Morgunblaðið - 27.04.2007, Qupperneq 20
20 FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
SENDUM Í PÓSTKRÖFU
www.simnet.is/heilsuhorn
Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889,
fæst m.a. í
Lífsins Lind í Hagkaupum,
Gjafir jarðar Ingólfsstræti 2,
Maður Lifandi Borgartúni 24,
Maður Lifandi Hæðarsmára 6,
Lyfja, heilsuvörudeild, Selfossi,
Yggdrasil Skólavörðustíg 16 og Fjarðarkaupum,
Lyfjaval Hæðasmára og Þönglabakka,
Krónan Mosfellsbæ
Nóatún Hafnarfirði
Í dagsins önn
Náttúrulegt B-vítamín ásamt magnesíum
og C-vítamíni í jurtabelgjum
HAFIÐ er sérstakt umhverfisverk-
efni á vegum Akureyrarbæjar með
það að markmiði að Akureyri verði
fegursti bær landsins. Átakið mun
standa yfir til 15. september nk. og
ástand í þessum málaflokki þá met-
ið. Ef ástæða þykir til þá verður
framhald á átakinu.
Um er að ræða samstarfsverk-
efni umhverfisnefndar, fram-
kvæmdaráðs og heilbrigðisnefndar
bæjarins. Stefnt er að því að koma í
veg fyrir að skildir séu eftir á víða-
vangi lausamunir sem valdið geta
slysum, mengun eða lýti í umhverf-
inu. Nefnd eru bílflök, bílhlutar,
kerrur, vélar, tæki, landbúnaðar-
plast, byggingarefni, umbúðir utan
af sælgæti, drykkjum og annað
sambærilegt.
Fyrirtækjum og einstaklingum
verður sent bréf þar sem átakið
verður kynnt og fólk hvatt til að
hreinsa umhverfi sitt.
Mánaðarlega verður sagt frá ár-
angri og eða árangursleysi átaksins
á heimasíðu Akureyrarbæjar en
bærinn sjálfur mun sýna fordæmi
með því að hreinsa lóðir stofnana
sinna og opin svæði s.s. Glerárdal.
Bæjarfélagið stendur
fyrir umhverfisátaki
AKUREYRI
FIMM milljónir króna voru í gær
veittar úr Háskólasjóði KEA. Sigrún
Björk Jakobsdóttir bæjarstjóri af-
henti styrkina fyrir hönd KEA við at-
höfn á Borgum, rannsóknar- og ný-
sköpunarhúsi við Norðurslóð.
Níu aðilar fengu styrk en alls
komu fimm milljónir til úthlutunar.
Ragnar Stefánsson, jarð-
skjálftafræðingur og prófessor, fékk
úthlutaða hæstu fjárhæðina, eina
milljón króna, vegna rannsóknar um
aðdraganda jarðskjálfta fyrir Norð-
urlandi og viðvaranir um þá.
Þóroddur Bjarnason 350.000
kr. vegna Rannsóknarseturs for-
varna við HA. Sérstök áhersla verður
lögð á rannsóknir sem stuðla að vel-
ferð barna og ungmenna.
Jóhann Örlygsson 500.000 kr.
vegna rannsókna á nýtingu hita-
kærra brennisteinsbaktería í líf-
tækni.
Trausti Þorsteinsson 500.000 kr.
vegna verkefnis sem beinist að því að
staðla lesskilningspróf sem Dagný
Birnisdóttir, kennari í Lundarskóla,
hefur samið. Prófin eru þrjú fyrir
hvern árgang í 3. til og með 9. bekk
grunnskóla. Markmiðið er að gera al-
mennum grunnskólakennurum kleift
að meta lesskilning nemenda og
kanna framfarir þeirra með áreiðan-
legum matstækjum. Þetta verða
fyrstu stöðluðu lesskilningsprófin
sem kennarar eiga aðgang að.
Kjartan Ólafsson 500.000 vegna
rannsóknarinnar Börn og sjónvarp á
Íslandi 1968–2003.
