Morgunblaðið - 27.04.2007, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2007 17
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
FASTEIGNABÓLAN er að hjaðna
á Spáni og hlutabréf í byggingafyr-
irtækjum hafa lækkað síðustu daga,
að sögn breska blaðsins Financial
Times á miðvikudag. Virðist sem
markaðurinn hafi ofmettast en einn-
ig hafa spillingarmál vakið tor-
tryggni og skuldastaða sumra bygg-
ingafyrirtækjanna veldur ótta.
Bréf lækkuðu í einu öflugasta fyr-
irtækinu, Sacyr Vallehermoso, um
8% í vikunni en nokkrum dögum
fyrr hrundu bréf í öðru fyrirtæki,
Astroc, þegar í ljós kom að gróði
sem gefinn var upp fyrir árið í
fyrra, virtist byggjast að hluta á
möndli ráðamanna Astroc með bréf-
in. Lækkaði verð á Astroc-
bréfunum um 70% á nokkrum dög-
um.
Seðlabanki Spánar og fleiri aðilar
hafa undanfarna mánuði varað fólk
við og sagt að eftir þriggja ára
þenslutímabil væri svo komið að
hlutabréf í bygginga- og fasteigna-
fyrirtækjum væru ofmetin. Ekki er
þó um að ræða neitt hrun á fast-
eignaverði enn sem komið er, að
sögn Financial Times, heldur hafa
hækkanir verið mun minni en áður.
Þannig hækkaði fasteignaverð að
meðaltali um 7% á fyrsta ársfjórð-
ungi sem er minni hækkun en
þekkst hefur í átta ár og sums stað-
ar á Spáni varð verðlækkun.
„Fasteignabólan er ekki sprung-
in,“ segir Natalia Aguirre, sérfræð-
ingur hjá Renta 4, spænsku verð-
bréfafyrirtæki. „Það er uppblásið
mat á sumum fasteignafyrirtækj-
unum sem hefur verið fært nær
veruleikanum.“ Verðið á bréfum í
fimm stærstu fasteignafyrirtækjum
Spánar hækkaði um 132% að með-
altali í fyrra.
Geysileg þensla hefur verið á
spænska fasteignamarkaðnum í
áratug og meira verið byggt þar af
íbúðarhúsnæði en í flestum ríkjum
heims. Fjöldi fólks í norðlægum
Evrópuríkjum hefur keypt sér eign-
ir til að nota hluta úr árinu eða til að
setjast að í sólinni þegar húmar að
ævikvöldinu. Fasteignaverðið hefur
yfirleitt verið lægra en í heimaland-
inu og oft hafa verið boðin góð lána-
kjör.
Fasteignasalan Heimili ehf. er
eitt nokkurra íslenskra fyrirtækja
sem selt hafa hundruð eigna á Suð-
ur-Spáni undanfarin fjögur ár. Að
sögn Írisar Matthíasdóttur hjá
Heimili hefur það einnig látið
byggja hús og heil hverfi.
„Það hefur verið mikið að gera og
verðlagið hefur verið mjög í jafn-
vægi síðastliðin fjögur ár,“ segir Ír-
is. Nú séu m.a. boðin 100% lán. En
hvað gerist ef hrun verður, ef lánið
dugar ekki lengur fyrir verði eign-
arinnar? „Ég held að það gerist nú
ekki á næstunni, eignirnar hafa ekki
lækkað svo mikið,“ sagði Íris Matt-
híasdóttir.
Merki um hjöðnun fast-
eignabólunnar á Spáni
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Veðursæld Spánarsólin heillar marga.
Bréf bygginga-
fyrirtækja lækka
STJÓRNVÖLD í Rússlandi hafa
ákveðið að festa hundruð og jafnvel
þúsundir milljarða króna af olíu-
gróðanum í alþjóðlegum fyrirtækj-
um en það mun að sjálfsögðu verða
til að auka verulega ítök Rússa á al-
þjóðlegum fjármálamarkaði.
Alexei Kúdrín, fjármálaráðherra
Rússlands, hefur beitt sér mjög fyr-
ir þessu en stefnt er að því að skipta
upp svokölluðum „stöðugleikasjóði“.
Var hann stofnaður 2004 og síðan
hafa runnið í hann tæplega 7.000
milljarðar ísl. kr. en á þessum tíma
hefur olíuverð verið mjög hátt.
