Morgunblaðið - 17.03.2007, Page 28

Morgunblaðið - 17.03.2007, Page 28
Morgunblaðið/Árni Sæberg Stofan Sófinn var einu sinni hornsófi, en er nú orðin að löngum sófa eftir að Ásdísi datt í hug einn daginn að taka hornið úr. Stofuborðið Hönnun eftir Karsten Lauritsen, keypt í Designer Zoo í Kaupmannahöfn. Blómavasinn er nýjastur á heimilinu, fenginn í lítilli kjallarabúð í sömu borg. Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur join@mbl.is Þ egar ég kem inn á önnur heimili hættir mér til að fara að raða öllu upp á nýtt. Þetta er hálf- gerður veikleiki, sem hefur fylgt mér frá barnæsku. Þessi áhugi minn á fallegum hlutum og fallegri hönnun er að heita má með- fæddur enda tekur mitt eigið heimili sífelldum breytingum eftir því í hvernig skapi ég er hverju sinni. Maðurinn minn kippir sér svo sem ekkert upp við þessa áráttu mína og lætur þetta ekkert trufla sig. Hon- um virðist líka það bara nokkuð vel að búa hérna, en ef ég á að vera hreinskilin, þá segir heimilið líklega meira um mig en hann. Líklega myndi ég ekki vilja búa inni á hans heimili, ef hann fengi alfarið að ráða, því ég er handviss um að það yrði þá mjög látlaust og mínimalískt. Mér finnst svoleiðis heimili bæði flott og fín, en ég gæti aldrei búið í svoleiðis umhverfi,“ segir Ásdís Lovísa Grét- arsdóttir, íbúi í Vesturbænum. Ásdís er kennari að mennt, en stundar nú nám við Háskóla Íslands í náms- og starfsráðgjöf. Hún er nú að skrifa kennslubók í dönsku fyrir Námsgagnastofnun auk þess sem hún tekur að sér þýðingar, sem og að stílisera heimili í hjáverkum. Ásdís ólst upp í Árósum í Dan- mörku þar sem foreldrar hennar voru við læknanám. Hún bjó svo í Kaupmannahöfn með eiginmann- inum Kjartani Jóhannssyni Bendt- sen, SAP-ráðgjafa hjá Applicon, um fimm ára skeið á árunum 1995 til 2000, en þá komu þau heim og keyptu sér íbúð í fjölbýlishúsi við Hjarðarhaga. Þau eiga synina Tuma, Troels og Teit, sem eru tíu, níu og fjögurra ára, auk þess sem hinn vel aldi Brandur, sem er köttur af „British-shorthair“-kyni, er hluti af fjölskyldunni. Herbergi úr borðstofu „Það kemur ekkert til greina að fara úr Vesturbænum enda er ég ekki fyrir úthverfin. Þetta er eins og að búa í þorpi úti á landi. Hér er allt í göngufjarlægð og ég labba bæði út í háskóla og út á Þjóðarbókhlöðu.“ Íbúð fjölskyldunnar er 116 m² að stærð fyrir utan geymslur. Þrjú svefnherbergi voru fyrir, en nýlega hafa þau breytt borðstofunni í fjórða herbergið fyrir minnsta guttann á heimilinu. Herberginu er svo lokað með tvöfaldri eikar-rennihurð á kvöldin, en þaðan er gengið út á svalir, sem enn eru í jólabúningnum. „Mér myndi náttúrlega aldrei detta í hug að taka grenið og ljósin niður sjálf, en er búin að tuða svolítið yfir þessu þótt ég sé ekkert að stressa mig. Páskaungarnir í eldhúsinu eru til dæmis búnir að hanga þar uppi nú í tæpt ár og við erum svo heppin að það eru að koma aftur páskar. Goggurinn er bara dottinn af öðrum þeirra,“ segir Ásdís og hlær. Horfir á karakter fólks Ásdís hefur ásamt vinkonu sinni og arkitektinum Hildigunni Sverr- isdóttur tekið að sér nokkur verk- efni sem lúta að stíliseringu í heima- húsum enda eru húsbúnaðarblöð í hrönnum í rekka á ganginum. Hún segist þó ekki hafa á takteinum ein- faldar uppskriftir, heldur skipti kar- akter fólks öllu máli þegar verið er að búa til heimili við hæfi. „Ég byrja því á að heimsækja fólk til að hitta það á heimavelli, kynnast „týpun- um“ og sjá hvernig fólk býr. Ég hef hins vegar mikla fordóma gagnvart þeirri algengu iðju fólks nú orðið að henda frá sér fortíðinni í skiptum fyrir nýtt dót. Ég vil blanda saman gömlu og nýju. Minn eigin stíll einkennist kannski helst af litríku og lifandi heimili, eins og ísskápurinn minn ber vott um, sem betrekktur er með ljósmyndum af vinum og kunn- ingjum. Í grunninn vil ég hafa inn- réttingarnar svolítið hlutlausar, en skreyta og breyta með litlu hlutun- um til að hressa upp á heimilið endr- um og sinnum. Ég vil að heimili fólks segi til um hvers konar fólk býr þar.“ Húsfreyjan Ásdís Lovísa Grétarsdóttir í uppáhaldshorninu sínu. „Ég vil litríkt og lifandi heimili“ Ásdís Lovísa Grétarsdóttir hefur gaman af húmor í hönnun. Hún hefur líka gaman af að blanda saman gömlum munum og nýjum og vill helst hafa heimili sitt bæði litríkt og lifandi. Gæludýrið Kisinn Brandur er vel alinn og fellur vel inn í umhverfið. „Stundum er gott að vera inni í hvítu her- bergi og stundum er ég í miklu stuði fyrir að vera í æpandi appels- ínugulu herbergi. Ætli þetta sé ekki spurning um dagsformið.“ lifun 28 LAUGARDAGUR 17. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.