Morgunblaðið - 17.03.2007, Qupperneq 30
Eigi Ísland að geta vænstfarsældar til framtíðarþarf á næstunni að takaafstöðu í Evrópumálum
og fá botn í umræðuna um hvort Ís-
lendingar ætli að sækjast eftir aðild
að ESB og taka upp evru. Þetta
kom fram í ræðu Helga Magn-
ússonar, formanns Samtaka iðn-
aðarins á Iðnþingi, sem fram fór í
gær. Jafnframt
sagði Helgi nauð-
synlegt að skatt-
ar yrðu lækkaðir.
Helgi sagði í
ræðu sinni að
auka þyrfti skiln-
ing á mikilvægi
verðmætasköp-
unar í atvinnulíf-
inu jafnframt því
að auka jafnvægi
milli pen-
ingahyggju og
velferðar.
Hann sagði að
flestum þætti
sjálfsagt að
sækja meira fé í
sameiginlega
sjóði til mennta-
mála, heilbrigð-
isþjónustu og
fleiri þátta en
peningarnir yrðu ekki til af sjálfu
sér. „Þeir verða til í atvinnulífinu
og skattar til ríkis koma frá fólki og
fyrirtækjum af þeim tekjum sem
þar verða til,“ sagði Helgi. Þetta
vildi gleymast, til dæmis þegar
hvatt væri til þess að kjósa burt
fyrirtæki sem veitt hefðu atvinnu
og skapað tekjur í áratugi. „Álverið
í Straumsvík er bara eitt fyrirtæki
– þótt stórt sé og mikilvægt. Verði
það kosið burt, má búast við að
fólki finnist við hæfi að kjósa burt
önnur fyrirtæki sem þykja fyr-
irferðarmikil, gróf eða ljót í um-
hverfinu,“ sagði hann.
Þó að væri tímabært að staldrað
yrði við og spurt hvort við værum
ef til vill komin of langt í pen-
ingahyggjunni. „Er að birtast ný
sýn á lífsgæði og lífsgildi hér á
landi?“ spurði Helgi.
Sjálfstraust atvinnulífs vaxið
Hann sagði að sjálfstraust ís-
lensks atvinnulífs hefði vaxið mikið.
Nýjar greinar hefðu bæst við og at-
hygli beindist að nýrri útflutnings-
stóriðju Íslendinga á sviði end-
urnýtanlegrar orku þar sem
þekking væri í fyrirrúmi. „Tökum
vel eftir nöfnum fyrirtækja á því
sviði – hvort sem um er að ræða
ENEX, Geysi Green Energy,
HydroKraft Invest eða önnur sem
eiga eftir að koma fram á sjón-
arsviðið.
Þessi fyrirtæki byggjast öll á ís-
lenskri þekkingu og hefð á sviði
orkuframleiðslu.“ Það gilti um
orkunýtingu og útflutning þekk-
ingar á þeim vettvangi að mörkuð
stefna um nýtingu auðlinda og
metnaður til eflingar þekkingar og
menntunar yrðu að vera fyrir
hendi. Það væri því ekki tilviljun að
SI hefðu að undanförnu lagt meg-
ináherslu á menntamál.
Þá hefðu SI litið á stefnumótun í
auðlindanýtingu og náttúruvernd
sem grundvallarviðfangsefni. „Að
mati Samtaka iðnaðarins getum við
ekki lifað góðu lífi í þessu landi
nema nýta náttúruauðlindir á landi
og sjó til verðmætasköpunar – en
við megum heldur ekki vaða yfir og
spilla dýrmætum náttúruperlum í
þeirri viðleitni.“
Umræðan um aðild að
ESB algerlega óviðunandi
Um Evrópumálin sagði Helgi að
hingað til hefði umræðan um aðild
að ESB og evru verið algerlega
óviðunandi hér á landi. „Hún hefur
því miður ekki farið fram af neinni
yfirvegun og skynsemi. Hún hefur
verið sundurlaus og hættuleg. Því
miður hefur stundum skort á að
menn gæti orða sinna og gefið yf-
irlýsingar sem hafa verið til þess
fallnar að grafa undan trausti
gagnvart Íslendingum.“
Helgi benti á að stærri fyrirtæki
væru smám saman að segja skilið
við krónuna með því að færa fjár-
mál sín yfir í erlenda mynt. „Þetta
hefur verið orðað þannig að evran
sé að koma inn bakdyramegin. Aðr-
ir telja að með inngöngu værum við
að framselja yfirráðarétt þjóð-
arinnar yfir fiskimiðum og öðrum
nýtanlegum náttúruauðlindum og
gætum misst tökin á efna-
hagsþróun í landinu,“ sagði Helgi.
