Morgunblaðið - 27.04.2007, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2007 43
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Leikfimi kl. 8.30. Vinnustofan opin
kl. 9–16.30. Bónusferð kl. 10. Bingó kl. 14. Söng-
stund við píanóið kl. 15.30.
Árskógar 4 | Kl. 9–12 opin handavinnustofa. Kl. 9–
16.30 opin smíðastofa. Kl. 13.30 bingó (2. og 4.
föstudag í mán.).
Bergmál líknar- og vinafélag | Bergmál, líknar- og
vinafélagið, verður með opið hús þriðjudaginn 1.
maí kl. 16 í Blindraheimlinu, Hamrahlíð 17, og hefst
með hugvekju séra Sigurðar Jónssonar. Söngur,
gamanmál. Matur að hætti Bergmáls. Vinsamleg-
ast tilkynnið þátttöku hjá Þórönnu s. 568 1418/
820 4749 og Ernu s. 557 6546/864 6661.
Bólstaðarhlíð 43 | Blaðaklúbbur og umræður kl.
10. Leikfimi kl. 11. „Opið hús“ spilað á spil, vist/
bridge kl. 13. Kl. 14.30 kemur sönghópur frá Versl-
unarskóla Íslands og syngur nokkur lög undir stjórn
Vilborgar Þórhallsdóttur. Allir velkomnir. Hár-
greiðsla, böðun, almenn handavinna, morgunkaffi/
dagblöð, fótaaðgerð, hádegisverður, frjálst að spila
í sal, kaffi. Upplýsingar í síma 552 4161.
FEBÁ, Álftanesi | Gönguhópurinn hittist þriðju-
dags- og föstudagsmorgna kl. 10 við Litlakot. Geng-
ið í u.þ.b. klst. á hraða sem hentar öllum. Kaffi í
Litlakoti eftir gönguna. Nýtt fólk velkomið. Litlakot
kl.13–16. Vilborg okkar ber fram heimalagaða súpu
og nýbakað brauð kl. 13.30. Akstur annast Auður
og Lindi, sími 565 0952.
Félag eldri borgara í Kópavogi | FEBK verður með
Opið hús í félagsheimilinu Gullsmára, laugardaginn
28. apríl kl. 14. Samkór Kópavogs syngur. Stjórn-
andi Björn Thorarensen. Upplestur: Ólafur Jens
Pétursson. Þráinn kynnir ferðir FEBK í sumar.
Tískusýning. Fatnaður frá Dalakofanum í Hafn-
arfirði og Dressmann í Smáralind. Veitingar.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Bókmenntahópur
í dag kl. 13, umsjón Sigurjón Björnsson, prófessor
og bókmenntagagnrýnandi. Munið Vorfagnaðinn í
kvöld kl. 20, fjölbreytt skemmtiatriði og dans. Eldri
borgarar, tökum höndum saman við Reykjavík-
urtjörn á morgun, kl. 13–15. Gangan hefst kl. 14.
Félagsheimilið Gjábakki | Bossía kl. 9.30. Yoga kl.
10.50. Hádegisverður kl. 11.40. Lokað eftir hádegi í
dag vegna fræðsluferðar starfsmanna. Félagsvist
kl. 20.30.
Félagsmiðstöðin, Gullsmára 13 | Kl. 9 vefnaður, kl.
9.30 jóga, kl. 10 ganga, kl. 10.30 leikfimi, kl. 11.40
hádegisverður. Lokað eftir hádegi vegna ferðalags
starfsfólks.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Vatnsleikfimi kl.
12 í Mýri. Bútasaumur og ullarvinnsla kl. 13 í Kirkju-
hvoli. Bíósýning í boði kirkjunnar kl. 14 í safn-
aðarheimilinu. Síðasti dagur til að sækja leik-
húsmiða í Garðabergi kl. 12.30–16.30.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar m.a. bókband. Kl. 10.30 á vegum FÁÍA
kennsla í Lancier-dansi (vantar karlmenn) und-
irbúningur fyrir Landsmót UMFÍ í júlí. Kl. 10.30 létt
ganga um nágrennið. Frá hádegi spilasalur opinn.
