Morgunblaðið - 17.03.2007, Síða 26

Morgunblaðið - 17.03.2007, Síða 26
tíska 26 LAUGARDAGUR 17. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ Eftir Unni H. Jóhannsdóttur uhj@mbl.is Getur skóhællvirkilega hafttáknræna merk-ingu í samfélagi manna? Svo sannarlega! Kona sem gengur í skóm með pinnahælum er talin gefa önnur skilaboð en sú sem gengur á skóm með breiðum, fylltum hælum. Skósýki hefur löngum ver- ið talin akkilesarhæll margra kvenna og enginn furða – skór geta verið sjúklegir, sérstaklega þess- ir með hælunum. Það er eins og hællinn lyfti skón- um bókstaflega upp á stall – og víddin verður önnur. Það var þó ekki fyrr en seint á 16. öld sem skóhællinn leit dagsins ljós í Vesturheimi. Til- gangurinn hefur þó sennilega ekki verið sá að gera skóinn þokkafyllri, hvorki á konum né körlum. Það hefur að öllum líkindum þótt fyrst og fremst hagnýtt að bæta leðurbót við sólann en áhrifin í hælatískunni sjálfri eru talin koma frá Austurlöndum fjær. En þótt uppruninn sé ekki skýr er ljóst að hælarnir, jafnvel hinir minnstu, voru tákn vel- megunar, stéttar og stöðu. Hái hællinn sló þó ekki í gegn hjá hástéttarfólki fyrr en um miðja sautjándu öld, hugsanlega voru það ósjálfráð viðbrögð því þá var almúginn farinn að ganga á hælum, litlum að sjálfsögðu. Rauðu hælarnir á skótaui sólkonungsins Lúðvíks 14. í Frakk- landi (1643–1715) voru svo sannarlega umbylt- ing og tíska með slíkt aðdráttarafl var fljót að breiðast út – að ofan og niður. 350 árum síðar fetaði annar maður í fót- sporin og gerði rauða sólann að einkenni sínu, nefnilega Christian Louboutin. Það virðist ekkert vera nýtt undir sól- inni. Skóhæll sem ógnar lýðræði Snemma á 18. öld varð hinn hái hæll eingöngu kvenkynsins í röðum frjálsra aristókrata. Hann varð líka táknrænn fyrir eftirsótta kvenímynd, greind og kynþokka, sem konur máttu flagga í rík- ara mæli en áður. Hællinn hækkaði sífellt þar til undir lok aldarinnar að hann hrapaði á skömmum tíma niður í nokkra millimetra og markaði um leið ný spor í ímynd kvenleikans. Í kjölfar frönsku bylting- arinnar 1789 virtist sem hællinn hæfði ekki táknmynd þeirra almennu og félagslegu umbóta sem byltingarmenn höfðu lagt áherslu á, frá einræði til lýðræðis, hann hæfði ekki ímyndinni um konuna sem móður og húsmóður. Svo mikið er vald skó- hælsins að hann getur veist að ríkjandi stjórn- arháttum. Hælnum var þó ekki hægt að halda lengi niðri því upp úr miðri 19. öld fór hann að teygja sig aftur upp á við hjá velmegandi fólki. Þótti hann ögrandi og jafnvel erótískur sem sumir túlkuðu sem skilaboð um siðspillingu, aðrir sem frelsi og sjálfstæði. Örar þjóðfélagsbreytingar á 20. öldinni og aukin þátttaka kvenna í samfélaginu í kjölfar iðnbyltingarinnar og heimstyrjaldanna gerðu skóhælinn á þeirri öld að eign allra kvenna, án tillits til stéttar eða stöðu. Síðan hefur hællinn farið upp og niður, eftir straumum og stefnum hverju sinni, en árið 2007 eru háir hælar á toppnum. Í öllum útgáfum. Valdið er (oftast) kvenna að velja. Reuters Óbrigðull Hinn norskættaði Peter Dundas hannaði þessa skó fyrir Emanuel Ungaro, fulkom- lega óbrigðul hönnun sem lítur ekki síður vel út á hvolfi. Óskundi Geggjaðir skór eftir japanska hönn- uðinn Junko Shimada sem vekur ósvikinn en óskilgreindan óskunda fyrir unnendur skó- skúlptúra. Ótvíræður sigurvegari þetta árið. Ómótstæðilegir Sænski hönnurinn Paulo Melim Andersson er á rauðum skóm og þykk- um stöðugum hælum fyrir tískuhúsið Chloe. Óhó Þessi ómótstæðilegu stígvél kalla óhjá- kvæmlega á athygli! Erótískur hællinn virkar síðan eins og dávaldur … Ódauðleg Hin svarthvíta litasamsetning er ódrepandi draumur, sem á eftir að sjást víða á næstunni. Hinni króatísku Ivönu tekst sérlega vel upp með formin í þessari hönnun fyrir tískuhúsið Celine. Ósvikinn Skemmtilegur bræðingur 17. og 21. aldar hjá hinni portúgölsku Christinu Miguel og ósvikin hönnun fyrir næsta haust. Óbærilegir Þessir kvenmannsskór frá Gianni Versace eru einfaldlega óbærilega flottir. Þeir eru þó líklega ekki alveg nógu hentugir fyrir þær okkar sem ganga á milli staða, einkabílstjóri og þotulíf er líklega lykilorðið fyrir þennan fótabúnað. Ófælinn Þessir skór Luis Onofre er ekki hannaðir fyrir fælnar konur, þeir kalla á áræði, jafnvel ófyrirleitið. Óforbetranlegur Breski hönnuðurinn John Galliano er óforbetranlegur. Hér er hann með nýstárlega skóhönnun fyrir tískuhús Dior. Óbeygjanlegur John Galliano lætur ekki beygja sig og kemur alltaf fram með ný til- brigði við tískuna, þetta er frábært! Í HNOTSKURN »Virðulegir hönnuðir einsog Salvatore Ferragamo höfðu í lok fjórða áratugarins komið hinum hagnýta fyllta hæl í tísku. Hann þótti þó og þykir enn ekki ná hinum eró- tíska þokka mjórri hæla sem sveigjast líkt og Eiffel-turninn ef honum væri snúið á hvolf. »Seint á tíunda áratugnumvoru nöfn Manolos Blahnik og Christians Louboutin undir hinum háa hæl tískunnar og sögupersónur eins og Carrie Bradshaw í Sex in the City gáfu hugtakinu „skósjúk“ nýja merkingu – og í hugum sumra jákvæða! Vald hinna háu hæla

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.