Morgunblaðið - 17.03.2007, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 17.03.2007, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2007 15 FRÉTTIR Ármúla 42 · Sími 895 8966 mánudaga - föstudaga 10-18 laugardaga og sunnudaga 11-18Opið Glæsilegir gólfvasar á sprengiverði 30-80% afsláttur AÐEINS laugardag og sun nudag Fjölbreytt úrval Margar stærðir ÚTFLUTNINGUR á Skyr.is til Bandaríkjanna sló öll met í vik- unni þegar 9 tonn á 50 vörubrett- um voru flutt þangað flugleiðis. Þetta er tæplega fimmfalt það magn sem allajafna hefur verið flutt vestur um haf undanfarnar vikur. Þetta magn svarar til tæp- lega 53.000 lítilla (170 g) skyrdósa. Sala á Skyr.is innanlands er að jafnaði um 20 tonn í viku hverri. Ástæðuna fyrir þessari miklu aukningu má fyrst og fremst rekja til þess að íslenskar mjólkuraf- urðir voru í vikunni seldar í fyrsta sinn til verslana Whole Foods- verslunarkeðjunnar í New York og Boston og nágrenni. Þar með bættust 40 verslanir við þær 30 innan keðjunnar sem höfðu áður selt íslensku mjólkurafurðirnar. Auk skyrs í fjórum bragðteg- undum selja verslanir Whole Foods íslenskt smjör og osta á borð við Höfðingja og Stóra- Dímon. Í fréttatilkynningu frá Ms er haft eftir Guðbrandi Sigurðssyni, forstjóra Mjólkursamsölunnar, að þessi áfangi marki ákveðin tíma- mót í útflutningi íslenskra mjólk- urafurða vestur um haf. Þar kem- ur fram að Bandaríkjamenn greiði töluvert hærra verð fyrir skyrið en Íslendingar, eða um 200 krónur fyrir dósina. Fyrirtækið hafi búið sig vel undir þessa söluaukningu og því hafi ekki verið neinum erf- iðleikum bundið að mæta þessum stóraukna útflutningi. Morgunblaðið/ÞÖK Skyr Mikið hefur verið flutt til Bandaríkjanna af skyri síðustu daga eða tæplega fimmfalt það magn sem alla jafna er flutt þangað í viku hverri. Níu tonn af skyri með flugi SAMTÖK verslunar- og þjónustu lýsa yfir undrun og óánægju með afgreiðslu Alþingis á tillögum Sam- taka atvinnulífsins og SVÞ um að úthluta tollkvótum vegna innflutn- ings án kvótasölu þegar umsóknir um kvóta eru meiri en framboðið. „Það er ekki ábyrgðarfullt af hálfu þingsins að þegar þjóðarátak er ákveðið af ríkisstjórninni til að lækka matvöruverð í landinu í góðri sátt að því er séð verður skuli ákvarðanir Alþingis beinlínis vinna gegn slíku átaki,“ segir meðal ann- ars í tilkynningu frá SVÞ. Allt að fimm hundruð milljónir króna í tekjur fyrir ríkissjóð Samtökin bentu á að sala á toll- kvótum sem giltu frá hvaða landi sem væri, svo og á tollkvótum frá Evrópusambandinu samkvæmt nýj- um samningi, gæti þýtt allt að fimm hundruð milljónir í tekjur fyrir rík- issjóð sem væru í raun ígildi tolls og hluti af innkaupaverði vörunnar. Morgunblaðið/Eggert Ostar Erlendir og innlendir ostar auka fjölbreytnina. Óánægja og undrun SVÞ NEYTENDASTOFA hefur innkallað hættulega borð- lampa, hugsanlega standlampa einnig, sem seldir voru af Geymslusvæðinu ehf. (sala varnarliðseigna) á síðari helmingi síðasta árs, 2006, t.d. í Blómavalshúsinu við Sigtún í Reykjavík. Um er að ræða lampa frá varnarlið- inu á Keflavíkurflugvelli. Skoðun á vegum öryggissviðs Neytendastofu hefur leitt í ljós að af viðkomandi lömp- um getur stafað hætta á raflosti. Um er að ræða lampa sem gerðir eru fyrir amerískan markað og rafkerfi og henta ekki í Evrópu. Peruhöldur lampanna eru öðruvísi en í lömpum fyrir evrópskan markað og af þeim sökum er leiðandi hluti perunnar, þ.e. skrúfugangur, snertanlegur við venjulega notkun, t.d. við peruskipti. Neytendastofa gerir fleiri athugasemdir við öryggi viðkomandi lampa en þetta er sú alvarlegasta, segir í frétt á heimasíðu Neytendastofu: http:// www.neytendastofa.is. Kalla inn hættulega lampa Borðlampar geta verið hættulegir. EINN var með allar fimm tölurnar réttar þegar dregið var í fimm- földum potti í Lottó síðastliðið laug- ardagskvöld. Miðinn var keyptur í Happahúsinu í Kringlunni. Vinn- ingshafinn hefur gefið sig fram við Íslenska getspá og fengið vinning- inn staðfestan. 