Sjóðnum verður skipt í febrúar
næstkomandi og búist er við að þá
verði í varasjóði rúmlega 9.000
milljarðar kr. en rúmlega 1.500
milljarðar í svokölluðum „framtíð-
arsjóði“. Munu sjóðirnir báðir vaxa
hratt, haldist olíuverð jafnhátt og
það er nú.
Mikil umskipti
á skömmum tíma
Kúdrín sagði í viðtali við Fin-
ancial Times að varasjóðurinn
myndi fjárfesta í öruggum ríkis-
skuldabréfum eins og nú er með
stöðugleikasjóðinn en hinn í hluta-
bréfum sem meiri áhætta fylgdi en
oftast meiri arður. Gaf hann í skyn
að rússneskum og vestrænum fjár-
málastofnunum yrði falin umsjón
þessara fjárfestinga og má búast
við, að barist verði um slíka samn-
inga.
Áætlun Kúdríns sýnir vel þau
umskipti sem orðið hafa í fjármálum
Rússlands frá því í fjármálakrepp-
unni í landinu 1998. Svo er háu olíu-
verði fyrir að þakka. Er áætlunin
einnig hluti af umfangsmiklum
breytingum í fjárlagagerð en stefnt
er að því að fjárlagaramminn taki til
þriggja ára og gildi því út árið 2010
til að byrja með. Það mun því aug-
ljóslega binda hendur næsta for-
seta, arftaka Vladímírs Pútíns, og
neyða hann til að sýna ekki minni
fyrirhyggju í fjármálunum.
Auk olíusjóðsins eiga Rússar nú
gull- og gjaldeyrisvarasjóð, sem
nemur tæplega 23.000 milljörðum
kr., þann þriðja mesta í heimi.
Markaðurinn er fyrir alla
Hugsanlegt er að einhverjir þing-
menn stjórnarandstöðunnar krefjist
þess að féð verði notað til fjárfest-
inga heima fyrir en Kúdrín gaf lítið
fyrir það.
„Aðeins vinstrimenn eða komm-
únistar telja að með því að fjárfesta
á Vesturlöndum séum við Rússar að
fjármagna athafnir Bandaríkja-
manna. Fyrir allt venjulegt fólk er
það bara rugl og vitleysa. Hinn al-
þjóðlegi fjármálamarkaður er til
þjónustu reiðubúinn fyrir okkur
eins og öll önnur ríki,“ sagði Alexei
Kúdrín.
Rússar fjárfesta
í alþjóðafyrirtækjum
Reuters
Olíugróði Byggingarkrana ber við himin yfir Kreml en í Moskvu hefur
fasteignaverð hækkað mikið og er nú með því hæsta í Evrópu.
Olíugróðinn
nemur þúsundum
milljarða kr. ÚTSALA
Á ERLENDUM BÓKUM
Stúdentaheimilinu v/Hringbraut -s. 5 700 777 - www.boksala.is
afsláttur
Á flri›ja flúsund áhugaver›ir bókatitlar á frábæru ver›i.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
2
7
3
19
Glæsilegt einbýlis-
hús á einni hæð
165,8 fm auk bíl-
skúrs 36,2 fm samt.
202 fm. Húsið er
mjög vel staðsett í
enda botnlanga, ca
1000 fm glæsilega
ræktuð lóð með há-
um trjágróðri. Húsið
er í mjög góðu
standi að utan sem
innan, m.a. er þak
nýlega endurnýjað, nýr garðskáli. Glæsileg ræktuð lóð, ca 85 fm timburpall-
ur, allt fyrsta flokks.
Allar nánari uppl. og bókun á skoðun hjá
Hilmari á skrifstofu Hraunhamars eða í síma 892-9694.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Skógarlundur - Gbæ - Einbýli
Falleg 3ja herb. 79,2 fm
íbúð á 1. hæð í húsi fyrir
eldri borgara. 3 öryggis-
hnappar eru í íbúðinni.
Húsvörður býr í húsinu.
Boðið er upp á heitan
mat í hádeginu og kaffi
á virkum dögum. Íbúar
hafa aðgang að full-
komnu smíða/föndur-
herbergi, leikfimisal með
sauna og snyrtiaðstöðu.
Hárgreiðslu- og snyrtistofa er í húsinu. Stutt í alla þjónustu. Mjög góð eign,
vel staðsett í þessu vinsæla þjónustuhúsi eldri borgara. V. 24,3 millj.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Hjallabraut - Hf - Eldri borgarar