Morgunblaðið - 27.04.2007, Page 12

Morgunblaðið - 27.04.2007, Page 12
12 FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is „Á SPÍTALINN að fórna fjármun- um í þágu mannúðar eða á að fórna mannúð í þágu fjárhagslegrar af- komu?“ Svo spurði Anna Lilja Gunn- arsdóttir, framkvæmdastjóri fjár- reiðna og upplýsinga á Landspítal- anum á ársfundi sjúkrahússins í gær, eftir að hafa gert grein fyrir ársreikningi og lýst því yfir að hún teldi fjárveitingar til spítalans á und- anförnum árum vera „í engum takti“ við þróun eftirspurnar eftir þjónustu hans. Eftirspurnar sem aðeins ætti eftir að aukast á næstu árum, m.a. vegna þróunar sjúkdóma og fjölgun- ar aldraðra. T.d. hafi 80 ára fólki og eldra fjölgað um 17% frá árinu 2002. Aukin þjónusta fyrir sama verð Það kostaði 32,2 milljarða króna að reka Landspítalann á síðasta ári og þjónustan jókst á flestum sviðum milli ára. Gjöld umfram tekjur, sem fást fyrst og fremst af fjárlögum og með þjónustugjöldum, voru 290 milljónir. Rekstarhallinn nam því 0,9% árið 2006 en uppsafnaður rekstrarhalli var í lok þess árs 777 milljónir króna. Var hann 487 millj- ónir í árslok 2005. „Landspítali-háskólasjúkrahús hefur á síðustu sjö árum aukið jafnt og þétt starfsemi sína vegna vaxandi fjölda Íslendinga, sérstaklega í röð- um aldraðra, án þess að rekstrar- kostnaður, á föstu verðlagi, hafi auk- ist,“ sagði Anna Lilja og benti á að erfið rekstrarstaða nú stafaði einnig m.a. af gengisbreytingum. Þá hafi yfirvinnukostnaður aukist um 20% á síðasta ári sem „sýnir hinn mikla vanda sem spítalinn glímir við sem er skortur á starfsfólki.“ Það hefði aftur þýtt að starfsmenn hafi þurft að bæta á sig mikilli yf- irvinnu, mun meiri en þeir vilji, sem sé auk þess mjög kostnaðarsöm fyrir spítalann. „Spítalinn er háður ástandi á vinnumarkaði og þensla undanfarinna mánaða hefur verið spítalanum erfið.“ Þá benti Anna Lilja á að kostn- aður vegna S-merktra lyfja, sem að- eins eru gefin á sjúkrahúsinu, hafi aukist um 23% á síðasta ári sem rekja megi til nýrra og dýrra lyfja sem og gengisbreytinga. Sagði hún dæmi um að lyfjakostnaður fyrir einn sjúkling næmi fleiri tugum milljóna á ári. Stöndum á krossgötum „Við stöndum núna á krossgötum og verðum að ákveða hvaða stefnu á að taka í okkar heilbrigðiskerfi,“ sagði Anna Lilja. „Mannúðarsjónar- mið hafa alltaf verið í hávegum höfð á Landspítala en sparnaðarkrafa síð- ustu ára hefur þrengt mjög að starf- seminni. Starfsfólk spítalans hefur lagt sig fram um að veita frábæra þjónustu þrátt fyrir erfiðar aðstæð- ur […] En þversögnin sem mætir starfsfólki á hverjum degi í vinnu sinni er annars vegar sú að starfsemi spítalans er drifin áfram af mann- úðarsjónarmiðum og hins vegar þeirri kröfu að rekstrarkostnaður rúmist innan ramma fjárlaga. Fjár- laga sem eru í engum takti við þróun íbúafjölda, fjölda aldraðra og þróun sjúkdóma. […] Krafan er hallalaus rekstur en krafan er líka að Landspítali sé bundinn mannúðarsjónarmiðum og beri ríka samfélagsskyldu. Ég spyr: á spítalinn að fórna fjármunum í þágu mannúðar eða á að fórna mann- úð í þágu fjárhagslegrar afkomu?“ Anna Lilja sagði ljóst að ákveða þyrfti stefnu til framtíðar, núverandi tilhögun fjárveitinga gagnaðist ekki lengur. Hún benti á að framleiðni rekstrarkostnaðar hefði aukist á ár- unum eftir sameiningu sjúkrahús- anna árið 1999 til ársins 2005, hins vegar væru nú teikn á lofti um við- snúning. „Athygli vekur lækkun á síðasta ári sem sýnir líklega að LSH hefur spennt bogann um of.