Morgunblaðið - 27.04.2007, Síða 50
50 FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Drengirnir hennar Díönu eruorðnir stórir og stæðilegir,gegna herþjónustu og hafa
áhuga á stelpum eins og sönnum
karlmönnum víst sæmir.
Nú er svo komið að Bretaprins-
arnir ungu hafa náð þeim aldri og
stað í lífinu að fjölmiðlar eru farnir
að sýna þeim aukinn áhuga, áhug-
inn var nú nægur fyrir enda um
ríkisarfa Bretlands að ræða en
þeir þóttu nú ekki spennandi slúð-
urefni fyrr en þeir lögðu leik-
fangalestinni og fóru að kíkja und-
ir pilsfalda og ofan í bjórkrúsir. Nú
flettir maður varla bresku slúður-
blaði án þess að þar sé umfjöllun
um Vilhjálm eða Harry. Áður fyrr
birtust reglulega myndir af þeim á
pólóleikjum eða góðgerðarsam-
komum og birtast slíkar myndir
enn en í minna mæli en myndir af
þeim að koma út af skemmtistað
eða með stelpu upp á arminn á al-
mannafæri.
Harry litli hefur þó alltaf veriðvinsælli hjá slúðurritunum en
Vilhjálmur, hann virðist vera meiri
gaur en eldri bróðir hans sem er
ábyrgðarfyllri enda líklega tilvon-
andi konungur Bretlands og hefur
því fleiri skyldum að gegna gagn-
vart titlinum.
Frægt varð fyrir nokkrum árum
þegar Harry fékk viðurnefnið
„Potter“ eftir að hafa verið staðinn
að því að reykja smá gras. Fjöl-
miðlar fengu áfall yfir því að prins-
inn sjálfur skyldi haga sér eins og
hvert annað breskt ungmenni. Síð-
an þetta var hefur fátt komið þeim
á óvart varðandi Harry en fjaðra-
fok varð þó fyrir tveimur árum
þegar hann mætti í nasistabúningi
í afmælisveislu vinar síns og þurfti
að biðja almenning afsökunar á
uppátækinu. Á forsíðu tímaritsins
Hello! um miðjan apríl mátti sjá
óskýra og illa tekna mynd af Harry
kyssa Chelsy kærustuna sína á
íþróttakappleik á Barbados þar
sem þau voru í fríi. Inni í blaðinu
er svo hver myndin á fætur annarri
af kossaflensi þeirra en Harry var
þarna að hitta Chelsy í fyrsta
skipti í sex vikur og var að kveðja
hana almennilega áður en hann
færi til herþjónustu í Írak.
Kærustumál Vilhjálms eru líkamikið í sviðsljósinu, það ætti
að vera flestum í fersku minni að
hann sleit nýlega sex ára löngu
sambandi við Kate Middleton öll-
um til mikillar furðu enda þótti
hún geta tekið við af Díönu heit-
inni sem prinsessa fólksins. Minja-
gripasalar voru byrjaðir að hanna
könnur og lyklakippur með þeim
saman og allir bjuggust við að þau
gengju upp að altarinu bráðlega en
svo verður nú ekki og segja fjöl-
miðlar að það hafi verið sjálf El-
ísabet drottning sem skipaði svo
fyrir að barnabarnið skyldi segja
þessari stúlku upp því hún vildi
ekki nýja Díönu innan hallarveggj-
anna. Kate þótti ekki henta prins-
inum ljúfa sem er víst ekki svo sak-
laus eftir allt saman því til hans
sást í sleik við aðra stúlku stuttu
seinna á skemmtistað, já, prinsar
hafa víst kynhvöt eins og aðrir.
Tímaritið Hello! gerir sér aftur
mat úr ástarmálum prinsanna og í
nýjasta tölublaðinu má sjá mynd af
Vilhjálmi og Kate á forsíðu og
margra blaðsíðna umfjöllun um
sambandsslitin inni í blaðinu þar
sem aðallega er verið að velta fyrir
sér hvers vegna þau hættu að vera
saman.