Kl. 13 kóræfing. Uppl. á staðnum og s. 575 7720.
Strætisvagnar S4, 12 og 17.
Hraunbær 105 | Föstudaga: Kl. 9–12.30 handa-
vinna. Kl. 9 baðþjónusta. Kl. 9–12 útskurður. Kl. 12–
13 hádegismatur. Kl. 14.45 bókabíllinn. Kl. 14 bingó.
Kl. 15 kaffi.
Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9. Leikfimi kl.
11.30. Tréskurður kl. 13. Brids kl. 13. Boccia kl. 13.30.
Hvassaleiti 56–58 | Jóga kl. 9–12.15, Björg F. Opin
vinnustofa kl. 9–12, postulínsmálning. Hársnyrting
517 3005/849 8029.
Hæðargarður 31 | Sparikaffi. Fastir liðir eins og
venjulega. Sjálfstæðisflokkurinn kemur í heimsókn
föstudag 27. apríl í hádeginu. Síðasti fundur í bók-
menntahópi er nk. miðvikudag kl. 20. Suðursveit-
arhópurinn mætir. Allir velkomnir alltaf. Kíktu við.
S.568 3132.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Blaðaklúbbur og um-
ræður kl. 10. Leikfimi í salnum kl. 11. „Opið hús“ spil-
að á spil kl. 13. Kaffiveitingar kl. 14.30. Upplýsingar í
síma 552 4161.
Vesturgata 7 | Kl. 13.30–14.30 sungið við flygilinn
við undirleik Sigurgeirs Björgvinssonar. Kl. 14.30–
16 dansað í aðalsal við lagaval Sigurgeirs. Kl. 15
koma frambjóðendur frá Sjálfstæðisflokknum í
heimsókn. Rjómaterta í kaffitímanum. Allir vel-
komnir.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 9.30–12.30,
leirmótun kl. 9–13, morgunstund 9.30, leikfimi kl.
10-11, bingó kl. 13.30. Allir eru velkomnir í fé-
lagsmiðstöðina.
Þórðarsveigur 3 | Kl. 13 opinn salurinn. Kl. 13
boccia.
Kirkjustarf
Áskirkja | Dalbraut 27, kl. 10.15–11. Öndunar-
æfingar, slökun og bæn í umsjá djákna Áskirkju. Kl.
14 verður guðsþjónusta á Dalbraut 27 í umsjá
sóknarprests Áskirkju. Furugerðiskórinn syngur.
Breiðholtskirkja | Fjölskyldumorgunn kl. 10. Ávext-
ir, kaffi og djús í boði. Allir velkomnir.
Dómkirkjan | Kl. 17.30 verður kyrrðarstund í Dóm-
kirkjunni fyrir ungt fólk. Að athöfninni standa Mið-
borgarstarf Dómkirkjunnar, Foreldrahús, Vímulaus
æska og ÆSKR. Allir eru velkomnir. Fyrir hönd
samstarfshópsins, sr. Þorvaldur Víðisson, miðborg-
arprestur Dómkirkjunnar.
Fríkirkjan Kefas | Unglingasamkoma kl. 20. Biblíu-
fræðsla, söngur, samvera og fleira. Allir unglingar
velkomnir. www.kefas.is.
Vegurinn, kirkja fyrir þig | Unglingasamkoma
verður haldin í Veginum að Smiðjuvegi 5 kl. 20.
Lofgjörð, predikun, fyrirbæn og kærleikur. Allir vel-
komnir. www.gsus.is.
