Morgunblaðið - 17.03.2007, Side 10
10 LAUGARDAGUR 17. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ALÞINGI
Biðstaða á Alþingi
BIÐSTAÐA er líklega besta lýsingin
á stemmningunni í þinghúsinu í gær.
Þingflokksformenn hittust reglulega á
fundum til að reyna að semja um
þinglok. Á göngunum var rætt um að
samningsmarkmið bæði stjórnar og
stjórnarandstöðu væru óljós. Kost-
urinn og gallinn væri að ekkert stórt
deilumál lægi fyrir en þá þyrfti að
semja um mörg smærri mál.
Sauðféð hitamál
ÞRIÐJA umræða um sauðfjársamn-
inginn tók lungann úr deginum en
hann hefur í það
heila verið ræddur
í tæpar 13 klukku-
stundir. Umræðan
hefur farið um víð-
an völl, allt frá
landbún-
aðarstefnu Evr-
ópusambandsins
og upp í hvort
Steingrímur J.
Sigfússon sé kommúnisti og þá
hvernig kommúnisti. Í gærkvöld voru
svo loks greidd atkvæði um samning-
inn og aðeins einn þingmaður, Pétur
H. Blöndal, greiddi atkvæði á móti.
Sagði Pétur íslenska landbúnaðinn
hafa búið við niðurjörvað sovétkerfi og
sauðfjársamningurinn væri slæmur
fyrir neytendur sem og skattgreið-
endur. Fimmtán þingmenn sátu hjá.
Um daginn og veginn
ÞEGAR þingmenn eru ekki allir á
hlaupum verður gleggra að Alþingi er
bara venjulegur vinnustaður. Þá situr
fólk úr öllum flokkum saman í kaffinu
og ræðir ýmis mál, allt frá Smáralind-
arbæklingnum upp í nýjustu spá Fitch
Ratings.
Dagskrá þingsins
ÞINGFUNDUR hefst kl. 10:30 í dag
og gert er ráð fyrir að þetta verði
síðasti starfsdagur þingsins í bili.
Pétur H. Blöndal
STEFNT er að því að Alþingi komi saman í síðasta sinn
fyrir kosningar í dag þótt enn bíði mörg þingmál af-
greiðslu. Þingflokksformenn komu oft saman í gær til
að reyna að ná samningum um þinglok og á meðan sil-
aðist dagskráin áfram á hraða snigilsins. Helsta tæki
stjórnarandstöðunnar í samningum er að geta „rætt
málin ítarlega“ nema hún fái eitthvað fyrir sinn snúð
en stjórnarflokkarnir hafa að sjálfsögðu meirihluta í
þingi. Undir kvöld í gær glitti aðeins í samkomulag en
samkvæmt heimildum Morgunblaðsins liggja nokkur
mál undir og má allt eins búast við að þau verði ekki af-
greidd. Sem dæmi má nefna frumvarp um auðlindir í
jörðu og þ.a.l. meginreglur umhverfisréttar, breyt-
ingar á lögum um vátryggingasamninga, samgöngu-
áætlun fyrir árin 2007–2018 (styttri áætlunin fer líkast
til í gegn), vegalög og stofnfrumufrumvarpið.
Morgunblaðið/Kristinn
Glittir í samkomulag um þinglok
„MÉR ER næst að halda að þeir hafi
í rauninni ætlast til þess að stjórn-
arandstaðan dræpi þennan óskapn-
að fyrir sér,“ sagði Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, formaður Samfylking-
arinnar, og vísaði til þess að stjórn-
arflokkarnir segðu stjórnarandstöð-
una bera ábyrgð á lyktum
auðlindafrumvarpsins. Formenn
stjórnarandstöðuflokkanna boðuðu
til blaðamannafundar í gær til að
skýra sína hlið og aðkomu að mál-
inu. Þeir sökuðu formenn stjórn-
arflokkanna um sjónarspil og sögðu
enga tilraun hafa verið gerða til
samstarfs um auðlindafrumvarpið.
Steingrímur J. Sigfússon, formaður
Vinstri grænna, vitnaði í útvarps-
viðtöl við Jón Sigurðsson, formann
Framsóknarflokksins, þar sem sá
síðarnefndi segir enga ástæðu til að
vinna málið í samvinnu við stjórn-
arandstöðuna eða að vinna það inn-
an stjórnarskrárnefndar, enda sé
um ákvæði í ríkisstjórnarsáttmál-
anum að ræða. „Það hefur aldrei
verið leitað eftir neinu samstarfi við
okkur,“ sagði Steingrímur og bætti
við að stjórnarandstaðan hefði ekki
verið með neinar kröfur um að þing-
ið færi heim fyrir helgi og vel verið
tilbúin að nota meiri tíma í að vinna
að málinu. Því sé rakalaust að ætla
að kenna stjórnarandstöðunni um
málalyktir. Guðjón Arnar Krist-
jánsson, formaður Frjálslynda
flokksins, sagði ljóst að menn hefðu
aldrei ætlað sér með þetta í gegn.
