Morgunblaðið - 16.03.2007, Side 31
Opnið túnfiskdósirnar og látið
mestu olíuna renna af. Skerið eggin
fínt með eggjaskera og hrærið sam-
an við túnfiskinn ásamt vorlauk,
sinnepi, karríi, salti, ólífum og ka-
pers.
Hrærið saman við eins mikilli olíu
og sítrónusafa og þarf til að salatið
verði meðfærilegt og gott. Smakkið
til með dilli og svörtum nýmöluðum
pipar.
Rúllið brauðinu í sundur og
smyrjið salatinu á það. Rúllið upp á
ný og skreytið brauðið með græn-
meti að vild.
Ljósmynd/Jón Svavarsson
KONUR sofa minna en karlar og
upplifa oftar önnur vandamál tengd
svefni en þeir. Ástæðan er tíma-
skortur. Þetta kemur fram í tölum
frá bandarísku svefnsamtökunum
sem reglulega kannar svefnvenjur
Bandaríkjamanna.
Í könnun ársins 2005 kom í ljós að
mun fleiri konur en karlar áttu við
svefnleysi að stríða. Af þeim sökum
ákváðu samtökin að helga könnun
ársins 2007 sérstaklega svefni
kvenna, að því er fram kemur á vef-
síðu Berlingske tidende.
60% kvenna á aldrinum 18 til 64
ára segjast einungis fá góðan nætur-
svefn tvisvar í viku eða sjaldnar. 67%
glíma við algeng svefnvandamál og
næstum helmingur segir skort á
svefni bitna á daglegu lífi þeirra.
Svefnleysið stafar fyrst og fremst
af tímaskorti og hefur víðtæk áhrif á
líf kvennanna. Þær upplifa ýmis-
konar vandamál í vinnu vegna
þreytu, finna til takmarkaðrar kyn-
lífslöngunar, auk þess sem vinir og
áhugamál hverfa því þær hafa ekki
orku til að sinna þeim. Ekki kemur á
óvart að konur með börn þjást öðr-
um fremur af svefnleysi en jafnvel í
þegar engin börn eru á heimili, virð-
ist svefnleysið helst hrjá konurnar.
Konur eru
þreyttar og
vansvefta
Morgunblaðið/Þorkell
Þreyttar Fjöldi kvenna á í vandræð-
um í daglegu lífi vegna svefnleysis.
heilsa
neytendur
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MARS 2007 31
SAMKAUP hf. opna Strax-verslun nk.
föstudag í Búðakór 1 í Kópavogi. Um leið
mun Kökumeistarinn opna þar bakarí og
verslanirnar Fiskisaga og Gallerí Kjöt
bætast fljótlega eftir það í hópinn. Í til-
efni opnunarinnar verða tilboð og veit-
ingar í boði alla helgina, en opið verður
virka daga kl. 9–22, laugardaga kl. 10–22
og á sunnudögum kl. 10–22.
Þetta er þriðja verslun Samkaupa í
Kópavogi og verður Þórhalla Grétars-
dóttir verslunarstjóri þar, en fyrir eru
Nettó-verslun á Salarvegi og Samkaup
Strax-verslun í Hófgerði.
,,Við rekum samtals 7 verslanir á höf-
uðborgarsvæðinu og hyggjumst opna
fleiri á næstu misserum til þess að
styrkja okkar stöðu á þessu fjölmennasta
markaðssvæði landsins,“ er haft eftir
Sturlu Eðvarðssyni, framkvæmdastjóra
Samkaupa hf., í fréttatilkynningu frá fyr-
irtækinu.
Nýju versluninni í Búðakór er ætlað að
þjóna þeim hverfum sem næst henni
liggja, þ.e. Búðahverfi, Salahverfi, Linda-
hverfi og Hvarfahverfi, en samtals búa
nú á fjórða þúsund íbúar í þessum hverf-
um.
Morgunblaðið/Ómar
Tilbúið fyrir opnun Þórhalla Grétarsdóttir verslunarstjóri raðar
í grænmetishillurnar í Samkaup í Búðakór kvöldið fyrir opnun.
Samkaup fjölga
verslunum í Kópavogi