Morgunblaðið - 17.03.2007, Page 8
8 LAUGARDAGUR 17. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Ævintýrin gerast oft í útlöndum og nú er komið að nýrri ferð sem verður
heilt ævintýri. Flogið til Mílanó, ekið til Genúa og siglt þaðan til Olbia á
Sardiníu, en þessi undurfagra eyja tilheyrir Ítalíu. Ekið til Santa Margherita di
Pula hjá Cagliari, höfuðborg eyjarinnar. Skemmtilegar og ljúfar
skoðunarferðir um suðurhlutann og þegar komið verður til Porto Cervos um
norðurhluta eyjarinnar. Siglt frá Sardiníu um Bonifaciosundið til Bonifacio á
frönsku eyjunni Korsíku. Ekið til höfuðborgarinnar Ajaccio, fæðingarborgar
Napóleons Bonaparte. Skoðunarferð um suður- og miðhluta eyjarinnar,
síðan ekið til Bastia en þaðan verður skoðunarferð um Capa Cors tangann,
sem er annálaður fyrir fegurð sína. Nú verður siglt til Livorno á meginlandinu
og síðan siglt frá Plombino til Elbu, sem var afhent Napóleon til umráða í
tæpt ár. Ferðin okkar endar á afslöppun í Forte dei Marmi á Ítalíu.
Fararstjóri: Hófý
Verð: 248.800 kr. Örfá sæti laus!
SUMAR 6
Korsíka - Elba
23. júní - 7. júlí
Sp
ör
-
Ra
gn
he
ið
ur
In
gu
nn
Ág
ús
ts
dó
tti
r
Sardinía -
s: 570 2790www.baendaferdir.is
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R
Þjónn, það er reikningur í súpunni minni. Ég veit það, herra, við áttum bara enga flugu.
VEÐUR
Dofri Hermannsson, fram-kvæmdastjóri þingflokks Sam-
fylkingarinnar, skrifar grein í
Morgunblaðið í gær. Þar segir: „Í
fréttaskýringu aðstoðarritstjóra
Morgunblaðsins á forsíðu í gær var
enn gerð tilraun til að gera um-
hverfisstefnu Samfylkingarinnar
tortryggilega. Nú með því að segja
að Samfylkingin hafi þagað um um-
hverfismálin í eldhúsdagsumræð-
um. Það er í fyrsta lagi ekki rétt, í
öðru lagi hefur
enginn flokkur
sett umhverf-
isstefnu sína
fram á jafn skýr-
an hátt og Sam-
fylkingin og í
þriðja lagi er því
miður nauðsyn-
legt að tala um
fleira.“
Það, sem fer svona fyrir brjóstið áDofra, er eftirfarandi máls-
grein í fréttaskýringunni: „Nánast
alger þögn talsmanna Samfylking-
arinnar um umhverfismálin segir
svo einhverja sögu um mismunandi
skoðanir á málaflokknum þar á
bæ.“
Enginn af talsmönnum Samfylk-ingarinnar í umræðunum
nefndi umhverfið á nafn. En þegar
ræða Ingibjargar Sólrúnar Gísla-
dóttur er lesin kemur auðvitað í ljós
skýr umhverfisstefna, sem furðu-
legt er að hafi farið framhjá aðstoð-
arritstjóra Morgunblaðsins.
Ingibjörg sagði: „Við eigum aðsetja hagvexti Íslands þann
ramma að hann byggi á virkjun
hugaraflsins, góðri menntun, þekk-
ingu á endurnýjanlegum orkugjöf-
um, sókn á alþjóðamörkuðum, feg-
urð og hreinleika landsins …“
Aðrir flokkar hafa varla sett um-hverfisstefnu sína fram með
skýrari hætti. Það verður ekki und-
an því vikizt að biðjast afsökunar á
frumhlaupi hins unga aðstoðarrit-
stjóra.
STAKSTEINAR
Dofri
Hermannsson
Afsakið
SIGMUND
!
"#
$ %&
' (
)'
* +,
- %
.
/
*,
""# #$#
$
""
01 0
2
31,
1 ),
40
$
5 '67
8 3#'
%
9
)#:; ##
! " # "$
% $ & ' (
" "
) ##: )
& ' (#
#'#
)
<1 <
<1 <
<1
&("#*!+#,"-
=
5
1
.')#
##/!!#"
#""0# /
#'
#
.
!#'$
:
1#2#+#'#3
)!0
## ("#("#
-/
"#
$#&
)# #1#"#3!0
##-
#'$
4 #
##'$
)
1
0#'##+#"# #!#'
0##-
'
/$#5("#'
!#
')!$##6
##
##
"$
7/""
# #88
"# #9
#*!
