Morgunblaðið - 17.03.2007, Blaðsíða 56
PÁFINN Benedikt XVI myndi seint teljast
með frjálslyndari mönnum. Í nýútkominni bók
hans um fyrirrennara sinn í starfi, Jóhannes
Pál páfa, segir meðal annars frá andstöðu hans
við tónleikahald Bob Dylan í Vatíkaninu árið
1997.
Benedikt var ekki orðinn páfi þá en var
kardínáli. Hann var einn þeirra sem settu sig
alfarið á móti tónleikahaldinu með þeim rökum
að Dylan væri „nokkurskonar spámaður og að
skoðanir hans samræmdust ekki skoðunum
kaþólsku kirkjunnar.“
Benedikt neyddist hinsvegar til að sitja und-
ir tónleikunum en fann sig knúinn til að leggja
út af þeim í predikun að þeim loknum. Þar
sagði meðal annars:
„Þú segir svarið vera „blowing in the wind“
og það er rétt, en það er ekki vindurinn sem
blæs heldur er það byr lífs og heilags anda. Þú
spyrð einnig hversu marga vegi maðurinn
þurfi að ganga áður en hægt er að kalla hann
mann. Ég svara: það er aðeins einn vegur fyrir
manninn og það er vegur Jesú sem sagði eitt
sinn „Ég er vegurinn og lífið.“
Vilji Jóhannesar Páls til samstarfs við popp-
stjörnur hefur ekki gengið að erfðum til eft-
irmanns hans. Benedikt hefur meðal annars
látið hafa eftir sér að rokktónlist sé verk Sat-
ans sjálfs. Hvað hefði Lúther sagt?
Páfinn
vildi banna
Dylan
Umdeildur Bob Dylan. Íhaldssamur Benedikt páfi.
56 LAUGARDAGUR 17. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MARGIR notast eflaust við vefrit-
ið Wikipedia til efnisöflunar og
hvers kyns glöggvunar á hinum og
þessum mönnum og málefnum.
Bandaríski leikarinn og skemmti-
krafturinn Sinbad myndi samt
trúlega ekki gefa mikið fyrir trú-
verðugleika Wikipediu eftir þær
raunir sem hann lenti í í síðustu
viku.
Sem kunnugt er er öllum frjálst
að rita í vefritið sem og að leið-
rétta ef vitlaust er farið með ein-
hverjar staðreyndir. Stað-
reyndavillurnar eru misalvarlegar
en áðurnefndum Sinbad var hreint
ekki skemmt þegar upplýst var á
færslunni um hann á vefritinu að
hann væri látinn.
Að hans sögn fór í kjölfarið að
rigna yfir hann tölvupóstum og
símhringingum frá vinum og ætt-
ingjum sem vildu kanna hvort
hann væri ekki örugglega í tölu
lifenda.
Síðan um Sinbad á Wikipedia er
ekki lengur á vefnum og er sögð
vera í vinnslu.
Wikipedia var stofnað árið 2001.
Þar er að finna um 1,6 milljónir
greina um efni úr öllum áttum
sem er ritstýrt af notendum sjálf-
um.
Líflátinn á Wikipedia
Lifandi sviðsframkoma Sinbad er
ekki dauður úr öllum æðum.
Hagatorgi • Sími 530 1919 • www.haskolabio.is
HORS DE PRIX ísl. texti kl. 5:40 - 10
TELL NO ONE (NE LE DIS A PERSONE) kl. 10:20
PARIS, JE T'AIME kl. 3:20
MON PETIT DOIGT kl. 3:45 - 5:45
LES AMANTS kl. 10
FRÖNSK KVIKMYNDAHÁTÍÐ
Í HÁSKÓLABÍÓ 3.MARS TIL 1. APRÍL
300 kl. 4 - 6:30 - 9 - 10:40 B.i. 16 ára
BLOOD & CHOCOLATE kl. 8 -10:15 B.i. 12 ára
GOLDEN GLOBE VERÐLAUN
BESTA ERLENDA MYNDIN
ÓSKARS-
VERÐLAUN
,,TÍMAMÓTAMYND"
eeeee
V.J.V. - TOPP5.IS
BREAKING AND ENTERING
20% AFSLÁTTUR
EF GREITT ER MEÐ
SPRON-KORTI 2
Hefur þú einhvern tímann gert
mjög stór mistök?
SÝND Í SAMBÍÓ KRINGLUNNI
TOPPMYNDIN Á ÍSLANDI
/ KRINGLUNNI
300 kl. 5:30 - 8 - 10:10 - 10:30 B.i. 16 ára DIGITAL
NORBIT kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:20 LEYFÐ
MUSIC & LYRICS kl. 5:50 - 8 LEYFÐ DIGITAL
THE BRIDGE TO TEREBITHIA kl. 1:30 - 3:30 LEYFÐ
VEFURINN HENNAR KARLOTTU m/ísl. tali kl. 1:40 - 3:50 LEYFÐ DIGITAL
FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 1:40 LEYFÐ DIGITAL
STÓRSKEMMTILEG OG
SPLUNKUNÝ GAMAN-
MYND SEM SLÓ NÝVERIÐ
Í GEGN Í FRAKKLANDI,
MEÐ AUDREYTAUTOU
ÚR DA VINCI CODE
OG AMELIE.
HÖRKUSPENNANDI MYND
FRÁ FRAMLEIÐENDUM
“UNDERWORLD”
LETTERS FROM IWO JIMA kl. 5:30 B.i. 16 ára
BLOOD DIAMOND kl. 8 B.i. 16 ára
DREAMGIRLS kl. 5:30
AUDREY
TAUTOU
GAD
ELMALEH
FRUMSÝNING
ALLIANCE FRANÇAISE, Í SAMVINNU
VIÐ PEUGEOT OG BERNHARD, KYNNA:
STÆRSTA OPNUN ÁRSINS Í BANDARÍKJUNUM
eeee
V.J.V.
!"#
$
% &
# '(
!
"
% )
*
"