Morgunblaðið - 17.03.2007, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2007 23
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
Þetta gengur út á það að við stokkumupp alla íslenskukennslu í árgang-inum, breytum kennsluháttunum ogvinnum upp ný kennslugögn. Við fór-
um út í þetta af því að krakkar eru oft hundleið-
ir í skólanum en með þessu náum við að fá
hvern og einn til að vinna eftir eigin mark-
miðum,“ segir Guðbjörg Dóra Sverrisdóttir.
Hún, ásamt Guðbjörgu Grímsdóttur, kennir ís-
lensku í 9. og 10. bekk Vallaskóla á Selfossi eftir
ákveðinni leið sem nefnd hefur verið Valla-
skólaleiðin og unnin var eftir hugmynd Guð-
bjargar Dóru.
Hún segist hafa gengið með þessa hugmynd
lengi en hún hafi orðið að veruleika eftir að
kennarar Vallaskóla fóru í kynnisferð til Hol-
lands og kynntu sér einstaklingsmiðað, lotu-
bundið nám í svonefndum Dalton-skóla. Þær
sögðust fá góða hvatningu frá skólanum til að
vinna að þessu þróunarverkefni sem hefði verið
í gangi í Vallaskóla á Selfossi í tvö ár.
Núna er aðferðafræðin notuð í íslensku-
kennslu í 9. og 10. bekk skólans og gengur mjög
vel. Hugmyndin er að beita aðferðinni í 8.–10.
bekk og vinna þær nöfnurnar að því að koma
upp kennsluefni fyrir 8. bekkinn. Þær eru þegar
byrjaðar að laga aðferðina að nýrri námskrá og
kynna Vallaskólaleiðina fyrir kennurum ann-
arra skóla en hugmyndin er að fjölfalda náms-
gögnin og selja öðrum skólum efnið.
Þriggja vikna lotur
Vallskólaleiðin í íslenskukennslu leggur til
grundvallar aðalnámskrá grunnskóla, aðferðir
Dalton-skólans, hlítarnám, lotubundið nám sem
er einstaklingsmiðað og getumiðaðar kröfur til
nemenda. Horft er heildstætt á allt námsefni
árgangsins. Skólaárinu er skipt upp í þriggja
vikna lotur og hefur hver lota sitt meginþema. Í
hverri lotu er unnið með alla þætti íslensku-
kennslunnar og sem dæmi nefna þær að Gísla
saga Súrssonar var kennd á þremur vikum. Í
hverri lotu eru fastir skiladagar verkefna og
ákveðnir prófdagar. Kennararnir fara yfir öll
verkefni og einkunnir eru sundurliðaðar. Eftir
innlögn í upphafi geta nemendur unnið með efn-
ið að vild.
„Þau vinna í tímum og heima, ef þau klára
ekki í tíma verða þau að vinna heima til að halda
áætluninni. Síðan taka þau sjálfspróf og svo
próf í lok lotunnar. Nái þau ekki viðmiðunartölu
sinni þurfa þau að taka prófið aftur,“ segir Guð-
björg Dóra. Hún sagði einnig að viðmiðunartala
hvers nemanda væri fundin með mati kenn-
arans og síðan eftir viðtal við nemandann þar
sem honum gefst færi á að setja sér markmið
sem síðan er látið gilda. Þegar öllum lotum vetr-
arins er lokið tekur við upprifjun á öllu efni
vetrarins fram að samræmdum prófum hjá 10.
bekk.
„Krakkarnir taka þessu vel og hafa góða til-
finningu fyrir því að þeir séu að læra. Þeim
finnst gott að geta stjórnað námi sínu í lotunni
og kunna vel við aðhaldið sem felst í lotukönnun
og sjálfsprófinu. Það sem vinnst með þessu er
að krakkarnir læra að skipuleggja námið og
þeir verða að fletta sjálf upp í bókum. Svo í lok
námstímans verða þau að skila öllu sem þau
hafa unnið og við förum yfir allt saman,“ sagði
Guðbjörg Grímsdóttir.
„Já, það virkar mjög áhugahvetjandi fyrir
þau að hafa getumiðaðar kröfur og þau finna vel
að þau eru að keppa við eigin viðmiðanir. Það er
frekar tilhneiging hjá nemendunum að setja sér
of háar viðmiðanir en ef það gerist ræðum við
málið við þá og finnum með þeim rétta tölu,“
sagði Guðbjörg Dóra.
