Morgunblaðið - 17.03.2007, Síða 25
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2007 25
EF STÆRÐIN Á ÍBÚÐINNI
ÞINNI KEMUR Í VEG FYRIR AÐ
ÞÚ GETIR BOÐIÐ GESTUM
HEIM
EKKI KENNA OKKUR UM
Hnota
Tilboð 89.000
Hæð 75 cm x lengd 183/263 x breidd 91,5
Ný gerð
Fáðu frían vörulista í verslun okkar
BoConcept®Íslandi
Faxafeni 8, 108 Reykjavík.
Sími 577 1170 - Faxnúmer 577 1172
www.boconcept.is
Hvar fást húsgögn sem sameina notagildi og frábæra hönnun?
Jú, hjá BoConcept® þar sem við leggjum metnað okkar í að ná fram því besta í öllum
framleiðsluvörum okkar - allt frá heildarhönnun til minnstu smáatriða.
Þú munt einnig sjá að verðið er jafn úthugsað og húsgögnin og aukahlutirnir.
Tíðarfarið í Þingeyjarsýslu hefur að
mörgu leyti verið mjög gott það sem
af er ári. Stórhríðardagar og ófærð
hafa ekki spillt samgöngum enda
hefur skóli ekki enn fallið niður
vegna veðurs. Mjólkurflutningar
hafa gengið ótrúlega vel og vegurinn
til Akureyrar hefur ekki lokast alveg
eins og stundum hefur gerst. Þá hef-
ur mikið hey sparast í hesta og jafn-
vel hænur hafa getað vappað úti á
bestu dögunum.
Þennan tíma hafa margir bændur
notað vel eins og t.d. með því að
keyra moði og öðrum heyleifum á
mela sem gott er að komast að á
hjarni yfir vetrartímann. Moðið er
dýrmætt efni sem mikið fellur til af á
þessum árstíma og því er frábært að
geta komið því þangað sem það
myndar jarðveg auk þess sem í því
er fullt af fræi.
Landgræðsluvinnan getur farið
fram árið um kring og með mark-
vissum aðgerðum hafa gríðarlega
stór svæði endurheimt landgæði sín
í héraðinu. Á komandi sumri munu
þingeyskir bændur bera á um 2000
hektara lands og er sumt af því landi
að fá sína fyrstu aðhlynningu. Það
verður mikil vinna við lokun rofa-
barða þar sem sáð er fræi með
áburðinum, einnig verða fleiri gróð-
urlausir melar teknir í meðferð en
nokkru sinni áður. Landbótabylt-
ingin hefur skilað miklu og nú er
verið að kortleggja þau svæði sem
grædd hafa verið upp í héraðinu og
er tilgangurinn með því að ná enn
betri árangri.
Nettenging er eitthvað sem margir
ræða sín á milli á bæjum, en tölvu-
samband í sveitunum er mjög til
vandræða. Víða er það svo að ekki
þarf að ræða það að stunda fjarnám
eða símenntun því gagnaflutningar
ganga ekki upp og þær endurbætur
sem gerðar hafa verið hafa ekki
virkað sem skyldi. Sendihraði er
mjög lítill og sumstaðar er það svo
að gsm-samband er alfarið úti eða ef
til vill bara í einum glugga í sumum
húsum. Þingeyingar eru yfirleitt
þolinmóðir menn en nú virðist sem
stíflan sé að bresta og safnað hefur
verið undirskriftum til þess að fá úr-
bætur í málinu. Það væri skemmti-
legt ef fólk í sveitunum gæti veitt sér
það að stunda ýmsa fjarvinnu með
auðveldari hætti en verið hefur.
Mjólkurverðlaunin voru nýlega af-
hent 14 þingeyskum mjólk-
urframleiðendum sem er met-
árangur á landsvísu og hvergi eru
úrvalsmjólkurframleiðendur hlut-
fallslega jafnmargir. Af þessum fjór-
tán eru 11 með venjuleg rörmjaltaf-
jós, sem sýnir að rörkerfin eru enn í
fullu gildi þrátt fyrir mikinn áróður
fyrir öflugri tölvutækni í mjaltabás-
um og mjaltaþjónum. Hins vegar
hafa menn ákveðnar áhyggjur af
framtíð kúabúskapar í héraðinu því
framkvæmdir hafa verið minni í
Suður-Þingeyjarsýslu en á öðrum
svæðum og ekki er vitað um nema
eitt fjós sem verður byggt á kom-
andi sumri.
Búkolla, þ.e. bókin „Byggðir og bú“,
er væntanleg úr prentun í næstu
viku og hafa margir beðið lengi með
eftirvæntingu eftir að sjá útkomuna.
Í þessu riti, sem verður í tveimur
bindum, verða myndir af öllum ábú-
endum og býlum í sýslunni og er
þetta þriðja bókin sinnar tegundar
sem kemur út um þetta efni. Und-
irbúningurinn hefur staðið í nokkur
ár og hefur ritstjórinn, Ragnar Þor-
steinsson í Sýrnesi, haft í nógu að
snúast undanfarið.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Blíðveðursdagar Hænsnin hafa
notið útivistar í góða veðrinu.
LAXAMÝRI
Atli Vigfússon fréttaritari
Sigurður Sigurðarsondýralæknir og félagi í Iðunni
afhenti Barböru Guðnadóttur,
menningarfulltrúa Ölfuss,
göndulbein úr rostungi til
varðveislu í væntanlegu
náttúrugripasafni í sveitarfélaginu.
Davíð Hjálmar Haraldsson orti:
Sigurður læknar dýr og drótt,
daglega bætir kvöl og mein.
Sigurður frúnum sinnir skjótt
því Sigurður – hann á rostungsbein.
Þá Kristján Eiríksson:
Sá er best þekkir sauðfjármein,
sérfræðingur í miltisbrandi
nú gefur töfrandi göndulbein
glæsikonum á Suðurlandi.
Davíð Hjálmar yrkir svo um alls
óskylt efni:
Senn kemur vorið með sóley og hrís,
sælu og leikgleði nýja,
tjaldurinn þvaðrar og tittlingur rís
úr túnfæti hátt upp til skýja.
Vakin er athygli á samkomu
Kveðanda og Harmonikkufélags
Þingeyinga í Skúlagarði sem hefst
kl. 21 í kvöld. Þar verður
áreiðanlega Ósk Þorkelsdóttir frá
Húsavík sem orti:
Það að hljóta eina ósk
er óskadraumur manna.
Kannski er þessi eðla Ósk
óskabarnið sanna.
Kristján Bersi Ólafsson fylgdist
með umræðum í bæjarstjórninni í
Kópavogi:
Í Kópavogi er fjör og fútt,
af fítonskrafti þar bókað.
Með því Gunnar að kalla KRÚTT
er kónginum sjálfum hrókað.
Hann bætir því við að sér finnist
að orðið krútt í þessu tilfelli ætti að
skiljast og lesast sem danskt orð,
þ.e. krudt, sem þýði byssupúður.
VÍSNAHORNIÐ
Af vori og
göndulbeini
pebl@mbl.is