“ Hún sagði spítalann hingað til hafa fjármagnað aukna starfsemi með hagræðingu í rekstri sem mögu- leg var í kjölfar sameiningar sjúkra- húsanna í Reykjavík. Þá hafi verið farið ofan í saumana á þjónustunni og reksturinn endurskipulagður. Nú sé svo komið að aukið fé þurfi inn í reksturinn eða að takmarka verði þjónustuna. „Hvaða leið viljum við velja?“ Hefur Landspítalinn spennt bogann um of? Morgunblaðið/Golli Þétt setið Að venju var fjölmennt á ársfundi Landspítala háskólasjúkrahúss sem fram fór í Öskju í gær. MAGNÚS Gottfreðsson læknir hlaut á ársfundi Landspítalans í gær 2,5 milljónir króna úr verð- launasjóði stofnuðum af Árna Kristinssyni og Þórði Harðarsyni. Verðlaunin eru líklega stærstu verðlaun sem veitt eru fyrir vís- indastörf á Íslandi. Magnús er sérfræðingur í smitsjúkdómum við Landspítalann og dósent í læknisfræði við Háskóla Íslands. Magnús Pétursson, forstjóri Landspítalans, afhenti Magnúsi styrkinn. „Hann er einn fárra lækna á Íslandi sem hefur tekist að brúa bilið milli grunnrannsókna og klínískra fræða,“ sagði forstjórinn. Meðal fjölmargra rannsókna sem Magnús hefur unnið að eru rannsóknir á alvarlegum sýkingum af völdum baktería og sveppa sem hann segir vaxandi vandamál í hinum vestræna heimi. Hefur hann í félagi við aðra rannsak- endur beint sjónum m.a. að heilahimnubólgu en hún hefur um árabil verið tvisvar til þrisvar sinnum algengari hér á landi en annars staðar í Evrópu. „Þetta er mjög alvarleg sýking og horf- ur þeirra sem fá hana eru jafnslæmar í dag og þær voru fyrir 30–40 árum, þrátt fyrir allar framfarir í læknisfræði.“ Rannsóknin leiddi í ljós að hér á landi hafa fundist 19 stofngerðir heilahimnubólgu sem ekki hafa fundist annars staðar í heiminum. Þar af ein gerð sem er fjórða algengasta stofngerðin á Íslandi. „Þetta bendir til þess að þessar bakt- eríur séu upprunnar hér á landi,“ sagði Magn- ús. „Að um sé að ræða þróun sem á sér stað inn- anlands. Þetta er ekki innflutt vandamál.“ Undanfarin ár hefur Magnús í samvinnu við Íslenska erfðagreiningu og bandarísku heil- brigðisstofnunina unnið ásamt öðrum að rann- sóknum á erfðaþáttum alvarlegra sýkinga, m.a. á spánsku veikinni sem geisaði hér árið 1918. Sagði hann góðar aðstæður hér á landi til að varpa ljósi á „þessa miklu ráðgátu í læknisfræði sem spánska veikin er“. Hann sagði margt hægt að læra af viðbrögðum við veikinni á sín- um tíma. Sérstaklega í ljósi þess að þetta vandamál gæti komið upp aftur. T.d. hefði sam- göngubann, sem sett var á Holtavörðuheiði og við Sólheimasand, haft mikil áhrif og heft út- breiðslu veikinnar til Norður- og Austurlands. Engu að síður hefðu um 500 manns látist hér á landi á stuttum tíma. Þeir sem létust voru að- allega ungt og hraust fólk. „Því hefur þeirri kenningu verið varpað fram að erfðaþættir kunni að skýra þessa veiki,“ sagði Magnús. Hins vegar hefði niðurstaða rannsókna hans leitt í ljós að svo var ekki. Með ýmsum upplýs- ingum, m.a. dánartilkynningum úr Morg- unblaðinu, skýrslum lækna frá þessum tíma og Íslendingabók, væri hægt að kortleggja nær alla þá sem létust af völdum spánsku veikinnar hér og reikna út áhættu innan fjölskyldna. „Niðurstöður okkar sýna að við þær kring- umstæður sem þarna voru ríkjandi virðast erfðaþættir lítið hafa haft að segja,“ sagði Magnús. Magnús Gottfreðsson verðlaunaður Stærstu verðlaunum sem veitt eru fyrir vísindastörf á Íslandi úthlutað á