„Mér finnst krakkarnir halda betur út í skól-
anum, þeir eru áhugasamir og verða ekki eins
leiðir þegar líður á veturinn eins og maður varð
svo oft var við áður og margir kennarar og for-
eldrar þekkja þann leiða,“ sagði Guðbjörg
Grímsdóttir. „Já, svo kemur þetta líka fram í
því að börn sem aldrei höfðu áhuga á að lesa eða
vinna með námsefnið eru komin með meiri
áhuga og vinna mikið sjálfstætt. Síðan er það
líka þannig að þó að við forföllumst einn dag
kemur það ekki að sök, krakkarnir geta vel
unnið í námsefninu, sagði Guðbjörg Dóra.
Vallaskólaleiðinni fylgir mikill verkefnabanki
sem hefur verið unninn upp til að nota í hverri
lotu og nemendur fá í hendurnar einkunnablað
sem hefur verið staðlað fyrir þessa kennslu-
hætti og nemandinn sér þar hvernig honum
miðar og kennarinn getur einnig kallað fram
viðmiðun hópsins og hvernig honum miðar sem
heild. Síðan segja þær það áberandi að einbeit-
ing hvers nemanda að eigin markmiðum geri að
verkum að truflun er í lágmarki í hverjum tíma
en í Vallaskóla er unnið með blandaða bekki
hvað getu snertir.
Verkefnið unnið án styrkja
Verkefnið Vallaskólaleiðin hefur verið unnið
án styrkja en skólastjórnendur hafa sýnt því
mikinn áhuga og hvatt kennarana áfram. „Ég
byrjaði í skólanum í haust og fyrir mér var
þetta hrein opinberun og svar við breyttum
kennsluháttum, ég hreinlega kolféll fyrir þessu.
Það er mikil fjölbreytni í kringum þetta og
krakkarnir eru virkir og áhugasamir, knúnir
áfram af lotukerfinu,“ sagði Guðbjörg Gríms-
dóttir. „Mér finnst þetta hafa tekist vel. Það er í
þessu eins og öðru að sumir vilja ekki læra en
við höfum fengið mikla hvatningu frá foreldrum
og líka frá nemendunum sem eru miklu ánægð-
ari með námið sitt, það er mikils virði og gefandi
að finna það. Mér finnst fjölbreytnin skemmti-
leg og gaman að sjá áhugann ljóma af krökk-
unum þegar þeir keppast við verkefnin,“ sagði
Guðbjörg Dóra Sverrisdóttir og ennfremur að
með þessu kerfi væri það leikur einn að nem-
endur tækju þriggja ára nám í grunnskóla á
tveimur árum með þessari aðferð. Hún hefði
mikinn sveigjanleika sem mætti jafnvel nota til
þess að taka eina önn í framhaldsskóla til við-
bótar á meðan krakkarnir væru í 10. bekknum.
Síðan væri leikur einn að beita þessari aðferð á
aðrar kennslugreinar og ná enn frekari árangri
með nemendunum.
Nemendurnir mjög virkir í náminu
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Kennsla Guðbjörg Grímsdóttir og Guðbjörg Dóra Sverrisdóttir, íslenskukennarar við Valla-
skóla á Selfossi, með kennslugögn Vallaskólaleiðarinnar fyrir framan sig.
Vallaskólaleiðin í
íslenskukennslu hefur
gefist mjög vel
Númer eitt í notuðum bílum
Laugavegi 174 sími 590 5000 Kletthálsi 11 sími 590 5040 www.bilathing.is
PAJERO – hörkugóð kaup
Nokkur dæmi um glæsilega MMC PAJERO hjá Bílaþingi HEKLU
MMC Pajero GLS 3,5 bensín
Sjálfsk. Árg. 06. Ek. 15.000 km.
32" dekk og Antera felgur, varadekkshlíf, dráttarbeisli.
Verð 4.790.000 kr.
Laugavegi
MMC Pajero Dakar 3,2 dísil
Sjálfsk. Árg. 05. Ek. 39.000 km.
Varadekkshlíf, dráttarbeisli.
Verð 4.550.000 kr.
Laugavegi
MMC Pajero GLS 3,2 dísil
Sjálfsk. Árg. 05 Ek. 54.000 km.
33" Anterabeyting, varadekkshlíf, dráttarbeisli.
Verð 4.690.000 kr.
Laugavegi
MMC Pajero GLS 3,2 dísil
Sjálfsk. Árg. 02. Ek. 104.000 km.
Varadekkshlíf, dráttarbeisli.
Verð 3.080.000 kr.
MMC Pajero GLS 3,2 dísil
Sjálfsk. Árg. 04. Ek. 60.000 km.
33" kantabreyting, varadekkshlíf, dráttarbeisli.
Verð 4.450.000 kr.
Laugavegi
MMC Pajero GLS 3,5 bensín
Sjálfsk. Árg. 05. Ek. 27.000 km.
35" kantabreyting, varadekkshlíf, dráttarbeisli.
Verð 4.850.000 kr.
Laugavegi Laugavegi