Morgunblaðið - 27.04.2007, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 27.04.2007, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2007 39 ✝ Við þökkum innilega öllum þeim sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts okkar ást- kæru móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, SOFFÍU JÓHANNSDÓTTUR frá Skálum á Langanesi. Sérstakar þakkir viljum við senda starfsfólki Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir góða umönnun. Guðbjörg Nielsen, Kári Nielsen, Fróði Indriðason, Leena Janus, Kristján Indriðason, Kristín María Indriðadóttir, Kristinn Óskarsson, Guðmundur Hólm Indriðason, Ragnar Indriðason, Aðalheiður Daníelsdóttir, Birgir Indriðason, Rut Indriðadóttir, Pétur Bolli Jóhannesson. ✝ Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, SOFFÍU NÍELSDÓTTUR hjúkrunarfræðings, Víðimel 30, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks deilda 11B og 11G, Landspítala við Hringbraut. Grímur Jósafatsson, Hlynur Níels Grímsson, Elísa Guðrún Halldórsdóttir, Egill Smári Hlynsson, Kjartan Nói Hlynsson. ✝ Innilegar þakkir fyrir hlýhug og auðsýnda samúð við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, KRISTJÁNS SIGURJÓNSSONAR. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Roðasala, Grundar og Sunnuhlíðar fyrir frábæra umönnun og hlýhug. Helga Kristjánsdóttir, Kristján Þór Gunnarsson, Guðrún Hulda Birgis, Sigurjón Kristjánsson, Ragnhildur Sumarliðadóttir, Jónína Kristjánsdóttir, Magnús Eðvald Kristjánsson, Freyja Kristjánsdóttir, Einar Rafn Haraldsson, Arnar Logi Kristjánsson, Júlíus Steinn Kristjánsson, Anna Lísa Rasmussen, Hörður Þ. Garðarsson, barnabörn og barnabarnabörn. af golfbakteríunni sem hann hafði svo gaman af. Hann var rólegur að eðlisfari, nægjusamur og vinmargur. Elsku Krissa, Bára, Hjalti, Leó og aðrir ættingjar, við sendum ykkur allan okkar styrk á erfiðum tíma. Minningin um einstakan dreng lifir í hjörtum okkar allra. Jóhann Þór, Guðrún og fjölskylda. Hér sit ég hljóð og hnípin við tölv- una mína og byrja á því að spyrja góðan Guð hvort hann ætli virkilega að taka til sín í einni andrá allt besta og fallegasta unga fólkið í fjölskyld- unni. Hinn 16. mars síðastliðinn fylgdi ég bróðurdóttur minni til graf- ar aðeins 49 ára gamalli, stórgáfaðri og vel gerðri stúlku í alla staði. Í dag, 27. apríl, fylgi ég systursyni mínum, honum Daða Halldórssyni til grafar aðeins 47 ára gömlum. En hann fékk hjartastopp á golfvellinum hér á Akranesi sumardaginn fyrsta, af- mælisdegi einu systur sinnar. Ég var rétt að leggja frá mér sím- tólið eftir að hafa óskað henni til hamingju með afmælið þegar síminn hringdi og mér barst þessi voðafregn að Daði væri dáinn. Hvernig getur þetta gerst, þessi gullfallegi ungi maður sem var hvers manns hugljúfi og í alla staði sómamaður. Ég deili ekki við dómarann, enda hlýtur þetta að vera Guðs vilji. Mikið ósköp á ég erfitt með að trúa því að ég fái ekki að sjá hann framar. En það er gott að eiga góðar minningar, þær tekur enginn frá mér. Og þú sem varst mér sem besti sonur alla tíð og ekki síst þegar ég átti hvað erfiðast eftir frá- fall mannsins míns. Þá var ósköp gott að geta farið á Furugrundina til Daða og Krissu. Lífshlaup þitt, elsku Daði minn, ætla ég ekki að rekja hér, en geri kveðskap Vigdísar Runólfsdóttur frá Gröf, eins og hún var ætíð kölluð, að lokaorðum mínum til þín. Lokið er kafla í lífsins miklu bók. Við lútum höfði í bæn á kveðjustund. Biðjum þann Guð, sem gaf þitt líf og tók græðandi hendi að milda sorgarstund. Ó, hve við eigum þér að þakka margt þegar við reikum liðins tíma slóð. Í samfylgd þinni allt var blítt og bjart blessuð hver minning, fögur, ljúf og góð. Okkur í hug er efst á hverri stund ást þín til hvers, sem lífsins anda dró hjálpsemi þín og falslaus fórnarlund. Friðarins Guð