ársfundi Landspítalans Morgunblaðið/Golli Verðlaunaður Magnús hefur lagt stund á rannsóknir á alvarlegum sýkingum. YFIR 90% landsmanna bera mjög mikið eða frekar mikið traust til Landspítala – háskólasjúkrahúss. Svipaður fjöldi er mjög jákvæður eða frekar jákvæð- ur gagnvart sjúkrahúsinu. Þetta er niðurstaða könn- unar Capacent Gallup um LSH sem gerð var dagana 22. mars til 3. apríl sl. Hringt var í yfir 1.300 manns og var svarhlutfall rúm 61%. Landsmenn telja LSH veita góða þjónustu, hafa góða reynslu af honum og segja að starfsfólkið leysi vel úr þeim málum sem lögð eru fyrir stofnunina. Í könnuninni kemur líka fram að þrír af hverjum fjórum telja að þjónusta LSH muni enn batna í nýju háskólasjúkrahúsi sem er í undirbúningi. Einnig var kannað hversu hlynntir landsmenn eru því að LSH auglýsi þjónustu sína opinberlega, t.d. í fjölmiðlum og var niðurstaðan sú að yfir 24% voru mjög hlynnt því og um 37% frekar hlynnt. Tæp 27% sögðust mjög andvíg eða frekar andvíg því. Þjóðin treystir Landspítalanum Fjárveitingar til Land- spítalans eru ekki í nein- um takti við þróun íbúa- fjölda, fjölda aldraðra og þróun sjúkdóma, sagði Anna Lilja Gunnars- dóttir, framkvæmdastjóri fjárreiðna sjúkrahússins á ársfundi LSH í gær. „LANDSPÍTALINN hefur líkt og flestar aðrar heilbrigðisstofnanir glímt við mönnunarvanda sem hef- ur skapað stofnuninni margvíslega erfiðleika,“ sagði Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðhera í ávarpi sínu á ársfundi LSH í gær. „Þegar rætt er um skort á starfsfólki verður ekki undan því vikist að nefna kaup og kjör, þ.e. opinbera kjarasamninga þótt launamálin séu ekki á minni hendi heldur á ábyrgð fjár- málaráðuneytis og viðsemjenda þess. Það eru uppgangstímar og þensla í efnahagslífinu, fólk sækir í önnur störf séu þau betur launuð og það leiðir síðan til aukinnar starfs- mannaveltu. Í kjarasamningum þarf að einbeita sér sérstaklega að því að lyfta umönnunarstörfum upp en þau hafa frá upphafi verið að- allega á hendi kvenna, en launa- munur kynjanna er um 15–16% hér á landi eins og flestir vita.“ Þá ræddi Siv um forgangsröðun í heilbrigðiskerfinu og sagði: „Bilið á milli þess sem er tæknilega mögu- legt og þess sem fjárhagur leyfir er nokkurt og fer vaxandi, því þarf að forgangsraða og hagræða.“ Sjónum verði beint að kjara- samningum KOMUM á slysa- og bráðadeildir Landspítalans fjölgaði um 31% milli áranna 2005 og 2006. Á síðustu fimm árum hefur vitjunum í heima- þjónustu fjölgað um 38% og komum á dag- og göngudeildir um 25%. Innlögnum á legudeildir hefur fækkað en hlutfall bráðra innlagna hefur aukist. Er það í takt við það sem gerist á sjúkrahúsum erlendis. Á sama tíma hefur öldruðum fjölg- að hratt. 31% fleiri kom- ur á slysadeild LANDSPÍTALINN hefur sett sér það markmið að vera árið 2012 eitt af fimm bestu háskólasjúkrahúsum á Norðurlöndum hvað varðar árang- ur og afköst í vísindarannsóknum. Magnús Pétursson, forstjóri LSH, segir öflugt vísindastarf forsendu góðrar heilbrigðisþjónustu og menntunar heilbrigðisstétta. Í vísindastefnu sjúkrahússins seg- ir að stefnt sé að því að fjárframlag stjórnvalda til vísindarannsókna fylgi þeirri þróun sem sé hjá nor- rænum háskólasjúkrahúsum og verði orðið 3% af veltu spítalans fyr- ir árið 2011. Jafnframt er gert ráð fyrir að vísindamenn spítalans sæki samsvarandi fjármagn til ytri sam- keppnissjóða. LSH komist í hóp fimm bestu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.