Morgunblaðið - 16.03.2007, Side 55
Volta Björk Guðmundsdóttir
kynnir nýja plötu sína á árinu.
BJÖRK Guðmundsdóttir hefur tónleikaferð sína um
heiminn með tónleikum í Laugardalshöll 9. apríl næst-
komandi. Þar kemur hún fram með hljómsveit sinni, en
hluti hennar er blásarasveit tíu íslenskra stúlkna. Tón-
leikaferðin er farin til að kynna sjöttu breiðskífu Bjark-
ar, Volta, sem kemur út 7. maí.
Hljómsveit Bjarkar á tónleikunum í Laugardalshöll
og í fyrirhugaðri tónleikaferð skipa Jónas Sen píanó-
leikari, blásaradecet skipaður Brynju Guðmunds-
dóttur, Sigrúnu Kristbjörgu Jónsdóttur, Hörpu Jó-
hannsdóttur, Erlu Axelsdóttur, Særúnu Ósk
Pálmadóttur, Bergrúnu Snæbjörnsdóttur, Valdísi Þor-
kelsdóttur, Sylvíu Hlynsdóttur, Sigrúnu Jónsdóttur og
Björk Nielsdóttur, auk þeirra Mark Bell og Chris Cors-
ano.
Næstu tónleikar í ferðinni verða 27. apríl, en þá leik-
ur Björk á Coachella hátíðinni í Bandaríkjunum. Síðan
leikur hún á Sasquatch-tónlistarhátíðinni 26. maí, á
Glastonbury í Bretlandi 22. júní, á Rock Werchter í
Belgíu 28. júní, Open’er í Póllandi 1. júlí, Hróars-
kelduhátíðinni 5. júlí og svo Paleo hátíðinni í Sviss 25.
júlí.
Á vefsetri Bjarkar, bjork.com, kemur fram að fleiri
tónleikar muni bætast við á næstu dögum og vikum.
Björk hélt síðast tónleika hér á landi í desember
2001, þá í Laugardalshöll og Háskólabíói. Hún flutti
einnig þrjú lög með höpuleikaranum Zeenu Parkins á
Náttúrutónleikunum í Laugardalshöll í byrjun janúar
2006 og kom fram með Sykurmolunum 17. nóvember
sl.
Þess má geta að Björk kemur einnig fram 1. apríl nk.
á styrktartónleikum fyrir Forma, samtök átrösk-
unarsjúklinga á Íslandi, á Nasa. Þar mun hún syngja
tvö lög með blásaradecetnum.
Fyrstu tónleikar Bjarkar í sex ár Í HNOTSKURN»Björk syngur eitt lag áplötunni A Tribute To Joni
Mitchell sem er væntanleg í
plötubúiðr þann 24. apríl
næstkomandi. Björk syngur
þar lagið „The Boho Dance“.
Á meðal flytjenda á plötunni
eru Sufjan Stevens, Prince,
Annie Lennox og Elvis Cos-
tello
»Þrjú ár eru liðin frá síð-ustu breiðskífu Bjarkar,
Medúllu, en einnig hafa komið
út endurhljóðblöndunarskífan
Army of me: Remixes and Cov-
ers og Drawing Restraint 9.
»Björk fær í næstu viku af-hent hin frönsku Qwartz-
verðlaun fyrir framlag sitt til
tónlistar.
Kemur fram í Laugardalshöll
ásamt 13 manna hljómsveit
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MARS 2007 55
Föstudagur
<til frægðar>
Nasa
Árlegt ball með Spöðum
Oliver
DJ JBK frá kl. 23.
Barinn
Benni B-Ruff á 1. hæð
DJ Raggi á 2. hæð
Pravda
DJ Áki Pain og DJ Maggi Flass.
Players
Austfirðingaball þar sem fram koma
meðal annarra Á móti sól.
Prikið
Jón Tryggvi og strákarnir í Blautt
malbik.
Hressó
Dúettinn Gotti og Eisi og DJ Jo-
hnny.
Kringlukráin
Rokksveit Rúnars Júlíussonar
Laugardagur
<til lukku>
Oliver
Dj Suzy og Elvis frá kl. 23.
Barinn
DJ Peter Parker á 1. hæð
DJ Davíð & Haukur á 2. hæð
Pravda
Húsið opnar klukkan 22. DJ Áki
Pain og DJ Addi Exos.
Café Amsterdam
Amsterdjamm með DJ Fúsa.
Loftkastalinn
Herranótt MR sýnir leikritið DJ
Lilli.
Hressó
Pub-lic og DJ Jón Gestur.
Hverfisbarinn
Plötusnúðarnir Paul Hill og Paul
Wilkins leika en þemað er „happy
house ’n’ disco“.
Kringlukráin
Rokksveit Rúnars Júlíussonar
Nasa
Hljómsveitin Hjálmar
Players
Von
Prikið
Cafe Au Lait-þema. Plötusnúðarnir
KGB, Kári og Árni Sveins. Hljóm-
sveitin Bloodgroup hefur leik upp úr
klukkan 22.
ÞETTA HELST UM HELGINA »