Morgunblaðið - 17.03.2007, Síða 38

Morgunblaðið - 17.03.2007, Síða 38
38 LAUGARDAGUR 17. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Ingunn Ein-arsdóttir fædd- ist í Fjallsseli í Fell- um 7. september 1914. Hún andaðist á Sjúkrahúsinu á Egilsstöðum þann 7. mars síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Einar Eiríks- son bóndi og hreppsstjóri í Fjalls- seli og kona hans Kristrún Hallgríms- dóttir. Systkini hennar voru: Ingi- björg, Pétur, Eiríkur, Þórhalla, Hallgrímur og Sigríður sem öll eru látin. Árið 1937 giftist Ingunn Páli Gíslasyni frá Skógargerði í Fellum, f. 18.01. 1912, d. 23.08. 1981. Foreldrar hans voru Gísli Helgason bóndi og Dagný Páls- dóttir sem bjuggu í Skógargerði langa ævi. Ingunn og Páll eign- uðust 10 börn sem eru: 1. Grímur f. 1940. Dó í frum- bernsku. 2. Dagný f. 1941. Maki: Sveinn Björnsson. Börn þeirra: Þórdís og Björn og 6 barnabörn. Þau slitu samvistir. Sambýlismaður Dag- nýjar er Þórhallur Þorsteinsson. 8. Brynhildur f. 1953. Maki: Svavar Harðarson. Búsett á Ak- ureyri. Börn þeirra: Gunnar Hörð- ur, Páll, Ingunn Ósk og 3 barna- börn. 9.Gísli f. 1957. Bóndi á Aðalbóli. 10. Sveinn f. 1959. Búsettur á Aðalbóli. Ingunn ólst upp hjá foreldrum sínum í Fjallsseli. Hún fór snemma að vinna fyrir sér, meðal annars á Egilsstaðabýlinu hjá Sveini Jóns- syni og Sigríði Fanneyju, á Brekku í Mjóafirði og á Hánefs- stöðum í Seyðisfirði. Einnig var hún um tíma í vist í Reykjavík. Hún stundaði nám við Húsmæðra- skólann á Hallormsstað 1932– 1934. Ingunn og Páll bjuggu um tíma á Akureyri og síðan á Ekkjufelli í Fellum hjá Brynjólfi Sigbjörns- syni og Sólveigu Jónsdóttur. Árið 1945 fékk Páll ábúð á Aðalbóli í Hrafnkelsdal og hófu þau búskap þar vorið 1946. Eftir lát Páls hélt Ingunn áfram húsmóðurstörfum á Aðalbóli og sinnti þeim úrtakalítið fram á 93ja aldursár. Lífsgleði og kjarkur einkenndi Ingunni alla tíð og hélt hún andlegum kröftum fram á hinsta dag Útför hennar fer fram frá Egils- staðakirkju þann 17. mars og hefst athöfnin kl. 11:00. Jarðsett verður í kirkjugarði Ássóknar í Fellabæ. Búsett á Egils- stöðum. 3. Einar f. 1943. Maki: Ragnhildur I. Benediktsdóttir. Bú- sett á Egilsstöðum. Börn þeirra: Ingunn Bylgja, Hrafndís Bára, Hafrún Brynja, Húni Hlér og 2 barnabörn. 4. Páll f. 1947. Bú- settur á Egilsstöðum. 5. Baldur f. 1949. Maki I: Katrín Ás- geirsdóttir. Sonur þeirra: Ásgeir Páll. Þau slitu sam- vistir. Maki II: Þórey Hann- esdóttir. Búsett í Fellabæ. Börn þeirra: Nína Guðrún, Hrafnhildur og Hannes Kjartan. Barnsmóðir Baldurs: Málfríður Benedikts- dóttir. Dóttir þeirra: Aðalheiður Rós. 6. Ingunn f. 1950. Maki: Kristján Sigurðsson. Búsett á Akureyri. Börn þeirra: Grímur Sævar, Fjóla, Sigurður Örn og 7 barnabörn. 7. Kristrún f. 1952. Maki: Sig- urður Ólafsson. Búsett á Aðalbóli II. Börn þeirra: Þórey, Ólafur Gauti, Davíð Arnar, Sindri Freyr og 4 barnabörn. Látin er Ingunn Einarsdóttir, húsfreyja á Aðalbóli í Hrafnkels- dal, 92 ára gömul, þar má segja að lokið hafi stórbrotnu og viðburða- ríku æviskeiði. Hún eignaðist tíu börn, var mikil ættmóðir og kunni að gleðjast á góðum stundum, en framar öllu einkenndi það hana hversu ráðagóð hún var og hjálp- söm svo af bar. Aðalból er alveg sérstakur heim- ur og alltaf viðburður að koma þangað. Ég kom þangað fyrst um 1980 og fannst merkilegt að þræða inn tröðina sem þá lá meðfram húsveggjunum og inn að bakdyr- unum. Í þá tíð voru gömlu bygg- ingarnar eins og samofnar við gríð- arstóra steinsteypuhúsið sem