31 milljón ríkari HINN árlegi Skrúfudagur Fjöl- tækniskóla Íslands í Reykjavík verður haldinn í dag, laugardag, frá klukkan 13 til 16.30. Almenningi gefst kostur á því að kynna sér nám og starfsemi skólans og skoða húsa- og tækjakost hans. Einnig er þetta kjörið tækifæri fyr- ir fyrrverandi nemendur skólans, Vélskóla Íslands og Stýrimanna- skólans, að koma saman. Dagskráin er fjölbreytt og mót- ast nú m.a. af því að Fjöltækniskól- inn hefur tekið við rekstri Flug- skóla Íslands. Skrúfudagur í dag ÁTTA konur starfa nú hjá Sorp- hirðu Reykjavíkur en aldrei fyrr hafa svo margar konur starfað við sorphirðu að vetri til. Ásókn er í af- leysingavinnu á sumrin og reynt er að auka hlut kvenna og hafa þá ver- ið allt að 10–12 konur. Um 60 starfsmenn vinna að jafnaði við sorphirðu hjá borginni. Fjölgun kvenna Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is ÞRÓUNARFÉLAGIÐ Þyrping vill byggja upp stuðningsnet fyrir aldr- aða til að auðvelda þeim að njóta lífs- ins til æviloka. Þyrping vill flytja þjónustuna frá ríki til sveitarfélaga og einkavæða hana með hagkvæmni og skilvirkni í þjónustuframboði í huga þannig að þjónustan aðlagist einstaklingnum og þörfum hans en ekki öfugt. Málið verður rætt á ráð- stefnu um breyttar áherslur í þjón- ustu aldraðra, Njótum lífsins – ævina út, sem verður haldin á Grand Hóteli í Reykjavík á þriðjudag. Þyrping fékk Lovísu Ólafsdóttur, iðjuþjálfa og meistaranema í heilsu- hagfræði, til að taka að sér þróun- arverkefni þess efnis að skoða breytt- ar áherslur í þjónustu við aldraða og með hvaða hætti einkaframkvæmd gæti verið. Margir sérfræðingar og fulltrúar heilbrigðisstétta og eldri borgara hafa komið að verkefninu og hefur það meðal annars verið kynnt fyrir bæjarstjórum og ráðuneytum. Lovísa segir að það hafi fengið góðar undirtektir og tilgangur með ráð- stefnunni sé að koma af stað jákvæðri umræðu um málefni aldraða. Í verk- efninu sé reynt að tengja saman alla sem koma að þjónustu við aldraða með einhverjum hætti. Lögð sé áhersla á að nýta tækni til að rjúfa einangrun og auka á búsetuöryggi einstaklinga. Komið sé inn á fjár- hagslegt öryggi og hvaða kröfur verði gerðar í framtíðinni með það í huga að hægt sé að undirbúa efri árin og tryggja aukið valfrelsi í sambandi við t.d. kaup á þjónustu. Í stað stærri hjúkrunarstofnana sé lögð áhersla á lítil sambýli fyrir um sex til átta ein- staklinga þar sem einstaklingurinn hafi eigið rými en samnýti annað rými. Þetta geti verið blönduð sam- býli, sambýli fyrir karla eða konur eða jafnvel sérhæfð sambýli eins og t.d. fyrir Alzheimer-sjúklinga. Í tengslum við heilsueflandi heima- þjónustu sé lögð áhersla á gagnvirka þjálfun og breytta þjónustu í sam- bandi við aðhlynningu, lyfjaumsjón og forvarnarstarf í formi hjálpar til sjálfshjálpar. Boðið verði upp á sér- hæfða öldrunareiningu með end- urhæfingar- og hvíldardeild auk for- varnardeildar og göngudeildar sem taki á móti t.d. þeim einstaklingum sem nú fari inn á bráðamóttöku með tilheyrandi óþægindum og biðtíma. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, flytur ávarp í byrjun ráð- stefnunnar og síðan verða flutt níu erindi frá kl. 9–15. Þar á meðal fjallar markaðsstjóri ASCOM Worldwide í Hollandi um tækifæri í bættum sam- skiptum og þjónustu fyrir eldri borg- ara í eigin búsetu, en ASCOM er sér- hæft á því sviði með það að markmiði að auka á öryggi eldri borgara og rjúfa einangrun þeirra. Fram- kvæmdastjóri White Oak í Ástralíu greinir frá reynslu Ástrala af sam- þættri heimaþjónustu og einka- framkvæmd en fyrirtækið hefur starfað á þessu sviði í Perth síðan 1998 í nánu samstarfi við heilbrigð- isráðuneytið, bæjarfélagið, fé- lagsþjónustuna, heilsugæslu og spít- ala. „Þetta eru ekki ósvipaðar áherslur og við sjáum fyrir okkur að færa þjónustuna til sveitarfélaganna þannig að þau sinni þessu fólki en ekki heilbrigðisráðuneytið og félags- málaráðuneytið eins og nú er,“ segir Lovísa og bendir á að þótt ein- staklingur sé aldraður þýði það ekki endilega að hann sé veikur. „Við vilj- um bjóða upp á fjölbreytta þjónustu til þess að gefa einstaklingnum kost á auknu valfrelsi í aðkeyptri þjónustu í formi hjálpar til sjálfshjálpar þannig að hann geti valið og hafi tök á að búa í eigin húsnæði eins lengi og hann kýs.“ Þjónusta við aldraða verði einkavædd Eldri borgarar njóti ætíð lífsins Morgunblaðið/RAX Breytingar Lovísa Ólafsdóttir bendir á nýjar leiðir fyrir aldraða.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.