þig sveipi helgri ró. Krissa mín, Bára, Hjalti og Leó. Ég veit hvað harmur ykkar er mikill, þá er gott að hugsa til orða ömmu Löllu sem sagði ætíð þegar eitthvað amaði að „þið vitið að Guð leggur ekki meira á okkur mennina en okk- ur er ætlað að þola“. Og ég veit líka að þið verðið sterk og standið þétt saman. Að lokum votta ég öllum ást- vinum hans mína dýpstu samúð og bið Guð að styrkja ykkur öll. Blessuð sé minning þín, kæri vinur. Hafdís Daníelsdóttir. Ég er á leiðinni uppá Skaga, það er vor í lofti og aðalmarkmið ferð- arinnar er að hitta besta frænda minn og uppeldisbróður, Daða Hall- dórsson. Við ætlum að fara á báti hans úr Kalmannsvík á grásleppu, veiða svolítið af svartfugli og mögu- lega skjóta varg. Daði er skipperinn, enda mikill veiðimaður á sjó og landi. Hann stjórnar fjörinu á sinn rólega og yf- irvegaða hátt. Við frændurnir erum jafnaldrar, fæddumst í sama húsi og ólumst þar upp fyrstu sjö árin, hjá Löllu ömmu, sátum saman í grunn- skóla og ærsluðumst duglega í fyrsta og öðrum gaggó. Þá spiluðum við saman fótbolta í öllum flokkum ÍA. Hann traustastur í „halfsentinum“ og ég tengiliður. Hér fór saman löng saga og mikill vinskapur, enda vor- um við félagar sem gjörþekktum hvor annan. Á útstíminu tók ég púlsinn á stöð- unni, um Krissu, börnin og bankann og hvort hann væri ekki orðinn þreyttur á því að vera svona innilok- aður, sjórinn væri frelsið. Daði gaf lítið út á það, enda vissi ég að þótt hann kynni vissulega að meta það frelsi sem slíkar ferðir fela í sér, var fjölskyldan honum fyrir öllu. Við ræddum málin í þaula og hann, raunsæismaðurinn, endaði gjarnan á því að segja: „Já, já, Denni minn svona er þetta bara, við getum litlu breytt þar um“. Við vorum sextán þegar hann missti móður sína. Ég vissi vel hve mikið hann hafði misst en þeir sem þekktu hann minna áttuðu sig síður á því, enda var hann einn af þeim sem bera harm sinn í hljóði. Daði Halldórsson var mikill húm- oristi, hvers manns hugljúfi og mátti ekkert aumt sjá. Því kynntist ég vel þegar ég missti föður minn. Þá reyndist mér enginn betur en Daði. Að auki var Daði glæsilegur á velli, mikill íþróttamaður, hraustur og hress, nærgætinn og umhyggju- samur, vel liðinn, nákvæmur og mjög duglegur. Ímynd sem Lands- bankinn á Skaganum mun njóta um ókomna tíð, enda vann hann í þeirri stofnun allan sinn starfsaldur og naut mikils trausts hjá yfirmönnum bankans og ekki síður hjá heima- mönnum sem allir vildu hafa hann með í ráðum. Á undanförnum vikum hittumst við Daði oft í fermingarveislum og þá gafst okkur einatt færi á að ræða málin. Ég hafði sérsaka ánægju af því að sjá hversu rólegur og yfirveg- aður fjölskyldufaðir Daði var orðinn og hve stoltur hann var af fjölskyldu sinni. Dóttirin í háskóla og strák- arnir á fullu við sitt. Það er erfitt að trúa því að minn kæri vinur sé okkur horfinn fyrir fullt og allt. En ég veit að handan tjaldsins verður vel tekið á móti honum. Kæra Krissa, Bára, Hjalti, Leó og fjölskylda, ég votta ykkur mína dýpstu samúð og bið Guð að styrkja ykkur í sorg ykkar. Kæri frændi og fóstbróðir, takk fyrir góðlega brosið og samfylgdina. Daníel Helgason. Elsku Daði frændi. Það er erfitt að trúa því að ég muni aldrei hitta þig framar. En ég á svo margar minningar frá því þegar ég var yngri og kom til ykkar í heim- sókn, ég fékk alltaf svo hlýlegar og góðar móttökur. Það var alltaf jafn gaman að fara með ykkur á fótbolta- leiki og í bíltúra um bæinn. Svo má ekki gleyma golfhringjunum sem við höfum spilað saman á síðustu árum. Ég mun alltaf líta upp til þín, vegna þess hversu góður þú varst, brosmildur og notalegur. Þakka þér fyrir allar þær stundir sem við höfum átt saman. Minning þín mun alla tíð lifa í hjarta mínu. