Morgunblaðið - 17.03.2007, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.03.2007, Blaðsíða 2
Eftir Elva Björk Sverrisdóttur og Þóri Júlíusson KRISTINN Björnsson, fyrrverandi forstjóri Skeljungs, segir það mik- inn létti að sjá fyrir endann á málinu með dómi Hæstaréttar. Dómurinn sé jafnframt ákveðinn vendipunktur í málaferlum á hendur olíufélögun- um. „Ég er búinn að lifa með þessu máli frá 18. desember 2001 þegar Samkeppnisstofnun fór inn í húsa- kynni olíufélaganna. Fljótlega eftir að Samkeppnisstofnun ákvað að fara með málið til ríkislögreglu- stjóra í júní 2003 fengu tæplega 40 manns hjá olíufélögunum réttar- stöðu sakbornings. Með dómi Hæstaréttar kemur umbúðalaust fram að allur þessi málatilbúnaður er ekki á neinum rökum reistur,“ segir Kristinn og tekur fram að dómurinn feli það í sér að málinu sé endanlega lokið gagnvart einstak- lingum. „Það er ekki síst vegna þess að í dóminum er vitnað bæði í stjórn- arskrá og Mannréttindasáttmála Evrópu. Þegar af þeim ástæðum hefur þetta mál aldrei átt neinn rétt á sér. Mér finnst þetta vond lög- fræði sem hefur verið unnið eftir bæði hjá ríkislögreglustjóra og síð- an hjá embætti saksóknara í efna- hagsbrotum.“ Bagalegt fyrirkomulag rannsóknar Aðspurður segir Kristinn að þessa niðurstöðu hefðu menn ein- faldlega getað séð fyrir í upphafi. Sú lögfræði sem unnið hafi verið eftir hafi hins vegar ekki verið nógu góð. Þá sé það fyrirkomulag sem hafi einkennt rannsókn málsins eins bagalegt og hugsast geti. „Við höfum ekki ráðið því hvernig málin hafa verið rekin. Það hafa annars vegar stjórnsýslustofnanir og hins vegar dómstólar gert. Við erum einungis leiksoppar í þessari atburðarás allri og verðum í raun- inni að dingla með eins og krakk- arnir segja. Þetta er eins bagalegt og hægt er að hugsa sér að svona geti þetta farið og á meðan sitji menn og geti ekki borið hönd fyrir höfuð sér. Menn geta engu svarað, hvorki ásökunum sem á þeim dynja né öðru vegna þess að það er verið að rannsaka málið hjá lögreglu. Þannig kann allt sem þú segir að vera túlkað þér í óhag. Nú er því ástandi lokið og þá kemur í ljós hvernig menn bregðast við því.“ „Ég trúi því að með þessum dómi verði ákveðinn vendipunktur í þessu máli öllu saman. Ég er ekki málsvari fyrir neitt olíufélag lengur og mun ekki tala um þau mál sem snúa að félögunum sjálfum. Það hljóta hins vegar allir glöggir menn að hafa séð að hingað til hafa menn ekki verið reiðubúnir að tjá sig um þetta sam- keppnismál olíufélaganna. Það byggist auðvitað á því að helstu for- ráðamenn þeirra félaga, hvorki fleiri né færri en tæplega 40 manns, voru með réttarstöðu sakbornings og gátu þar af leiðandi ekki tjáð sig um málið meðan á þessari svokölluðu rannsókn stóð hjá lögreglunni […]. Nú er því ástandi lokið með þessum dómi og það er mín skoðun að þarna verði ákveðinn vendipunktur. Menn munu sjá á þessu máli miklu fleiri hliðar en hingað til í einhliða mál- flutningi sem hefur átt sér stað af hálfu Samkeppnisstofnunar.“ Kristinn átelur þann seinagang sem hann telur hafa einkennt málið, enda séu liðin rúm þrjú ár frá því að það fór upphaflega til lögreglu og tæp sex ár frá því að það hófst. „Þetta er ótrúlegur seinagangur á máli sem er verið að reka annars vegar fyrir stjórnsýslustofnunum og hins vegar dómstólum. Það hlýtur að vera eitthvað sem menn þurfa að velta fyrir sér hvort ekki sé afar óæskilegt í svo góðu þjóðfélagi sem Ísland er.