Í maíhefti Glamour kvenna-tímaritsins geta lesendur tekið
smápróf til að komast að því hvort
þeir spila í liði með Harry eða Vil-
hjálmi, fólk getur haldið með öðr-
um hvorum prinsinum eins og liði í
enska boltanum. Ef þú ert Vil-
hjálms-manneskja þá mætir þú
frekar með stóra hatta í búðkaups-
veislur og hlustar á James Blunt en
ef þú ert með Harry í liði finnst þér
allt í lagi að kela á almannafæri,
sama hversu gömul/gamall þú ert
og klukkan sex að morgni ferðu
frekar að sofa en á fætur. Ég hef
alltaf haldið meira upp á Harry en
Vilhjálm enda er hann rauðhærður
eins og ég og þeir sem tilheyra
minnihlutahópum í útrýming-
arhættu verða að standa saman.
Prinsarnir eru ungir enn, rétt að
byrja að átta sig á lífinu og tilver-
unni eftir verndað uppeldi innan
veggja halla og herrasetra. Það er
ekki að undra að þeir þurfi að
sletta smávegis úr klaufunum.
Fjölmiðlar munu samt alltaf gera
sér mat úr hverri hreyfingu þeirra,
hversu hversdagsleg sem hún er
enda mætti segja að þeir séu fædd-
ir almenningseign.
Heldur þú með Vilhjálmi eða Harry?
Reuters
Sæt saman Harry prins og kærasta hans, Chelsy Davy, á íþróttakappleik í byrjun apríl.
AF LISTUM
Ingveldur Geirsdóttir
»Harry litli hefur þóalltaf verið vinsælli
hjá slúðurritunum en
Vilhjálmur, hann virðist
vera meiri gaur en eldri
bróðir hans.
Kanna Af brúðkaupi Vilhjálms og
Kate verður víst ekki, minja-
gripasölum til mikillar vonbrigði.
ingveldur@mbl.is
Hve langt myndir þú ganga?
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
Stranglega bönnuð innan 18 ára!
eee
EMIPIRE
Þeir heppnu
deyja hratt
Next kl. 8 og 10 B.i. 14 ára
Shooter kl. 8 og 10:15 B.i. 16 ára
Perfect Stranger kl. 6 B.i. 16 ára
Úti er Ævintýri m/ísl. tali kl. 6
Next kl. 5.45, 8, og 10.15 B.i. 14 ára
Next LÚXUS kl. 5.45, 8, og 10.15
Pathfinder kl. 5.45, 8, og 10.15 B.i. 16 ára
The Hills Have Eyes 2 kl. 8, og 10.10 B.i. 18 ára
Perfect Stranger kl. 8, og 10.30 B.i. 16 ára
Úti er Ævintýri m/ísl. tali kl. 3.45
Sunshine kl. 5.50 B.i. 16 ára
TMNT kl. 4 og 6 B.i. 7 ára
Miðasala í Smárabíó og Regnbogann
Prentaðu sjálf(ur) út bíómiðann - Engar biðraðir
- Kauptu bíómiðann á netinu
HEIMSFRUMSÝNING
NICOLAS CAGE - JULIANNE MOORE - JESSICA BIEL
SÁ SEM SÉR FRAMTÍÐINA GETUR BJARGAÐ HENNI
EFTIR HÖFUND MINORITY REPORT OG BLADE RUNNER
GOÐSÖGNIN UM ÍSLENSKU VÍKINGANA LIFIR GÓÐU
LÍFI Í ÞESSARI KYNGIMÖGNUÐU HASARMYND!
Í KJÖLFAR 300 KEMUR PATHFINDER
TVEIR HEIMAR
LOKAORUSTAN
EITT STRÍÐ
ER HAFIN!