Morgunblaðið - 17.03.2007, Side 40

Morgunblaðið - 17.03.2007, Side 40
40 LAUGARDAGUR 17. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Það er með söknuði sem ég kveð tengda- móður mína en okkar kynni hófust fyrir 17 árum. Oddrún var einstök kona sem var eins og margar konur af hennar kynslóð í meira en fullu starfi við að hugsa um alla aðra en sjálfa sig. Hún var skemmtileg kona og jákvæð. Hún hlúði vel að fjölskyldu sinni og fylgdist vel með hvað allir voru að gera. Áhugi hennar á tónlist var smitandi og var oft sungið í Máva- hlíðinni á jólum og öðrum tyllidög- um. Henni var þess vegna oft boðið á tónleika og naut hún þess. Heimili hennar var hlýlegt og mjög gest- kvæmt og oft fékk hún blómvendi því hún var einstaklega lagin við að halda lífinu í þeim og naut vera innan um falleg blóm. Hún átti alltaf nóg með kaffinu og hafði ég gaman af því hér árum áður að fylgjast með henni baka pönnukökur. Ég reyndi eftir fremsta megni að fylgjast með öllu sem hún henti í skálina og man eftir að mér fannst það vera hálfgerð naglasúpa því það var meira og minna bara vatn, kaffi, pínulítið hveiti og einhverjir dropar. En þær voru svo sannarlega góðar. Hún var minnug á atburði og fólk og var hægt að fletta upp í henni alla afmælis- daga. Okkar missir er mikill en mest- ur þó hjá tengdapabba sem hefur verið með henni alla tíð. Ég vil þakka henni samfylgdina þessi ár og er þakklát fyrir að hafa kynnst henni. Ellen Þórarinsdóttir Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (Valdimar Briem.) Hún amma mín er látin. Hún tókst á við veikindi sín með miklu æðru- leysi og var hún staðráðin í því að njóta þess tíma sem hún átti eftir. Öll héldum við þó að tíminn yrði meiri. En eftir sitja margar fallegar minn- ingar um hana elskulegu ömmu mína. Ég var mikið hjá ömmu og afa í Mávahlíðinni í æsku. Mávahlíðin var einn af mínum uppháhalds stöðum. Það var eitthvað svo notalegt við að ganga inn um hurðina og mæta ömmu um leið að athuga hver væri að koma. Það var svo margt að gera og svo margt að skoða fyrir litla stelpu í heimsókn í Mávahlíðinni. Amma spilaði mikið við mig og lét sem hún sæi ekki að ég svindlaði þegar ég var með tóma hunda, eins og hún sagði. Svo var hún alltaf jafn hissa og glöð fyrir mína hönd þegar ég vann. Engan þekki ég sem var með jafn græna fingur og hún amma. Hún náði að láta hvaða blóm sem var blómstra með endalausri umhyggju og naut svo blómstursins til hins ýtr- asta. Blóm virtust eilíf í Mávahlíð- inni, enda hugsaði hún um þau eins og ungabörn. Sem barn fékk ég í skólanum tómatplöntu til að rækta. Plantan sem virtist nær hvergi ætla að gefa af sér tómata, blómstraði og blómstraði hjá henni ömmu. Umhyggjan og alúðin umlukti mann í Mávahlíðinni, andrúmsloftið hjá ömmu og afa var nóg til þess að láta manni líða vel. Að standa á stól við hliðina á ömmu að horfa út um svefnherbergisgluggann var spenn- andi. Það þurfti svo lítið, en var svo mikið. Amma var ákaflega óeigingjörn og lítillát kona. Hún lét alltaf aðra ganga fyrir. Við matarborðið var hún Oddrún Sigurgeirsdóttir ✝ Oddrún Sig-urgeirsdóttir húsmóðir fæddist í Reykjavík 23. apríl 1929. Hún lést á Landspítalanum 5. mars sl. Útför Oddrúnar var gerð frá Há- teigskirkju 14. mars sl. alltaf á hlaupum til að vera viss um að allir hefðu það sem þeir þyrftu. Að fá hana sjálfa til að setjast nið- ur að fá sér að borða var ekki létt verk. Hún lá fárveik á spítala þegar ég eign- aðist barn. Hennar fyrsta hugsun var að koma til mín gjöfum. Þetta var svo lýsandi fyrir hana. Gjafirnar streymdu frá henni, meira að segja frá sjúkrabeðinum. Amma hefur gefið mér svo mikið í gegnum tíðina og miklu meira en bara hluti. En nú hefur hún amma kvatt þennan heim. Kannski er það ein- hver huggun að hún hafi ekki þurft að kveljast meira en raun bar vitni, það er þó alltaf jafn sárt að þurfa kveðja ástvin. Ég hef minningarnar um hana mér til hughreystingar. Vertu sæl elsku amma mín og takk fyrir allt og allt. Guð geymi þig. Þín Oddrún. Nú legg ég augun