“ „Við fögnum þessari niðurstöðu“ Einar Benediktsson, forstjóri Ol- íuverzlunar Íslands, vildi ekki tjá sig um málið að svo stöddu. Gísli Baldur Garðarsson, lögmaður Einars, sagði niðurstöðu Hæstaréttar á þá lund að málsmeðferðin hefði verið í and- stöðu við þær reglur sem gilda í þjóðfélaginu. „Við fögnum þessari niðurstöðu og hún er í fullu sam- ræmi við þær væntingar sem við höfðum,“ segir Gísli Baldur. Geir Magnússon, fyrrverandi for- stjóri Olíufélagsins – sem nú heitir Ker, vildi ekki tjá sig um málið að svo stöddu. Ragnar Tómas Árnason, lögmaður Geirs, vísaði til þeirra um- mæla saksóknara efnahagsbrota að málinu væri lokið og sagðist engu hafa við þau að bæta. „Menn munu sjá á þessu máli fleiri hliðar en hingað til“ Morgunblaðið/Júlíus 2 LAUGARDAGUR 17. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns- son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Her- mannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Örlyg Sigurjónsson orsi@mbl.is UM 300 lítrar af dísilolíu láku niður á svonefndan Strípsveg í Heiðmörk inni á miðju vatnsverndarsvæði Reykvíkinga í gær. Forstjóri Orku- veitu Reykjavíkur sem hefur umsjón með svæðunum segir atvikið alvar- legt en telur að vel hafi tekist að bjarga málum. Óhappið varð þegar ökumaður vörubíls var að taka beygju á veginum en aksturinn tengdist framkvæmdum Kópavogsbæjar við vatnslögn í Heið- mörk. Svo virðist sem bíllinn hafi rek- ist í grjót með þeim afleiðingum að undirvagninn rifnaði og olían lak út. Gripið var til þess ráðs að moka upp olíumenguðum jarðvegi og fjar- lægja hann en að sögn Lúðvíks Gúst- afssonar, deildarstjóra á umhverfis- sviði Reykjavíkurborgar, var bót í máli að olían lak ofan á veginn sjálfan í stað þess að fara fram af vegbrún- um. Óhappið varð á svokölluðu grann- svæði en því er skipt upp í nokkur brunnsvæði, þ.e. vatnsbólin sjálf. Næsta brunnsvæði, Myllulækur, var í nokkurra kílómetra fjarlægð frá staðnum. Að sögn Lúðvíks er erfitt að segja til um hættu á mengun og hversu mikil olía fer ofan í jarðveginn. „En sem betur fer sýnist mér olían hafa aðallega lekið eftir veginum,“ benti hann á. „Það hefði verið verra ef olían hefði lekið út til hliðar við veginn.“ Aðspurður hvort gripið verði til ráðstafana til að takmarka hættu á að annað eins endurtaki sig, bendir Lúð- vík á að ökumenn verði vitaskuld að meta aðstæður á hverjum tíma. „Það er alltaf alvarlegt atvik þegar mörg hundruð lítrar af olíu leka niður á grannsvæði. Mestu máli skiptir að ná sem mest af olíunni upp.“ Sagði hann að umhverfissvið ætti nú eftir að ræða hvort fylgst yrði með hugsanlegri ol- íumengun í vatnsbólum á næstunni. Reglulegar sýnatökur úr þeim mæla ekki olíumengun að sögn Lúðvíks. Mengunarslys í Heiðmörk Morgunblaðið/Árni Sæberg Óhapp Slökkviliðsmenn og starfsmenn umhverfissviðs Reykjavíkurborgar komu strax á staðinn þar sem óhappið varð. Um 300 lítrar af olíu láku niður. Gripið var til þess ráðs að moka upp olíumenguðum jarðvegi og fjarlægja. „NIÐURSTAÐA í þessu máli er endanleg og það er dómur Hæsta- réttar sem ræður úrslitum,“ segir Helgi Magnús Gunnarsson sak- sóknari um dóm réttarins