„Þetta er hreinlega eins og uppsett
leikrit,“ sagði Guðjón.
Sjónarspil og
uppsett leikrit
Jóhanna Sigurðardóttir | 16. mars
Geðþóttaákvarðanir
Fjármálaóreiðan hjá
Byrginu varð til þess
að ég beindi fyrirspurn
til fjármálaráðherra
um fjárframlög til aðila
utan ríkiskerfisins.
Auk þess var spurt um
hvaða verklagsreglur giltu um þessi
framlög og hvernig eftirliti væri
háttað. Það kemur á óvart hvað hér
er um svimandi háar fjárhæðir að
ræða eða 76 milljarða á árunum 2005
og 2006, auk þess sem eftirliti og
samræmdum verkalagsreglum er
verulega ábótavant. Of mikið er um
fjárframlög sem byggja á geðþótta-
ákvörðunum ráðherra.
Meira: www.althingi.is/johanna
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
„AUÐVITAÐ er það ekkert gaman-
mál þegar einkunn lækkar eins og
gerðist í gær [fyrradag] og það ber að
taka það alvarlega,“ sagði Geir H.
Haarde forsætisráðherra í umræðum
um einkunnalækkun matsfyrirtækis-
ins Fitch Ratings en Steingrímur J.
Sigfússon, þingmaður Vinstri
grænna, óskaði eftir viðbrögðum ráð-
herra á þingfundi í gærkvöld. Geir
lagði þó áherslu á að lækkunin væri
ekki vegna lántöku ríkissjóðs, sem
væri nánast skuldlaus, heldur vegna
þess að einkaaðilar og sérstaklega
fjármálastofnanir hafi tekið mikið af
lánum erlendis.
Kemur þetta ríkissjóði við?
Árni M. Mathiesen fjármálaráð-
herra tók í sama streng og sagði
breytinguna ekki hafa áhrif á ríkis-
sjóð þar sem hann væri ekki að taka
lán. „En þetta getur haft áhrif á lán-
töku bankanna vegna þess sem þeir
eru að lána á innlendum markaði,“
sagði Árni og bætti við að matið þyrfti
ekki að vera neikvætt þar sem það
styddi vaxtastefnu Seðlabankans.
Steingrími þótti ekki mikið til svar-
anna koma og sagði þjóðarskútuna
ekki geta siglt svona í mörg ár til.
„Hefur þeim yfirsést, hæstvirtum
ráðherrunum, að það er talað um að
líkur hafi aukist verulega á harðri
lendingu í hagkerfinu?“ spurði Stein-
grímur og sagði undarlegt að halda
því fram að þetta kæmi ríkissjóði ekki
við. Veruleikinn væri sá að skulda-
byrði þjóðarbúsins væri að aukast
gríðarlega. „Það er sama afskipta-
leysisveruleikafirringarstefnan
áfram,“ sagði Steingrímur.
Ekkert gamanmál
Sama „afskiptaleysisveruleikafirringarstefnan“ áfram
ÞETTA HELST …
AÐ ÖLLU óbreyttu verða engar
breytingar gerðar á stjórnarskrá á
þessu þingi. Stjórnarskrárnefnd,
sem hóf störf 2005, skilaði af sér
fyrr á árinu og lagði til breytingar
á ákvæði um það hvernig megi
breyta stjórnarskrá og tók þar inn
þjóðaratkvæðagreiðslur. Geir H.
Haarde, forsætisráðherra, sagði í
viðtali við RÚV í gær að það væri of
seint að leggja frumvarpið fram og
ekki væri algjör samstaða um orða-
lag ákvæðisins.
Engin breyting
ÞINGMENN BLOGGA
UMHVERFISNEFND vonast til
þess að fleiri landsvæði bætist við
Vatnajökulsþjóðgarð með tímanum
og nefnir sérstaklega Langasjó í því
sambandi. Þetta kemur fram í áliti
nefndarinnar sem hún skrifar öll
undir en þar er lagt til að frumvarp
um þjóðgarðinn verði samþykkt með
nokkrum breytingum, m.a. að kveðið
verði á um að umhverfisráðherra
friðlýsi Vatnajökul og áhrifasvið
hans. „Svæðið sem gert er ráð fyrir
að þjóðgarðurinn taki til við stofnun
nær til átta sveitarfélaga og þekur
um 13% af yfirborði Íslands. Nefnd-
in telur mikilvægt að sátt ríki um
þau landsvæði sem verða innan þjóð-
garðsins,“ segir jafnframt í álitinu.
Langisjór
friðlýstur?
Leiðrétt
SMÁ misskilnings gætti í þessum
dálki í gær þar sem sagt var að at-
kvæðagreiðslur þurfi að fara fram í
upphafi fundar. Rétt er að venjulega
fara þær fram í upphafi fundar en
mega fara fram síðar. Hins vegar get-
ur þurft að slíta fundi til að setja mál
á dagskrá, þ.m.t. atkvæðagreiðslur.