Páll og Ingunn byggðu um 1960, en nú eru þær allar horfnar. Þegar inn var komið brá fyrir fólki á öllum aldri, allt frá lítilli stelpu í hlaupa- grind upp í hávaxinn, þögulan mann, tæplega sjötugan. Þrjár kynslóðir bjuggu í húsinu og mið- punktur þess var hressileg dökk- hærð kona, kölluð Inga. Ég þekkti þetta fólk ekkert þá, hafði bara lent upp eftir með Sveini Páls, yngsta syninum og Ragnhildi Rós, frænku þeirra, en örlögin höguðu því þannig að nokkrum árum síðar var ég orðin tengdadóttir þeirra Ingunnar á Að- albóli og Páls heitins bókasafnara. Ingunn og Páll voru bæði inn- fæddir Fellamenn en Pál langaði að flytja á góða sjávarjörð með konu sína og fjölskyldu. Ekki fer allt eins og ætlað er og laust fyrir miðja öldina voru þau hjónin flutt á innsta bæ í landinu, landnámsjörð Hrafnkels Freysgoða! Þar bjuggu þau við erfiðar aðstæður með mikl- um dugnaði og sóma. Upprunalegi bærinn var gamall og þröngur, engin nútímaþægindi, lélegar sam- göngur og eiginlega eins og þau hefðu flust aftur á nítjándu öldina; krakkahjörðin skoppaði um ber- fætt og lék sér í náttúrunni og enginn drukknaði í Hrafnkelu, sem var náttúrlega aðalatriðið. Til er kvikmynd frá 1957 sem sýnir smá- búta úr lífinu á Aðalbóli, hana tók svissneskur maður að nafni Walter Tobler sem fékk að dvelja nokkra mánuði á bænum. Í myndinni sést Páll bóndi heyja á engjum uppi á brúnum Hrafnkelsdals, standandi berfættur í flóa, rauðbirkinn, kraftalegur maður og minnir óneit- anlega svolítið á Bjart í Sumarhús- um, ekki síst þegar haft er í huga að Páll á Aðalbóli er eini maðurinn sem hefur fallið úr brotnum kláfi í Jöklu og bjargað sér upp úr henni á sundi. Síðar í þessari kvikmynd má sjá Pál og börn hans reka fé sitt að vetrarlagi og fara á beit- arhúsin að Hústóft í kafsnjó og eina farartækið, blessaður hestur- inn, pikkfastur í sköflunum. Þetta er hin besta heimildarmynd, en því miður sést Ingunni húsfreyju aldr- ei bregða fyrir. Önnur merkileg heimild er til um lífið á Aðalbóli, það er bókin Norðan Vatnajökuls eftir danska skáldið Poul Vad. Hann ferðaðist um á slóðum Hrafnkelssögu árið 1970 og lýsir m.a. lífinu heima í „steinsteypuhöllinni“ í Hrafnkels- dal, eins og það kom honum fyrir sjónir. Það er ómetanlegt fyrir af- komendur Ingunnar og Páls að lesa þessar frásagnir af þeim hjón- um, þau eru eins og undarlegt fólk í skáldsögu en samt svo lifandi og sönn. Ingunn missti Pál árið 1981 en bjó áfram á Aðalbóli með börnum sínum og a.m.k. tveimur fjölskyld- um þeirra. Það var alltaf mann- margt á Aðalbóli á árum áður, fullt af krökkum í sveit og gestkvæmt. Ingunn sjálf frábær kokkur og kökugerðarsnillingur. Veisluhöld gjarnan þannig að veittar voru stórsteikur fram eftir nóttu og set- ið við gleðskap framundir morgun, húsfreyja hressust allra og vildi ekki sjá bjór og aðra veika drykki, fannst vodkinn bestur. Svo fór hún yfirleitt á 2–3 þorrablót á hverjum vetri og skemmti sér konunglega. Hún reykti meðan hún gat og naut lífsins, var stór í sniðum og alltaf tilbúin að hjálpa öðrum. Heilsan var orðin frekar léleg síðustu árin og hún þurfti stundum að leggjast inn á sjúkrahúsið á Egilsstöðum, en lagaðist alltaf og fór heim í Að- alból að sjá um heimilið. Nú allra síðustu árin hafa þau búið ein í stóra húsinu Inga, Gísli og Sveinn en veisluhöld hafa síður en svo lagst af og ættin búin að koma sér upp Aðalbólsdegi þar sem allir koma saman og rifja upp gömlu dagana þar sem móðirin var mið- punktur tilverunnar. Nú er hún horfin á