Næsta kjörtímabil myndi ráða úr-
slitum um þessi mál. „Verði ekki
samhugur um það, getum við hætt
að fjalla um þessi Evrópumál – í bili
að minnsta kosti – því að u
eins og hún er núna gerir e
nema skaða samfélagið.“
Helgi ræddi um skattam
sagði það eðli samtaka á bo
að hvetja til lækkunar þeir
fögnuðu nýlegri lækkun vi
isaukaskatts. Þau væru án
að til stæði að gera þær br
á virðisaukaskattslögum a
með næstu áramótum yrði
endurgreiða VSK af þjónu
ríkisstofnana í tölvu- og hu
aðarviðskiptum.
Ríkið móti ytri skilyrði
Jón Sigurðsson, iðnaðar
skiptaráðherra, sagði í ræ
að mikil umræða hefði ver
anfarin misseri um nýtingu
urnýjanlegra orkuauðlinda
ins og uppbyggingu orkufr
iðnaðar. „Ljóst er að meðv
Þarf að fá botn í umr
um Evrópusamband
Iðnaðarráðherra vill tvöfalda framlög til Tækniþróun
Aðild Hugsanleg aðild Íslands að Evrópusambandinu var meðal
30 LAUGARDAGUR 17. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Einar Sigurðsson.
Styrmir Gunnarsson.
Forstjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
SÓKN Á SUÐURNESJUM
Þær hugmyndir, sem nú liggja fyrirum alþjóðlega háskólastarfsemi á
gamla varnarsvæðinu á Keflavíkur-
flugvelli, eru spennandi og áhuga-
verðar. Viljayfirlýsing hefur nú verið
undirrituð um uppbyggingu háskóla-
samfélags á svæðinu, með aðild Há-
skóla Íslands, Reykjanesbæjar, Þró-
unarfélags Keflavíkurflugvallar og
fjölda fyrirtækja.
Enn er fyrirkomulag háskólanáms
á Miðnesheiði í talsverðri óvissu. Run-
ólfur Ágústsson, fyrrverandi rektor
Háskólans á Bifröst, hefur kannað
grundvöll fyrir akademískri starfsemi
þar og segir í Morgunblaðinu í gær að
þrjú markmið séu lögð til grundvallar.
Í fyrsta lagi að hækka menntunarstig
á Suðurnesjum, í öðru lagi að efla
starfstengt háskólanám og í þriðja
lagi að leggja áherzlu á háskólanám á
ensku til að draga að nemendur og
kennara frá öðrum löndum.
Styrkleikar Keflavíkurflugvallar í
þessu samhengi blasa við. Hvaða há-
skólar geta státað af alþjóðaflugvelli,
staðsettum mitt á milli heimsálfanna,
þar sem flestir beztu háskólar heims
eru, inni á háskólasvæðinu? Margir af
beztu háskólakennurum heims eru á
ferð og flugi yfir Atlantshafið og
kenna bæði í Evrópu og Ameríku. Það
gæti verið verulegur styrkur að því að
fá suma þeirra til að staldra við í
Keflavík – og þá geta þeir klukku-
tímar, sem sparast við að þurfa ekki
að aka til Reykjavíkur, skipt máli.
Hvað nemendurna varðar, býður ís-
lenzkt háskólasamfélag upp á mögu-
leika á sviði auðlinda- og orkumála,
sem geta gert Ísland að eftirsóttu
námslandi.
