Morgunblaðið - 27.04.2007, Side 46

Morgunblaðið - 27.04.2007, Side 46
Þeir þóttu nú ekki spennandi slúðurefni fyrr en þeir lögðu leikfangalestinni og fóru að kíkja und- ir pilsfalda og ofan í bjórkrúsir… 50 » reykjavíkreykjavík SENN líður að Söngvakeppni og margir eflaust farnir að velta fyrir sér hvar þeir ætla að vera 10. og 12. maí næstkomandi. Undirbúningur er í fullum gangi í Helsinki og verið er að leggja lokahönd á dagskrá undankeppninnar sem og aðalkeppninnar. Strengjakvartettinn og heimamennirnir í Apocalyptica stíga á svið á úrslitakvöldinu og leika átta mínútna verk af nýjustu plötu sinni. Í sveitinni eru fjórir sellóleikarar, þeir Eicca Toppinen, Perttu Kivilaakso, Paavo Lötjönen og Mikko Sirén. Þeir hafa skap- að sér nafn með því að leika þungarokkslög á sellóin og þá sér- staklega eftir Metallica. Auk þeirra stíga heimamennirnir og greppitrýnin í Lordi á svið en þeir sigruðu í keppninni í fyrra. Keppnin verður haldin í Hartwell Arena, skammt frá miðborg Helsinki. Þátttökulöndin hafa aldrei verið fleiri eða 42. 28 lönd taka þátt í undankeppninni og þeirra á meðal eru tveir nýliðar, Georgía og Tékkland. Þar að auki keppa Serbar og Svartfellingar nú hvorir í sínu lagi. Jaana Pelkonen og Mikko Leppilampi verða kynnar í keppninni. Sú fyrrnefnda, Jaana, er þekkt andlit á finnskum sjónvarpsskjám en Mikko er nýliði í greininni. Hann útskrifaðist úr leiklistarskóla og gaf út sína fyrstu plötu í fyrra. Fjögur selló og greppitrýni Höllin Löndin 42 reyna með sér í söng í Hartwell Arena.Kynnarnir Jaana Pelkonen og Mikko Leppilampi.  Teiknimyndin Anna og skap- sveiflurnar vann til verðlauna á al- þjóðlegu teikni- myndahátíðinni Cartoons on the Bay á Ítalíu á dögunum. Verðlaunin, sem nefnast Pulc- inella, fékk Anna í flokki sjónvarps- mynda. Að sögn Hilmars Sigurðssonar, hjá Caoz, sem gerir myndina, voru upphaflega sendar 162 myndir inn í keppnina. Af þeim voru svo 40 til- nefndar í 8 flokkum. Anna má því vel við una þrátt fyrir glímuna við erfiða skapgerð. Það er Björk sem ljáir Önnu rödd sína en sagan er eftir Sjón. Skapstóra Anna sigurvegari á Ítalíu  Fyrir misgáning hjá vefversl- uninni iTunes í Bretlandi var Volta, væntanleg plata Bjarkar Guð- mundsdóttur, aðgengileg þar í nokkra tíma sl. þriðjudag, en hún á ekki að koma út fyrr en 9. maí næstkomandi. Mistökin áttu sér stað þegar myndband við fyrstu smáskífuna af plötunni, „Earth Int- ruders“, var frumsýnt á iTunes í til- efni af því að sala hófst á laginu. Óprúttnir voru snarir í snúningum við að afrita plötuna og dreifa á Netinu, en það eintak sem hefur farið um sem eldur í sinu er gallað því fyrstu fjögur lögin eru skemmd. Einhverjir hafa reynt að gera við lögin, en hljómgæði eru með minnsta móti að sögn þeirra sem heyrt hafa. Hægt er að kaupa plöt- una á vefsetrinu smekkleysa.is. Björk lekur Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „ÞETTA er svona lauslega þýtt, þetta þýðir eig- inlega „stóri hóllinn“,“ segir Lóa Hlín Hjálmtýs- dóttir um sýninguna La Grande Colline sem opn- uð var í 101 Gallery við Hverfisgötu í gær. Á sýningunni gefur að líta portrettmyndir af út- hverfabarónessum, smágreifum og ýmsu hefð- arfólki í Breiðholtinu. „Nafnið passar betur við fólkið en staðinn, þetta er hefðarfólk í blokk- arumhverfi,“ segir Lóa. „Þetta eru ekki endilega Breiðhyltingar heldur hálfgerðar skrípamyndir því þetta er ekki alveg raunsætt. Myndirnar eru meira í átt að teiknimyndasögum.“ Lóa segist vinna út frá stemningu og tilfinn- ingu, en hún notaði Breiðholtið sem ramma í þessu tilfelli. „Þetta eru myndir af því hvernig fólki líður, því líður mjög dramatískt en það passar ekki alveg við umhverfið. Umhverfið er mjög leiðinlegt þannig að þetta er meira tilfinn- ingalegt landslag,“ segir Lóa, en umhverfis fólk- ið má sjá félagsmálablokkir, hálftómar íbúðir og gróðurlausa auðn. Gott að búa í Breiðholti Aðspurð segir Lóa ekki beint um háð að ræða þótt vissulega megi greina nokkurn húmor í verkunum. „Ég bjó í Breiðholtinu og þetta er kannski svolítið grátbroslegt. Ég er ekki beinlín- is að gera grín að einhverju, nema kannski að sjálfri mér. Maður býr í blokk í Breiðholtinu en líður samt eins og frönskum greifa,“ segir Lóa sem ólst upp í Breiðholtinu og útskrifaðist úr FB. „Það var fínt að búa þarna þangað til ég varð eldri, þá passar maður ekkert inn í þetta ef mað- ur á ekki börn. En ég er alls ekki að gera grín að Breiðhyltingum, mér finnst ekkert hlægilegt við fólk sem býr í úthverfum,“ segir hún og bætir við að umfjöllunarefnið sé hvernig umhverfi og innri líðan fara ekki endilega saman. Lóa útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2003 og er þetta fyrsta stóra einkasýning henn- ar. Hún hefur meðal annars fengist við mynd- skreytingar auk þess sem hún er meðlimur í hljómsveitinni FM Belfast. La Grande Colline er opin þriðjudaga til laug- ardaga frá 14 til 17 og stendur yfir til 13. maí. Morgunblaðið/Sverrir Grátbroslegt „Ég bjó í Breiðholtinu og þetta er kannski svolítið grátbroslegt. Ég er ekki beinlínis að gera grín að einhverju, nema kannski að sjálfri mér.“ Hið franska Breiðholt Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir opnaði sína fyrstu einkasýningu í 101 Gallery í gær www.101hotel.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.