Vídalínskirkja, Garðasókn | Í dag, föstudaginn 27.
apríl, stendur eldriborgaranefnd Garðasóknar fyrir
sýningu myndarinnar, „About Schmidt“ með Jack
Nicholson í aðalhlutverki, í Safnaðarheimilinu
Kirkjuhvoli kl. 14. Kaffi og umræður á eftir. Þorlákur
sækir þá sem óska, sími 869 1380. Verið velkomin.
Upplýsingar í síma 565 6380.
dagbók
Í dag er föstudagur 27. apríl, 117. dagur ársins 2007
Orð dagsins: Nýtt boðorð gef ég yður, að þér elskið hver annan. Eins og ég hef elskað yður, skuluð þér einnig elska hver annan. (Jóh. 13, 34.)
Rarik er 60 ára í ár og verðurafmælisins minnst meðfyrirlestradagskrá í dag,föstudag, að loknum aðal-
fundi, í Salnum, Kópavogi.
Tryggvi Þór Haraldsson er forstjóri
Rarik: „Málþingið er frá 14 til 16 og
verða flutt áhugaverð erindi um fortíð,
nútíð og framtíð Rarik,“ segir Tryggvi
Þór. „Rarik hóf starfsemi 1. janúar
1947 með það að markmiði að afla al-
menningi og atvinnugreinum nægrar
raforku á sem hagstæðastan hátt. Síð-
an þá hefur Rarik verið í stöðugri upp-
byggingu og þróun, en meðal verkefna
má nefna línulögn og rafvæðingu meg-
inhluta landsins, margs konar virkj-
unarframkvæmdir og uppbyggingu
byggðalínukerfis sem tengdi saman
raforkuframleiðslu um land allt og batt
enda á raforkuframleiðslu með olíu- og
dísilstöðvum. Í dag tengjast rúmlega
28.000 heimtaugar háspennukerfi Ra-
rik sem er um 9.000 kílómetrar að
lengd og starfa 215 manns hjá fyrir-
tækinu.“
Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra flyt-
ur opnunarávarp málþingsins. „Þá mun
Sveinn Þórðarson sagnfræðingur fjalla
um sögu rafmagns á Íslandi í 100 ár og
hvernig sú saga er samofin framfara-
sögu þjóðarinnar,“ segir Tryggvi Þór.
„Guðný Sverrisdóttir sveitarstjóri seg-
ir sögur af komu rafmagnsins í sveit-
ina, Steinunn Huld Atladóttir, gæða-
og umhverfisstjóri Rarik, spyr spurn-
ingarinnar „Eru línurnar í lagi?“ og
skoðar umhverfisstefnu Rarik og þá
stefnu fyrirtækisins að fækka raf-
magnstaurum og leggja raflínur í
auknum mæli í jörð. Loks mun Þor-
steinn Pálsson ritstjóri fjalla um breytt
viðhorf til nýtingar auðlinda og eigna-
réttar.“
Tryggvi Þór segir mörg spennandi
tækifæri framundan fyrir Rarik: „Ra-
rik var gert að hlutafélagi í ágúst á síð-
asta ári, og orkusala fyrirtækisins hef-
ur verið færð inn í sjálfstætt
dótturfélag og þannig aðskildir einka-
leyfis- og samkeppnisþættir í starfsemi
fyrirtækisins. Þá er þátttaka í verk-
efnum erlendis nú í skoðun en breytt
rekstrarumhverfi raforkufyrirtækja
hefur jafnað rekstrarmöguleika fyr-
irtækisins talsvert og er Rarik vel í
stakk búið til að takast á við næstu 60
ár.“
Orka | Málþing í Salnum í Kópavogi í dag kl. 14 til 16 á 60 ára afmæli Rarik
Fortíð, nútíð og framtíð Rarik
Tryggvi Þór
Haraldsson fædd-
ist í Reykjavík
1956. Hann lauk
stúdentsprófi frá
MT 1976, og C.Sc.
prófi frá Háskóla
Íslands 1980.
Tryggvi hóf störf
hjá Rarik 1980,
fyrst á áætlanadeild, síðar rafeinda-
deild og frá 1993–2003 umdæmis-
stjóri Rarik á Norðurlandi eystra.