Ingi Rúnar Eðvarðsson 800.000
vegna rannsóknar á útvistun þjón-
ustustarfa frá Reykjavík til lands-
byggðar.
Oddur Vilhelmsson 500.000
vegna greiningar á svömpum og sam-
lífisörverum þeirra en markmið
verkefnisins er að kennigreina til
ættkvísla samlífisbakteríur svampa
og annarra hryggleysingja við hve-
rastrýturnar í Eyjafirði og þróa
heppilega aðferð til að kennigreina
sjávarsvampa með tilsvarandi að-
ferðum.
Hreiðar Þór Valtýsson 500.000
kr. vegna umhverfisrannsókna vegna
bláskeljaræktar. Markmið verkefnis-
ins er að koma af stað vöktunarverk-
efni vegna bláskeljaræktunar.
Kamilla Rún Jóhannsdóttir og
Nicola Whitead 350.000 kr. til að
rannsaka áhrif þjálfunar og reynslu á
samspil farsímanotkunar og athygli
ökumanna.
Fimm milljónir króna
úr Háskólasjóði KEA
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Ýmiskonar rannsóknir Nokkrir þeirra sem fengu úthlutað úr sjóðnum
ásamt framkvæmdastjóra KEA, staðgengli rektors og bæjarstjóranum.
Hæsta fjárhæðin
vegna jarðskjálfta
Í HNOTSKURN
»Markmið rannsóknarRagnars Stefánssonar er
kortlagning á brotflötum
stórra jarðskjálfta við Norður-
land sem og spennuástandi.
Ragnar stefnir að því að koma
niðurstöðum rannsóknarinnar
og annarra inn í bráðavár-
kerfi til að þær nýtist strax til
hættumats og viðvörunar.
EINA tilboðið sem barst í trésmíða-
vinnu við menningarhúsið Hof var
upp á rúmlega 208% yfir kostnaðar-
áætlun. Tilboðið var 486 milljónir
en áætlunin um 233. Frá þessu er
sagt í Vikudegi sem kom út í gær-
kvöldi. Tilboð í flesta verkþætti
voru langt yfir áætlunum.
Tilboðin langt
yfir áætlunum
HIÐ árlega Hængsmót, opið
íþróttamót fyrir fatlaða á vegum
Lionsklúbbsins Hængs á Akureyri,
verður í íþróttahöllinni um helgina.
Þetta er í 25. skipti sem mótið fer
fram og verður Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands, heið-
ursgestur í lokahófi mótsins sem
fram fer á mánudagskvöldið. Kepp-
endur verða um 200 að þessu sinni,
frá 12 félögum.
Hængsmótið
um helgina
HIN árvissa vorhreinsun í Reykjavík verður
dagana 28. apríl–5. maí en þá leggja starfs-
menn hverfastöðva framkvæmdasviðs garðeig-
endum lið og fjarlægja garðaúrgang sem sett-
ur hefur verið út fyrir lóðamörk. Það var
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri sem
hleypti átakinu formlega af stað með því að
taka til í garðinum við hús sitt í Máshólum.
„Garðeigendur eru beðnir um að nota tæki-
færið og klippa þann gróður sem vex út fyrir
lóðamörk og hindrar umferð. Góður frágangur
flýtir fyrir vorhreinsun og eru garðeigendur
beðnir um að binda greinaafklippur í knippi og
setja garðaúrgang (lauf og plöntuleifar) í poka.
Mikilvægt er að blanda ekki lausum jarðvegi
og öðru rusli saman í pokana. Framkvæmda-
svið vill árétta að eingöngu verður fjarlægður
garðaúrgangur, en annað rusl, jarðveg og
ýmsa muni verða garðeigendur sjálfir að fara
með til förgunar og er bent á endurvinnslu-
stöðvar Sorpu í því sambandi. Þá verða ekki
fjarlægð stór tré og trjástofnar,“ segir í til-
kynningu frá framkvæmdasviðinu.