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. (Bubbi Morthens.) Lárus Freyr. Elsku Daði, þú varst svo góður og hlýr, og það var svo gaman að sitja hjá þér og spjalla, það eru margar minningar sem hellast yfir okkur núna, við munum vel eftir brosinu þínu, hlátrinum og hvernig bláu aug- un blikuðu þegar þú sagðir skemmti- lega sögu. Daði hafði einstaklega góða nær- veru, hann var hreinskilinn og jarð- bundinn. Þegar við systkinin vorum yngri vorum við oft í pössun á Furu- grundinni, það var alltaf svo gaman, og mikið sótt í að vera þar því þar leið okkur vel. Það er erfðara en orð fá lýst að missa þig en um leið erum við þakk- lát fyrir að hafa fengið að kynnast þér og átt margar góðar stundir saman, þú átt alltaf stað í hjörtum okkar. Fjölskyldunni þinni sendum við hlýju og ást. Sjáumst seinna. Kveðja Ögmundur og Gerða. Lífið er hverfult. Á það erum við rækilega minnt þegar kær vinur og vinnufélagi á besta aldri er fyrir- varalaust hrifsaður á brott án nokk- urs fyrirvara, vel á sig kominn og ekkert virtist ama að. Það var sumardagurinn fyrsti – vorið og sumarið rétt handan við hornið. Dagurinn var bjartur og fal- legur og Daði Halldórsson ákveður að fara á þann stað þar sem hann undi sér best í sínum frítíma utan faðms fjölskyldu sinnar. En sá stað- ur var golfvöllurinn á Akranesi. Daði var mikill golfáhugamaður og snjall kylfingur. Hann lagði af stað í golf- hringinn ásamt æskufélaga sínum og vini Guðjóni Viðari Guðjónssyni. Þeir voru skammt komnir í golf- hringnum þegar hann fékk alvarlegt hjartaáfall og var allt gert sem í mannlegu valdi stóð, bæði hjá þeim sem næst voru þarna á staðnum og síðar hjá færustu læknum, en því miður án árangurs. Eftir standa fjölskylda, vinir og vinnufélagar agndofa og máttvana. Vorkoman hafði líka aðra merk- ingu í lífi Daða og hjá okkur sem til þekktu. Það var grásleppuvertíðin. Hann var þegar byrjaður að huga að henni enn eitt vorið. Upphaflega fór hann á grásleppuveiðar með afa sín- um og hafði síðan til fjölda ára ásamt mági sínum, Guðmundi Sigurbjörns- syni, stundað grásleppuveiðar við Akranes. Við vinnufélagarnir vissum að það var stutt í vertíðina þegar ákveðinn fiðringur kom í okkar mann á vormánuðum. Í fyrstu tók hann ætíð sumarfríið sitt til þess að geta stundað veiðarnar af krafti en hin síðari ár var hann farinn draga úr ákafanum og notaði aðeins hluta frítíma síns utan vinnu við veiðarnar. Daði var mikill fjölskyldumaður. Hann var ástríkur heimilisfaðir og mikill vinur barna sinna. Hann og Kristrún, eiginkona hans, voru af lífi og sál með börnum sínum í þeirra áhugamálum og fylgdu þeim frá unga aldri á íþróttamót og aðra við- burði sem tengdust áhuga þeirra og væntingum, auk þess að starfa öt- ullega í foreldrafélögum m.a. ÍA. Sjálfur stundaði Daði íþróttir af miklum krafti á sínum yngri árum. Lék með Skagamönnum upp alla yngri flokkana í ÍA og með meist- araflokksliði ÍA í handbolta. Daði mikill áhugamaður um allar íþróttir þótt golfið og knattspyrnuna bæru þar hæst. Hann var mikill stuðningsmaður Skagamanna og svo Arsenal í enska boltanum. Daði vann lengst af starsævi sinn- ar hjá Landsbanka Íslands á Akra- nesi. Þaðan þekktum við hann best sem þessar línur ritum. Daði var frá- bær starfsmaður og vinnufélagi. Hann starfaði sem þjónustufulltrúi og leituðu viðskiptavinir bankans mikið til hans enda lagði hann sig fram um að leysa úr þeirra málum. Hann var einstaklega ráðagóður og hafði ríka þjónustulund. Við vinnu- félagarnir höfum fundið það svo vel síðustu daga hversu sorg og sökn- uður alls þessa fólks er mikill. Blóm og gjafir hafa borist til okkar í bank- ann frá viðskiptavinum til minningar um Daða. Það segir allt sem segja þarf. Það sem einkenndi Daða líka öðru fremur var hversu létta lund hann hafði og stutt var í hláturinn. Hlátur hans var svo smitandi og hann var fljótur að sjá allar spaugilegu hliðar tilverunnar. Hann var lúmskt