braut, taldi sig sadda líf- daga og lést eftir nokkurra daga legu. Örlög höguðu því þannig að ég sjálf veiktist um svipað leyti og gat ekki kvatt mína elskulegu tengdamóður, en ég geri það núna, hafi hún hjartans þökk fyrir allt sem hún hefur gert fyrir mig og mitt fólk. Börnin okkar Baldurs: Nína Guðrún, Hrafnhildur og Hannes Kjartan sakna ömmu en gleðjast jafnframt yfir að hafa átt hana að. Ingunn verður jarðsett laugar- daginn 17. mars þar sem Álfta- gerðisbræður og fleiri koma og syngja við athöfnina og auðvitað kveður hún með lokaveislu þar sem boðið verður upp á hangikjöt og steikur eins og tíðkaðist í öllum góðum veislum á Aðalbóli. Blessuð sé minning Ingunnar Einarsdóttur. Þórey Hannesdóttir. Það síaðist inn í mig með móð- urmjólkinni, að fegurðarinnar væri að leita á Fljótsdalshéraði. Þar væru tignarlegustu fjöllin, þar væri himinninn blárri en í öðrum landshlutum og jörðin grænni. Þar að auki væri þar fallegasta, gáf- aðasta og skemmtilegasta fólkið! Það var nú ekkert annað. Og mér var ekki hleypt út í lífið, fyrr en ég hafði játast þeirri trú, að allt væri þetta satt og rétt! Stundum hafa gripið mig efa- semdir í þessum trúarbrögðum, en móðir mín sá um að klappa í brest- ina á meðan hennar naut við. Við tókum nokkrar brýnur um þetta málefni, ég gerði til dæmis að því skóna, að Héraðsmenn væru tæp- ast skemmtilegasta fólkið í land- inu. Þá fauk í mína. – Ekki það nei, ég man ekki betur en Inga á Að- albóli hafi fóstrað þig forðum; hef- ur þú hitt einhvern skemmtilegri á lífsleiðinni, mér er spurn. Nú var mamma hróðug, en ég gersamlega mát. Þetta var kórrétt hjá móður minni; Inga á Aðalbóli var ógleym- anleg og skemmtileg kona. Ungur var ég sendur í sæluríki móður minnar fyrir austan. Fyrst til afa og ömmu í Skógargerði, en síðar var ég svo lánsamur að kom- ast í sveit til Páls móðurbróður míns og Ingu á Aðalbóli í Hrafn- kelsdal. Þar var ekki þverfótað fyr- ir börnum. Tvö þau elstu voru reyndar farin í síld, en það voru sex eftir heima. Það yngsta, hann Sveinn „litli“, á öðru ári. Hann kom í heiminn þegar móðir hans var fertug og fimm árum betur. Alls fæddi Inga Páli sínum níu börn, hefði helst viljað bæta fjór- um til fimm við, til að geta skákað tengdamóður sinni, Dagnýju Páls- dóttur í Skógargerði, sem eignaðist 13 börn. Þegar ég kom í Aðalból var þar enn búið í torfbæ, en framhúsið var úr timbri. Göngin voru löng og stundum ströng, þegar birtu var brugðið. Úr þeim voru margar út- gönguleiðir, en sú næstinnsta hafði mesta aðdráttaraflið. Þar var eld- húsið. Þar var hlýjan, ef ekki frá húsmóðurinni sjálfri, þá frá koks- vélinni. Í eldhúsinu var langborð, þar sem rými var fyrir allt heima- fólk. Þar var oft glatt á hjalla, því þetta borð var félagsmiðstöð heim- ilisins. Þegar haustmyrkrið læddist að dró Aladin-lampinn að sér fólkið með birtunni og hlýjunni. Þar var rætt um lífið og tilveruna, verkefni dagsins og morgundagsins; hver ætti að skvetta úr koppum að morgni, mjólka kýrnar eða sækja geiturnar. Húsmóðirin talaði við okkur krakkana eins og fullorðið fólk. En það hvessti líka stundum við þetta borð. Þá fékk maður að finna til alvöru lífsins. Einhverju sinni hafði það dregist á langinn, að við Baldur frændi minn kæmum með geiturnar á stekk, þar sem þær voru mjólkaðar daglega; það voru gómsæt berin sem töfðu okkur. Engu að síður komum við galfírugir inn í miðaftanskaffi og ætluðum okkur að setjast þar að góðgerðum Ingu. Þá varnaði sú gamla okkur sætis og tók kappana á beinið