frá í gær. Ekki verði gefin út önnur ákæra vegna þess „að það er engin önnur rannsókn til að byggja þá ákæru á heldur en þessi eina rann- sókn sem verið er að segja að sé ekki fullnægjandi“. Niðurstaða dómsins hafi verið sú að meðferð málsins, fyrst rannsókn samkeppnisyf- irvalda frá 2001–2003 og svo lögreglurannsókn, hafi verið það ófullkomin varðandi tryggingu réttar sak- borninga að ekki væri hægt að byggja ákæru á henni. „Það var búið að benda á þetta af lögreglu og rík- issaksóknara. Ríkissaksóknari var búinn að gera at- hugasemdir við að þetta væri óheppilegt fyr- irkomulag, strax þegar málið kom upp hjá lögreglu árið 2003,“ segir Helgi Magnús. Hvorki sé við lög- reglu né samkeppnisyfirvöld að sakast, en þeim beri að vinna samkvæmt lögum. Lögin um þetta séu hins vegar ófullnægjandi að mati Hæstaréttar. Helgi Magnús segir þó að ákæruvaldið hafi talið að málsmeðferðin ætti ekki að hafa þau áhrif að málinu yrði vísað frá dómi. Sjónarmið lögreglu séu nokkuð í samræmi við sératkvæði Ólafs Barkar Þorvaldssonar, sem hafi lagt fyrir héraðsdóm í sínu atkvæði að hefja efnismeðferð málsins. Helgi Magnús bendir á að í dómi Hæstaréttar sé því hafnað í sératkvæði Ólafs Barkar að brot séu ekki refsiverð fyrir einstaklinga sem og öðrum forsendum fyrir niðurstöðu héraðsdóms fyrir frávísun. „Þau sjónarmið sem voru höfð uppi í héraðsdómi um það að þetta væri ekki refsiverð hegðun fengu ekki meðbyr í Hæstarétti,“ segir hann. Helgi Magnús segir að frá því rannsókn málsins hófst hafi löggjöf um samskipti samkeppnisyfirvalda og lögreglu verið bætt. Þau hafi nú skýrari mynd um hvernig þau eigi að framkvæma rannsóknir sínar og „vonandi á ekki að þurfa að koma til þessara vand- ræða aftur“. „Ég óska þessum sakborningum til hamingju með það að vera lausir undan þessu máli. Það hlýtur að vera léttir. Það er búið að taka langan tíma og ákæru- valdið hefur alls ekki verið ánægt með þessa tvöföldu málsmeðferð,“ segir hann ennfremur. Endanleg niðurstaða Helgi Magnús Gunnarsson SJÁVARÚTVEGSRÁÐUNEYTIÐ jók í gær loðnukvótann um 15 þús- und lestir. Það þýðir að heildarkvót- inn á vetrarvertíðinni verður 385 þúsund lestir. Hafrannsóknastofnun hafði áður gert tillögu um þessa við- bót, en hún er til komin vegna vest- angöngu sem stofnunin mældi í byrj- un þessa mánaðar. Rannsóknaskipið Árni Friðriksson mun á næstu dög- um ljúka loðnurannsóknum á þessari vertíð. Ánægjuleg tíðindi „Þetta er mjög ánægjulegt og skiptir máli,“ sagði Friðrik J. Arn- grímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ. Hann sagðist vonast eftir að loðnu- leit Hafrannsóknastofnunar fyrir vestan land skilaði jákvæðri niður- stöðu. Það væri því ekki hægt að úti- loka að leyft yrði að veiða meira, en það væri þó ekki á vísan að róa í þeim efnum. Friðrik sagði að það hefði verið eftir að veiða u.þ.b. 6.000 tonn þegar nýr kvóti var gefinn út. Í gær var Krossey að lesta á Höfn í Hornafirði og fór loðnan í frystingu. Víkingur og Jóna Eðvalds eru á leið til lands. Friðrik sagði að fá skip væru við veiðar en þeim myndi vænt- anlega fjölga eftir kvótaaukninguna. Loðnan væri góð og hrygningu ekki lokið. Það væri því hægt að stunda þessar veiðar í nokkra daga í viðbót. Loðnukvót- inn aukinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.