Morgunblaðið - 17.03.2007, Page 17

Morgunblaðið - 17.03.2007, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2007 17 Morgunblaðið/Kristinn Afrek Sigurður Einarsson sagði að í ljósi neikvæðrar umræðu um íslensku bankana í fyrra og mikils andbyrs sem Kaupþing banki hefði mætt um tíma mætti segja að afkoman í fyrra væri ekkert minna en ótrúlegt afrek. Eftir Arnór Gísla Ólafsson arnorg@mbl.is KAUPÞING banki hefur eins og er fé til þess að kaupa upp banka eða fjár- málafyrirtæki fyrir 1,5 milljarða evra eða jafngildi um 135 milljarða ís- lenskra króna. Þá hefur stjórn bank- ans fengið heimild til þess að auka hlutafé um 20% sem miðað við núver- andi gengi bréfa Kaupþings myndi skila honum hátt í 150 milljörðum króna. Engin ákvörðun hefur þó verið tekin um kaup á banka eða fjármála- fyrirtæki að svo stöddu en Kaupþing banki vill vera í stakk búinn til slíkra kaupa ef rétt tækifæri býðst. Þetta kom fram í ræðu Sigurðar Einarssonar stjórnarformanns Kaup- þings banka á aðalfundi bankans í gær. Þegar þetta tvennt er tekið saman gæti Kaupþing banki haft burði til þess að ráðast í uppkaup fyrir nær 300 milljarða íslenskra króna og raunar líklega fyrir langt á fjórða hundrað milljarða króna ef gripið væri til annarra aðgerða eins og er- lend greiningarfyrirtæki hafa bent á. Ekki okrað á Íslandi Sigurður greindi sérstaklega frá því í ræðu sinni að af um 100 milljarða króna hagnaði Kaupþings banka í fyrra hafi innan við þrír milljarðar, eða innan við 3%, komið af viðskiptum bankans við 75 þúsund einstaklinga og 15 þúsund lítil fyrirtæki hér á landi. Sigurður tók fram að hann gerði þessar tölur opinberar til að svara ásökunum um að bankinn okr- aði á viðskiptavinum sínum á Íslandi með óeðlilega háum vöxtum og þjón- ustugjöldum. Sigurður fjallaði um mikinn vöxt fjárhagsgeirans og ábata þjóðfélags- ins alls af þeim vexti. Hann minnti á að nú væri svo komið að Kaupþing banki einn hefði greitt nær þrisvar sinnum meira í skatta til hins opin- bera í fyrra en sjávarútvegurinn allur til samans. Því væri mikilvægt að að- gerðir stjórnvalda tækju mið af styrk og vexti fjármálageirans. Kaupþingsmenn stórhuga Á SÍMAFUNDI með sérfræðingum Fitch Ratings í framhaldi af lækkun á lánshæfiseinkunnum ríkissjóðs var mikið fjallað um ójafnvægið í þjóð- arbúskapnum og að allt útlit væri fyrir að ríkissjóður yki á vandann á þessu ári fremur en hitt. Frá þessu er greint í Vegvísi Landsbankans og bent á að ekkert hafi verið fjallað um hættuna á því að ríkissjóður gæti ekki staðið við skuldbindingar sínar. „Í ljósi þess hve skuldir ríkisins eru lágar og landsframleiðsla hér á landi há, vaknar óneitanlega sá grunur að Fitch telji sig verða að gefa ríkisvaldinu einkunn fyrir hag- stjórn, fremur en einkunn fyrir skil- vísi, segir í Vegvísi Landsbankans. Einkunn fyr- ir hagstjórn? SKIPTUM á þrotabúi verðbréfafyr- irtækisins Burnham á Íslandi lauk þann 28. febrúar síðastliðinn. Greiddar voru liðlega 15,9 milljónir króna af forgangskröfum í búið, sem var um 74% af þeim kröfum. Ekkert var greitt til samþykktra almennra krafna, en þær námu um 373 millj- ónum króna. Burnham á Íslandi var tekið til gjaldþrotaskipta í nóvember 2001 og var Sigurmar K. Albertsson hæsta- réttarlögmaður skipaður skipta- stjóri í þrotabúinu. Lýstar kröfur í búið námu samtals um 395 milljón- um króna. Skiptum lok- ið á þrotabúi Burnham ATORKA hefur aukið hlut sinn í gámaflutningafyrirtækinu Inter- Bulk Investments Plc. Fyrir átti fé- lagið um 24% en með kaupum á 100 milljónum hluta fyrir 2,6 milljarða króna, í sérstakri hlutafjáraukningu, er hluturinn kominn í rúm 40%. Í tilkynningu til kauphallar segir að Atorka fjármagni kaupin með handbæru fé, InterBulk hafi fengið samþykki yfirtökunefndar til að eignarhlutur Atorku fari yfir almenn yfirtökumörk eftir hækkunina. Fyr- irhuguð hlutafjárhækkun, sem var gerð vegna kaupa á félaginu United Transport International (UTI), er háð samþykki hluthafafundar í Int- erbulk. Atorka kom- ið með 40% í InterBulk ♦♦♦ KAUPÞING banki undirbýr nú starf- semi í Mið-Austurlöndum. Starfsem- inni verður stýrt frá Persaflóa og er bankinn í viðræðum við eftirlitsaðila á svæðinu til að afla sér nauðsynlegra starfsheimilda. Í tilkynningu Kaupþings banka kemur fram að í fyrstu muni bankinn leggja áherslu á fjárfestingarbanka- starfsemi og eignastýringu á svæð- inu. Kaupþing hefur ráðið Umar Ali sem framkvæmdastjóra starfseminn- ar í Mið-Austurlöndum. Hann hefur fimmtán ára reynslu á alþjóðlegum fjármálamörkuðum og starfaði áður hjá HSBC Bank og NatWest Mark- ets. Kaupþing gerir ráð fyrir að ráða um það bil 10 til 15 starfsmenn á svæðinu á fyrsta starfsárinu. Kaupþing til Mið- Austurlanda ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.