Á ferð um borgina alla vikuna
Starfsmenn hverfastöðvanna verða á ferð
um borgina alla vikuna og geta garðeigendur
hvenær sem er til og með 5. maí sett garðaúr-
gang út fyrir lóðamörk. Allt að 50 manns koma
að vinnunni og nýta til þess 16 vinnuflokkabíla,
5 vörubíla og 8 traktorsgröfur.
Garðaúrgangur fer á jarðvegslosunarsvæði
Reykjavíkurborgar og sömu leið fara trjá-
greinarnar eftir að þær hafa verið kurlaðar.
Kurlið, ásamt því sem til fellur frá grasslætti í
sumar, verður notað til að þekja yfirborð á
jarðvegstipp og hefur það reynst góður grunn-
ur fyrir sáningu. Síðastliðin þrjú ár hefur verið
sáð í um það bil 5 hektara svæði með slíkum
hætti.
Vorhreinsun að hefjast í Reykjavík
Morgunblaðið/Sverrir
Hreinsun Vorhreinsunin er hugsuð sem hvatning til íbúa borgarinnar að taka til í eigin
garði. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri lætur ekki sitt eftir liggja.
FYRSTA skóflustunga vegna fyrirhugaðra framkvæmda í Kaplakrika var tekin í vikunni. Einn-
ig voru undirritaðir verksamningar um jarðvinnu og eftirlit. Þessum framkvæmdum á að vera
lokið að fullu fyrir 1. júní 2009 og eru þær meðal annars nýtt frjálsíþróttahús, tengibyggingar,
lyftingarsalur, starfsmannarými, félagsaðstaða, yfirbyggð áhorfendastúka við núverandi leik-
vang, breyting á núverandi byggingu, breytingar á bílastæðum og aðkomu. Gunnar Svavarsson
er formaður byggingarnefndar.
Undirbúningur að lokaáfanga á uppbyggingu FH svæðis hófst sumarið 2005, í framhaldi af
viljayfirlýsingu á milli FH og Hafnarfjarðarbæjar sem undirrituð var á 75 ára afmælis félagsins
16. október 2004. Byggingarnefnd FH ákvað að bjóða út arkitektahönnun og verkfræðihönnun í
lokuðum útboðum. Samið var við arkitektastofuna Batteríið ehf. og VSB verkfræðistofu.
Samtals eru nýbyggingar um 7.000 m². Lóðin verður öll endurgerð, bílastæði, gönguleiðir og
aðkoma að svæðinu þ.m.t. við Flatahraun og aðgengi að íþróttamiðstöðinni. Núverandi íþrótta-
hús og knatthúsið Risinn verða í notkun allan byggingartímann. Þó verður eldri búnings-
herbergjum lokað meðan unnið er að endurgerð þeirra.
Morgunblaðið/Golli
Skóflustunga í Kaplakrika
MENNINGARMÁLASTOFNUN Sameinuðu
þjóðanna (UNESCO) vinnur að gerð staðla
sem skilgreina eiga tæknifærni kennara. Ósk-
ari J. Sandholt, framkvæmdastjóra fræðslu-,
menningar- og þróunarsviðs Seltjarnarnesbæj-
ar, var boðið að vera einn sérfræða sem fara yf-
ir tillögur frá UNESCO, meta gagnsemi þeirra
og benda á kosti og galla.
Verkefnið er umfangsmikið og koma sér-
fræðingar frá öllum heimsálfum að starfinu.
Markmiðið er að styðja við kennara og auka
hæfni þeirra til að miðla þekkingu á tímum
tækniþróunar. Staðlarnir beinast fyrst og
fremst að því að samþætta tækniþekkingu við
uppeldis- og kennslufræði og skipulagningu
skólastarfs. Vonast er til að tilkoma staðlanna
stuðli að betra menntakerfi sem aftur skili hæf-
ara fólki út á vinnumarkaðinn.
Tekur þátt í UNESCO-verkefni