stríð- inn og var fljótur að bauna á okkur starfsfélagana ef við gáfum færi á því en allt á svo skemmtilegan og góðlátlegan hátt. Við eigum erfitt með að skilja hvers vegna Daði var tekinn frá okk- ur svona fljótt en við trúum því og vitum að honum hefur verið ætlað annað hlutverk. Söknuður okkar samstarfsfólks Daða í Landsbankan- um á Akranesi er meiri en orð fá lýst en minningin um ljúfan dreng mun lýsa veg okkar áfram. Elsku Krissa, Bára, Hjalti og Leó og aðrir ættingjar og vinir Daða, við sendum ykkur innilegustu samúðar- kveðjur og biðjum ykkur guðs bless- unar á þessum erfiðu tímum, þó að fráfall hans sé óskiljanlegt í dag fáum við skýringar þótt síðar verði. Blessuð sé minning Daða Hall- dórssonar. Samstarfsfólk í Landsbanka Íslands á Akranesi. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem) Sumardagurinn fyrsti rann upp einstaklega fagur, fólk var í sumar- skapi og framan af degi var fátt sem gat bent til þess að hann yrði sveip- aður þeirri sorg sem hann nú hefur skilið eftir í hjörtum okkar allra. Það er erfitt að sætta sig við að missa þig frá okkur og við munum alltaf koma til með að sakna samvist- anna við þig, ekki síst léttleikans og þíns þægilega viðmóts sem alltaf hefur einkennt þig og fylgt þér. Flest okkar urðu þess aðnjótandi að fá að alast upp með þér frá barns- aldri, beint og óbeint, í gegnum íþróttir og skóla, en tengsl okkar voru endanlega innsigluð og staðfest þegar þið Krissa hófuð ykkar sam- búð. Hópur vinkvenna hafði byrjað í saumaklúbb aðeins 17–18 ára gamlar og í framhaldinu tíndust makarnir inn. Margt hefur verið brallað á þessum 30 árum. Minnisstæðust eru ferðalögin okkar með börnunum, sumarbústaðaferðirnar ásamt mörg- um uppátækjum sem urðu til þegar einhver í hópnum átti afmæli eða þegar við gerðum okkur glaðan dag saman. Mikill vinskapur og sam- heldni hefur einkennt okkar hóp all- an þennan tíma. Gott dæmi um það er þegar við fórum saman í fimm- tugsafmæli í vetur. Þar fórst þú á kostum og þá minningu um þig lang- ar okkur að varðveita og taka með okkur. Við munum alltaf minnast þín sem mikils áhugamanns um fótbolt- ann á Skaganum og líklega hafa fáir haft jafnmikinn skilning og þekkingu á íþróttinni og þú. Í fyrsta skipti á farsælum ferli hópsins stóðum við frammi fyrir því að hittast við svo erfiðar kringum- stæður sem þessar. Og þvílíkt áfall. Ekki bara góður félagi heldur einnig kær eiginmaður og faðir hefur kvatt okkur allt of fljótt. Elsku Krissa, Bára, Hjalti og Leó. Foreldrar, systkini, tengdabörn, ættingjar og vinir. Megi góður guð gefa ykkur styrk á þessum erfiðu tímum. Minningin um góðan dreng mun lifa. Saumaklúbburinn og makar. Við kynntumst Daða fyrir um fjór- tán árum þegar Björg og Krissa kona hans urðu skólasystur í FÍ. Nokkrum árum síðar höguðu örlögin því svo að við fluttum á Akranes og frá þeim tíma hafa þau hjón og börn þeirra verið ein af okkar albestu og tryggustu vinum. Þau bókstaflega sáu um okkur á Skaganum fyrst eftir að við fluttum á nýjan stað, þar sem við þekktum engan. Um Bjarka hafa þau oft á tíðum séð um lengri eða skemmri tíma, því stundum er vont að eiga ekki nána ættingja á staðn- um sem maður býr á. Það var gott að umgangast Daða. Svo hægan og rólegan, en gat samt verið ákveðinn og fastur fyrir. Alltaf gott að leita ráða hjá honum við vandamálum. Hann bar hag fjöl- skyldu sinnar mjög fyrir brjósti og börnin voru honum einkar hugleikin og að þeim farnaðist vel í lífinu. Það er dýrmæt minningin sem við eigum núna um Daða sem við áttum kvöldstund með helgina áður en hann lést. Þar var talað og hlegið og síðar um kvöldið kom svo Krissa og við hlógum og töluðum enn meira. M.a. um börnin okkar og yngstu syn- ina sem þá voru einmitt saman eins og svo oft áður. SJÁ SÍÐU 40

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.