Morgunblaðið - 17.03.2007, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2007 51
Það sagði við mig maður umdaginn, að það væri ein-kennilegt með vinsælu ungu
söngvarana í dag, að þeir syngju
ekki, væru meira svona notalegir
raularar. Mér virtist sem undrun
mannsins fælist í því að fólk gæti
orðið vinsælt þrátt fyrir að syngja á
þennan óformlega hátt.
Það er vissulega allur gangur á
því á hvaða hátt söngvarar kjósa að
nota raddböndin sín, hvernig svo
sem rödd þeirra er af náttúrunnar
hendi, og svo er líka hægt að læra að
beita röddinni.
Það er til gömul sjónvarps-upptaka með Kór mennta-
skólans við Hamrahlíð, og þar syng-
ur Rannveig Fríða Bragadóttir með
kórnum. Í þá daga var var Rannveig
með bjarta og fínlega og ekkert sér-
lega mikla sópranrödd. Í söngnámi
kom í ljós að dýpra raddsvið hennar
var ónuminn fjársjóður sem átti eftir
að gera hana að einni okkar bestu
mezzósópransöngkonu, með vold-
uga, breiða og dökka rödd. Þegar
Diddú kvaddi Spilverkið og fór að
læra söng spáðu sumir því að þar
með yrði hennar yndislega nátt-
úrurödd eyðilögð, og að hún myndi
aldrei geta sungið meir. Sá ótti
reyndist að sjálfsögðu ástæðulaus
flónska.
Það verður seint sagt að MariaCallas, ein mesta óperusöng-
kona síðustu aldar, hafi haft fagra
rödd. Hún var hol og málmkennd.
Hvað með Tom Waits? Hvers
vegna nennir yfir höfuð nokkur
maður að hlusta á hans rámu raust?
Bob Dylan á sér margar raddir.
Nina Hagen, pönkdrottningin
þýska, reif raddböndin niðrí rass, en
söng svo „Naturträne“ þannig að
maður bókstaflega skældi af hrifn-
ingu á þeim fagra söng.
Ætli niðurstaðan sé ekki sú aðfleira þurfi í dansinn en fagra
skó, svo stolist sé í skýringar ann-
arrar listgreinar. Það verður enginn
„söngvari“ af því einu að hafa góða
rödd. Það er ekki svo sjaldan að
fram koma á sjónarsviðið söngvarar
með glæsilegar og miklar raddir, en
það er sama hversu hátt þeir hafa,
söngurinn hreyfir ekki við manni.
Sama má auðvitað segja með margt
annað, hvort sem er í listum eða ann-
ars staðar. Hæfileikarnir einir eru
ekki uppspretta þess sem lifir, held-
ur það hugvit og það innsæi sem not-
að er til að beita þeim. Þegar það fer
saman – og eflaust fleiri þættir líka –
þá fyrst er von á þeim skapnaði sem
nær að hræra í sálum fólks, hrífa
þær og græða. Ef Maria Callas hefði
ekki haft hugvitið og innsæið sem
gerðu hana að einum magnaðasta
túlkanda óperutónlistarinnar fyrr
og síðar hefði hún kannski orðið
meðalsöngkona, kannski ekki.
Diddú hafði það sem til þurfti, og
skipti ekki nokkru máli hvort röddin
hennar var skóluð eða óskóluð. Tom
Waits og Nina Hagen fundu sér hillu
þar sem þeirra tjáningarháttur fékk
notið sín fullkomlega. Nina Hagen
hefði vel getað orðið frábær óp-
erusöngkona alveg eins og pönk-
söngkona.
Það á við um allt tónlistarnám, aðmikil áhersla er lögð á að
byggja upp góða tækni. Það er skilj-
anlegt. Það er flóknara að „kenna“
túlkun og sumir efast jafnvel um að
hana sé hægt að kenna, því svo stór
hluti hennar eigi rætur í dýpstu rót-
um persónunnar. Þriðja víddin er
svo hvað söngvari vill syngja og
hvar hann finnur tjáningarþörf sinni
bestan farveg. Það er þáttur sem
mætti taka mun betur á í söngnámi.
Áfangastaðirnir í söngnum liggja
víða, og afar persónulegt hvar hver
og einn finnur sína fjöl, hvort sem
söngnám liggur að baki eða ekki.
Naglasúpa söngsins
Pönkdívan Þegar Nina Hagen var ung þótti líklegast að hún yrði óperusöngkona eða ballerína.
AF LISTUM
Bergþóra Jónsdóttir
»Ætli niðurstaðan séekki sú að fleira þurfi
í dansinn en fagra skó,
svo stolist sé í skýringar
annarrar listgreinar.
begga@mbl.is
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Dublin
ÚRVAL ÚTSÝN ~ LÁGMÚLA 4
108 REYKJAVÍK ~ SÍMI 585 4000
FAX 585 4065 ~ INFO@UU.IS
Innifalið: Flug, flugvallarskattar, íslensk fararstjórn
og gisting með morgunmat. Verð miðast við að bókað
sé á netinu. Ef bókað er á skrifstofu eða símleiðis er
bókunargjald 2.500 kr. fyrir hvern farþega.
5.–9. apríl
Róm
5.–9. apríl
59.600 kr.
Hvernig væri að skella sér til Dublin
um páskana. Fjórar nætur og þú þarft
ekki að fá frí í vinnunni. Verslaðu
hagstætt, slappaðu af og láttu þér
líða vel í þessari frábæru borg.
Golfferð: Verð frá 82.940,
3 golfhringir, 4 nætur.
83.520 kr.
Borgin eilífa hefur um aldir verið
sögusvið keisara, páfa og pílagríma
sem lagt hafa leið sína til borgar-
innar um aldirnar. Og nú er komið
að þér. Fjórar nætur, sem seint
munu gleymast.
Páskar
í Dublin eða Róm