Hann tók við starfi rafmagnsveitu-
stjóra 2003. Tryggvi er kvæntur
Guðrúnu S. Jónsdóttur leikskóla-
kennara og eiga þau þrjú börn og
fjögur barnabörn.
Tónlist
Fella- og Hólakirkja | Húnakórinn
og Kammerkórinn Opus 12 halda
sameiginlega vortónleika í Fella-
og Hólakirkju laugardaginn 28.
apríl kl. 17. Fjölbreytt efnisskrá,
lög eftir innlenda og erlenda höf-
unda.
Grand Rokk | Dikta og Hjaltalín
halda rokktónleika á Grand Rokk.
Dikta frumflytur m.a. ný lög. Tón-
leikarnir hefjast upp úr miðnætti
og kostar 500 krónur inn.
Norræna húsið | Sumartónleikar
Vox Borealis-kórs ungmenna-
deildar Norræna félagsins. Föstu-
daginn 27. apríl kl. 18 í Norræna
húsinu. Miðaverð kr. 500.
Salurinn, Kópavogi | LHÍ Út-
skriftartónleikar, föstudagur 27.
apríl, kl. 20. Matthildur Anna
Gísladóttir heldur útskrift-
artónleika sína frá Listaháskóla
Íslands. Hún spilar á píanó. Að-
gangur ókeypis og allir velkomnir.
Myndlist
Listasafn ASÍ | Sýningu Borg-
hildar Óskarsdóttur „Opnur“ lýk-
ur um helgina á Listasafni ASÍ.
Uppistaðan í sýningunni er ætt-
ar- og fjölskyldusaga sem tengist
hinum ýmsu stöðum á sunn-
anverðu landinu, náttúrunni þar
og húsum. Opið 13–17. Aðgangur
ókeypis.
Listasafn Reykjanesbæjar |
Föstudaginn 27. apríl kl. 18 verð-
ur opnuð sýning á Listasafni
Reykjanesbæjar á verkum Haf-
steins Austmanns, bæði olíu-
málverkum, akrýl- sem og akv-
arella- myndum. Hafsteinn hefur
lengi talist til okkar allra færustu
listamanna og spanna verkin á
sýningunni tímabilið 1986–2007.
Sími 421 3796.
Uppákomur
Múltí Kúltí | Okkar vikulega
styrktarsúpa er í hádeginu. Súpa,
brauð og kaffi, kr. 1000. Að venju
fáum við gest í heimsókn. Að
þessu sinni kemur leynigestur frá
Framsóknarflokknum. Verið vel-
komin.
Saltfisksetrið í Grindavík |
Söguskilti af Þórkötlustaðahverfi
verður vígt kl. 11, laugard. 28. apr-
íl, við réttina í Þórkötlustaða-
hverfi í Grindavík. Jafnframt
verður boðið upp 1 og 1/2 tíma
göngu um hverfið með leiðsögn.
Kaffisala verður í Auðsholti í til-
efni dagsins og sögukort verða
einnig til sölu.
Fyrirlestrar og fundir
Norræna húsið | Kl. 12.15–15.30.
Málþing Samtaka heilbrigð-
isstétta (SHS) um börn, trygg-
ingar og persónuvernd. Fyrirles-
arar verða frá Læknafélagi
Íslands, tryggingafélögum og
Persónuvernd. Þátttökugjald er
kr. 1.500 (súpa og kaffi). Allir vel-
komnir.
MATTEL, fyr-
irtækið sem
framleiðir eina
frægustu
dúkku allra
tíma, hana
Barbie, hefur
nú sett á mark-
að MP3 spilara
í líki dúkk-
unnar góðu.
Spilarinn
var kynntur í
New York í
gær.
Barbie á
tækniöld
FRÉTTIR
VINÁTTU- og menningar-
félag Mið-Austurlanda, VIMA,
heldur aðalfund sinn á Korn-
hlöðuloftinu nk. laugardag kl.