Á Suðurnesjum eru sömuleiðis
gríðarleg tækifæri í því fólgin að
hvetja ungt fólk til að sækja sér há-
skólamenntun. Árni Sigfússon, bæj-
arstjóri Reykjanesbæjar, bendir í
Morgunblaðinu í gær réttilega á mikið
brottfall úr framhaldsskólum á svæð-
inu. Það er hægt að vinna gegn slíku
með því að bjóða ungu fólki upp á að
stefna að því markmiði að komast í
stutt, starfstengt háskólanám í
heimabyggð. Suðurnes eru nógu fjöl-
menn til að styðja við myndarlegt há-
skólasamfélag.
Á gamla varnarsvæðinu eru ótal
möguleikar. Fyrirlestra- og kennslu-
aðstaða er að stórum hluta fyrir
hendi. Tvö þúsund íbúðir má nýta fyr-
ir námsmenn, sem alltaf vantar hús-
næði, í stað þess að demba þeim inn á
almennan húsnæðismarkað.
Það er skemmtilega að orði komizt
hjá bæjarstjóra Reykjanesbæjar að
tala um sóknarliðið á Keflavíkurflug-
velli í stað varnarliðsins, sem var þar
áður. Sóknarfærin eru sannarlega
fyrir hendi á Suðurnesjum. Og upp-
örvandi að mögulegt skuli vera að
skrifa undir viljayfirlýsingu um nýja
framtíðarsýn nákvæmlega ári eftir að
Bandaríkjastjórn tilkynnti að varnar-
liðið hyrfi frá Keflavíkurflugvelli.
Suðurnesjamenn skortir augljóslega
ekki hugmyndir og sóknarhug, þótt
burðarás í atvinnulífinu hafi skyndi-
lega brostið.
FRÁVÍSUN STAÐFEST
Máli ákæruvaldsins gegn fyrr-verandi forstjórum Skelj-ungs og Olíufélagsins hf.,
þeim Kristni Björnssyni og Geir
Magnússyni og núverandi forstjóra
Olíuverzlunar Íslands, Einari Bene-
diktssyni, er lokið. Hæstiréttur stað-
festi í gær frávísun héraðsdóms á mál-
inu.
Í dómi Hæstaréttar er að finna
býsna harða gagnrýni á samkeppnis-
lögin nr. 8/1993. Þar segir m.a.
„Af lögunum varð ekki skýrlega
ráðið hvernig fara ætti um háttsemi
starfsmanna fyrirtækja þeirra, sem
brytu gegn 10. gr. þótt eðlilega séu
það starfsmenn fyrirtækjanna, sem
koma fram á þeirra vegum og fangels-
isrefsing samkvæmt 57. gr. laganna
geti eðli málsins samkvæmt aðeins
tekið til einstaklinga. Engin fyrirmæli
voru í lögum nr. 8/1993 um skil á milli
heimilda lögreglu til rannsóknar sam-
kvæmt þeim og rannsóknar sam-
keppnisyfirvalda. Ekki var mælt fyrir
um hvernig lögreglu bæri að haga
rannsókn sinni væri mál til meðferðar
hjá samkeppnisyfirvöldum. Þá var því
ósvarað hvort lögreglurannsókn
mætti fara fram á sama tíma og rann-
sókn samkeppnisyfirvalda eða hvort
gert væri ráð fyrir að hún fylgdi í kjöl-
farið. Jafnframt var ekki mælt fyrir
um áhrif byrjaðrar lögreglurannsókn-
ar á rannsókn samkeppnisyfirvalda
og heimild þeirra til álagningar
stjórnvaldssekta við slíkar aðstæður.