2&34 >3
>)<4?@A
)B-.A<4?@A
+4C/B (-A
0
0
2$ %$ $ 2$ %$ $ $
%$ %$ %$ %$ $ $ $ $
$2
0
0
0
0
0
0
0
0
0%
0
0
0
0
0
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir | 15.
mars
Eldhúsdagur
Ég hef sjaldan fylgst
með eldhúsdags-
umræðum af meiri at-
hygli en nú. Ingibjörg
Sólrún bar af for-
ystumönnum flokk-
anna, bæði í fram-
göngu og málflutningi. Það er í valdi
kvenna á höfuðborgarsvæðinu að
gera kosningarnar í vor sögulegar
og gera konu – reynda konu, fyrr-
verandi borgarstjóra í Reykjavík –
að fyrsta forsætisráðherra Íslands.
Meira: astar.blog.is
Andrés Jónsson | 15. mars 2007
Báðir bestir í
ánægjuvoginni
Það kitlaði nú aðeins
hláturtaugarnar að
fletta Blaðinu í morgun
og sjá að bæði Byko og
Húsasmiðjan eru að
auglýsa að fyrirtækið
hafi komið best út úr ánægjuvog
Gallup.
Húsasmiðjan er með mjög „mál-
efnalega“ mynd af tveimur súlum
þar sem þeirra súla er nærri því
tvisvar sinnum stærri en súla Byko.
Meira: godsamskipti.blog.is
Ragnhildur Sverrisdóttir | 16. mars
Klaufamamman
Snjór yfir öllu og held-
ur jólalegt um að litast
í miðjum mars. Það er
hins vegar öllu verra
að Kata er í Boston og
þar spá þeir miklum
hvelli síðdegis, svo hún
óttast að verða veðurteppt í snjó-
komunni. Ég er strax farin að kvíða
því að þurfa að setja mig í stellingar
og hjálpa tuttugu litlum 5 og 6 ára
ballerínum að máta búningana sína
fyrir sýninguna sem verður eftir tíu
daga.
Meira: ragnhildur.blog.is
Ómar Ragnarsson | 16. mars 2007
Áhætta á kostnað
þjóðarinnar
Í frétt í Blaðinu í dag
sést að nú er að koma í
ljós hluti af því sem ég
benti á í bókinni
„Kárahnjúkar – með
og á móti“, og fyrir
hálfu ári í áttblöðungnum „Íslands
þúsund ár“. Þar var eftirtalin til-
vitnun í álit lögfræðings Landsvirkj-
unar:
„… virkjunin er erfið og áhættu-
söm jaðarframkvæmd í land-
fræðilegu, tæknilegu, umhverfislegu
og markaðslegu tilliti, – er í raun ey-
land í raforkukerfinu og rýrir það
gildi vatnsréttinda. Ekki er hægt að
útiloka að stofnkostnaður fari fram
úr áætlunum vegna tæknilegra örð-
ugleika á byggingartíma og rekstr-
arkostnaður Hálslóns geti orðið um-
talsverður ef beita þurfi ítrustu
mótvægisaðgerðum vegna skilyrða
um umhverfisþætti.“
Á sínum tíma sagði Halldór Ás-
grímsson að Impregilo hefði bjargað
virkjuninni með lágu tilboði sínu því
hin tilboðin hefðu verið svo há að úti-
lokað hefði verið að taka þeim –
virkjunin hefði þá ekki skilað arði.
Raunar er arðurinn sem virkjunin
átti að skila svo lítill að ekkert einka-
fyrirtæki, stórt eða smátt, hefði lagt
í þessa framkvæmd með svo lágri
arðprósentu.
Einn af talsmönnum NCC sagði
mér að tilboðið hjá þeim hefði verið
jafn hátt og raun bar vitni vegna
þess að auðséð var að mikil áhætta
fylgdi verkefninu og það væri mjög
flókið. Ég benti NCC-manninum á
að Impregilo hefði ekki látið þetta
aftra sér. Hann sagði þá að öðru
máli gilti um Impregilo – þeir hefðu
á sínum snærum einhverja bestu og
hörðustu lögfræðinga Evrópu. Nú
hefur komið í ljós að gangagerðin er
langt á eftir áætlun og stefnir í háar
sektagreiðslur Landsvirkjunar til
Impregilo.
Impregilo-menn geta verið róleg-
ir, þeir vita að verkið er ríkistryggt.
Íslenskir ráðamenn geta líka verið
rólegir, þeir vita að dæmið verður
ekki allt gert upp fyrr en eftir kosn-
ingar og að þá muni kjósendur borga
milljarða umframkostnað og vera
búnir að gleyma öllu eftir fjögur ár
þegar bygging nýrra álvera og virkj-
ana verður á fullri ferð.
Meira: omarragnarsson.blog.is
BLOG.IS