aftur ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig þér taka yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt (S. Egilsson.) Elsku amma. Mig langar að kveðja þig með nokkrum orðum. Veikindi þín bar svo brátt að og andlát líka. Allt of fljótt. En ég ætla að rifja upp gamla daga þegar ég var að alast upp, þið afi í Mávahlíðinni voruð svo mikill miðpunktur í lífi okkar fjölskyldunn- ar. Þegar komið var saman í Máva- hlíðinni var búið að fylla borðið af kræsingum, hvort sem var um jól eða í annan tíma og þótti gott þegar allir voru mættir til að fagna afmælum eða öðrum hátíðisdögum. Þá voruð þið afi þungamiðjan í öllu saman. Alltaf var tekið í píanóið og hressi- lega sungið undir. Það var svo mikið líf í ykkar hjónunum. Eins og ég er búinn að segja er margs að minnast. Þegar ég var kominn með konu og litla langömmustelpu, þá voruð þið hamingjusöm yfir að ég væri búinn að festa ráð mitt og fá mér íbúð. Þið tókuð henni Hafdísi minni opnum örmum við fyrstu sýn og langömmu- barninu henni Margréti Öldu líka. Það er stutt síðan við komum til ykk- ar í heimsókn og þú varst svo fár- sjúk. Við vissum samt ekki að tíminn væri svo naumur. En þetta er liðið og þú finnur ekki til, hjartans elsku amma mín, Elsku afi, ég veit að sökn- uður þinn er mikill og þú átt okkur öll að. Sæmundur. Elsku frænka, þá er þínu stór- brotna lífi lokið og þú farin í betri heim. Þú varst ávallt æðrulaus og sterk þrátt fyrir áföll í lífinu sem ekki voru fá. Dugnaður og létt skap hafa eflaust fleytt þér gegnum það. Minningar mínar um þig tengjast mest búsetu minni í Reykjavík þegar við Benni bjuggum í Bogahlíð um tíu ára skeið. Við fluttum norður aftur 1976. Heimili þitt var ávallt opið okk- ur og börnunum okkar. Ég man sér- staklega eftir því þegar þú bauðst Berghildi dóttur minni að æfa sig á píanóið þitt meðan hún var í píanó- kennslu. Það segir mikið um þig að nenna að hlusta á endalausar fingra- æfingar frænku þinnar. Músík var þér í blóð borin og þú hafðir mikið yndi af söng. Fjórum dögum áður en þú lést talaði ég við þig í síma og þrátt fyrir allt var stutt í hláturinn. Elsku Oddrún, Guð blessi þig, ég ylja mér við minningar um þig, takk fyrir allt. Ég votta Steina, börnum, tengda- börnum og barnabörnum mína dýpstu samúð. Og einnig Gullu syst- ur þinni sem nú er ein eftir af systk- inunum. Þín frænka, Sigurbjörg Steindórsdóttir. Ég kynntist Oddrúnu um haust. Við Sigurgeir, sonur hennar og Þor- steins Auðunssonar, togaraskips- stjóra, urðum vinir, þegar við vorum saman til sjós um sumar. Þetta haust unnum við í nokkrar vikur að verk- efni í Menntaskólanum við Hamra- hlíð. Þar sem hann átti heima stutt frá, en ég lengra, stakk hann upp á að í hádeginu kæmi ég með honum heim. Oddrún tók á móti mér þannig, að mér leið strax eins og ég væri einn af krökkunum hennar og það var að mörgu leyti sérstök upplifun, þegar komið var inn á heimili í fyrsta skipti. Börn Oddrúnar og Þorsteins voru þá fjögur, Sigurgeir næstelstur, en þau urðu síðar fimm. Einhver sagði á sín- um tíma, að þegar að síðasta systk- inið bættist við, vissu það fáir, þar til það var staðreynd. Þannig finnst mér að Oddrún hafi gert alla hluti, öruggt og markvisst, hægt og hljótt. Lífið var samt ekki auðvelt, Oddrún og Þorsteinn máttu sjá á eftir barna- barni, tengdasyni og syni og reyndist það mikil raun. Við leiðarlok er minnst kærrar, góðrar konu, samferða í fjörutíu ár. Hún bar hrakandi heilsu í hljóði, svo vel, að líklega áttaði sig enginn á því hversu stutt var eftir. Daginn áður en hún kvaddi tók hún á móti gestum og tók ekki annað í mál en sinna þeim af sömu gestrisni og alúð eins hún hafði alltaf gert. Ég og fjölskylda mín kveðjum Oddrúnu með innilegu þakklæti og vottum Þorsteini, fjöl- skyldu hennar og vinum innilega samúð á sorgarstund. Einar Ingimarsson. Góð, velviljuð og hjartahlý kona er gengin eftir stutta en erfiða baráttu við illvígan sjúkdóm. Oddrún var móðir besta vinar míns. Oddrún sýndi mér alla tíð mikla væntumþykju og