fyrir framan annað heimilisfólk. Við það lækkaði hratt á geitasmölunum ris- ið. Hún gerði okkur á kjarnyrtri ís- lensku grein fyrir því, að greiðasta leiðin til manndóms fælist í því, að skila þeim verkum sem manni væri trúað fyrir – og gera helst betur en ætlast væri til. – Ef allir gengju til verka eins og þið gerðuð í dag, þá yrði nú lítið að bíta og brenna á Að- albóli. Þið verðið að átta ykkur á því, um hvað lífsbaráttan snýst, sagði sú gamla. Hún leyfði okkur að kveljast um stund í þögninni, en síðan vék hún sér að okkur kankvís og sagði: – Gæskurnar mínar, áður en þið pissið á ykkur þar sem þið standið, má ekki bjóða ykkur ný- bakaðar lummur og súkkulaði. Hún hló við og strauk mér um vanga. Ég tók gleði mína, en svei mér þá, ég held að enginn hafi komist nær því að gera mig að manni. Síðan liðu árin og alltaf heimsótti ég Ingu reglulega, eða ræddi við þá gömlu í síma. Það var heilsubót. Einhverju sinni átti ég glaðning þegar ég kom í Aðalból og bauð þeirri gömlu upp á öl. – Sama og þegið gæskur, mér verður bara bumbult af slíku glundri, svaraði sú gamla. Þá áræddi ég að bjóða rauð- vín, en sú gamla afþakkaði enn. –Hvurslags glundur ertu eiginlega að burðast með inn í afdali, ég fæ bara brjóstsviða af þessu léttvíns- sulli. Ég var ekki viss um, hvort ég ætti að áræða að bjóða henni eitt- hvað sterkara. Lét þó slag standa og bauð koníak. Þá glaðnaði heldur betur yfir þeirri gömlu. – Það var mikið þú sagðir eitthvað að viti, gæskur, nú kann ég betur við gamla geitasmalann minn!!! Svona var Inga á Aðalbóli, hrein- skiptin, oftast hlý og kát, stundum reið, en alltaf skemmtileg. Gamla mín, ég þakka þér fóstrið og kynn- in. Kveðja frá mínum og þú skilar kveðju til minna. Góða ferð. Gísli Sigurgeirsson. Ingunn á Aðalbóli er látin. Hún var komin á tíræðisaldur og and- látsfréttin kom ekki á óvart. Ég hitti hana síðast í sumar, dálítið fó- talúna en eldhressa andlega, minn- uga og skýra, káta og bjartsýna. Ingunn átti engan sinn líka. Þegar ég var að alast upp í Hrafnkelsdalnum var þar framan af hvorki bílvegur né sími. Dalurinn er afskekktur og samskipti við um- heiminn voru afar stopul. Þeir sem ég umgekkst, fyrir utan heimilis- fólkið á Vaðbrekku, voru nágrann- arnir á Aðalbóli og Brú. Annað fólk sá ég yfirleitt ekki nema einu sinni á ári þegar messað var. Það var á þessum árum sem ég mótaði afstöðu mína til umheims- ins. Þegar heimilinu sleppti tóku við nágrannabæirnir. Sem barn hafði ég óbilandi trú á því að heim- urinn væri algjörlega vandræða- laus. Þegar ég fór af bæ mætti mér alltaf sama viðmótið. Ég vissi að það var stríð í Kóreu en annars hélt ég að veröldin væri full af trausti, öryggi og vinsemd. Seinna komst ég að því að þetta er ekki svona. Það er ekkert sjálf- sagt mál að eiga góða nágranna. Sumu fólki er ekki hægt að treysta og það er víða stríð, ekki bara í út- löndum. En svo einkennilegt sem það er þá hefur þessi tilfinning úr barnæskunni aldrei yfirgefið mig að fullu. Ég er haldinn óbilandi trú á manneskjuna og hef eftir því sem ég hef getað reynt að tileinka mér það viðmót sem ég mætti í uppvext- inum sem aftur gerir það að verk- um að langoftast hef ég búið við góða nágranna. Viðmót getur verið ótrúlega keðjuverkandi. Ingunn átti fullt hús af börnum. Samt munaði hana ekkert um að bæta einu við. Mér fannst alltaf að ég ætti þarna heima. Þegar við Einar sonur hennar höfðum fé- lagsskap hvor af öðrum, ungir menn og athafnasamir og stundum svolítið gáleysislegir eins og