Jónsdóttir, nemi LBHÍ 11:30 – 11:50 Mat á verkefninu Lesið í skóginn með skólum Ólafur Oddsson, Skógrækt ríkisins 11:50 – 12:20 Fyrirspurnir og umræður 12:20 – 13:30 Hádegisverður 13:30 – 14:00 Use of zoning in management planning (Erindi flutt á ensku) Morten Leth og Sherry Curl, Skógrækt ríkisins 14:00 – 14:20 Áhrif skógræktar með birki og lerki á þróun og fjölbreytileika svepprótar Brynja Hrafnkelsdóttir, Rannsóknastöð Skógræktar ríkisins á Mógilsá 14:20 – 14:40 Áhrif asparryðs á þvermálsvöxt alaskaaspar Ólafur Eggertsson, Rannsóknastöð Skógræktar ríkisins Mógilsá 14:40 – 15:00 Hekluskógaverkefnið Guðmundur Halldórsson, Landgræðslu ríkisins 15:00 – 15:20 Áhrif skógræktar á þéttleika jarðvegsdýra Edda S. Oddsdóttir, Rannsóknastöð Skógræktar ríkisins á Mógilsá 15:20 – 15:40 Punktar úr umhirðu- og nýtingaráætlun Vaglaskógar Rúnar Ísleifsson, Skógrækt ríkisins 15:40 – 16:00 Fyrirspurnir og umræður 16:00 Ráðstefnuslit Ráðstefnugjald kr. 9.600 (báðir dagarnir) · Hátíðarkvöldverður kr. 4.900 Upplýsingar og skráning í síma 471-2184 eða senda póst á netfangið freyja@heradsskogar.is Nauðsynlegt er að skrá sig fyrir mánudaginn 19. mars nk. SKÓGRÆKT RÍKISINS Af átaki og vín- veitingum Hreiðar Karlsson hjó eftir því að„Átak í heilsurækt“ sótti um vínveitingaleyfi fyrir norðan: Hvergi þykir menning meiri, mannlífið er gott og frægt. Notar fólk á Akureyri öl og vín í heilsurækt. Þá Hálfdan Ármann Björnsson: Í dag er eflaust Davíð Hjálmar glaður og djammvonin af ásjónunni skín. Hann er sagður heilsuræktarmaður og hlýtur að leggjast strax í öl og vín! Hjálmar Freysteinsson læknir á Akureyri er ánægður með þróunina: Ég væskilslegur var og er, sem visin jurt með skrælnuð blöð. Kannski ég ætti að kaupa mér kort í líkamsræktarstöð. Hólmfríður Bjartmarsdóttir á Sandi í Aðaldal fylgdist með yrkingum um Framsókn og flokkshollustu á þessum stað í gær, segir 95 ára móður sína flokksholla, að vísu til hægri við miðju, og orti svo um Framsókn: Reri á sjó og rúði fé og reyndi sveit upp byggja. Nú fær hún ekki fylgi í hné þó flest hún mundi þiggja. Jón Arnljótsson fylgdist með umræðum um nýtt stjórnarskrárákvæði: Sjórinn okkar sameign er, að synda allra réttur, en sá er þar til fiskjar fer, í fangelsi er settur. pebl@mbl.is VÍSNAHORNIÐ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.