14.
Jóhanna Kristjónsdóttir,
formaður félagsins, flytur
skýrslu stjórnar um ferðir fé-
laga og um verkefni félagsins
í Jemen, en þar styðja félagar
nú hátt í 100 börn og full-
orðnar konur til náms. Hún
segir einnig frá gjafakortum
VIMA en þau eru nýmæli.
Að loknum aðalfund-
arstörfum mun Gísli B.
Björnsson tala um soldáns-
ríkið Óman og sýna teikn-
ingar og myndir þaðan.
Nýir félagar eru velkomnir.
Aðalfundur Vináttu- og menn-
ingarfélags Mið-Austurlanda
Í DAG, föstudag, verður opnuð
MAC-sérverslun í Kringlunni.
Verslunin er á 2. hæð við
innganginn, við hliðina á versl-
un Hagkaupa.
„M·A·C (Make-up-Art-
Cosmetics) er leiðandi merki á
snyrtivörumarkaðinum.
Það var stofnað í Toronto í
Kanada árið 1985. Vinsældir
merkisins fara stöðugt vaxandi
um heim allan og er það ekki
síst vegna ánægju fagfólks
með vörurnar s.s. förð-
unarmeistara, ljósmyndara og
blaðamanna. MAC er selt í um
57 löndum,“ segir í frétta-
tilkynningu.
MAC-búð opnuð í Kringlunni
TUTTUGU keppendur eru
skráðir til leiks í WPC-
Íslandsmóti í kraftlyftingum
sem haldið verður í Smáralind.
kl 13 á morgun, laugardaginn
28. apríl.
Meðal þátttakenda má nefn
gestakeppandann Jörgen
Ljungberg frá Svíþjóð, Magnús
Ver sem mætir eftir langt hlé
og nokkra uppskurði á hnjám,
Ingvar Jóel, Pétur Bruno og
síðast en ekki síst Stefán Sölva
Pétursson, sem mikil sýnir
örugglega mikil tilþrif í rétt-
stöðulyftu, eins og segir í
fréttatilkynningu.
Mótshaldarar eru Magnús
Ver Magnússon og Arnar Már
Jónsson.
Íslandsmót í kraftlyftingum
Skartgripir
Fjallkonunnar
Reynomatic
Café Mílanó
Tónlistarskólinn
í Reykjavík
Innritun stendur yfir
sjá tono.is
STJÓRN Hertz-bílaleigunnar
hefur ákveðið að hafist verði
handa við að fyrirtækið verði
vottað samkvæmt alþjóðlega um-
hverfisstaðlinum ISO 14001 í
upphafi ársins 2008.
Nú þegar hefur verið gengið
frá samningi við fyrirtækið UM-
ÍS ehf. – Environice um ráðgjöf í
tengslum við verkefnið. Hlutverk
Environice er að finna bestu
lausnina á hverjum tíma í sam-
vinnu við viðskiptavininn. Ráð-
gjafi Hertz í verkefninu er Anne
Maria Sparf umhverfisfræð-
ingur.
„Þegar hefur verið hafist
handa við verkefnið þar sem
Hertz mun í sumar taka inn í flot-
ann umhverfisvænan kost eða Toyota Prius sem er margverðlaun-
aður bíll á alþjóðlega vísu sem umhverfisvænn kostur. Jafnframt
hefur Hertz fest kaup á þremur vetnisbílum sem koma til landsins í
byrjun september á þessu ári. Þar með hafa nú þegar verið stigin
fyrstu skrefin í átt að umhverfisvænni bílaflota hjá Hertz á Íslandi,“
segir í fréttatilkynningu.
Anne Maria Sparf ráðgjafi Hertz,
ásamt Margréti Líndal markaðs-
og gæðastjóra og Björgvin Njáli
framkvæmdastjóra Hertz.
Hertz-bílaleigan í umhverfismálin