Þá var ekki kveðið á um, hvort gögn
eða upplýsingar, sem aflað hefur verið
við rannsókn samkeppnisyfirvalda,
yrðu afhent lögreglu eða hvort nota
mætti slíkar upplýsingar, sem fyrir-
svarsmenn félaga hefðu veitt, sem
sönnunargögn í opinberu máli gegn
þeim. Af því, sem að framan er rakið,
er ljóst, að mikil óvissa ríkti um það,
hvort lögin gerðu ráð fyrir að bann-
reglu 10. gr. yrði framfylgt með
tvennum hætti og hvort miðað væri
við að rannsókn gæti farið fram á
stjórnsýslustigi og hjá lögreglu.“
Þessi gagnrýni Hæstaréttar hlýtur
að verða löggjafarvaldinu umhugsun-
arefni.
Í lokaorðum Hæstaréttar segir:
„Er ekki nægjanlega fram komið,
að varnaraðilar hafi fengið notið
þeirra réttinda sakborninga, sem fyr-
ir er mælt í 70. gr. stjórnarskrár, sbr.
6 gr. mannréttindasáttmála Evrópu
og meginreglum laga nr. 19/1991 í
þeirri lögreglurannsókn, sem fram fór
í kjölfar meðferðar samkeppnisyfir-
valda, eins og henni var hagað. Af
þessu leiðir að ákæra verður ekki
reist á þessari lögreglurannsókn.“
Þessi umsögn Hæstaréttar hlýtur
að verða alvarlegt umhugsunarefni
fyrir ákæruvaldið.
Þungu fargi er létt af þeim þremur
einstaklingum, sem við sögu hafa
komið í þessu máli og ljóst að meðferð
mála af þessu tagi tekur alltof langan
tíma.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/
MIKILL vöxtur í íslenskum orkuiðnaði verður grund-
völlur hagvaxtar á Íslandi á þessari öld, sagði Víg-
lundur Þorsteinsson, stjórnarformaður BM-Vallár, í
erindi sem hann flutti á Iðnþingi í gær.
Víglundur sagði að sá orkuiðnaður yrði mun víð-
feðmari en í dag.
„Álverksmiðjur eru kjörnar byggðakjölfestur í
dreifbýlinu á Íslandi. Reynslan frá Hafnarfirði og
Grundartanga er ótvíræð. Sömu áhrif eru að koma í
ljós á Reyðarfirði. Þar eru jafnframt að verða þau
áhrif að álverið á Mjóeyri er að valda byltingu í vöruflutningum
ur- og Austurlandi sem væntanlega mun skila landsbyggðinni læ
flutningskostnaði.“
Það væri góður kostur til að styrkja og jafna búsetu á landinu
álver á stöðum eins og í Reyðarfirði og á Húsavík.
Byggðaáhrif þess væru líkleg til að verða mun öflugri þar en á
uðborgarsvæðinu og skyldi þó ekki gert lítið úr þeim hér.
Víglundur sagði að álframleiðsla væri þó ekki eini kosturinn þ
efnistækni framtíðarinnar kynni að breytast ört. „Ef við stækkum
ið í Straumsvík um 280 þúsund tonn á ári og byggjum álver á Hú
stærðinni 250–300 þúsund tonn verður árleg framleiðsla okkar á
7–10 ár á bilinu 1,3–1,4 millj. tonna. Við þær aðstæður er skynsam
beina þróuninni á nýjar brautir til að auka enn fjölbreytni íslensk
vinnulífs og leggja grunn að traustum framtíðarhagvexti.“
Sagði Víglundur að vel undirbyggð og ígrunduð hagnýting jar
þar sem þess væri gætt að gjörnýta afl og orku myndi hafa mikil
áhrif í dreifbýli á þessari öld. Jarðhitanýting á Íslandi ætti að ver
leg í sjálfbærri þróun. „ Þó að umræðan um nýtingu orkulinda ok
algjörum villigötum í dag þar sem í ýmsum tilfellum er í besta fa
vanþekkingu og skammsýni að ræða og í sumum hreint lýðskrum
hún breytast hratt í náinni framtíð þegar við þurfum að horfa be
framan í þær breytingar sem bíða okkar á næstu árum og áratug
Orkuiðnaður grundvöll
hagvaxtar á þessari öld
Helgi Magnússon
Jón Sigurðsson