hendir ungdóminn, þá las hún okkur pist- ilinn og kvað fast að. Mér þykir enn vænt um að hún skyldi skamma okkur báða jafnt. Svo hló hún að okkur. „Þið eruð nú meiri vitleys- ingarnir“, sagði hún og ég hafði á tilfinningunni að þetta væri hreint ekki svo galin niðurstaða. Og nú þegar hún er farin finnst mér að ég missi aldrei alveg frá mér þetta viðmót sem ég kynntist barnungur í Hrafnkelsdalnum. Sumt fólk er þannig að það eru hrein forréttindi að hafa fengið að þekkja það. Með þeim orðum vil ég kveðja Ingunni á Aðalbóli um leið og ég sendi fólki hennar samúðar- kveðjur. Ragnar Ingi Aðalsteinsson frá Vaðbrekku. Ingunn Einarsdóttir frá Aðalbóli í Hrafnkelsdal var ein af þeim manneskjum sem gera minningar fallegar. Það stafaði frá henni lífs- gleði, hlýju og persónulegum styrk sem var næsta einstæður. Kannski er lífsgleðin einmitt það sem gerir okkur sterk og líf okkar fallegt. Það eru mörg ár liðin síðan ég sá Ingunni fyrst, reyndar man ég ekki eftir fyrsta skiptinu. Fyrsta minn- ingin er af litlu eldhúsgólfi í gamla bænum á Aðalbóli, ég er í heim- sókn, kannski 7 eða 8 ára, og við Páll Pálsson erum að fljúgast á okkur til skemmtunar. Væntanlega fylgdu átökunum óp og læti sem ég man ekki vegna þess hve sjálfsögð þau voru í slíkum tilvikum. Ingunn snýr sér skyndilega frá eldavélinni, reiðir upp eldskörunginn með leik- rænum tilþrifum og segir með sinni miklu og fögru rödd: „Snáfið út, bannsettir pottormarnir ykkar eða þið skuluð fá að kenna á skör- ungnum!“ Út geystumst við pott- ormarnir til að bjarga lífi okkar, skellihlæjandi og fagnandi í öryggi þeirra smásveina sem vissu fyrir víst að ekki stafaði nokkurri hættu af skörungnum. Auðvitað var nauð- synlegt að reka okkur út í góða veðrið en hún hafði fyrirhafnarlaust breytt aganum í leik og ætli við höfum ekki bara gleymt út af hverju var flogist á, spásserað nið- ur að ánni og rætt lífið og til- veruna. Ingunn stýrði sínum stóra barna- hóp og annaðist hann af einstökum þokka. Hún gat brugðið á leik og talað alvarlega eftir því sem þurfti og það breytti engu þótt öðru hverju bættist í hópinn einn og einn stráksauður af næsta bæ. Þegar ég var staddur í heimsókn á Aðalbóli fannst mér að ég væri einn af systkinahópnum. Það var góð til- finning og hún byggðist ekki síst á viðmótshlýju Ingunnar sem réð andrúmsloftinu á þessu heimili, að öðrum ólöstuðum. Hennar fagra fordæmi hefur fylgt systkinunum frá Aðalbóli. Þau hafa misst mikils en móðir þeirra er þó enn með þeim, hún sést í framkomu þeirra og heillandi viðmóti. Ingunn þurfti iðulega að kljást við heilsuleysi af ýmsu tagi en hún hristi það af sér og datt aldrei í hug að gefast upp. Það er lærdómsríkt að kynnast fólki sem horfist djarf- mannlega í augu við líf sitt. Það myndi vefjast fyrir mörgum nú til dags að byrja búskap í afskekktum dal án bílvega og nokkurs annars sem nútímamenn kalla sjálfsagða þjónustu og telja til mannréttinda, hvað þá að reka þar gestrisið og glæsilegt heimili, koma, upp stórum og mannvænlegum barnahópi og taka á móti aragrúa af gestum, bæði einstaklingum og hópum til lengri og skemmri dvalar. Þetta gerði Ingunn á Aðalbóli. Hún náði háum aldri og var alla tíð hvers manns hugljúfi. Ég minntist í upp- hafi á lífsgleði Ingunnar og nú þeg- ar hún er fallin frá er það glaðlynd- ið sem eftir situr í minningunni. Þegar hugsað er til þessarar konu verða allar minningar fallegar. Kristján Jóhann Jónsson. Ingunn Einarsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.