hlýhug. Þeg- ar ég skildi fyrir um 10 árum bauð hún mér með í flestar meiriháttar veislur og hátíðir sem hún og eftirlif- andi eiginmaður hennar Þorsteinn Auðunsson, fyrrv. skipstjóri héldu fjölskyldu sinni. Heima hjá þeim heiðurshjónum leið mér eins og ég ætti aftur mömmu og pabba á lífi. Sami matur, svipaður borðbúnaður, húsgögn og stofuskraut, reykt í eld- húsinu og píanóleikur og söngur. Með góðu fólki líður manni vel og nýtur velvilja, tillitsemi og samhygð- ar. Það voru ekki sögð mörg orð en frá Oddrúnu streymdi jákvæðni og hlýja sem gerði mér gott. Ég er viss um að Oddrún fann hversu vænt mér þótti um að vera hafður með eins og einn í fjölskyldunni. Ég mun sakna þessara funda í Mávahlíðinni og ekki síst að eiga ekki eftir að hitta vin- konu mína Oddrúnu aftur. Þó svo ég hafi ekki þekkt Oddrúnu lengi mun ég ætíð muna hana og hún verða mér kær í minningunni. Guðjón E. Ólafsson. Elsku Oddrún. Á kveðjustundu er okkur efst í huga þakklæti fyrir allar góðu sam- verustundirnar. Alltaf var jafngott að koma til ykk- ar Steina í Mávahlíðina og þar gafst nægur tími til að spjalla um lífið og tilveruna. Boðið var upp á besta kaffið og meðlætið. Þjónustulundin var þannig að allir nutu góðs af og ávallt sagt frá og spurt um sam- ferðafólkið. Manngildið var þó ofar öllu og nóg af góðvild og hugulsemi. Skemmtilegar voru skötuveislurn- ar á Þorláksmessu þar sem lyktin fannst langt út á götu. Þegar jólalögin voru sungin vildir þú alltaf eitthvað léttara eins og Suð- ur um höfin. Síðan er það kallað Jóla- lagið þitt. Þú lifðir lífinu með reisn og kvadd- ir með reisn. Við söknum þín, en njótum góðra minninga. Við þökkum ræktarsemi og vináttu sem aldrei gleymist. Þín, Guðrún Brynja og fjölskylda. ✝ Systir mín og móðursystir, SIGRÍÐUR JENSÍNA HELGADÓTTIR, lést á Grund sunnudaginn 4. mars. Útför hefur farið fram. Tómás Helgason frá Hnífsdal, Helga Guðmundsdóttir. ✝ Þökkum af hlýhug auðsýnda samúð vegna andláts og útfarar eiginmanns míns, föður okkar, tengda- föður og afa, ÓLAFS THEODÓRSSONAR, Esjubraut 19, Akranesi. Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar B2 á Land- spítalanum Fossvogi fyrir góða aðhlynningu. Júlía Baldursdóttir, Baldur Ólafsson, Auður Líndal Sigmarsdóttir, Ellen Ólafsdóttir, Guðjón Theódórsson, Ragnhildur Í. Ólafsdóttir, Birgir Guðmundsson og barnabörn. ✝ Við þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna fráfalls móður okkar, tengdamóður og ömmu, ÁSTU BJARNADÓTTUR, Norðurbrún 1. Margrét Kjartansdóttir, Björg Kjartansdóttir, Freysteinn G. Jónsson, Sæunn Kjartansdóttir, Guðmundur Jónsson, Ásta Kjartansdóttir, Vigfús Erlendsson og barnabörn. ✝ Innilegar þakkir til ykkar allra fyrir auðsýnda samúð og virðingu við andlát og útför elskulegs eigin- manns míns, föður, tengdaföður, afa, sonar og bróður, SR. PÉTURS ÞÓRARINSSONAR í Laufási. Guð blessi ykkur öll. Ingibjörg S. Siglaugsdóttir, Þórarinn Ingi Pétursson, Hólmfríður Björnsdóttir, Jón Helgi Pétursson, Íris Þorsteinsdóttir, Heiða Björk Pétursdóttir, Björn Magnús Árnason, Pétur, Birta María, Katla, Þorsteinn Ágúst og Ingólfur Birnir, Elín Jónsdóttir, Þórarinn Halldórsson, Aníta, Jón Helgi, Erna og fjölskyldur. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSLAUG HREFNA SIGURÐARDÓTTIR, sem andaðist á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð, Reykjavík, mánudaginn 5. mars, verður jarðsett frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 20. mars kl. 15.00. Fyrir hönd aðstandenda, Guðmundur Árnason, Ágústa Harting, Kristján Guðmundsson, Sigurður Guðmundsson. ✝ Ástkær eiginkona mín, dóttir, tengdadóttir, móðir, tengdamóðir og amma, RAGNHEIÐUR KRISTÍN PÉTURSDÓTTIR, Skógarseli 7, Reykjavík, sem lést föstudaginn 9. mars, verður jarðsungin frá Seljakirkju mánudaginn 19. mars kl. 13.00. Tómas Sveinbjörnsson, Pétur Valdimarsson, Anna Lára Hertevig, Valdimar Viðar Tómasson, Anna Karen Kristjánsdóttir, Sigurður Sveinbjörn Tómasson, Eva María Grétarsdóttir og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.